Morgunblaðið - 26.06.2001, Page 6
FRÉTTIR
6 ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MÖRG slys urðu á þjóðvegum
landsins um helgina, þar af eitt
banaslys við Breiðdalsvík. Þyrla
Landhelgisgæslunnar TF-LÍF
sinnti alls fjórum útköllum á sunnu-
dag og flutti í þeim sex slasaða eða
veika og kom þeim undir læknis-
hendur.
Fyrsta útkallið var klukkan fjög-
ur aðfaranótt sunnudags, þegar
kona var sótt í Þórsmörk en hún
kenndi eymsla í hálsi eftir að hafa
rekist upp í þak á bifreið sem hún
var farþegi í er bifreiðinni var ekið
ofan í djúpa holu. Að sögn læknis á
slysadeild Landspítalans í Fossvogi
reyndist konan ekki mikið slösuð.
Þá flutti þyrlan feðga til Reykja-
víkur, sem lentu í bifhjólaslysi við
Borgarnes um hádegisbilið. Að sögn
lögreglunnar í Borgarnesi lenti hjól-
ið á vegriði í beygju við nyrðri enda
Borgarfjarðarbrúar og köstuðust
þeir af hjólinu og lentu á malarbletti
handan vegriðsins. Meiðsl föðurins
voru talin nokkuð alvarleg, en son-
urinn, sem er níu ára, er minna slas-
aður.
Þegar þyrlan var kölluð út vegna
slyssins við Borgarnes var hún á leið
út á Reykjaneshrygg eftir veikum
sjómanni á rússnesku skipi, en var
snúið við útaf Garðskaga til að ná í
mennina í Borgarnes. Eftir að hafa
flutt mennina á Landspítalann í
Fossvogi hélt TF-LÍF út að togar-
anum og kom með sjómanninn á
Fossvogsspítala um klukkan 17.
Þá sótti þyrlan tvær stúlkur á
þrettánda ári á Egilsstaði, sem lent
höfðu í hörðum árekstri á vegamót-
um við afleggjarann að Breiðdals-
vík.
Bílveltur á Gjábakkavegi
og í Engidal
Þrennt var flutt á slysadeild
Landspítalans í Fossvoginum eftir
bílveltu á Gjábakkavegi, veginum
milli Gjábakka og Laugarvatns um
hádegi á sunndag. Er ökumaður
bílsins grunaður um ölvun við akst-
ur, að sögn lögreglunnar á Selfossi.
Að sögn læknis á vakt á slysadeild
hlaut annar farþeginn alvarlega
innvortis áverka og þurfti að fara í
aðgerð en hinir; ökumaður og
farþegi, sluppu minna slasaðir.
Þá varð bílvelta í Engidal innan
við Ísafjarðarbæ á sunnudagskvöld.
Tveir ungir menn, sem nýlega voru
komnir með bílpróf, voru í bílnum
og að sögn lögreglunnar á Ísafirði
sluppu þeir án teljandi meiðsla. Bíll-
inn er mikið skemmdur og varð að
fjarlægja hann með kranabíl.
Þyrla Landhelgisgæslunnar sinnti fjórum útköllum á sunnudag
Sex slasaðir eða veik-
ir fluttir á sjúkrahús
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns
Bifhjólaslys varð rétt fyrir utan Borgarnes á sunnudag.
SONIA Gandhi, formaður Kon-
gressflokksins á Indlandi, kom í
stutta einkaheimsókn til Íslands á
laugardag í boði Ólafs Ragnars
Grímssonar forseta Íslands og stóð
hún fram á sunnudag en þá hélt
Gandhi áleiðis til Bandaríkjanna.
Ýmsir frammámenn í indversk-
um stjórnmálum voru með í för, þ.á
m. dr. Manomar Singh, fyrrverandi
fjármálaráðherra, og Natwar
Singh, fyrrverandi utanrík-
isráðherra.
Tengsl Ólafs Ragnars við
Gandhi-fjölskylduna hafa staðið yf-
ir í um 20 ár síðan hann starfaði
með Rajiv Gandhi, eiginmanni
Soniu, og móður hans, Indiru, að
afvopnunarmálum og öðrum al-
þjóðamálum.
„Sú vinna skapaði traust vin-
áttubönd við fjölskylduna og þær
eru margar góðar stundirnar sem
við höfum átt saman á Indlandi,“
sagði Ólafur Ragnar m.a. er hann
bauð Soniu Gandhi velkomna til
landsins.
Við komuna á Bessastaði minnt-
ist Sonia Gandhi á heimsókn Ólafs
Ragnars til Indlands á síðasta ári
og sagði hún m.a. að hann væri vel
þekktur á Indlandi, ekki eingöngu
þar sem hann væri þekktur stjórn-
málamaður heldur einnig að hann
væri vinur Indlands.
Ákvörðun í höndum fólksins
Kongressflokkurinn hefur verið
að auka fylgi sitt á meðal kjósenda
og ýmsir spá því að Sonia verði
næsti forsætisráðherra Indlands.
Hún segir að það sé þó ekki tíma-
bært að hugsa um slíkt.
