Morgunblaðið - 26.06.2001, Blaðsíða 1
142. TBL. 89. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 26. JÚNÍ 2001
HLEYPT var af byssum fyrir utan
þinghúsið í Skopje í gærkvöldi þegar
um 6.000 Makedóníumenn söfnuðust
þar saman til að mótmæla vopna-
hléssamkomulagi stjórnarinnar við
albanska uppreisnarmenn og krefj-
ast afsagnar Borís Trajkovskís for-
seta. Nokkrir tugir manna úr vara-
liði lögreglunnar, sem tóku þátt í
mótmælunum, komust inn í þinghús-
ið og þrír þeirra hleyptu af byssum
upp í loftið á svölum byggingarinnar.
Trajkovskí var inni í þinghúsinu að
ræða við leiðtoga helstu stjórnmála-
flokka Makedóníu til að reyna að
hefja samningaviðræður um pólitísk-
ar umbætur sem taldar eru nauðsyn-
legar til að afstýra borgarastyrjöld.
Að minnsta kosti tólf menn skutu
byssukúlum upp í loftið á meðal mót-
mælendanna. Þeir sem komust inn í
bygginguna köstuðu tölvum út um
glugga og mótmælendurnir fyrir ut-
an brutu rúður og réðust á opinberar
bifreiðar sem lagt hafði verið við
bygginguna.
Menn í varaliði lögreglunnar og
nokkrir tugir óvopnaðra hermanna
tóku þátt í mótmælunum, sem hófust
þegar hundruð albanskra uppreisn-
armanna voru flutt frá þorpinu Arac-
inovo, nálægt Skopje, samkvæmt
samkomulagi sem náðist fyrir milli-
göngu Evrópusambandsins á sunnu-
dag. Stjórn Makedóníu féllst þá á að
fyrirskipa hernum að hætta árásum
sínum á þorpið og leyfa uppreisnar-
mönnunum að fara þaðan án þess að
afvopnast.
Mikil reiði er meðal slavneskra
Makedóníumanna vegna samkomu-
lagsins. Hópur fólks stöðvaði bílalest
stjórnarerindreka, eftirlitsmanna
ESB og NATO og bandarískra her-
manna sem voru á leiðinni til Skopje
eftir að hafa fylgst með brottflutn-
ingi uppreisnarmannanna.
Til skotbardaga kom einnig milli
uppreisnarmanna og lögreglumanna
nálægt bænum Tetovo. Talsmaður
innanríkisráðuneytis Makedóníu
sagði að einn lögreglumaður hefði
beðið bana og fimm særst.
ESB hótar að stöðva
fjárhagsaðstoðina
Evrópusambandið krafðist þess í
gær að stjórn Makedóníu hætti til-
raunum sínum til að binda enda á
uppreisnina í landinu með hervaldi
og hæfi þegar í stað viðræður um
pólitískar umbætur til að afstýra
borgarastyrjöld. Stjórnin var enn-
fremur vöruð við því að hún fengi
ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evr-
ópusambandinu nema viðræðurnar
bæru skjótan árangur.
„Hernaður er engin lausn á vand-
anum,“ sagði í yfirlýsingu utanríkis-
ráðherra ESB-ríkjanna á fundi í
Lúxemborg.
Hópur mótmælenda ræðst inn í þinghúsið í Skopje
Krefjast afsagnar
forseta Makedóníu
Reuters
Mótmælendur fagna eftir að hópur manna úr varaliði lögreglunnar réðst inn í þinghúsið í Skopje til að krefjast
þess að forseti Makedóníu segði af sér vegna vopnahléssamkomulags við albanska uppreisnarmenn.
Skopje, Lúxemborg. Reuters, AFP.
MARGT bendir til, að raunverulegt
samdráttarskeið sé hafið í banda-
rísku efnahagslífi ef marka má nýjar
tölur frá bandarísku hagstofunni.
Í yfirlýsingum hagstofunnar á síð-
ustu mánuðum hefur því alltaf verið
vísað á bug, að minni umsvif í hag-
kerfinu jafngildi samdrætti en í þeim
nýjustu, 18. júní sl., segir, að „hugs-
anlegt sé, að samdráttarskeið hafi
hafist fyrir skömmu“.
Paul O’Neill, fjármálaráðherra
Bandaríkjanna, heldur því þó fram,
að tekist hafi að sigla framhjá sam-
dráttarskerjunum með skattalækk-
ununum, sem brátt muni skila sér til
fólks, og með vaxtalækkunum, sem
muni fara að hafa áhrif á næstunni.
