Morgunblaðið - 08.06.2001, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 08.06.2001, Qupperneq 36
KRISTJANA Helgadóttir þverflautuleikari heldur tónleika í Mosfellskirkju í Mosfellsdal á sunnudag, kl. 17. Þar verða flutt ein- leiksverk eftir Jón Nordal, Henri Tomasi, Kazuo Fukushima, G. Ph. Tele- mann, André Jolivet og Jean Francaix. Kristjana lauk námi hjá Bernharði Wilkinson við Tónlistarskólann í Reykjavík 1995 og fór það- an í Sweelinck Conservatorium van Amsterdam þar sem hún lauk UM (Uitvoerend Musicus) gráðu 1998 auk eins árs námi í samtíma- tónlist frá sama skóla. Kennarar hennar þar voru Abbie de Quant og Harry Starreveld. Kristjana hefur verið virk í tónleikahaldi hér á landi sem erlendis bæði sem einleikari og í hljóm- sveitum. Tónleikarnir eru styrkt- ir af Mosfellsbæ og er að- gangur ókeypis. Flaututónleikar í Mosfellskirkju Kristjana Helgadóttir Gíslasonar, þáverandi menntamál- ráðherra, og þótt sjóðurinn hafi gengið í gegnum margvíslegar hremmingar og erfiðleika þá fjóra áratugi, sem hann hefur starfað, hefur hann smám saman vaxið og dafnað og er nú öflugri en nokkru sinni fyrr. Þá hefur hlutverk hans einnig aukist og veitir hann nú nem- endum í öðru námi en háskólanámi einnig stuðning. Bókin, sem hér er til umfjöllunar, er samin að tilhlutan stjórnar LÍN og rekur sögu sjóðsins frá upphafi og til loka ársins 2000. Öll er sú saga rækilega og skilmerkilega sögð. Höfundur rekur sögu sjóðsins á greinargóðan hátt, skýrir frá laga- setningu um starfsemi hans á ýms- um tímum, stjórnum og vinnu- reglum, segir frá samskiptum við viðskiptavini og ræðir ýtarlega og skýrir þá erfiðleika sem oft hlutust af óstöðugleika og ókyrrð í íslensku efnahagslífi á 7. og 8. áratugnum. Þá reið hver holskeflan af annarri yfir sjóðinn, stjórnendur hans, starfsfólk og viðskiptavini og urðu öllum til angurs og vandræða. Stundum héldu útlánareglur ekki vegna óstöðugleikans, en urðu úreltar áður en þær komst til framkvæmda, og fyrir kom að stjórnvöld gripu til ráðstafanasem komu illa við alla sem að málefnum sjóðsins komu. Þessi bók er athyglisverð fyrir ýmissa hluta sakir. Hér er í fyrsta skipti, svo mér sé kunnugt, rakin saga opinberrar námsaðstoðar á Ís- landi og er að því góður fengur. Endalaust má deila um hve mikil slík aðstoð eigi að vera, í hvaða formi, hverjir eigi að njóta hennar – jafnvel hvort hún eigi yfirleitt að vera fyrir hendi. Þar er vitaskuld komið að grundvallarspurningu en nú munu flestir sammála um að námsaðstoð, og hún heldur rausn- arleg, verði að vera í boði ef þjóðin á annað borð eigi að njóta menntunar á sama hátt og nágrannaþjóðir. Í annan stað þykir mér þessi bók athyglisverð fyrir þá sök að hér er saga fjármálastofnunar og þýðingar hennar í þjóðlífinu brotin til mergj- ar. Allt of lítið hefur hefur verið gert af slíku í íslenskri söguritun fram til þessa og engu líkara en menn hafi á stundum verið ragir við að fást við peningasögu sem svo má kalla. Von- andi boðar þessi bók betri tíð í þess- um efnum en saga fjármálastjórnar og fjármálalífs hlýtur að vera einn undirstöðuþátturinn í þjóðarsög- unni. Hér á landi