Morgunblaðið - 30.06.2001, Síða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2001 11
PÁLL Skúlason, háskólarektor,
hefur ákveðið að leggja niður starf
Gunnars Þórs Jónssonar læknis
sem prófessors í slysalækningum
við læknadeild Háskóla Íslands frá
og með 1. júlí. Þetta kom fram á
blaðamannafundi sem þau Gunnar
og eiginkona hans og talsmaður,
Arnþrúður Karlsdóttir, héldu í
gær. Að sögn Arnþrúðar hafði
Gunnari borist bréf frá Páli Skúla-
syni háskólarektor á miðvikudags-
kvöld þar sem Gunnari var tilkynnt
að staða hans yrði lögð niður á
morgun, þann 1. júlí. Gunnari var á
sínum tíma vikið úr stöðu prófess-
ors. Hann höfðaði mál til ógildingar
uppsögninni og vann málið bæði í
héraðsdómi og fyrir Hæstarétti.
„Undanfari þess er nánast eng-
inn af hálfu háskólarektors, við
höfðum ekkert frá honum heyrt,
ekki heyrt frá nokkrum manni sem
gat gefið okkur tilefni til þess að
ætla að við gætum átt von á svona
niðurstöðum,“ segir hún.
Höfðu tvo virka daga til
að bregðast við
Í umræddu bréfi sem Gunnar
fékk frá Páli kemur fram að það er
dagsett þann 22. júní. Þar kemur
fram að deildarráð læknadeildar
Háskóla Íslands hafi á fundi sínum
þann 21. júní afgreitt tillögu um að
stofnuð verði ný fræðigrein við
deildina sem taki til bráðalækn-
inga. Jafnframt leggur deildarráð
til ásamt kennsluráði að störf pró-
fessors og dósents í slysalækning-
um verði lögð niður frá og með 1.
júlí. Tillögur læknadeildar eru rök-
studdar með vísan til þeirrar þró-
unar sem orðið hafi innan lækn-
isfræðinnar á síðustu 10 til 20 árum
hvað varðar meðferð bráðatilvika
og slysa. Þessi þróun hafi leitt til
þess að ný sérgrein, bráðalækn-
ingar, hafi orðið til og það kalli á
nýja hætti í kennslu og rannsókn-
arvinnu. Í bréfinu segir orðrétt:
„Ég [Páll Skúlason] hef fyrir mitt
leyti fallist á framangreindar til-
lögur læknadeildar um breytingar
á skipan fræðigreina og jafnframt
að rétt sé að byggja upp frá grunni
kennslu og rannsóknir í hinni nýju
fræðigrein. Er það mat mitt að
óhjákvæmilegt sé að stofna til
nýrra starfa í þágu hinnar nýju
fræðigreinar sem verði auglýst í
samræmi við almennar reglur og
að störf sem byggðust á eldri
grunni verði úr sögunni. Því hef ég
ákveðið að leggja niður störf pró-
fessors og dósents í slysalækning-
um við læknadeild Háskóla Ís-
lands.“
Eins og frá segir fengu hjónin að
sögn Arnþrúðar bréfið frá Páli á
miðvikudagskvöldið. „Við reyndum
þá auðvitað að ná í lögmann okkar,
Jón Steinar Gunnlaugsson, en hann
er þá í veiði úti á landi þannig að
við erum lögmannslaus,“ segir hún
og bætir við að þar sem þetta taki
gildi á morgun hafi þau haft tvo
virka daga til að bregðast við. Þau
hjónin hugleiddu að setja lögbann á
þetta en tímans vegna sem og lög-
mannsleysis gátu þau ekki brugðist
við því. Réttarhlé var að hennar
sögn sett af stað í gærmorgun.
„Þetta er einhver sú ljótasta
valdabarátta sem ég tel að sé að
eiga sér stað hjá hámenntuðu fólki
í þjóðfélaginu og okkur hefur
a.m.k. öllum verið kennt að bera
virðingu fyrir svo ekki sé meira
sagt. Og þetta er grimm og ljót
valdabarátta og við teljum að fram-
kvæmdin að þessu sé engan veginn
lögleg. Hún er að minnsta kosti
ekki siðleg.“
Gunnari vitanlega hefur þetta
aldrei verið rætt í læknadeildinni
fyrr en þann 21. júní 2001 og þá
telur hann að beðið hafi verið með
að setja bréfið í póst. „Ég var bú-
inn að lýsa því yfir við marga sem
ég þekki að ég skyldi ekki fara frá
þessu máli þar sem framkvæmda-
valdið hefur farið þvílíku offorsi og
brotið lög í marggang og verið
dæmt fyrir það án þess að þurfa að
gjalda fyrir það á einn eða neinn
hátt,“ segir Gunnar og vísar einnig
til baráttu sinnar við forráðamenn
Sjúkrahúss Reykjavíkur sem þá
var.