0,4% hagvöxtur apríl–júní?
Hagvöxtur í Bandaríkjunum var
1,3% á fyrsta ársfjórðungi en spáð
er, að hann verði ekki nema 0,4% á
öðrum ársfjórðungi. Það er einkum
einkaneyslan, sem kyndir undir
efnahagslífinu, en úr henni hefur lít-
ið dregið enn, og sömu sögu er að
segja í byggingariðnaði. Samdráttur
er hins vegar í framleiðslugreinum
og birgðasöfnun og of mikil fram-
leiðslugeta vaxandi vandamál.
Kenna framleiðendur m.a. um háu
gengi á dollaranum, sem hefur ekk-
ert lækkað þrátt fyrir vaxtalækkan-
ir. Frá því á síðasta ári hefur at-
vinnuleysi aukist úr 3,9% í 4,4%.
Búist er við, að bandaríski seðla-
bankinn bregðist við nýjustu tíðind-
unum með því að lækka vexti um
fjórðung eða hálft prósentustig.
Bandarískt
efnahagslíf
Samdrátt-
arskeið
hafið?
Washington. AP.
KOFI Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, sagði við upp-
haf alnæmisráðstefnu allsherjar-
þings SÞ í gær að nauðsynlegt væri
að verja 7 til 10 milljörðum dollara
(um 700 til 1.000 milljörðum króna) á
ári hverju til baráttunnar gegn út-
breiðslu alnæmis í heiminum, um
fimm sinnum meira en nú er gert.
„Stríðið gegn alnæmisvánni verð-
ur ekki unnið nema framlög til bar-
áttunnar verði stóraukin,“ sagði
Annan í ávarpi sínu.
Allsherjarþingið ræðir alnæmis-
vandann á sérstakri þriggja daga
ráðstefnu, en þetta er í fyrsta sinn
sem þingið tekur heilbrigðisvanda-
mál til umræðu á slíkum fundi.
Um 3.000 gestir hvaðanæva úr
heiminum sækja ráðstefnuna, sem
hófst með einnar mínútu þögn til
minningar um þær 22 milljónir
manna sem sjúkdómurinn hefur
dregið til dauða.
36 milljónir manna hafa smitast
Á ráðstefnunni kom fram að 36
milljónir manna eru nú smitaðar af
HIV-veirunni. Þar af búa langflestir
í mið- og suðurhluta Afríku, 25,3
milljónir. HIV-smitaðir eru 5,8 millj-
ónir í Suður- og Suðaustur-Asíu og
1,4 milljónir í Suður-Ameríku, en
Vestur-Evrópa er sá heimshluti þar
sem fæstir eru smitaðir, um 540 þús-
und.
Rúmlega helmingur HIV-já-
kvæðra í heiminum er konur og talið
er að um ein milljón barna undir 14
ára aldri sé smituð.
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í ávarpi sínu á
ráðstefnunni í gær að Bandaríkja-
stjórn hygðist auka framlög til al-
næmisvarna.
Alnæmisráðstefna Sameinuðu þjóðanna í New York
Annan segir þörf á stór-
auknum framlögum
Sameinuðu þjóðunum. AFP, AP.
VLADIMIRO Montesinos, fyrrver-
andi yfirmaður leyniþjónustu Perú,
var fluttur með flugvél til heima-
landsins frá Venesúela í gær eftir
að hafa verið á flótta í átta mánuði.
Hann var færður í dýflissu undir
dómhúsi í Lima þar sem hann var
yfirheyrður. Yfirvöld hyggjast sak-
sækja hann fyrir spillingu, fjár-
drátt, skipulagningu dauðasveita,
eiturlyfjasmygl, ólöglega vopna-
sölu og fleiri glæpi. Hann á lífstíð-
arfangelsi yfir höfði sér.
Búist er við að Montesinos verði
fluttur í herfangelsi sem hann
hannaði sjálfur fyrir hættulegustu
glæpamenn landsins.
Montesinos var handtekinn í
Venesúela á laugardaginn var og
talsmaður bandaríska utanrík-
isráðuneytisins sagði í gær að
bandaríska alríkislögreglan FBI
hefði átt stóran þátt í handtökunni.
Orðrómur hafði gengið um að
njósnaforinginn fyrrverandi hefði
gengist undir aðgerð hjá lýtalækni
til að breyta útliti sínu en hann virt-
ist óbreyttur. Montesinos, annar til
hægri, er hér í fylgd lögreglu-
manna við komuna til herflugvallar
í Lima.
Reuters
Montesinos í fangelsi
Montesinos framseldur/23