er sá þáttur að mestu leyti órannsakaður enn. Eins og vænta má um rit frá hendi þessa höfundar er þetta ágæt- lega samið. Hann kemur efninu vel til skila og sýnir glöggt hve miklu hlutverki LÍN hefur gegnt í ís- lensku menntalífi undanfarna ára- tugi. Mun þá sönnu nær að flestir þeirra sem viðskipti hafa átt við sjóðinn eigi honum nokkuð gott upp að inna, líka þeir sem á stundum hafa bölvað honum hástöfum. Í UPPHAFI þessarar læsilegu bókar gerir stuttlega grein fyrir að- stöðu þeirra er fóru í skólanám, heima og erlendis, á fyrri öldum og tekur námsögu Hannesar Þorsteins- sonar, síðar þjóðskjalavarðar, sem dæmi um fátækan alþýðupilt sem „braust til mennta“, eins og það var stundum kallað. Víst er saga Hann- esar harla sérstök, ekki síst fyrir þá sök að hann var svo lánssamur að skólasveinar við Lærða skólann í Reykjavík buðust til að greiða götu hans. Ef ekki hefði komið til þeirrar óvenjulegu námsaðstoðar er næsta víst að Hannes hefði aldrei í skóla komist, hvað þá í langskólanám. Í hópi stuðningsmanna Hannesar hef- ur að öllum líkindum verið annar bláfátækur sveitapiltur sem kostaði sig sjálfur til náms, lauk stúdents- prófi og síðar dopktorsprófi frá Hafnarháskóla og starfaði lengst af við þá stofnun, dr. Valtýr Guð- mundsson. Sögu þessara tveggja manna má hafa sem dæmi um fátæka sveita- pilta sem „brutust til mennta“ í bók- staflegri merkingu. Þeir voru á hinn bóginn engan veginn dæmigerðir fyrir þá Íslendinga sem gengu menntaveginn á þessum tíma eða fyrr, og reyndar ekki fyrir fyrri heimsstyrjöld. Þeir sem áttu kost á skólagöngu á þeim tíma voru flestir synir embættismanna eða efnafólks, eða nutu stuðnings velmegandi ætt- ingja. Engin opinber námsaðstoð var fáanleg á þessum tíma önnur en fátækleg skólaölmusa og svo Garð- styrkur þegar til Kaupmannahafnar var komið. Að öðru leyti varð fólk að kosta nám sitt sjálft og það var ekki á færi nema örfárra. Friðrik G. Olgeirsson gerir að minni hyggju rétt í því að fjalla stuttlega um aðstæður íslenskra námsmanna á fyrri tíð í inngangi þessarar bókar. Opinber námsað- stoð er í sjálfu sér ekki sjálfgefin, þótt margir virðist nú líta svo á, og spurning hvort ekki hefði mátt fjalla ýtarlegar um aðstæður á fyrri tíð, þó ekki væri nema til þess að sýna enn skýrar hver bylting hefur orðið í þessum efnum á 20. öld. Með stofnun Háskóla Íslands árið 1911 tók fyrst að örla á því að stúd- entar ættu kost á styrkjum og síðar lánum meðan á námi stóð. Sú aðstoð kom vissulega mörgum vel en var þó afar takmörkuð, nánast í skötu- líki, og það var ekki fyrr en með stofnun Lánasjóðs stúdenta árið 1952 að umtalsverð hreyfing komst á þessi mál. Sá sjóður starfaði til 1961. Þá var LÍN stofnaður, ekki síst fyrir forgöngu dr. Gylfa Þ. BÆKUR S a g n f r æ ð i – Námslán og námsstyrkir á 20. öld eftir Friðrik G. Olgeirsson. LÍN, Reykjavík 2001. 