Morgunblaðið - 08.06.2001, Side 53
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 53
SFR félagar
Sterk verkal‡›shreyfing er forsenda fless a›
unnt sé a› tryggja réttindi einstaklinga og
sækja fram í flágu mannréttinda fyrir launafólk.
Vi› hvetjum til sóknar fyrir hugsjónir
verkal‡›shreyfingarinnar.
fiátttaka flín skiptir máli!
Sækjum fram, bætum
samfélagsfljónustu!
Vi› Íslendingar erum sammála:
X
Y
Z
E
T
A
/
S
ÍA
OPIÐ:
Mánud. - föstud. kl. 9-18, laugard. kl. 10-14
Við Fellsmúla
Sími 588 7332
- trygging fyrir l
águ verði!
H
ön
nu
n
&
u
m
b
ro
t
eh
f.
©
2
00
0
–
D
V
R
06
9
TILBOÐSum
ar
Kr. 29.500,- stgr.
Handlaug á vegg.
Stærð 55 x 43 cm.
Roca Group, stærsti hreinlætis-
tækjaframleiðandi í Evrópu, tryggir
sama litatón á öllum tækjum.
Baðkar
170 x 70 cm.
Innifalið í tilboði
Salerni með stút
í vegg eða gólf
Vönduð, hörð ABS seta
og festingar fylgja.
AÐ greinast með
krabbamein er oft
upphafið á löngu og
sársaukafullu ferli.
Meðferðin getur verið
erfið og langvinn. Við
langar sjúkrahúslegur
verða talsverðar
breytingar á lífi ein-
staklingsins. Óvissu-
ástand um sjúkdóms-
ferlið hefur í för með
sér andlegt álag og
töluverða röskun á
ýmsum félagslegum
athöfnum. Margir sem
greinast með krabba-
mein, þurfa með-
höndlun svo mánuðum og árum
skiptir. Eftir útskrift af sjúkrahúsi
tekur oft við erfitt tímabil, þegar
einstaklingurinn þarf að takast á
við lífið á nýjan leik. Að lifa við
breyttar aðstæður getur tekið á,
bæði andlega og líkamlega og
margir finna fyrir orkuleysi og ein-
manaleika. Í mörgum tilfellum
kemst einstaklingurinn í gegnum
þetta ferli af eigin rammleik eða
með aðstoð fjölskyldu og vina, en
margir þurfa á sérhæfðri þjónustu
að halda.
Að efla iðju
Sérhæfð endurhæfing fyrir
krabbameinssjúka er brýnt verk-
efni. Þar þurfa margar starfstéttir
að vinna sameiginlega til að veita
bestu mögulegu þjónustu fyrir
hinn krabbameinssjúka. Iðjuþjálf-
ar búa yfir sérþekkingu til eflingar
iðju. Með iðju er átt við allt sem
einstaklingurinn tekur sér fyrir
hendur í samfélaginu, hefur til-
gang fyrir hann sjálfan og kemur
öðrum til góða. Veikindi eins og
krabbamein koma oft í veg fyrir að
fólk geti stundað daglega iðju.
Þegar færni minnkar er hætt við
að sjálfstraust dvíni og sjálfsmynd
geti breyst til hins verra. Það get-
ur síðan leitt til kvíða og depurðar.
Haft er að leiðarljósi að hver og
einn er einstakur og þess vegna
þarf skipulagning endurhæfingar
að byggjast á samvinnu við ein-
staklinginn. Virðing er borin fyrir
ákvarðanatöku hans og reynsla
hans og þekking viðurkennd. Iðju-
þjálfinn hvetur og styður einstak-
linginn í gegnum þjónustuferlið.
Áhersla er lögð á samspil einstak-
lings, umhverfis og iðju. Iðjuþjálf-
inn hjálpar einstaklingnum að nýta
þá styrkleika sem hann býr yfir og
þau úrræði sem eru í umhverfinu.
Með því að taka sjálfur ýmsar
ákvarðanir um eigið líf og iðju,
upplifir einstaklingurinn að hann
hafi stjórn á tilveru sinni. Í upp-
hafi endurhæfingarferlis er mik-
ilvægt að einstaklingurinn setji sér
raunhæf markmið. Ákveða þarf
fyrirfram hæfilega stór skref í átt
að árangursmarki. Áætlunin verð-
ur að vera í samræmi við gildi, trú
og vonir einstaklingsins.
Á endurhæfingareiningu fyrir
krabbameinssjúka
þarf að leitast við að-
skapa aðstæður þar
sem andrúmsloft er
notalegt og gagn-
kvæm virðing milli
skjólstæðinga og
starfsfólks. Umhverf-
ið má ekki líkjast því
sem gerist á sjúkra-
húsi. Endurhæfingin
byggist bæði á hóp-
astarfi og einstak-
lingsþjálfun með það
að markmiði, að auka
færni viðkomandi
þegar heim er komið.
