Morgunblaðið - 08.06.2001, Blaðsíða 56
FRÉTTIR
56 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
F
r
ít
t
á
n
æ
s
t
u
l
e
ig
u
DAGSKRÁ sjómannadagsins verð-
ur með hefðbundnum hætti í Hafn-
arfirði og verður dagskráin með
veglegra móti í ár.
Sjómannamessan hefst í Fríkirkj-
unni kl. 11 og er það Einar Eyjólfs-
son fríkirkjuprestur sem þjónar fyr-
ir altari. Strax eftir hádegi verður
bæjarbúum boðið í ókeypis
skemmtisiglingu með nýja hafn-
sögubátnum, sem fengið hefur heitið
Hamar, og hvalaskoðunarbátunum
Húna II og Eldingu. Siglt verður frá
suðurhöfninni kl. 13.
Hátíðardagskráin sjálf hefst síðan
kl. 14 og fer fram rétt hjá Kænunni,
nánar tiltekið á svæðinu framan við
fiskmarkaðinn. Flutt verða ávörp í
tilefni dagsins og aldraðir sjómenn
heiðraðir. Að því loknu fer fram
skemmtidagskrá með rímnakveð-
skap, barnahljómsveitinni Kiðling-
unum og von er á trúð í heimsókn.
Hefðbundnar sjómannadagsíþróttir
eins og koddaslagur og kappróður
hafa sinn sess og einnig verður
björgunarsýning, þyrluflug og list-
flugsýning. Lúðrasveit Hafnarfjarð-
ar leikur og gestum er boðið til grill-
veislu við fiskmarkaðinn á meðan
dagskráin stendur yfir.
Frá klukkan eitt verður Siglinga-
klúbburinn Þytur með opið hús og
kynningu á starfsemi klúbbsins, auk
þess sem boðið verður upp á sigl-
ingar á skútum klúbbsins frá flot-
bryggjunni. Þess má geta að að-
gangur er ókeypis í Sjóminjasafn
Íslands um helgina og er safnið opið
frá 13 til 17 á laugardag. Á sunnu-
dag opnar safnið kl. 10 og munu
aldraðir sjómenn sýna gömul hand-
brögð auk þess sem leikið verður á
harmoniku.
Dagskrá sjómanna-
dagsins í Hafnarfirði HINN árlegi Esjudagur verður hald-inn laugardaginn 9. júní. Kl. 9. verður
lagt af stað yfir Esjuna sunnanverða
og komið niður að norðanverðu. Þátt-
takendur verða sóttir í lok göngu. Kl.
13.00 verður gengið á Þverfellshorn,
upp í hlíðar Esjunnar og fyrir þá sem
vilja verður létt og skemmtileg skóg-
arganga í leiðsögn Skógræktarfélags
Reykjavíkur.
Flugbjörgunarsveitin verður fólki
til aðstoðar. Veittar verða viðurkenn-
ingar fyrir þá sem ganga á Þverfells-
horn. Allir sem koma og taka þátt í
Esjudeginum verða sjálfkrafa með í
happadrætti og meðal vinninga eru
ferðavinningar frá FÍ og útivistarvör-
ur frá Nanoq og fleira. Allir þátttak-
endur fá veitingar, þær verða í boði
Leppin, Nóa Síríus og Emmess íss.
Allir eru velkomnir á Esjudaginn en
mikill fjöldi hefur ávallt tekið þátt og
þátttökugjald er ekkert.
Fararstjórar verða á vegum Ferða-
félags Íslands.
Esjudagur
Spron og FÍ
FERÐAFÉLAGIÐ Útivist
fer í kvöld, föstudagskvöldið
8. júní, í 4. ferð í fjallasyrpu
sinni og er að þessu sinni
gengið á Esju. Brottför er frá
BSÍ kl. 20.00 og ekið að Esju-
bergi þaðan sem gengið er á
Kerhólakamb (851 m.y.s.),
einn besta útsýnisstað Esj-
unnar. Verð er 1.000 kr f.
félaga og 1.200 kr f. aðra.
Þátttakendur geta einnig
komið á eigin vegum að Esju-
bergi. Allir eru velkomnir í
Útivistarferðir.
Esjuganga
í fjallasyrpu
Útivistar
STARFSÁRINU í grunnskólum
landsins er lokið og tíundu bekking-
ar hafa kvatt skólann sinn að loknum
prófum. Í tilefni af þeim tímamótum
verðlauna Félag íslenskra bókaút-
gefenda og Prentsmiðjan Oddi alla
sem útskrifast með bókagjöf.
Bókin sem 10. bekkingar fá er
Kappar og kvenskörungar eftir Gísla
Jónsson íslenskufræðing með teikn-
ingum Kristins G. Jóhannssonar.
