Morgunblaðið - 30.06.2001, Síða 18
LANDIÐ
18 LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
KAUPÞING hf. hefur undirritað
viljayfirlýsingu um sameiningu við
Sofi Financial Services Group í
Finnlandi. Að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá Kaupþingi er
Sofi verðbréfafyrirtæki sem hefur
sérhæft sig í eignastýringu og
verðbréfamiðlun fyrir fyrirtæki,
stofnanafjárfesta og efnaða ein-
staklinga. Sofi er aðili að kauphöll-
inni í Helsinki og á í nánu sam-
starfi við aðrar fjármálastofnanir,
meðal annarra Merrill Lynch,
Deutsche Bank og Fidelity Invest-
ments.
Í tilkynningu Kaupþings kemur
fram að samkvæmt fyrrnefndri
viljayfirlýsingu sé gert ráð fyrir að
hluthafar Sofi fái hlutabréf í Kaup-
þingi í skiptum fyrir hlutabréf sín í
Sofi, en fyrirvari er gerður um nið-
urstöðu áreiðanleikakönnunar og
samþykki stjórnar og hluthafa-
fundar Kaupþings.
Miklir vaxtarmöguleikar
í Finnlandi
Sigurður Einarsson, forstjóri
Kaupþings, segir aðdraganda máls-
ins vera þann að Kaupþing hafi
verið að skoða markaðinn í Finn-
landi mjög ítarlega undanfarin ár
og eigi töluverð viðskipti við Finn-
land. Hann segist telja að finnski
markaðurinn eigi eftir að vaxa mik-
ið á næstu árum og að Sofi hafi alla
burði til að vaxa hratt. Það sé stór-
kostleg breyting fyrir Kaupþing að
komast inn á finnska markaðinn.
Starfsmenn Sofi eru nú um 35 og
það hefur jafnvirði um 50 milljarða
króna í eignastýringu. Til saman-
burðar eru um 300 starfsmenn hjá
Kaupþingssamstæðunni og um 200
milljarðar í eignastýringu.
Kaupþing hyggst kaupa
finnskt verðbréfafyrirtæki
BRESKA tískuverslanakeðjan Ar-
cadia, sem er að 20% í eigu Baugs
hf., hefur birt sölutölur fyrir
fyrstu 17 vikur seinni helmings
rekstrarárs síns sem nú er nýlok-
ið. Sala í verslunum Arcadia jókst
um 7,1% á tímabilinu ef miðað er
við sama tímabil árið 2000 og sala
á hvern fermetra jókst um 14%.
Miklar breytingar hafa orðið á
rekstri félagsins allt frá því að
nýir stjórnendur, með Stuart Rose
í broddi fylkingar, tóku við síðast-
liðið haust. Alls jókst heildarsala
keðjanna um 0,8% á tímabilinu en
sölurými minnkaði hins vegar um
11,8%. Þá hækkaði framlegð fyr-
irtækisins um 1,1%, en sú hækkun
jafngildir 17,2 milljón punda
aukningu hagnaðar á ársgrund-
velli, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá Baugi.
Hlutur Baugs um 16 milljarðar
Arcadia Group velti tæpum 300
milljörðum króna á síðasta rekstr-
arári og um 150 milljörðum á
fyrri hluta nýliðins rekstrarárs.
Gert er ráð fyrir að hagnaður árs-
ins í heild verði nálægt 300 millj-
örðum króna.
Hlutabréf Arcadia Group eru
skráð í kauphöllinni í London og
samkvæmt gengi bréfanna er
markaðsvirði um 80 milljarðar
króna og markaðsvirði fimmt-
ungshlutar Baugs því um 16 millj-
arðar króna.
Sala Arcadia
jókst um 7,1%
Morgunblaðið/Þorkell
Stuart Rose, forstjóri Arcadia.
SAMNINGAVIÐRÆÐUM um
mögulegan samruna Norðlenska
matborðsins ehf., sem er í meirihluta-
eigu KEA, og Goða hf. hefur verið
hætt. Þess í stað eiga sér viðræður
milli félaganna um kaup Norðlenska
matborðsins ehf. á einstökum rekstr-
areiningum og eignum.
Samningavið-
ræðum slitið
VÖRUSKIPTIN í maí voru óhag-
stæð um 3,5 milljarða króna en þá
voru fluttar út vörur fyrir 14,3
milljarða króna og inn fyrir 17,9
milljarða króna fob. í maí í fyrra
voru vöruskiptin óhagstæð um 10,9
milljarða á föstu gengi.
Í frétt frá Hagstofunni kemur
fram að fyrstu fimm mánuði ársins
voru fluttar út vörur fyrir 75,5
milljarða króna en inn fyrir 84,1
milljarð króna fob. Halli var því á
vöruskiptunum við útlönd sem nam
8,6 milljörðum króna en á sama
tíma árið áður voru þau óhagstæð
um 18 milljarða á föstu gengi.
Fyrstu fimm mánuði ársins var
vöruskiptajöfnuðurinn því 9,4 millj-
örðum króna skárri en á sama tíma
í fyrra.
Verðmæti vöruútflutnings fyrstu
fimm mánuði ársins var 7,9 millj-
örðum eða 12% meira á föstu gengi
en á sama tíma árið áður. Aukn-
ingin stafar að stórum hluta af út-
flutningi á áli og auknum skipaút-
flutningi. Sjávarafurðir voru 61%
alls útflutnings og var verðmæti
þeirra 2% meira en á sama tíma ár-
ið áður. Aukningu sjávarafurða má
einna helst rekja til aukins útflutn-
ings á fiskimjöli.