Þegar Gunnar er spurður hvað
hann hyggist gera í framhaldi seg-
ist hann muni leita réttar síns. „Ég
hyggst ræða við minn lögfræðing
og láta fara yfir það hvort það sé
grundvöllur fyrir því að kæra þessa
ákvörðun rektors.“ Þá segist hann
vilja loka þessu máli með starfs-
lokasamningi þar sem hann fengi
einhver eftirlaunaréttindi sem
væru viðunandi og eitthvert ígildi
skaðabóta án þess að þurfa fara í
mál.
Háskólinn leggur niður stöðu Gunnars Þórs Jónssonar við Háskólann
Hyggst leita
réttar síns
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hjónin Arnþrúður Karlsdóttir og Gunnar Þór Jónsson læknir á blaða-
mannafundinum í gær.
NEYÐARLÍNA gegn barnaklámi
á Netinu er í bígerð hjá samtök-
unum Barnaheill og verður fyrsta
skrefið að setja upp vef á netinu
með upplýsingum um barnaklám
og afleiðingar þess. Barnaheill
hafa nýlega fengið styrk frá Evr-
ópusambandinu sem alls mun
nema 100.000 evrum og munu
samtökin í tengslum við þetta
einnig gerast aðilar að INHOPE
samtökunum sem stofnuð voru
1999 og eru fjármögnuð af Evr-
ópusambandinu. INHOPE-sam-
tökin eru regnhlífarsamtök neyð-
arlína í Evrópu og hafa að
markmiði að berjast gegn óæski-
legu efni á netinu, sér í lagi barna-
klámi.
Cormac Callanan, formaður IN-
HOPE-samtakanna. segir samtök-
in taka við ábendingum frá al-
menningi um hvar óæskilegt efni
kunni að vera að finna og fylgi svo
formlegum starfsreglum til að
vinna úr málum, sem til dæmis
geti falist í því að tilkynna málið
til lögregluyfirvalda. „Samtökin
fylgjast með starfsemi neyðarlína
um Evrópu og hafa eftirlit með að
þau byggi á ákveðnum gæðastuðli
og vinni starf sitt fagmannlega.
Neyðarlínur sem berjast gegn
barnaklámi á Netinu hafa verið
starfandi víða undanfarin ár og er
starfsemi þeirra brýn, enda auð-
velt fyrir hvern sem er að setja
efni á Netið og aðgangurinn er
frjáls,“ segir Callanan.
Hann bendir á að starfsemi
neyðarlínanna sé landamæralaus.
„Ef Íri t.d. kvartar yfir efni á net-
síðu sem á rætur að rekja til Ís-
lands við írsku neyðarlínuna, þá
munu starfsmenn hennar skoða
málið og ef ástæða er til hafa
samband við íslensku neyðarlín-
una. Mismunandi löggjöf milli
landa getur gert mönnum erfitt
fyrir, því það sem er ólöglegt í
einu landi getur vel verið löglegt
annars staðar,“ segir Callanan.
Starf INHOPE hefur
þegar borið árangur
Á vegum INHOPE-samtakanna
á sér nú stað samstarf milli 11
neyðarlína víðs vegar í Evrópu og
að auki samstarf við Ástralíu og
Bandaríkin. Callanan segir starf
neyðarlínanna og INHOPE þegar
hafa borið árangur. Starfandi
neyðarlínur hafi náð að skapa góð
tengsl við lögregluna með því að
tilkynna um óæskilegt efni á Net-
inu til hennar og hafa slík mál leitt
til handtöku og dóma yfir fólki
sem staðið er að því að dreifa
óæskilegu efni á Netinu.