253 bls., myndir, töflur, línurit. LÁNASJÓÐUR ÍS- LENSKRA NÁMSMANNA Lánasjóður í fjörutíu ár Jón Þ. Þór Morgunblaðið/Auðunn Arnórsson Ritstjóri Fregna, Sjúrður Skalle (lengst t.v.) ásamt nokkrum úr Fregna-teyminu. Uni Arge hallar sér fram á borðið en standandi eru Jonhard Mikkelsen, Andrass Samuelsen og Eva Brekkstein. RITSTJÓRI Fregna er Sjúrður Skaale, en hann hefur víðtæka reynslu úr blaðamennsku í Færeyj- um. Hann hóf þann feril á fréttastofu færeyska sjónvarpsins, síðan var hann um skeið á ritstjórn Dimma- lætting, stærsta dagblaðs Færeyja, þá á Sosialurin, næststærsta dag- blaðinu, en síðustu tvö árin, fram í janúar á þessu ári, starfaði hann sem blaðafulltrúi færeysku landstjórnar- innar. „Við sem stofnuðum þetta blað settum okkur að markmiði að stunda gæðablaðamennsku, en við þær að- stæður sem fjölmiðlar búa hér í Fær- eyjum er erfitt að gera það á dagblaði sem þarf að koma út á hverjum degi. Þess vegna varð það úr að Fregnir varð vikublað,“ segir Sjúrður í sam- tali við Morgunblaðið. Flokkspólitísk tengsl reynt á þolrifin En hver var kveikjan að því að ráð- izt var í útgáfu Fregna? Sjúrður út- skýrir: „Hin flokkspólitísku tengsl færeysku dagblaðanna hafa að mínu mati reynt mjög á þolrifin, einkum og sér í lagi eftir að landstjórnin sem nú situr tók við stjórnartaumunum fyrir rúmum þremur árum og setti stefn- una á sjálfstæði. Stærsta dagblaðið, Dimmalætting, hefur að vísu svo að segja óháða ritstjórn, en blaðið á sér djúpar rætur í Sambandsflokknum og það kemur fram í leiðaraskrifum þess. Og hitt blaðið, Sosialurin, er flokksmálgagn Jafnaðarmanna- flokksins. Þessir flokkar, Sam- bandsflokkurinn og Jafnaðarmanna- flokkurinn, eru í stjórnarandstöðu og berjast báðir gegn sjálfstæðisstefnu landstjórnarinnar. Það er ekki sízt þetta ástand á blaðamarkaðnum sem kallaði á nýtt blað sem gæti verið vettvangur vandaðrar blaðamennsku þar sem sjónarmið sjálfstæðissinna fengju að njóta sín betur. Við töldum að það væri markaður fyrir slíkt blað hér.“ Sjúrður segir 25 aðila standa að út- gáfufélagi Fregna, flestir séu þeir færeyskir athafnamenn sem hafi deilt þeirri skoðun með ritstjóranum að skapa þyrfti vettvang fyrir sjón- armið sjálfstæðissinna. Nú eru komin út tíu tölublöð og segir Sjúrður upplagið vera í kring um 4.000; blaðið rati inn á um fjórð- ung allra heimila í Færeyjum. Stefnt sé að því að áskrifendur verði að minnsta kosti 1.600. Til samanburðar má geta þess að hinu rótgróna Dimm- alætting er dreift í 9.000 eintökum. Íbúar Færeyja eru nú um 46.000. Dagblaðið, flokksmálgagn Þjóðar- flokksins, flokks Anfinns Kallsberg lögmanns Færeyja, kemur út viku- lega en það má muna sinn fífil fegurri, að minnsta kosti hefur það lítið skoð- anamyndandi vægi í hinni opinberu umræðu í Færeyjum, ólíkt Sosialurin og Dimmalætting. Önnur blöð sem gefin eru út í Færeyjum eru Oyggja- tíðindi sem kemur út tvisvar í viku, Norðlýsið sem kemur út vikulega í Klakksvík, og FF/FA-blaðið, sem flytur fréttir af sjávarútvegsmálum og kemur út hálfsmánaðarlega. Fastir blaðamenn ritstjórnar Fregna eru fjórir, en blaðinu berst líka reglulega efni frá fleiri lausa- pennum, að sögn Sjúrðar. Meðal föstu blaðamannanna er Uni Arge, sem á Íslandi er betur þekktur fyrir knattspyrnulistir sínar. Burðarefnið er niðurstöður nýrra sagnfræðirannsókna Meðal burðarefnis í fyrstu tölu- blöðum Fregna eru niðurstöður sagnfræðilegra rannsókna