Morgunblaðið - 26.06.2001, Síða 34

Morgunblaðið - 26.06.2001, Síða 34
UMRÆÐAN 34 ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ K LÆÐA sig vel,“ sagði maðurinn hjá Útivist með digrum karlaróm að hætti útilegumanna. Hann tók við greiðslu í gegnum síma og gaf góð ráð í kaupbæti. „Ganga eins hægt og maður getur fyrsta klukkutímann,“ sagði vinur minn, fjallvanur. „Og hafa skíða- stafi til þess að styðja sig við,“ sagði vinkona mín, fjallvön. Þau renndi í grun að tíu stunda ganga yrði mér erfið. Jónsmessunæt- urganga yfir Fimmvörðuháls. Upp. Upp. Upp. Og svo niður. Víst voru þetta ágæt ráð í upp- hafi ferðar, en eitt klikkaði samt alveg. Enginn sagði mér frá öllum þeim lyfjum og efnum sem skrif- stofublókir úr bænum þurfa að hafa með sér, eigi þær að lifa af helgardvöl í óbyggðum. Það eru nefnilega eng- in apótek á fjöllum. Og verkjalyf vaxa ekki á íslensk- um trjám. Þegar í ann- arri brekku hófust vandræðin. Svimi og sjón- truflanir sem gáfu ófögur fyrirheit um fótaskort í skriðum. Skrambi er vont að vera með höfuðverk á ferðalögum, það fer alveg með stemmninguna. Ég þáði jeppafar dálítinn spotta og stúlka með hæl- særi gaf mér verkjatöflur til þess að koma höfðinu í lag. Ég ætlaði að gefa henni hælsærisplástur á móti en skildist að ekki væri pláss fyrir fleiri plástra á hælunum. Eftir að jafnvægið komst í lag og ég aftur komin í gönguhópinn miðjan, tók ég til við neyslu orku- drykkja og próteinsúkkulaðis sem ég hafði af forsjálni tekið með. Það jafnast á við hressilegt lyfja- spítt að fá guarana og þrúgusykur inn á líkamskerfið og sem snöggv- ast virtust allar leiðir færar. Leið- irnar reyndust að vísu torfærar og hrikalegar en viðbótarorkan fleytti jafnvel mestu liðleskjum fyrir Heljarkamb og niður Bröttu- fönn. Þegar eldaði aftur og birti kom hins vegar í ljós að sólvörn var meðal þess „lyfjavarnings“ sem vantaði í bakpokann. Á móti okk- ur tók sumarsól sem sveipaði gulli dal og hól. Endurvarpið af snjó- breiðunum jók brunahættu, svo nefi og kinnum var í voða stefnt. Síðar varð og ljóst að svitalykt- areyðir var meðal þess sem marg- ir höfðu gleymt, en eftir heillar nætur fjallgöngu í flísgöllum og steikjandi sól gaus upp megn lík- amslykt í flíkum og tjöldum. Það urðu tjaldbúar að láta sig hafa. Það eru nefnilega heldur engin þvottahús á fjöllum. Við komuna niður í Bása að morgni var bætiefnatap göngu- fólks bætt upp með lýsi sem bauðst í snafsaglösum, en D- vítamínríkt lýsi er einmitt talið gott í dagsbyrjun. Ég var hins vegar í hópi þeirra sem æptu á annars konar apótekaravarning; bólgueyðandi töflur, því strengir eftir gönguna gerðu ótrúlega fljótt vart við sig. Ég var varla göngufær það sem eftir lifði dags og komu sér þá vel íbúfen- töflurnar sem mamma hafði laum- að í nestispokann minn, skv. hug- boði um ógöngur í óbyggðum. Meðan gigtarlyfin gerðu sitt til þess að draga úr þjáningum lær- vöðvanna brosti ég til samferð- armanna og bar mig vel. Þegar leið á kvöldið fóru hins vegar önn- ur einkenni að gera vart við sig. Gróðurofnæmi, sem veldur mér sjaldan óþægindum á hinu hrjóstruga Fróni, blossaði upp. Kannski er ekki við öðru að búast þegar maður liggur nánast með andlitið ofan í grassverðinum dag- langt og dregur ofan í sig mosa- mylsnu, jurtailm og öll hugsanleg frjókorn. Krónískur hnerri, kláði í nefi, bólginn háls og sokkin augu íþyngdu tilveru minni það sem eft- ir lifði útilegu. Ofnæmislyfin mín lágu á eldhúsborðinu heima og enn var ég óþyrmilega minnt á að í óbyggðum eru engin apótek. Í kringum varðeldinn, eftir grillveisluna, fékk