Morgunblaðið - 30.06.2001, Side 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isGuðni Rúnar
til Valsmanna / B1
Fyrsti tapleikur Þórsara
í 1. deildinni / B3
4 SÍÐUR16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á LAUGARDÖGUM L a u g a r d a g u r30.
j ú n í ˜ 2 0 0 1
UMBOÐSMAÐUR Alþingis hefur
beint þeim tilmælum til sjávarút-
vegsráðuneytisins að það taki til
endurskoðunar umsókn Jóns Krist-
jánssonar fiskifræðings, óski hann
þess, um leyfi til fiskifræðilegra
rannsókna og beiðni um heimild til
að veiða þorsk utan aflamarks til að
standa undir hluta rannsóknar-
kostnaðar.
Ráðuneytið hafði fallist á að veita
leyfi til sjálfstæðra rannsókna með
tilteknum skilyrðum ef umsækjandi
teldi ástæðu til að afla gagna sem
ekki lægju þegar fyrir hjá Hafrann-
sóknastofnun.
Umboðsmaður benti á að sam-
kvæmt ákvæðum 13. gr. laga um
veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands
væri sjávarútvegsráðherra heimilt,
að fenginni umsögn Hafrannsókna-
stofnunar, að veita tímabundnar
heimildir til vísindalegra rannsókna
í fiskveiðilandhelgi Íslands. Um-
boðsmaður lagði á það áherslu að
ekki yrði sú ályktun dregin af
ákvæði 13. gr. laganna að heimild
ráðherra til að veita leyfi til veiði-
tilrauna og rannsókna takmarkað-
ist við að þær upplýsingar og gögn
sem umsækjandi áformaði að afla
lægju ekki fyrir hjá Hafrannsókna-
stofnun. Eftir stæði það álitaefni
hvort og í hvaða mæli ráðherra
væri almennt heimilt að binda leyfi
samkvæmt greininni slíku skilyrði.
Umboðsmaður tók það fram að vís-
indarannsóknir af hálfu aðila, sem
hefði þær að atvinnu sinni, félli
undir 73. og 75. grein stjórnar-
skrárinnar um tjáningar- og at-
vinnufrelsi.
Í niðurstöðu álits umboðsmanns
segir að sjávarútvegsráðuneytið
hafi ekki sýnt fram á að ákvörðun
þess um að binda leyfi umsækjanda
til vísindalegra rannsókna því skil-
yrði að rannsóknir hans takmörk-
uðust við öflun gagna, sem ekki
lægju fyrir í gagnagrunni Hafrann-
sóknastofnunar, hafi verið nauðsyn-
leg og þannig í samræmi við lög.
Umboðsmaður um takmörkun ráðuneytis á leyfi til vísindarannsókna
Ekki sýnt fram á að ákvörð-
unin sé í samræmi við lög
ÞORSTEINN Pálsson, for-
stjóri Kaupáss hf., hefur sagt
upp störfum hjá félaginu.
Stjórn
Kaupáss, sem
rekur verslan-
ir Nóatúns,
KÁ á Suður-
landi, 11–11,
Intersport og
Húsgagna-
höllina, hefur
óskað eftir því
við Þorstein
að hann gegni
starfinu áfram þar til eftir-
maður hans hefur verið fund-
inn og hefur hann samþykkt
það.
Fyrr í vikunni slitnaði upp
úr samningaviðræðum Kaup-
áss og Húsasmiðjunnar um
mögulegan samruna en þær
viðræður höfðu staðið yfir um
hríð.
Þorsteinn Pálsson stýrði
Kaupfélagi Árnesinga á Sel-
fossi áður en hann tók við
Kaupási. Þar áður starfaði
hann hjá Hagkaupi.
Hættir sem
forstjóri
Kaupáss
Þorsteinn
Pálsson
NÝR hverfill Orkuveitu Reykja-
víkur í Nesjavallavirkjun var
gangsettur í gær af Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra.
