Morgunblaðið - 08.06.2001, Síða 59
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 59
HINN 1. júní síðastliðinn brautskráði
Menntaskólinn í Kópavogi 115 nem-
endur og fór athöfnin fram í Digra-
neskirkju.
Alls voru 72 stúdentar brautskráð-
ir, 24 iðnnemar, tveir matartæknar,
12 nemendur af skrifstofubraut og
fimm úr meistaraskóla matvæla-
greina.
Forseti bæjarstjórnar, Ármann
Kr. Ólafsson, afhenti þremur útskrift-
arnemum viðurkenningar úr Viður-
kenningarsjóði MK. Viðurkenningar
hlutu stúdentinn Þórhildur Þorkels-
dóttir, matreiðsluneminn Steinn Ósk-
ar Sigurðsson og matartæknineminn
Margrét Kristjánsdóttir.
Fram kom í máli Margrétar Frið-
riksdóttur, skólameistara, að skólinn
byði upp á hefðbundið bóknám og
verknám á sviði hótel- og matvæla-
greina og auk þess fjölbreytt nám í
ferðagreinum.
Þá kom fram að í haust munu allir
byrjunaráfangar í bóknámi verða
kenndir með aðstoð fartölva.
Í lok ræðu sinnar talaði skólameist-
ari um þá spennandi tíma sem fram-
undan væru í skólamálufm og hve
mikilvægt væri fyrir skólann að vera
þátttakandi í þeirri þróun sem upp-
lýsingatæknin býður upp á.
MK braut-
skráði
115 nem-
endur
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Nýstúdentar Menntaskólans í Kópavogi.
KVENNASKÓLANUM í Reykjavík
var slitið í 127. sinn við hátíðlega
athöfn í Hallgrímskirkju 2. júní að
viðstöddu fjölmenni.
Í skólaslitaræðu sinni ræddi Ingi-
björg Guðmundsdóttir skólameist-
ari um verkfall framhaldsskóla-
kennara og áhrif þess á skólastarf
síðastliðinn vetur, nýju námskrána
sem skólinn starfar nú eftir og auk-
ið sjálfstæði skóla. Einnig fjallaði
hún um húsnæðisvanda skólans.
Hæsta einkunn á
stúdentsprófi frá upphafi
Alls stunduðu 518 nemendur
skólann í vetur í 22 bekkjardeildum
undir leiðsögn 46 kennara. Piltar
voru um þriðjungur nemenda.
Stúdentsprófi luku 108 nemendur.
Morgunblaðið/Arnaldur
Hvítir kollar við skólaslit Kvennaskólans í Reykjavík.
Morgunblaðið/Arnaldur
Nýstúdentar Kvennaskólans skoða einkunnaspjöldin.
Kvennaskólanum
slitið í 127. sinn
Dúx skólans er Sigríður Karls-
dóttir, nemandi á náttúrufræði-
braut með einkunnina 9,51. Þetta
er hæsta einkunn sem nemandi hef-
ur hlotið á stúdentsprófi við skól-
ann. Hæstu einkunn á stúdents-
prófi á félagsfræðibraut hlaut
Hafdís Einarsdóttir, 9,24, og hæstu
einkunn á nýmálabraut hlaut Gísla
Rún Kristjánsdóttir, 8,84.
Verðlaun voru afhent fyrir góð-
an námsárangur í ýmsum greinum
á stúdentsprófi. Flest verðlaun
fengu Sigríður Karlsdóttir,
Magdalena Rós Guðnadóttir, Halla
Hrund Logadóttir og Brynhildur
Tinna Birgisdóttir á nátt-
úrufræðibraut, Vala Hrönn Bjarka-
dóttir og Þórey Ósk Ágústsdóttir á
nýmálabraut og Hafdís Ein-
arsdóttir á félagsfræðibraut. Þá
hlaut Sigríður Karlsdóttir „Stúd-
entspennann 2001“ úr verðlauna-
sjóði dr. Guðrúnar P. Helgadóttur
fyrir bestu stúdentsritgerðina. Að-
alverðlaun skólans, verðlaun úr
Minningarsjóði frú Þóru Melsteð,
stofnanda Kvennaskólans í Reykja-
vík, fyrir hæstu meðaleinkunn og
besta heildarárangur á stúdents-
prófi 2001 hlaut Sigríður Karls-
dóttir á náttúrufræðibraut.
Í lok athafnarinnar ávarpaði
Ingibjörg Guðmundsdóttir skóla-
meistari nýstúdenta og María Rún
Bjarnadóttir flutti ræðu fyrir
þeirra hönd. Halla Vilhjálmsdóttir
nýstúdent söng við undirleik Harð-
ar Áskelssonar organista.
Fulltrúar tíu ára stúdenta voru
viðstaddir útskriftina og talaði
Hrönn Birgisdóttir fyrir þeirra
hönd og færði skólanum pen-
ingagjöf. Eftir athöfnina var öllum
viðstöddum boðið að þiggja veit-
ingar í Kvennaskólanum.
