Morgunblaðið - 08.06.2001, Qupperneq 35
LISTIR/KVIKMYNDIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 35
Frumsýningar
PEARL HARBOR Bíóhöllin, Bíóborgin,
Kringlubíó, Nýja Bíó Keflavík,
Nýja Bíó Akureyri
Memento
Bandarísk. 2001. Leikstjórn og handrit:
Christopher Nolan. Aðalleikendur: Guy
Pierce, Carrie-Anne Moss, Joe Pantoliano.
Sérlega áhugaverð, um mann með ekkert
skammtímaminni. Frábærlega útsmogin og
úthugsuð, spennandi og fyndin. Bíóborgin.
Traffic
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Steven Sod-
erbergh. Handrit: Stephen Gaghan. Aðal-
leikendur: Michael Douglas, Benicio Del
Toro, Don Cheadle, Luis Guzman.Yfirgrips-
mikil, margþætt spennumynd um dóps-
myglið frá Mexíkó til Bandaríkjanna. Kong,
þó glædd mikilli frásagnargleði og flestir
kaflarnir trúverðugir í heimildarmyndarstíl.
Bíóborgin.
Blow
Bandarísk. 2001. Leikstjóri Ted Demme.
Handrit: Nick Cassavetes. Aðalleikendur:
Johhny Depp, Rachel Griffiths, Penelopé
Cruz. Látlaus, vel gerð og mjög áhugaverð
mynd um ævi umsvifamesta kókaínsmygl-
ara í Bandaríkjunum á áttunda áratugn-
um. Depp er góður að vanda, sömuleiðis
aðrir leikarar. Háskólabíó.
State and Main
Bandarísk. 2000. Leikstjórn og handrit
David Mamet. Aðalleikendur Alec Baldwin,
William H. Macy. Skondin og skemmtileg
mynd um þegar stjörnur ráðast inní
smábæ og setja allt á annan endann. Frá-
bær leikarahópur en Philip Seymour Hoff-
man er bestur. Háskólabíó, Regnboginn.
Spy Kids
Bandarísk. 2001. Leikstjóri og handrit:
Roberto Rodriguez. Aðalleikendur; Antonio
Banderas, Carla Gugino, Alan Cumming.
Ævintýraleg, spennandi og skemmtileg
mynd fyrir alla fjölskylduna. Stjörnubíó, Laugarásbíó, Regnboginn.
Crimson Rivers
Frönsk. 2000. Leikstjóri Matthieu Kassov-
itz. Handrit: Kassovitz og Jean-Christopher
Grange. Aðalleikendur: Jean Reno, Vincent
Cassell. Óhugnanlegur en spennandi,
franskur tryllir, sem er aðeins of ruglings-
legur en fínasta skemmtun. Stjörnubíó.
Kirikou og galdrakerlingin
Frönsk. 1998. Leikstjórn og handrit: Mich-
el Ocelot. Aðalraddir: Óskar Jörundarson,
Stefán Karl Stefánsson, Jóhanna Vigdís
Arnardóttir. Einfalt ævintýri um gott og illt í
frumskógum svörtustu Afríku. Góð fyrir
yngstu börnin. Regnboginn.
Miss Congeniality
Bandarísk. 2001. Leikstjórn: Donald Petr-
ie. Handrit: Mark Lawrence. Aðalleikendur:
Sandra Bullock, Benjamin Bratt, Michael
Caine. Prýðileg gamanmynd um FBI-löggu
sem tekur þátt í fegurðarsamkeppni gegn
vilja sínum. Bíóhöllin.
The Mummy Returns
Bandarísk. 2001. Leikstjórn og handrit:
Stephen Sommers. Aðalleikendur: Brend-
an Fraser, Rachel Weisz, John Hannah.
Múmían snýr aftur með miklum látum.
Ósvikin fjölskylduskemmtun með mögn-
uðum brellum. Háskólabíó, Bíóhöllin.
Nýi stíllinn keisarans –
The Emperor’s New Groove
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Mark Dindal.
Handrit: Thomas Schumacher. Það kveður
við nýjan tón í nýjustu Disneymyndinni,
sem fjallar um spilltan keisara sem breyt-
ist í lamadýr og lærir sína lexíu. Bráðfynd-
in mynd fyrir börn og fullorðna. Bíóhöllin, Regnboginn.
Along Came a Spider
Bandarísk. 2001
Leikstjóri Lee Tamahori. Handrit: Marc
Moss. Aðalleikendur: Morgan Freeman,
Monica Potter, Michael Wincott. Snyrtilega
gerð glæpamynd um mannrán og mistök.