ég þó á tilfinn- inguna að lyfjafræðingar á svæð- inu væru fleiri en í fyrstu var talið. Grunsamlegt glundur í flöskum gekk manna á milli og fylgdi sú skýring að vökvinn væri ýmist „hjartastyrkjandi“ eða „róandi“. Mér var að vísu ráðlagt að drekka sem minnst ofan í íbúfenið og hlýddi. Þegar leið á nóttina fór ég hins vegar að sjá eftir því að hafa ekki tekið með mér svefnlyf, slík- ur var hópsöngurinn og gítarspilið á tjaldsvæðinu. En þreytan varð ónæðinu yfirsterkari og jafnvel frjókornin létu í minni pokann yfir blánóttina. Daginn eftir voru augun enn sokkin og kláðinn í algleymingi en strengir í lærum vægari. Samt hefði ég þurft kæruleysissprautu til þess að feta í fótspor ferða- félaganna sem sér til gamans óðu ískalda Sauðá upp á mið læri á heimleiðinni. Ég lét mér nægja að horfa á úr nærliggjandi brekku og drekka síðustu orkulöggina. En sem ég sat þar og hnerraði, fang- aði fjólublátt lyfjagras athygli mína í flórunni og mér flaug í hug að þarna í brattanum væri kannski komið apótekið sem ég hafði allan tímann leitað að. Þarna óx lyfjagras, blóðarfi, selgresi – jurtir sem áður fyrr voru notaðar til þess að græða, lækna og deyfa. Rétt nýbúin að blóta því að hafa ekki tekið með mér teldanexið, rhinocortið og kestinið, rann upp fyrir mér að fyrir ekki svo mjög löngu tókst fólk á við náttúruna með meðulum náttúrunnar sjálfr- ar. Það bjó í náttúrunni og lifði með henni. Engin sólkrem, ekkert íbúfen, ekkert aspirín. Ég varð sem snöggvast skömm- ustuleg, stakk grönnum stilk af lyfjagrasi milli tannanna og byrj- aði að tyggja. Það var í raun ekk- ert að mér nema kveifarskapur. Sjóntruflanirnar í upphafi voru sennilega bara súrefnissjokk, eins og einhver hafði reyndar úrskurð- að strax. Hælsæri fá menn ein- ungis ef þeir nota gönguskóna sína sjaldan. Strengir koma af því að hreyfa sig ekki reglulega. Frjó- kornaofnæmi má eflaust lækna með tei úr öðrum jurtum. Og al- besta víman er fegurð fjallanna sjálfra. Ég hellti síðustu drop- unum af orkudrykknum í veg- kantinn, fyllti flöskuna af tæru vatni úr ískaldri Sauðánni og tók með mér í bæinn. Nýtt náttúrulyf. Til þess að dreypa á í vinnunni daginn eftir, í geislanum frá óheil- næmum tölvuskjánum. Um landið á lyfjum Þarna var apótekið sem ég hafði leitað að. Þarna óx lyfjagras, blóðarfi, selgresi – jurtir sem áður fyrr voru notaðar til þess að græða, lækna og deyfa. VIÐHORF Eftir Sig- urbjörgu Þrast- ardóttur sith@mbl.is ÞAÐ hefur verið einhver ólund í Einari Má Sigurðarsyni, þingmanni Samfylk- ingarinnar, þegar hann skrifaði grein sína í Morgunblaðið 19. júní sl. Þar er Ein- ar að svara grein minni um framkvæmd byggðaáætlunar sem birtist í Morgun- blaðinu 12. júní. Í grein minni sýndi ég fram á að mjög margt af því sem stefnt var að í þeirri byggðaáætl- un sem Alþingi sam- þykkti fyrir árin 1999- 2001 hefur náð fram að ganga. Einar sér að sjálfsögðu ekkert já- kvætt við lestur skýrslunnar. Að sjálfsögðu segi ég, því það er nánast regla að þingmenn Samfylkingar- innar sjá aldrei neitt jákvætt koma frá stjórnvöldum og eru á móti öllu sem ríkisstjórnin leggur til. Gott dæmi um það er afstaða samfylking- arþingmanna til veiða smábáta á ýsu og steinbít utan kvóta, þar sem þeir studdu ekki frumvarp sjávarútvegs- ráðherra um að framlengja þessar veiðar vorið 2000 en hömuðust á rík- isstjórninni fyrir að framlengja þær ekki vorið 2001! Afstaða Samfylkingar til stóriðju Einar gætir þess í grein sinni að svara ekki skrifum mínum um af- stöðu Samfylkingarinnar til stóriðju, en í byggðaáætluninni var