„Kongressflokknum hefur geng-
ið mjög vel í síðustu kosningum. En
það er enn þá langt þangað til við
förum að hugsa um forsætisráð-
herraembættið.“
Sonia Gandhi er ítölsk að upp-
runa og er ekkja Rajiv Gandhi sem
féll fyrir morðingja hendi árið
1991.
Í upphafi var leitað til hennar til
að taka að sér formennsku í
flokknum en þó voru ekki allir á
eitt sáttir við það vegna reynslu-
leysis hennar og enn fremur vegna
þess að hún er útlendingur. Hún
hefur þó litlar áhyggjur af því.
„Svarið við því hver verður næsti
forsætisráðherra er í höndum
fólksins.“
Eftir stuttan fund á Bessastöðum
með forseta Íslands og eftir að hafa
svarað spurningum blaðamanna
heimsótti Sonia Gandhi Stofnun
Árna Magnússonar og skoðaði þar
handrit. Því næst hitti hún Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur borg-
arstjóra og sat loks kvöldverð á
Bessastöðum í boði forsetans.
Á síðari degi heimsóknar sinnar
fór Sonia Gandhi til Þingvalla og
hitti þar Ástríði Thorarensen, eig-
inkonu Davíðs Oddssonar forsætis-
ráðherra. Þá hélt hún til Nesjavalla
og skoðaði framkvæmdir þar. Að
því loknu var haldið í Svartsengi
þar sem jarðfræðisýningin í Eld-
borg var skoðuð en heimsókninni
lauk svo með hádegisverði í Bláa
lóninu.
Morgunblaðið/Sverrir
Ólafur Ragnar Grímsson og Sonia Gandhi, ásamt fylgdarliði, ræða við blaðamenn á Bessastöðum á laugardag.
Sonia Gandhi í einkaheimsókn á Íslandi
Segir ekki tímabært að hugsa
um embætti forsætisráðherra
MENNIRNIR tveir sem slösuðust í
sprengingunni í kerskála 3 í álverinu í
Straumsvík á föstudagsmorgun liggja
enn á gjörgæsludeild Landspítalans
við Hringbraut.
Sá þeirra sem slasaðist meira og
hlaut brunasár á 80% líkamans, fór í
aðgerð um hádegið í gær og átti henni
að ljúka seint í gærkvöld. Þegar aflað
var frétta af líðan mannanna í gær-
kvöld, stóð aðgerðin yfir og hafði hún
þá gengið samkvæmt áætlun.
Líðan hins mannsins, sem brennd-
ist minna eða á 35% líkamans, er eftir
atvikum góð.
Samkvæmt upplýsingum rann-
sóknardeildar lögreglunnar í Hafnar-
firði liggur ekki ljóst fyrir hvað olli
slysinu. Rannsóknin er í gangi og beð-
ið er skýrslu frá Vinnueftirliti ríkis-
ins, Löggildingarstofu og Íslenska ál-
félaginu.
Straumsvíkurslysið
Í aðgerð
fram á kvöld
FJÁRMÁLARÁÐHERRA, Geir H.
Haarde, og eiginkona hans, Inga
Jóna Þórðardóttir, eru nú í opinberri
heimsókn í Færeyjum. Dvelja þau
þar til morguns. Heimsóknin er í
boði fjármálaráðherra Færeyja,
Karsten Hansen.
Ráðherrahjónin ferðast um eyj-
arnar og hitta lögmann Færeyja og
forsvarsmenn bæði lands- og bæjar-
mála.
Eftir Færeyjaheimsóknina heldur
ráðherra til Ósló í opinbera heim-
sókn í boði fjármálaráðherra Nor-
egs, Karl Eirik Schjött-Pedersen.
Fjármála-
ráðherra til
Færeyja og
Noregs
ÞRETTÁN ára stúlka lést í bílslysi
við afleggjarann af þjóðvegi 1 að
Breiðdalsvík á sunnudagskvöld. Hin
látna hét Elísabet Arnarsdóttir, til
heimilis að Einholti 10 b, Akureyri.
Hún var fædd 8. mars 1988, dóttir
Guðnýjar Svanhvítar Sigurjónsdótt-
ur og Arnars Freys Ingimundarson-
ar.
Hin látna var farþegi í fólksbifreið
sem lenti í hörðum árekstri við jeppa-
bifreið. Önnur stúlka á þrettánda ári,
sem einnig var farþegi í fólksbifreið-
inni, slasaðist og liggur á gjörgæslu-
deild Landspítalans í Fossvogi.
Að sögn lögreglunnar á Fáskrúðs-
firði voru tildrög slyssins þau að
jeppa var ekið í veg fyrir fólksbifreið-
ina sem var á austurleið. Auk stúlkn-
anna tveggja var annar farþegi í bif-
reiðinni ásamt ökumanni en þeir
slösuðust ekki, né heldur ökumaður
jeppans.
Stúlkurnar voru fluttar með
sjúkrabifreið til Egilsstaða en þar tók
þyrla Landhelgisgæslunnar TF-LÍF
við þeim og flaug með þær á Land-
spítalann í Fossvogi.
Lést
í bílslysi
við Breið-
dalsvík
♦ ♦ ♦