Vel leikin af Freeman en ótrúverðug, með
ógnarlega möskvastærð. Háskólabíó, Laugarásbíó.
Janice Beard
Bresk. 1999. Leikstjórn og handrit: Claire
Kilner. Aðalleikendur: Eileen Walsh, Rhys
Ifans, Patsy Kensit. Væn og sæt grínmynd
sem mætti vera fyndnari, um Janice sem
lifir í eigin heimi. Fín saga en ekki nógu
vel leikstýrt. Háskólabíó.
See Spot Run
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: John White-
sell. Handrit: William Kid. Aðalleikendur:
David Arquette, Michael Clarke Duncan.
Meinlaus barnamynd um hressan bolabít
og heimska tvífætlinga, ástir og uppeldis-
mál. Dágóð til síns brúks. Bíóhöllin, Kringlubíó.
Someone Like You
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Tony Goldwyn.
Handrit: Elizabeth Chandler. Aðalleikend-
ur: Ashley Judd, Greg Kinnear, Hugh Jack-
man. Þokkalega gerð og vel leikin en efn-
islega villuráfandi kvennamynd. Bíóhöllin, Regnboginn.
Exit Wounds
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Andrzej Bartk-
owiak. Handrit Martin Keown. Aðalleik-
endur: Steven Seagal, DMX. Hasarmynd
með Seagal og hefur öll hans helstu per-
sónueinkenni: Beinbrot, bílaeltingaleiki,
osfrv. Bíóhöllin.
Say It Isn’t So
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: J.B. Rodgers.
Handrit: Peter Gaulke. Aðalleikendur Chris
Klein, Heather Graham, Sally Field. Aula
gamanmynd í anda Farrellybræðra en nær
ekki markmiði sínu. Stjörnubíó.
Get Over It
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Tom O’Haver.
Handrit: R. Lee Fleming Jr. Aðalleikendur:
Kirsten Dunst, Bill Foster, Sisgo. Mis-
heppnuð unglingamynd með aulahúmor.
Leikararnir ágætir en bjarga engu.
Regnboginn.
Pokémon 3
Bandarísk 2001. Leikstjóri Michael Haig-
ney. Handrit Haigney og Norman Gross-
feld. Þriðja Pokémon myndin er einsog
þær fyrri; realísk stuttmynd kemur á undan
háskaævintýrinu þar sem Pokémonar berj-
ast og Ash bjargar málunum. Óaðlaðandi
og óspennandi að öllu leyti.
Bíóhöllin, Kringlubíó.
Tomcats
Bandarísk. 2001. Leikstjórn og handrit:
Gregory Poirier. Aðalleikendur: Shannon
Elizabeth, Jerry O’Connell, Jake Busey.
Nokkrir vinir veðja um hver verður síðastur
að kvænast. Er tveir standa eftir, hefst
mikill hamagangur á Hóli. Heldur klént,
alltsaman.
Laugarásbíó.
Sweet November
Leikstjóri: Pat O’Connor. Handrit: Herman
Raucher. Aðalleikendur: Keanu Reeves,
Charlize Theron. Afleit óraunsæisvella um
hrokagikk og dauðvona fegurðardís sem
gerir úr honum mann. Er hægt að óska sér
einhvers betra? ½
Bíóhöllin.
Valentine
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: James
Blanks. Handrit: Tom Savage. Aðalleikend-
ur: Denise Richards, David Boreans. Hrylli-
lega óspennandi hryllingsmynd með rétt-
dræpum persónum. ½
Kringlubíó.
Bíóin í borginni
Sæbjörn Valdimarsson/Arnaldur Indriðason/Hildur Loftsdóttir
Michael Douglas í Traffic.
FRIÐSÆLAN sunnudagsmorgun í
desember árið 1941 réðust japanskar
árásarflugvélar á flotastöð Banda-
ríkjanna í Perluhöfn eða Pearl Har-
bor. Árásin varð til þess að Banda-
ríkjamenn urðu beinir þátttakendur í
síðari heimsstyrjöldinni.
Í bandarísku stórmyndinni Perlu-
höfn, sem frumsýnd er í fjölda kvik-
myndahúsa í dag, segir frá árás Jap-
ana á Pearl Harbor og atburðunum
lýst frá sjónarhóli tveggja ungra flug-
manna (Ben Affleck og Josh Harnett)
og hjúkrunarkonu (Kate Beckinsale)
og greint frá því hvernig þau upplifa
árás Japananna. Framleiðandi mynd-
arinnar er einn fremsti framleiðand-
inn í Hollywood, Jerry Bruckheimer,
en leikstjóri er Michael Bay, sem áð-
ur hefur unnið með framleiðandanum
m.a. við gerð Armageddon. Handrits-
höfundur er Randall Wallace.