Gera þarf ítarlegt mat
á því hvaða iðja er mikilvægust
fyrir hvern og einn og hvaða leiðir
eru ákjósanlegastar til að ná settu
marki. Hópastarf eflir félagsleg
tengsl og skapar oft samvinnu og
samhug. Þar gefst fólki tækifæri
til að skiptast á skoðunum, þiggja
stuðning frá öðrum og gefa á móti.
Einstaklingi getur fundist hann
vera einn með óbærileg vandamál
og hugsanir og því er það oft mikill
léttir og stuðningur að vita að aðr-
ir eru að ganga í gegnum það
sama. Hópastarf í iðjuþjálfun get-
ur verið af ýmsum toga. Dæmi um
það er verkstæðisvinna, þar sem
hver og einn nýtir sköpunargáfu
sína og styrkir um leið líkamlega
og andlega getu.
Að efla þrek
og styrk
Margir krabbameinssjúkir vilja
breyta mataræði. Þjálfunareldhús
iðjuþjálfunar er góður vettvangur
fyrir þá sem það velja. Þar geta
fleiri unnið saman og útbúið mál-
tíðir sem eru hollar og lystaukandi.
Þá skapast vettvangur fyrir félags-
legt samneyti um leið og mataræð-
ið er tekið til endurskoðunar. Nær-
ingarráðgjafi getur einnig komið
þar við sögu. Við vinnu í eldhúsi er
einnig hægt að meta þörf fyrir
hjálpartæki, sem geta aukið færni
og verið orkusparandi um leið, allt
frá smáhjálpartækjum fyrir mat-
reiðslu að vinnustólum og stærri
hjálpartækjum.
Vettvangsferðir utan dyra geta
haft þann tilgang að skoða náttúr-
una, jafnvel safna hlutum úr henni,
sem hægt er að vinna úr þegar
heim er komið. Hér skapast einnig
vettvangur fyrir skemmtilegar um-
ræður. Um leið eflir einstakling-
urinn gönguþrek og kraft, ásamt
því að búa til nytjahlut.
Einnig má nýta umhverfið enn
frekar og vinna með garðrækt eða
ræktun matjurta.
Að auka færni eða aðlaga um-
hverfi að færni einstaklings verður
að miðast við getu hvers og eins.
Sú iðja sem hentar einum þarf ekki
að henta öðrum. Ef tekið er mið af
styrkleika og áhuga einstaklings-
ins í upphafi verður árangurinn
meiri. Þannig er hægt að auka vel-
líðan hans og auðvelda honum að
takast á við breyttar aðstæður.
Dagdeild fyrir
krabbameinssjúka
Starf iðjuþjálfa með krabba-
meinssjúklingum, sem eru lengra
leiddir í sjúkdómsferli sínu, er
einnig mikilvægt. Iðjuþjálfun
þeirra sem dvelja á líknardeild,
stuðlar að því að viðhalda reisn og
færni við eigin umsjá og auka al-
menna virkni með ýmis konar tóm-
stundaiðju. Ennfremur er veitt
ráðgjöf varðandi hjálpartæki, bæði
á deildum og á heimili. Þegar unn-
ið er með krabbameinssjúkum er
mikilvægt að huga að vinnuhag-
ræðingu og orkusparandi vinnuað-
ferðum t.d. hvort hæðin á rúmi,
stólum og salerni henti. Hægt er
að sitja við ýmis störf, sem við er-
um annars vön að standa við.
Einnig má spara orku við að klæða
sig og baða með því að nýta hjálp-
artæki.
Hér hefur verið stiklað á stóru
um iðjuþjálfun krabbameinssjúkra
og efnið hvergi tæmandi. Nú í
haust er ráðgert að opna dagdeild
fyrir krabbameinssjúka innan end-
urhæfingarþjónustu Landspítala –
háskólasjúkrahúss. Deildin mun
hafa aðsetur í byggingum sjúkra-
hússins í Kópavogi. Þar mun starfa
þverfaglegt teymi sem saman-
stendur af lækni, hjúkrunarfræð-
ingi, iðjuþjálfa, sjúkraþjálfara,
félagsráðgjafa og sálfræðingi. Af
ofanskráðu má sjá, að iðjuþjálfun
er mikilvægur hlekkur í þverfag-
legri þjónustu við krabbameins-
sjúka.
Iðjuþjálfun fyrir
krabbameinssjúka
Erna Magnúsdóttir
Iðjuþjálfun
Nú í haust, segir Erna
Magnúsdóttir, er ráð-
gert að opna dagdeild
fyrir krabbameinssjúka
innan endurhæfingar-
þjónustu Landspítala.
Höfundur er iðjuþjálfi á Landspítala
– háskólasjúkrahúsi í Kópavogi.