á atburða- rásinni í kring um þjóðarat- kvæðagreiðsluna árið 1946, þegar kosið var um tillögu dönsku stjórn- arinnar um heimastjórnarlögin, sem enn þann dag í dag er stjórnskipunar- legur grundvöllur þeirra sjálfstjórn- arréttinda sem Færeyingar þó njóta. Þessi atkvæðagreiðsla fór þannig, að naumur meirihluti felldi tillöguna, en hún var ekki talin bindandi þannig að heimastjórnarlögin tóku gildi engu að síður. Lögþingið var leyst upp og þingmennirnir sendir heim. Meðal þess sem þessar sagnfræðirannsókn- ir leiddu í ljós er að Danir voru jafn- vel undir það búnir að beita hervaldi til að halda í skefjum þeim Færeying- um sem þá beittu sér hvað mest fyrir sambandsslitum. Þessar og fleiri æsilegar uppljóstr- anir úr færeyskri stjórnmálasögu hafa skapað Fregnum áberandi sess í opinberri umræðu í Færeyjum. Og ritstjórinn er bjartsýnn á að blaðinu takist að halda þessum dampi og halda áfram að gegna virku skoðana- myndandi hlutverki í Færeyjum. Lögþingskosningar verða vorið 2002 og má því bóka að á næstu mán- uðum muni fara að hitna í kolunum í hinum pólitísku átökum fylkinganna tveggja, sjálfstæðis- og sam- bandssinna. Þegar kosningar nálgast má gera ráð fyrir að þrýstingur auk- ist á flokkstengdu blöðin að fylgja gefinni flokkslínu og hyggur ritstjóri Fregna að þessar aðstæður skapi blaði sínu ótvíræð sóknarfæri. Heimasíðu Fregna er að finna á vefslóðinni: www.fregnir.fo, en með þeim takmarkaða mannafla sem blað- ið hefur yfir að ráða hefur ekki reynzt unnt að byggja upp virka netfrétta- síðu enn sem komið er. Vikuritið Fregnir hristir upp í blaðaflóru Færeyja Sjálfstætt málgagn sjálfstæðissinna Forsíða þriðja tölublaðs Fregna frá 20. apríl sl. Fyrir tveimur mánuðum hóf göngu sína í Þórs- höfn í Færeyjum viku- blaðið Fregnir sem, að sögn Auðuns Arnórs- sonar, hefur með metn- aðarfullri blaðamennsku náð að hrista upp í fjöl- miðlalandslagi Færeyja. FJÖLMIÐLUN 36 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ STYR hefur staðið um svokallað raunveruleikasjónvarp í Noregi í vor. Forstjóra sjónvarpsstöðvar- innar TVNorge var nýlega sagt upp störfum, m.a. vegna andstöðu hans við að taka til sýninga banda- rísku þáttaröðina „Temptation Isl- and“ þar sem barnlausum pörum eða hjónum er safnað saman á Suð- urhafseyju og freistað til framhjá- halds. Dagskrárstjóri TVNorge hefur nú sagt upp störfum hjá sjónvarps- stöðinni vegna þess að hann vill ekki bera ábyrgð á útsendingu hinnar umdeildu þáttaraðar. Dag- skrárstjórinn, Eivind Landsverk, vann náið með fyrrverandi for- stjóra, Pål Trælvik, og segir það eðlilegt framhald að hann láti sjálf- ur af störfum. Nýlega lauk þáttaröðinni Big Brother á TVNorge, en þátturinn naut gríðarlegra vinsælda, en var jafnframt umdeildur eins og í fleiri löndum. Það sem vakti hvað mesta athygli var hve frjálslega þátttak- endur höguðu sér undir sívökulu auga myndavélanna. Þegar innan við mánuður var liðinn af þriggja mánaða dvöl tíu manna hóps í hús- inu, voru tvö pör farin að lifa þar kynlífi. Deilur um raunveruleikasjónvarp Ósló. Morgunblaðið. LISTIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.