Að sögn Kristínar Jónasdóttur,
framkvæmdastjóra Barnaheilla,
hefur lengi verið í bígerð að koma
upp neyðarlínu á Íslandi og er nú
stefnt á að starfsemi hennar hefj-
ist í haust. „Þótt Netið sé að
mörgu leyti bylting í upplýsinga-
gjöf á það sér dökkar hliðar sem
við erum að reyna að vinna gegn,
við viljum gera Netið að öruggu
svæði fyrir alla til að vera á og
leita sér upplýsinga. Við viljum
vekja foreldra, skóla og aðra upp-
alendur til umhugsunar um að
þetta er nýr miðill sem við þurfum
að fylgjast með hvernig börn nota,
sérstaklega þegar kemur að spjall-
rásum og fréttahópum,“ segir
Kristín. Að sögn Kristínar voru
þeir sem áttu frumkvæði að starf-
semi neyðarlína víðs vegar um
lönd í mörgum tilfellum meðvitaðir
borgarar sem risu upp og gripu til
aðgerða gegn efni á borð við
barnaklám. „Fólk myndaði hópa
og fór kannski dálítið í lögreglu-
hlutverk við að elta þessa glæpa-
menn. INHOPE-samtökin voru
meðal annars stofnuð til að stöðva
það, og færa starfsemi samtak-
anna undir eftirlit og auka sam-
starf við yfirvöld.“
Vonumst eftir góðu samstarfi
við lögregluyfirvöld
Hún segir að enn sé ekki alveg
búið að útfæra hvernig íslenska
neyðarlínan muni starfa en grunn-
hugmyndin sé þó sú að almenn-
ingur geti látið vita af óæskilegu
efni á Netinu. „Við munum þá
skoða málið og kanna hvort
ástæða er til að gera eitthvað
meira í því. Við vonumst til að
verða í góðu samstarfi við lögregl-
una. Samstarfið við INHOPE-
samtökin er eitt af skilyrðum fyrir
styrk Evrópusambandsins en við
þurfum þó einnig að afla fjár til
starfseminnar hér heima og von-
umst til að ríkisstjórn Íslands
komi þar að málum,“ segir Kristín.
Samtökin Barnaheill hafa fengið
styrk frá Evrópusambandinu
Neyðarlína gegn
barnaklámi á Netinu
FIMMTÁN ára piltur slapp naum-
lega þegar eldur kviknaði í gámi á
Akranesi upp úr klukkan tíu í gær-
morgun.
Að sögn lögreglunnar á Akranesi
var gámurinn notaður sem bensín-
geymsla vinnuskólans og stóð hann
við áhaldahúsið við Ægisbraut.
Pilturinn var að sækja bensín í
gáminn og kveikti eld inni í honum
en nokkruð hundruð lítrar af bensíni
voru í geymdir þar inni og loftið því
mengað af bensíngufum.
Eins og áður segir slapp pilturinn
naumlega en hann stökk út úr gám-
inum með eldtungurnar á eftir sér.
Stökk út
úr brenn-
andi gámi
♦ ♦ ♦
FRAMKVÆMDUM við Barnaspít-
ala Hringsins miðar vel að sögn
Ólafs Friðrikssonar, hjá ÓG Bygg
sem sér um byggingu hússins, frá-
gang að utanverðu og lóð. Nú er ver-
ið að klára að steypa húsið og verður
þá aðeins eftir að klæða húsið með
steinplötum, áður en verkið verður
afhent til frágangs innanhúss.
Samkvæmt verksamningi átti ÓG
Bygg að skila verkinu af sér þann 1.
júní, en vegna mistaka í gerð útboðs-
gagna var sá tími framlengdur um
tvo mánuði. Ingólfur Þórisson, fram-
kvæmdastjóri tækni og eigna Land-
spítala – Háskólasjúkrahúss, segir
þó útlit fyrir að verkinu verði skilað
nokkru síðar.
Í útboðsgögn vantaði að sögn
Ólafs allar gólfplötur, sem og þrjá
stigaganga í húsinu sem ná milli
fimm hæða. Einnig eru milliveggir
fleiri en fram kom í útboðsgögnum
frá Framkvæmdasýslu ríkisins. ÓG
Bygg fékk verkið í útboði og hljóðaði
tilboð fyrirtækisins upp á tæpar 400
milljónir, en Ólafur segir að um 40
milljónir hafi bæst við þá upphæð
vegna þess sem gleymdist.
Ingólfur segir að búið sé að bjóða
út frágang innandyra. Tilboð verða
opnuð í byrjun ágúst og er búist við
að hafist verði handa við innrétting-
ar í byrjun september. Þó bygging
hússins hafi tafist, lengist heildar-
byggingartími hússins ekki, þar sem
hægt verður að byrja að innrétta þó
enn verði unnið í húsinu að utan.
Ingólfur segir að meginhluta
hússins verði skilað 1. október 2002,
og þremur mánuðum síðar eigi vöku-
deild og gjörgæslu nýbura, sem og
fyrirlestrasal, að vera lokið.
Til viðbótar við vöku- og gjör-
gæsludeild nýbura verða þrjár legu-
deildir í húsinu, ungbarnadeild,
handlækningadeild og lyflækninga-
deild. Alls verða um 65 sjúkrarúm á
barnaspítalanum.
Bygging Barna-
spítala Hringsins
Fyrri
áfangi
langt
kominn