Perluhöfn er ein dýrasta mynd
sögunnar en Bruckheimer sparaði
ekkert til þess að koma sögu sinni til
skila á hvíta tjaldið. „Árásin á Perlu-
höfn er einn af afdrifaríkustu atburð-
unum í sögu Bandaríkjanna,“ er haft
eftir honum. „Hún er ein af hörmu-
legustu atburðum sögu okkar en
minnir okkur einnig á að við getum
risið upp úr rústunum og orðið sig-
urvegarar.“
„Þessi mynd er ólík öllum öðrum
sem ég hef gert,“ segir Bruckheimer.
„Þótt á yfirborðinu fjalli hún um vin-
skap og ást þriggja einstaklinga er
hún alvarlegt verk um menn sem lifðu
á þessum viðsjárverðu tímum. Árásin
á Perluhöfn þjappaði bandarísku
þjóðinni saman. Við vorum ekki búin
undir styrjaldarátök. Drengir urðu að
karlmönnum á einni nóttu og ekkert
varð eins og áður.“
„Ég hefði ekki tekið hlutverkið að
mér ef hér væri aðeins á ferðinni ein-
faldur áróður,“ segir Ben Affleck.
„Við reyndum að vera sanngjörn og
heiðarleg. Japönum er lýst sem heið-
virðu fólki. Þeim fannst þeim vera
ógnað af Bandaríkjunum og þeir
gerðu það sem þeir töldu sig þurfa.“
Affleck var sendur ásamt öðrum
leikurum í herbúðir þar sem þeir
gengu í gegnum stranga þjálfunar-
dagskrá svo þeir kynntust því að
nokkru hvað felst í þjálfun hermanna
og því að vera hermaður. Einnig las
Affleck sér til um atburðina í desem-
ber 1941. Hann ræddi við sagnfræð-
inga, tæknilega ráðgjafa og herfræð-
inga sem unnu við gerð myndarinnar.
Leikstjórinn Bay stýrði Affleck
einnig í Armageddon og segir að
hann hafi aldrei leikið betur en í
Perluhöfn. „Honum eru allir vegir
færir.“
Leikarar: Ben Affleck, Josh Harnett, Kate
Beckinsale, Alec Baldwin, Jon Voight,
Cuba Gooding, Dan Akroyd og William
Lee Scott. Leikstjóri : Michael Bay.
Árásin á Perluhöfn
Bíóhöllin, Bíóborgin, Kringlubíó, Há-
skólabíó, Nýja bíó Keflavík, Nýja bíó
Akureyri og fleiri frumsýna bandarísku
stórmyndina Pearl Harbor með
Ben Affleck.
Reuters
Óskarsverðlaunahafinn Cuba Gooding stendur í ströngu í Pearl Harbor.
BARNAMYNDIR um hunda eru
yfirleitt hið besta mál, ekki síst hér,
innan hundfjandsamlegra borgar-
markanna. Aðalsöguhetjan, Depill
(Spot), er virðulegur lögregluhundur
í þjónustu FBI, Alríkislögreglunnar.
Fullgildur spæjari, #11, félagi lögg-
unnar Murdoch (Michael Clarke
Duncan), í eilífri baráttunni við und-
irheimalýðinn.
Þeir félagar eru einmitt á kafi í
slíkum slag í myndarbyrjun, þegar
Depill verður fullkjaftagleiður og
bítur undan mafíósanum Sonny
(Paul Sorvino). Sonny vill drepa
hundspottið í hefndarskyni og sendir
tvo leigumorðingja til að framkvæma
verknaðinn. Örlögin haga því svo að
Depill lendir ekki í felum í Alaska,
einsog Murdoch kemur til leiðar,
heldur hjá Gordon (David Arquette),
hálfvönkuðum póstburðarmanni, og
drengstaulanum James (Angus T.
Jones), sem hann gætir þessa dag-
ana fyrir hinn íturvaxna nágranna
sinn, fröken Stefaníu (Leslie Bibb).