Bókin hefur að geyma æviþætti 49
fornmanna í stuttum og hnitmiðuð-
um texta. Hún kom upphaflega út
hjá Bókaútgáfunni Hólum á Akur-
eyri og er nú endurútgefin með
hennar leyfi og höfundar.
Þetta er í fimmta sinn sem bókaút-
gefendur og Oddi senda 10. bekking-
um bækur sem afhentar eru við
skólauppsögn. Vöruflutningamið-
stöðin-Flytjandi tók að sér að koma
bókunum til nemenda á landsbyggð-
inni.
Kappar og kvenskör-
ungar til 10. bekkinga
Í TILEFNI af 40 ára afmæli
Grasagarðsins í sumar verður opn-
uð veggspjaldasýning í gróðurskál-
anum laugardaginn 9. júní kl. 10.
Sigurður Albert Jónsson fyrrver-
andi forstöðumaður og Eva G. Þor-
valdsdóttir forstöðumaður munu
segja frá tilurð Grasagarðsins og
sögu hans.
Grasagarðurinn er á landi Laug-
ardals og Laugatungu og sagt verð-
ur frá ábúendum þeirra.
Elsta safn Grasagarðsins er
Flóra Íslands en Jón Sigurðsson
skólastjóri og Katrín Viðar píanó-
kennari gáfu Reykjavíkurborg safn
um 175 íslenskra jurta sem síðar
varð fyrsti vísir að Grasagarði
Reykjavíkur.
Saga Grasa-
garðsins í máli
og myndum
SJÓMANNADAGSBLAÐ Austur-
lands er komið út. Að vanda er blaðið
stútfullt af austfirsku efni ásamt
miklum fjölda ljósmynda.
Meðal efnis í blaðinu eru greinar
eftir tvo ráðherra: Árna Mathiesen
sjávarútvegsráðherra og Jón Krist-
jánsson heilbrigðisráðherra. Jón
segir frá því þegar hann fór sem há-
seti á togarann Hólmanes frá Eski-
firði og varð fyrir því slysi að tapa
framan af tveimur fingrum.
Af öðru efni má nefna viðtal við
Pál Dagbjartsson, skipstjóra á Höfn,
sem segir frá því er stundaðar voru
snapveiðar á síld og umfjöllun um
þegar Björn lóðs á Hornafirði týnd-
ist í þrjá daga 1942. Þá eru margar
frásagnir frá því er ísbirnir hafa
gengið á land vítt og breytt um Aust-
urland, þegar Björg frá Djúpavogi
lenti í hrakningum og var talin af,
grein um fiskeldisævintýrið á Aust-
urlandi, grein um Fransmenn á Fá-
skrúðsfirði og margt, margt fleira.
Hægt er að nálgast blaðið á höf-
uðborgarsvæðinu m.a. í Bókaverslun
Lárusar Blöndal á Skólavörðustíg, í
bókabúðinni Grímu á Garðatorgi og
Grafarvogi, Kænunni í Hafnarfirði
og Kaffivagninum úti á Granda.
Ritstjóri Sjómannadagsblaðs
Austurlands er Kristján J. Krist-
jánsson á Höfn.
Sjómannadagsblað
Austurlands 2001
ÞRÍTUGASTA og þriðja norræna
þing sérfræðinga í meltingarsjúk-
dómum verður haldið í Borgarleik-
húsinu dagana 9.–12. júní nk. Sam-
hliða því halda
meltingarhjúkrunarfræðingar ár-
legan fund sinn í Verslunarskóla Ís-
lands.
Yfir 400 fagaðilar sækja þingið og
fjölda fyrirlesara hefur verið boðið
að halda erindi um nýjungar í fag-
inu.
Norrænt þing
í meltingar-
sjúkdómum
♦ ♦ ♦
ÍSLANDSMEISTARARNIR í flokki
unglinga II, 14–15 ára, í sígildum
samkvæmisdönsum, Agnar Sig-
urðsson og Elín Dröfn Einarsdóttir,
Dansíþróttafélaginu Kvistum og
silfurverðlaunahafarnir í sama
flokki, Friðrik Árnason og Sandra
Júlía Bernburg, Dansíþróttafélag-
inu Gulltoppi, eru á leið til Tékk-
lands til þátttöku í heimsmeist-
aramóti unglinga 14–15 ára í
sígildum samkvæmisdönsum.
Keppnin verður haldin í borginni
Hradec Kralove í Tékklandi, laug-
ardaginn 9. júní nk. Keppt verður í
öllum sígildu samkvæmisdönsunum
fimm, enskum valsi, tangó, foxtrot,
vínarvalsi og quickstep.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Agnar Sigurðsson og
Elín Dröfn Einarsdóttir.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Friðrik Árnason og
Sandra Bernburg.
Fara á HM í sígildum dönsum