Morgunblaðið - 26.06.2001, Page 23
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2001 23
Gamlar fulningahurðir
verða sem nýjar.
Leysum einnig málningu
og bæs af gömlum
skápum, kommóðum,
kistum o.fl.
Viðurinn fær lútáferð.
Langholtsvegi 126,104 Rvík,
sími 555 4343.
gsm: 897 5484, 897 3327,
www.afsyring.is
Aðeins það besta
fyrir andlit þitt
Estée Lauder
andlitsmeðferðin miðar öll
að því að veita þér slökun
og dekra við þig - allt frá
vandvirkri hreinsun
húðarinnar að yndislega
róandi nuddinu.
Nútímaleg húðumhirða
okkar vinnur gegn
vandamálum sem stafa af
þurri húð eða feitri,
hrukkum, slælegri blóðrás,
þreytulegri húð og öðru
sem hrjáir húðina. Öll er
meðferðin umvafin ljúfri
munúð og slökun.
Veittu þér andlitsmeðferð
eins og þær gerast bestar og
sjáðu hvað svolítið dekur
gerir húðinni gott.
Það kostar aðeins kr. 1.500.
Hringdu og pantaðu tíma.
Síminn er 564 5600.
Smáratorgi
sími 564 5600
Snyrtiklefi
- fyrir útlitið
VONIR Jacques Chiracs Frakk-
landsforseta um endurkjör gætu
brostið vegna tillögu þingmanns um
að forsetinn verði ákærður fyrir
spillingu. Forsendur ákærunnar eru
tengsl forsetans við spillingarmál
frá þeim tíma er hann gegndi emb-
ætti borgarstjóra í París.
Það er lítt þekktur franskur þing-
maður, Arnaud Montebourg, sem
hefur farið fram á að forsetinn verði
ákærður fyrir spillingu. Hann hefur
ritað 29 síðna þingsályktun um að
Chirac verði dreginn fyrir dómstóla
vegna tengsla sinna við fjármála-
misferli sem átti sér stað í borg-
arstjóratíð hans.
Sérstakur dómstóll réttar í
málum forsetans
Öll dómsmál er varða forsetann
verða að fara fyrir sérstakan yf-
irdóm sem skipaður er þingmönn-
um, en franska stjórnarskráin kveð-
ur á um að ekki megi draga
forsetann fyrir almenna dómstóla.
Til að hefja megi málaferli fyrir yf-
irdómnum verða minnst 58 þing-
menn að undirrita ályktun þess efn-
is og þarf ályktunin að hljóta
samþykki í báðum deildum þingsins.
Sl. fimmtudag hafði 31 þingmaður
skrifað undir þingsályktun Mon-
tebourgs en í upphafi var talið að
um aðför eins manns
að forsetanum væri að
ræða. Spáð er að fleiri
muni taka undir álykt-
un Montebourgs fyrir
lok þessarar viku.
Gæti ógnað endur-
kjöri Chiracs
Þar til nú hefur
Montebourg verið lítt
þekktur í Frakklandi.
Hann hefur ekki skap-
að sér sérstöðu á
franska þinginu og
hefur aldrei gegnt ráð-
herraembætti. Mon-
tebourg hvetur til þess
að stjórnmálasiðferði
verði eflt, en hann er nú talinn geta
orðið ein helsta ógnin við kosninga-
herferð Chiracs á næsta ári.
Þingmaðurinn krefst þess að for-
setinn beri vitni fyrir dómstólum
vegna ásakananna. Ef til kemur
verður það mjög auðmýkjandi fyrir
Chirac enda hefur æðsti valdhafi
franska ríkisins ekki verið kallaður
fyrir dómstóla eftir síðari heims-
styrjöld.
Margar tilraunir hafa verið gerð-
ar til að fá Montebourg
til að draga ályktun
sína til baka en allt
kemur fyrir ekki. Rúm-
lega 30.000 eintök af
hinni 29 síðna þings-
ályktun hafa selst á síð-
astliðnum þremur vik-
um og hefur málið
vakið mikinn áhuga al-
mennings í Frakklandi.
