Morgunblaðið - 08.06.2001, Blaðsíða 69

Morgunblaðið - 08.06.2001, Blaðsíða 69
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 69 ÚTSÖLUSTAÐIR: HYGEA Laugavegi, HYGEA Kringlunni, GALLERÍ FÖRÐUN Keflavík, AGNES snyrtistofa, Listhúsinu Laugardal, Snyrtistofan JÓNA Hamraborg, Snyrtistofan MANDÝ Laugavegi. C ENERGY CELLULAR SERUM C-VÍTAMÍN ORKUSPRENGJAN FRÁ Húð þín fyllist ORKU og geislar sem aldrei fyrr Eflir varnar- og endurnýjunarmátt húðarinnar. Jafnar óreglulegan húðlit og gefur húðinni aukinn ljóma og stinnleika. SUMARIÐ er tíminn, a.m.k. sá tími sem „skemmtiferðaskipið“ SS-Sól fer af stað. Skipstjórinn er enginn annar en hinn landsþekkti Helgi Björnsson, en hann skellir sér ósjaldan upp á svið til þess að syngja með húshljómsveit- inni, en það er skemmtiatriði sem gestir kunna vel að meta. Það fer hver að verða síðastur að skella sér um borð, skipið er í þann mund að losa landfestar og partíið því að byrja. „Þetta er stór túr ef við teljum í kíló- metrum,“ tilkynnir Jakob Magnússon vélstjóri og bassaleikari húshljóm- sveitarinnar. Stoppin verða ekki mörg í þessari ferð en þó er þess gætt að leggja upp að fjölsóttum stuð-höfnum. „Við verðum í Ýdölum á föstudags- kvöldið og í Stapanum á laugardags- kvöldið,“ tilkynnir Helgi skipstjóri. Ómar Ragnarsson í stuði Eins og flestir vita hefur skipið haldist lengi á floti og án þess að lenda í alvarlegum brotsjó. Eftir öll þessi ár hefur siglingaleiðin verið að mótast hægt og rólega og stoppunum fækkað. Nú stoppar Helgi kafteinn aðeins á þeim stöðum, sem hann þekkir eins vel og handarbakið á sér. Það er því auðvelt að ímynda sér að þegar hann lítur til baka, renni allar heimsóknirnar í eitt. „Ég get nú alveg greint á milli þeirra,“ segir hann og glottir. „Maður man alltaf eftir einhverjum sérstök- um atvikum frá hverju balli. Ég man alltaf sérstaklega eftir balli sem var í Njálsbúð með Bong, Spoon og Maus. Það var alveg ferlega skemmtilegt ball, mikill „fílingur“ í gangi og geggj- uð stemmning. Ómar Ragnarsson mætti og var í miklu stuði.“ Ómar er nú einn þeirra heppnu sem ekki þarf að hafa áhyggjur af því að verða ekki heimilaður aðgangur vegna aldurs. Aldurstakmarkið hefur um árabil verið 16 ár og Ómar er örlít- ið eldri en það. En á næstunni gæti vel farið svo að það verði hækkað upp í 18. Þó að Ómar þurfi vart að verða andvaka vegna þess, hefur Helgi áhyggjur af því. „Þetta er komið á í Miðgarði,“ segir Helgi. „Sýslumaðurinn setti þessa reglu á og aðstandendur samkomu- hússins hafa lagt fram kæru. Þetta verður því dómur sem hnekkir nið- urstöðunni eða staðfestir. Á meðan ekki hefur verið dæmt í málinu þá stendur þessi ákvörðun sýslumanns- ins. Mér finnst þetta bara mjög slæmt. Ég held að þetta eigi ekki eftir að hafa þau áhrif sem þeir eru að von- ast eftir. Ef krakkar á þessum aldri ætla sér að ná í brennivín og skemmta sér þá gera þau það. Á dansleikjum ertu með gæslu á staðnum, lögregl- una og fíkniefnalögregluna. Þar eru þeir a.m.k. í vernduðu umhverfi. Ef lokað er á svoleiðis, hvað gerist þá? Þá fara krakkarnir bara út í móa eða eitthvað. Það er náttúrulega miklu meiri hætta á því að þar gerist eitt- hvað slys. Félagsmiðstöðvarnar eru fyrir krakka upp að 16 ára aldri. Krakkar á aldrinum 16-18 komast ekki inn á vínveitingahúsin þannig að það myndast gat þarna. Þannig að ég segi: „You Gotta Fight For Your Right To Party!“ (lausleg þýðing: „Það þarf að berjast fyrir partírétt- indunum“).“ „Þetta verða einu skiptin sem við komum fram í júní, næst spilum við í júlí á Sjallanum og svo í Njálsbúð,“ segir Helgi að lokum. Sem sagt; SSSól í Ýdölum í kvöld og Stapanum annað kvöld. „Það þarf að berjast fyrir partíréttindunum“ Í kvöld verður SSSól í Ýdölum. Birgir Örn Steinarsson hitti Helga Björnsson, Jakob Magnússon og Hrafn Thoroddsen og kynnti sér sumartúrinn. Morgunblaðið/Billi Hrafn Thoroddsen vélamaður, Jakob Magnússon háseti og Helgi Björnsson skipstjóri. SSSól setur í sumargírinn biggi@mbl.is Skræktu (Shriek) G a m a n m y n d Leikstjóri: John Blanchard. Hand- rit: Sue Bailey, Joe Nelms. Aðal- hlutverk: Tiffany-Amber Thiessen, Tom Arnold, ofl. Bandaríkin, 2000. Myndform. Bönnuð innan 12 ára. ÞEIR SEM hafa fengið sig full- sadda af hryllingsmyndaæði Holly- wood sem hófst eftir velgengni Scream-myndanna ættu að taka myndum á borð við Skræktu fagnandi. Stólpagrín er gert af klisjunum sem sjá má í unglinga- hrollvekju eftir unglingahroll- vekju og myndin hittir nægilega oft í mark til að vera hin sæmilegasta afþreying, enda þótt kímnigáfan sé jafnan heldur groddaleg. Óþarfi er að lýsa sögu- þræði myndarinnar, hann er fremur óöguð samsuða úr öðrum myndum, sem hittir stundum í mark, og stund- um ekki. En þótt Skræktu falli dálít- ið í skuggann af Scary Movie, ann- arri mynd með sama markmið, má gera mörg verri mistök á vídeóleig- um borgarinnar en taka þessa með sér heim. Heiða Jóhannsdótt ir MYNDBÖND Skrækt í gegnum hláturinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.