lögð áhersla á að nýjum stóriðjuverkefn- um verði fundinn staður utan höf- uðborgarinnar. Enginn vafi er á að stóriðja gjörbreytir atvinnuástandi og fjölgar íbúum þar sem hún er sett niður. Gott dæmi um það er Grundartangi, en verksmiðjurnar þar eiga stóran þátt í mikilli uppbyggingu í suður- hluta Vesturlandskjör- dæmis. Það er því ástæða til að rifja upp umræður um Fljótsdalsvirkjun og álver í Reyðarfirði á Alþingi í fyrra, en þar töluðu félagar Einars í Samfylkingunni sig hása gegn framkvæmd- um og við lokaaf- greiðslu málsins á Al- þingi greiddu 12 þeirra atkvæði gegn virkjun- inni, 1 var fjarverandi, en aðeins 4 voru samþykkir þó allt benti til að þarna væri einstakt tækifæri til að snúa við byggðaþróun á Austur- landi. Nú eru framundan stórar ákvarð- anir í stóriðju- og virkjanamálum. Norðurál á Grundartanga óskar eft- ir orku til að auka framleiðslu úr 90 þús. tonnum í 180 þús. tonn og síðar í 240 þús. tonn. Þessi stækkun myndi skapa mörg hundruð ný störf í verk- smiðjunni og þjónustu við hana, en milli 80 og 90% starfsmanna fyrir- tækisins búa á Vesturlandi. Stækk- unin myndi auka útflutningsverð- mæti um 15 milljarða á ári í fyrri áfanga og 10 milljarða á ári í þeim síðari. Til að hægt sé að verða við óskum Norðuráls þarf mikla orku og til að útvega hana þarf Landsvirkjun að ráðast í framkvæmdir á hálend- inu sem nokkrar deilur eru um. Hver er afstaða Samfylkingarinnar til þeirra framkvæmda? Það hefur ekki bólað á henni. Þá styttist í ákvarðanatöku varð- andi byggingu stóriðjuvers á Reyð- arfirði. Þar er gert ráð fyrir að 1. áfangi skapi 455 störf að viðbættum 300 afleiddum störfum og 2. áfangi sem kæmi í gagnið 2012 skapi 150 störf að viðbættum 100 afleiddum störfum. Útflutningsverðmæti ál- versins yrði væntanlega 40-60 millj- arðar á ári. Allir sjá hve gífurlegar breytingar þetta iðjuver hefði í för með sér á Austurlandi. Til að þetta verði að veruleika þarf að virkja stórt. Deilur um fyrirhugaða virkjun eru hafnar. Hver er afstaða Sam- fylkingarinnar til þeirra fram- kvæmda? Það hefur ekki bólað á henni. Allt hjal Einars um getuleysi stjórnarflokkanna í byggðamálum er marklaust gaspur meðan flokk- urinn hans treystir sér ekki til að taka afstöðu til þessara miklu fram- kvæmda sem munu stórefla lands- byggðina. Fylgisleysi Samfylkingarinnar Af hverju er Samfylkingin smá- flokkur? Þessi mikla hreyfing vinstri manna sem stofnuð var sem mót- vægi við Sjálfstæðisflokkinn og stefndi að 40% fylgi mælist stöðugt minni í skoðanakönnunum og nálg- ast hægt og bítandi fylgi Frjálslynda flokksins. Skyldi það nú vera að þessi stanslausa neikvæðni og svart- sýni gangi ekki í landsmenn? Ég græt það svo sem ekki. Ólund í Einari Guðjón Guðmundsson Samfylkingin Samfylkingin, segir Guðjón Guðmundsson, nálgast hægt og bítandi fylgi Frjálslynda flokksins. Höfundur er þingmaður Sjálfstæð- isflokksins. Í KJÖLFAR ákvörð- unar sjávarútvegsráð- herra um heildarafla á næsta fiskveiðiári er vert að velta því fyrir sér hvaða áhrif það hefði ef gjaldmiðill Ís- lendinga væri evra, eins og hugur sumra stendur til. Það er reyndar rétt að undir- strika strax í upphafi að engar aðstæður eru til slíks, hvorki hag- rænar né pólitískar. Ég hef áður bent á það í nýlegri grein í Morgun- blaðinu að flestir máls- metandi hagfræðingar og stofnanir á sviði efnahagsmála hafa talið það best fyrir Ísland að fylgja sveigjanlegri gengisstefnu líkt og nú er gert, m.a. þar sem sveiflur í hagkerfinu eru hér meiri og með öðr- um hætti en í viðskiptalöndum okk- ar. Þessa skoðun hafa