Fislétt fjölskyldufóður og telst
vitaskuld allt annað en vitsmunalegt
á nokkurn hátt. Myndin er röð af
misfyndnum uppákomum, sem sjálf-
sagt höfða þokkalega til óvita og þol-
inmóðra foreldra, sem vita af dýr-
keyptri reynslu, að auðvelt er að
lenda í mun verri hremmingum en
þessum í þrjúbíó. Unglingahroll-
vekjuleikarinn Arquette, sýnir
þokkalegan skrípaleik, líkt og snáð-
inn Angus, tilburðir þeirra minna þó
full mikið á Adam Sandler og dreng-
staulann í Big Daddy. Sem höfundar
See Spot Run hafa séð einum of oft.
Michael Clarke Duncan, sem var
ómissandi burðarás í The Green
Mile, og er í fylkingarbrjósti barda-
gaapa í Planet of the Apes, seinna í
sumar, á góða spretti, líkt og Paul
Sorvino, sem virðist gera sér uppsóp
sem þetta að góðu.
Hundspottið Depill
KVIKMYNDIR
B í ó h ö l l i n . K r i n g l u -
b í ó , H á s k ó l a b í ó
Leikstjóri og handritshöfundur
John Whitesell. Aðalleikendur Dav-
id Arquette, Michael Clarke Dunc-
an, Leslie Bibb, Angus T. Jones,
Paul Sorvino. Sýningartími 90 mín.
Bandarísk. Warner Bros. 2001.
SEE SPOT RUN Sæbjörn Valdimarsson
ÞAÐ er oft svo að fyrsta verk höf-
undar er sjálfsævisögulegt að miklu
leyti. Einhvern veginn grunar mig að
svo sé því farið með þessa fyrstu
mynd leikstjórans Clare Kilner. Þar
segir frá Janice, sem alla tíð hefur
spunnið upp sögur til að vekja áhuga
veikrar móður sinnar á umheimin-
um. Ekki gengur það þó nógu vel og
dag einn, þegar Janice er orðin full-
vaxta, heldur hún af stað út í hinn
stóra heim að afla peninga fyrir hinni
einu sönnu lækningu á móðurinni
heittelskuðu, sem hefur legið í rúm-
inu frá því eiginmaðurinn lést úr
hjartaáfalli við fæðingu dótturinnar.
Þessi grínmynd er ósköp sæt og
væn í sínum ævintýrastíl. Janice
lendir í ýmsum ævintýrum sem hún
að lokum kemst klakklaust út úr
vegna þess hvað hún er góð, hug-
myndarík og samkvæm sjálfri sér.
Einnig sigrast hún á vonda mann-
inum og fær hann til að iðrast synda
sinna, köttur úti í mýri …
Sem grínmynd hefði Janice Beard
mátt vera fyndnari, þótt klaufaskap-
ur og hugmyndaauðgi stúlkunnar
gefi, já, á stundum ástæðu til að
skella upp úr. Hugmyndirnar eru
margar mjög góðar og handritið hef-
ur áreiðanlega verið skemmtilegt af-
lestrar þótt það sé ekki fullkomið.
Leikstjórnin er hins vegar svolítið
klaufaleg og ber öll merki ágætrar
útskriftarmyndar.
Leikararnir eru fínir og leikkonan
Eileen Walsh er mjög sannfærandi í
aðalhlutverkinu. Hún hefði eflaust
getað gert enn betri hluti með betra
hlutverki, og sama verður að segjast
um framlag Patsy Kensit, sem leikur
frekar súran yfirritara á nýja vinnu-
staðnum hennar Janice. Þar vinnur
líka sendillinn Sean sem Janice fellur
fyrir, leikinn af Rhys Ifans, sem nú
er orðinn þekktur fyrir sína kómísku
hæfileika, en þessi mynd var gerð
strax á eftir Notting Hill. Hann er
alltaf jafn fínn, en gaman hefði verið
að sjá hann fá að njóta sín betur.
Það er eitthvað ósköp elskulegt við
Janice og sögu hennar í heildina, og
kannski að Clare Kilner hefði átt að
geyma hugmyndina þar til hún næði
betri tökum á miðlinum. En það
gerði hún ekki, svo þeir, sem þyrstir í
öðruvísi mynd, geta hitt Janice hina
draumlyndu í Háskólabíói.
Köttur úti í mýri
KVIKMYNDIR
H á s k ó l a b í ó
Leikstjórn: Clare Kilner. Handrit:
Ben Hopkins og Kilner. Aðal-
hlutverk: Eileen Walsh, Rhys Ifans,
Patsy Kensit, Frances Gray og
Sandra Voe. 81 mín. Dianphana
Films 1999.
JANICE BEARD Hildur Loftsdótt ir