Við þetta eykst raforkuframleiðsla
Nesjavallavirkjunar úr 60 MW í 90
MW og verður virkjunin með þessu
stærsta gufuaflsvirkjun landsins,
en deildi því áður með Kröflu.
Að sögn Alfreðs Þorsteinssonar,
stjórnarformanns Orkuveitu
Reykjavíkur, er vissulega þörf fyr-
ir stækkun Nesjavallavirkjunar og
telur hann að hér sé um hag-
kvæman kost að ræða. „Það sem
framleitt verður umfram af raf-
magni er Landsvirkjun tilbúin að
kaupa af Orkuveitunni en raunar
hafa stóriðjufyrirtækin hér í ná-
grenni borgarinnar einnig sýnt
áhuga,“ segir Alfreð.
Tekjur raforkuframleiðslu á
Nesjavöllum verða um 1300 millj-
ónir á ári að meðaltali næstu 10 ár
en kostnaður við stækkunina nú er
rúmlega 2,5 milljarðar.
Nýr hverfill Nesjavallavirkjunar gangsettur við hátíðlega athöfn í gær
Morgunblaðið/Sverrir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Alfreð Þorsteinsson að lokinni gang-
setningu nýja hverfilsins í Nesjavallavirkjun í gær.
Stærsta gufuafls-
virkjun landsins
UTANRÍKISRÁÐUNEYTINU
hefur borist svarbréf frá stjórn Ís-
lenskra aðalverktaka varðandi eign-
arhlut Jóns Ólafssonar í félaginu,
að sögn Gunnars Gunnarssonar,
skrifstofustjóra varnarmálaskrif-
stofu ráðuneytisins. Hann segir að í
svarbréfi stjórnarinnar komi fram
að Íslenskum aðalverktökum hafi
borist bréf frá Hilmari S. Sigurðs-
syni, framkvæmdastjóra Jóns
Ólafssonar og co sf., þar sem grein
sé gerð fyrir samsetningu hluta-
bréfaeignar hans í félaginu. Stjórn
Íslenskra aðalverktaka segi að
félagið hafi enga ástæðu til að ætla
að neinn einn aðili eigi hlut í félag-
inu umfram þau 7% sem reglur ut-
anríkisráðuneytisins segi til um.
Samkvæmt reglum utanríkis-
ráðuneytisins, sem settar voru
haustið 1998, áður en ríkið hóf sölu
á hlut sínum í Íslenskum aðalverk-
tökum, skyldi enginn, að ríkinu
undanskildu, eiga meira en 7%
hlutafjár í félaginu. Þetta var skil-
yrði fyrir tilnefningu Íslenskra að-
alverktaka til verktöku fyrir Varn-
arliðið.
Óbein eignaraðild 4,38%
Að sögn Gunnars kemur fram í
svarbréfi Hilmars Sigurðssonar að
Jón Ólafsson eigi hlut í þremur
félögum, sem síðan eigi hlutabréf í
Íslenskum aðalverktökum. Þetta
séu félögin Jón Ólafsson og co, sf.,
sem eigi 0,69% í Íslenskum aðal-
verktökum, Nasalar Consultancy
Limited, með 2,93% hlut, og Jamie-
ton International Limited, sem eigi
7%. Hlutur Jóns Ólafssonar í þess-
um þremur félögum sé 45% í Jóni
Ólafssyni og co sf. og 41% í hvoru
hinna tveggja félaganna. Óbein
eignaraðild Jóns Ólafssonar í Ís-
lenskum aðalverktökum í gegnum
tengd félög sé því, að sögn Hilmars,
4,38%.
Gunnar segir að verið sé að
skoða túlkun á reglum varðandi
þetta mál í utanríkisráðuneytinu,
meðal annars með tilliti til íslenskra
samkeppnislaga, sem og með tilliti
til EES-reglna, en ráðuneytinu hafi
borist fyrirspurn um málið frá
ESA-eftirlitsstofnun EFTA. Fyrir-
spurninni verði svarað innan tíðar.
Enginn hluthafi á meira
en 7% í fyrirtækinu
Stjórn Íslenskra aðalverktaka svarar ráðuneytinu