91 nemandi braut-
skráður frá Fjöl-
braut við Ármúla
Morgunblaðið/Arnaldur
Nýstúdent úr Fjölbrautaskólanum við Ármúla skoðar einkunnir.
uðust alls 33 nemendur, 12 tann-
tæknar, átta læknaritarar, sex nudd-
arar, fimm lyfjatæknar og tveir
sjúkraliðar. Þá útskrifuðust 10 starf-
andi sjúkraliðar eftir einnar annar
viðbótarnám í hjúkrun langveikra.
Jafnframt voru útskrifaðir sjö nem-
endur úr starfsdeild 1 hinn 30. maí
síðastliðinn.
Sá óvenjulegi atburður gerðist að
kennslustjóri tanntæknabrautar út-
skrifaði móður sína sem tanntækni.
BRAUTSKRÁNING nemenda á
vorönn 2001 í Fjölbrautaskólanum
við Ármúla fór fram við hátíðlega at-
höfn í Borgarleikhúsinu síðastliðinn
laugardag.
Alls brautskráðist 91 nemandi, 41
stúdent, þar af 27 af félagsfræði-
braut,10 af náttúrufræðifræðibraut
og fjórir nemendur af málabraut.
Hæstu einkunn á stúdentsprófi hlaut
Sigríður Guðmundsdóttir.
Af starfsmenntabrautum útskrif-
BORGARHOLTSSKÓLA var slitið í
fimmta sinn föstdaginn 1. júní sl. Að
þessu sinni voru útskrifaðir 104
nemendur af hinum ýmsu brautum
skólans og var stærsti hópurinn
nemendur í bílgreinum, eða um 40
talsins. Stúdentar voru nú útskrifað-
ir í annað sinn og voru þeir 20.
Guðni S. Guðjónsson, stúdent af
náttúrufræðibraut, varð dux scholae
en meðaltal einkunna hans var 9,67.
Sérstakur heiðursgestur var Páll
Skúlason, rektor Háskóla Íslands,
og flutti hann stutt ávarp. Þá flutti
Melkorka Óskarsdóttir, stúdent á
málabraut, ávarp útskriftarnema og
þakkaði starfsliði og samnemendum
fyrir góða skólavist. Eygló Eyjólfs-
dóttir, fráfarandi skólameistari sem
verið hefur í leyfi þetta skólaár,
kvaddi nemendur og starfsfólk með
ávarpi.
Starfandi skólameistari, Ólafur
Sigurðsson, gerði að umtalsefni hina
miklu þróun og fjölbreytni sem ein-
kennir skólann og hversu vel skólinn
væri skipaður starfsfólki við upp-
byggingarstarf nýs skóla. Að lokn-
um skólaslitum og myndatöku var
gestum boðið kaffi.
Borgar-
holtsskóla
slitið í
fimmta sinn
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Beðið eftir að húfurnar verði settar upp.
ALLS voru brautskráðir 41 nemandi
frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ
laugardaginn 2. júní 2001 en athöfnin
fór fram í Vídalínskirkju.
Einn nemandi útskrifaðist af
tveimur brautum og einn af tveggja
ára braut og því 40 stúdentar í heild-
ina. Fjórtán nemendur útskrifuðust
af félagsfræðibrautum, einn af eðlis-
fræðibraut, sjö af hagfræðibrautum,
tveir af íþróttabrautum, fimm af
málabrautum, þrír af myndlista- og
handíðabrautum, átta af náttúru-
fræðibrautum, einn af uppeldisbraut
og einn nemandi af verslunarbraut.
Útskrifaðist
með 163 einingar
Dúx Fjölbrautaskólans í Garðabæ
að þessu sinni er Davíð Hilmarsson,
stúdent af félagsfræðibraut, sálfræði-
línu. Davíð fékk ágætiseinkunn í 44
námsáföngum og hlaut einnig viður-
kenningu fyrir ágætan árangur í sál-
fræði og ensku.
Hulda Björk Þóroddsdóttir, stúd-
ent af málabraut, nýmálalínu, lauk
flestum námseiningum, 163 eining-
um, en lágmarksfjöldi er 140 eining-
ar. Hulda Björk hlaut einnig viður-
kenningu fyrir góðan námsárangur í
frönsku.
Aðrir nemendur sem hlutu viður-
kenningu voru Karítas Sæmunds-
dóttir fyrir frábæran árangur í textíl-
og fatahönnun, Hildur Ketilsdóttir
fyrir bókfærslu og markaðsfræði,
Árni Gunnarsson fyrir þýsku, Nanna
Traustadóttir fyrir dönsku, Erna Sig-
ríður Sigurðardóttir fyrir efnafræði
og Eva Lind Jónsdóttir fyrir ágæta
skólasókn allan námstímann.
Við athöfnina söng Eva Lind Jóns-
dóttir, nýstúdent af hagfræðibraut,
markaðslínu, ásamt föður sínum, Jóni
Þórarinssyni. Agnes Löve lék með á
píanó.
Að brautskráningu lokinni var
gestum boðið til móttöku í hinu nýja
og glæsilega húsnæði skólans við
Skólabraut.
40 stúdent-
ar braut-
skráðir
frá FG
Morgunblaðið/Arnaldur
Davíð Hilmarsson, dúx Fjölbrautaskólans í Garðabæ.