stjórnvöld hér á landi stutt með nýlegri ákvörðun um að afnema svokölluð vikmörk í gengi krónunnar, sem þýðir í reynd að genginu er leyft að hreyfast að vilja markaðsafla. Þetta hefur það m.a. í för með sér að gengi krónunn- ar breytist eftir aðstæðum í efna- hagsmálum hér á landi hverju sinni og jafnar gengið þá áhrifin af sveifl- um í framleiðslu. Þannig verður síð- ur hætta á stórfelldum gjaldþrotum og atvinnuleysi. Sveigjanlegt gengi dregur úr áhrifum samdráttar Það er einmitt það sem nú virðist ætla að gerast. Búast má við nokkr- um samdrætti í veiðum vegna ástands þorskstofnsins, en hagkerfið hér á landi hefur brugðist við því með því að láta gengi krónunnar falla þannig að meira fæst fyrir útflutning sjávarafurða í íslenskum krónum tal- ið. Þannig mildast áhrifin af samdrættin- um, tekjutap framleið- enda verður minna og jafnframt verða áhrifin á atvinnustig minni; sem sagt síður hætta á atvinnuleysi. Á þetta hafa íslenskar hag- stofnanir m.a. bent eins og lesa má í fréttum í Morgunblaðinu. Þeir sem eru fylgj- andi því að Ísland taki upp evru virðast líta al- gjörlega fram hjá ofan- greindum atriðum, en telja að með tilkomu evrunnar myndi ís- lenskt hagkerfi laga sig að hagsveifl- um í Evrópu. Það er hins vegar stað- reynd að sjávarútvegur er enn sem fyrr meginstoð íslensks hagkerfis. Nýjar hátæknigreinar sem sprottið hafa upp hér á landi að undanförnu breyta litlu þar um. Því má búast við sveiflum af því tagi sem við nú stönd- um frammi fyrir með nokkurra ára millibili og því ekki útlit fyrir á næst- unni að sveiflur í íslensku hagkerfi lagi sig að því sem gerist á megin- landi Evrópu (helst mætti reyndar ætla að sumir evrusinnar teldu að þorskurinn myndi láta sig það ein- hverju skipta hvort hér væri notuð króna eða evra og að viðkoma þorsk- stofnsins yrði stöðugri ef evran yrði notuð!). Til þess að gæta sanngirni skal viðurkennt að viðskiptakostnaður sumra fyrirtækja og einstaklinga gæti minnkað við það að Ísland gengi í myntbandalag. Ábatinn sem af því hlytist væri þó mun minni en hagur allra landsmanna af því að viðhalda sjálfstæðri gengisstefnu. Ennfremur er rétt að viðurkenna að sveigjanleg gengisstefna getur haft í för með sér tímabundna verðbólgu, líkt og nú virðist ætla að gerast. Verðhækkan- irnar að undanförnu virðast þó vera óhjákvæmilegur liður í aðlögun hag- kerfisins að þeim sveiflum sem átt hafa sér stað, m.a. í viðskiptum við útlönd, en viðskiptahallinn væri minni ef ríkisstjórnin hefði ekki haft frammi þensluhvetjandi aðgerðir. Ein leið til þess að draga úr áhrif- um þessara sveiflna og áfalla er sem sagt að hafa gengi krónunnar sveigj- anlegt og leyfa því að hækka í góðæri en lækka þegar útlit er fyrir að harðni á dalnum, líkt og gerst hefur nú fyrir tilstilli markaðsaflanna. Fyrir vikið er útlit fyrir að útflutn- ingsfyrirtækin hér á landi fái nú 12– 13% prósentum meira fyrir fram- leiðslu sína en ella. Ef evrusinnar hefðu fengið að ráða hefðu tekjur út- flutningsfyrirtækja verið mun minni og atvinnu fjölda fólks hefði verið stefnt í voða. Það er vert að hafa þetta í huga við umræður um hugs- anlega ESB-aðild og evruvæðingu hér á landi. Hvar stæðum við nú með evruna? Stefán Jóhann Stefánsson Gengi Ef evrusinnar hefðu fengið að ráða, segir Stefán Jóhann Stef- ánsson, hefðu tekjur út- flutningsfyrirtækja ver- ið 12–13% minni og atvinnu fjölda fólks hefði verið stefnt í voða. Höfundur er hagfræðingur og stjórnmálafræðingur og er formaður Kjördæmafélags Samfylkingarinnar í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.