Orðrómur um mútur
og ólöglega fjáröflun
Gaullistaflokksins í
borgarstjóratíð Chiracs
hefur verið á kreiki í
meira en áratug. Rann-
sókn málsins var hætt
fyrr á þessu ári vegna
þess að rannsóknardómari taldi sig
kominn út fyrir valdsvið sitt enda
má ekki draga forsetann fyrir dóm-
stóla.
Flokksmenn Sósíalistaflokksins,
undir forystu Lionels Jospin for-
sætisráðherra, hafa verið tregir til
að fylgja rannsókn málsins eftir.
Talsmenn forsetaembættisins hafa
þó sakað forsætisráðherrann um að
styðja málstað Montebourgs á bak-
við tjöldin.
Ný spillingarmál komin upp á
yfirborðið
Nýjustu grunsemdir um spillingu
frá borgarstjóratíð forsetans varða
utanlandsferðir Chiracs og hans
nánustu á árunum 1992 til 1995.
Haft er eftir embættismanni í
dómskerfinu að dómstóll í París
rannsaki nú hvers eðlis ferðirnar
voru en grunsamlegt þykir að þær
hafi verið greiddar með beinhörðum
peningum.
Ferðirnar tuttugu, sem ásakan-
irnar snúast um, eru taldar hafa
kostað rúmlega 27 milljónir króna,
að því er fram kemur á fréttavef
vikuritsins L’Express. Yfirvöldum
er í mun að komast að því hvaðan
peningarnir, sem fóru í að borga
ferðir til Japans, Bandaríkjanna og
Máritíus, komu. L’Express hefur
eftir talsmönnum Chiracs að forset-
inn hafi greitt fyrir ferðirnar úr eig-
in vasa og að þær verið greiddar
með reiðufé til að gæta öryggis for-
setans.
Jacques Chirac var borgarstjóri í
París í 18 ár, eða frá 1977 til ársins
1995, er hann tók við forsetaemb-
ætti.
Þingmaður í herferð gegn Frakklandsforseta
Berst gegn sakar-
uppgjöf Chiracs
Jacques Chirac
París. AP, AFP, The Daily Telegraph.
ÍBÚAR í þorpinu Bonga við rætur
eldfjallsins Maya á Filippseyjum
sjást á myndinni flykkjast upp á
pallinn á bíl, sem flutti þá á örugg-
ari stað. Mikill mökkur af gufu og
ösku frá gjósandi fjallinu gnæfir yf-
ir.
Eldgosið hófst á sunnudaginn en
því slotaði í gær og snéru þá nokkr-
ir íbúar þorpa við rætur fjallsins
heim til sín aftur. Þeir voru varaðir
við því að fjallið gæti á hverri
stundu farið að spúa aftur hrauni
og ösku. Á sunnudag reis mökk-
urinn í rúmlega 15 km hæð. Fram-
kvæmdastjóri Eldfjalla- og jarð-
skjálftamiðstöðvar Filippseyja,
Raymundo Punongbayan, sagði að
gosið gæti staðið í eina til tvær vik-
ur og ekki væri ólíklegt að allt að
70 milljónir rúmmetra af hrauni
kæmu upp úr fjallinu. Hátt í 60 þús-
und manns kynnu að þurfa að yf-
irgefa heimili sín.
Mayon er eitt af virkustu eld-
fjöllum Filippseyja og hefur gosið
að minnsta kosti 47 sinnum síðan
1616. Ösku- og aurflóð frá fjallinu
gróf þorp og varð 1.200 manns að
bana árið 1814. Síðast gaus í fjall-
inu í febrúar í fyrra og þá þurftu
um 68 þúsund manns að flýja heim-
ili sín.
AP
Mayon gýs
Legazpi á Filippseyjum. AP.