Verðmæti vöruinnflutnings
fyrstu fimm mánuði ársins var 1,5
milljarði eða 2% minna á föstu
gengi en á sama tíma árið áður. Af
einstökum vöruflokkum hefur orðið
mestur samdráttur í eldsneyti og
flutningatækjum.
Halli á vöruskiptum 8,6 milljarðar fyrstu fimm mánuðina
Vöruskiptajöfnuðurinn 9,4
milljörðum skárri en í fyrra
SÍF og Eimskip hafa gengið frá
samningi um að Eimskip kaupi flutn-
ingaskipið ms. Hvítanes sem hefur
undanfarin ár verið í eigu SÍF hf. og
flutt saltfisk frá Íslandi til Suður-
Evrópu. Bókfærður hagnaður SÍF
hf. af sölunni verður um 120 milljónir
króna.
Samhliða eigendaskiptum á skip-
inu hafa félögin gert með sér samn-
ing til fimm ára um flutning á salt-
fiskafurðum, að því er fram kemur í
tilkynningu til Verðbréfaþings.
Hvítanesið hefur 2.000 tonna
burðargetu og hefur verið í eigu SÍF
hf. frá árinu 1997. Eimskip tekur við
rekstri Hvítanessins í september og
er gert ráð fyrir að rekstur verði
með svipuðum hætti a.m.k. fyrst um
sinn. Skipið sinnir áfram kæliflutn-
ingum á saltfiskafurðum til Suður-
Evrópu.
Skerpa áherslur í rekstri
Sala SÍF hf. á skipinu er liður í
nýrri stefnu félagsins um að skerpa
áherslur í rekstri samstæðunnar, og
kaup Eimskips á Hvítanesinu eru
liður í að efla þjónustu og auka hag-
kvæmni í flutningum félagsins milli
Noregs, Íslands, Norður-Spánar og
Portúgals. Kaupin eru gerð í fram-
haldi af ákvörðun Eimskips um að
hefja reglubundnar siglingar til
þessara landa með tveimur frysti-
skipum í apríl sl. Aðspurður um
hvort Samskip hefðu eitthvað verið
inni í myndinni varðandi söluna á
Hvítanesinu sagði Örn Viðar Skúla-
son, framkvæmdastjóri markaðssvið
SÍF, í gær að svo hefði ekki verið.
Mundill ehf., dótturfélag Sam-
skipa, er fjórði stærsti hluthafinn í
SÍF en félagið keypti 6,14% eignar-
hlut í SÍF 31. maí síðastliðinn.
Knútur Hauksson, aðstoðarfor-
stjóri Samskipa, sagði í gær að kaup
félagsins á Hvítanesinu hefðu hugs-
anlega getað komið til greina en þau
hefðu hins vegar ekki komið til um-
ræðu.
Eimskip kaupir Hvítanesið af SÍF
VIÐAMESTA og dýrasta dómsmáli
í Bretlandi hefur verið afstýrt með
dómsátt. Ernst & Young, sem sá um
þrotabú Barings bankans, hafði
höfðað mál á hendur endurskoðunar-
og ráðgjafafyrirtækjunum Coopers
& Lybrand, sem nú er hluti af Price-
WaterhouseCoopers og Deloitte&-
Touche með skaðabótakröfur upp á
einn milljarð punda.
Fyrirtækin tvö endurskoðuðu
dótturbanka Barings í Singapúr,
sem Nick Leeson gerði gjaldþrota
með fífldjörfum og ólöglegum um-
svifum. C&L hafa nú náð dómsátt en
málið gegn D&L stendur enn.
Málshöfðunin verður nú umsvifa-
minni en í stefndi.
Dómsátt
um Baring
London. Morgunblaðið.
♦ ♦ ♦
HJÓNIN Sigrún Kjartansdóttir og
Haukur Tryggvason hafa hafið
rekstur orlofshúss á Húsavík sem
þau nefna Orlofshúsið Þórðarstaði.
Orlofsíbúð er nýr valkostur fyrir
ferðamenn og aðra sem þurfa á
gistingu í bænum að halda, en fyr-
ir eru hótel og gistiheimili.
Þetta er fjögurra herbergja íbúð
sem eins og nafnið gefur til kynna
er til húsa að Þórðarstöðum. Húsið
stendur við Skálabrekku, sem er
gata við rætur Skálamels í Húsa-
víkurfjalli.
Íbúðin er á efri hæð hússins, sem
byggt er 1932 en hefur gengið í
gegnum margar breytingar og
endurnýjun í gegnum tíðina, efri
hæðin er síðan byggð 1984. Sigrún
segir að íbúðin hafi öll verið tekin í
gegn, í íbúðinni eru eins og áður
segir þrjú svefnherbergi, stofa og
eldhús. Sett var parket á gólfin,
nýjar innréttingar, eldhústæki, allt
innbú nýtt o.fl. ásamt því að allt
var málað í hólf og gólf.
Sigrún segir að fyrstu gestirnir
hafi komið í lok apríl og til þessa
hafi eingöngu verið Íslendingar í
íbúðinni en þó hafi komið fyrir-
spurnir frá erlendum ferðamönn-
um. Sigrún segir aðspurð að þau
séu ekki komin í samstarf við stétt-
arfélög, starfsmannafélög o.fl. í
þeim dúr hvað sem svo síðar kunni
að verða.
Orlofsíbúð í
boði í bænum
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Orlofshúsið Þórðarstaðir er við rætur Húsavíkurfjalls.
Húsavík
NÚ ER vargurinn, eins og mýflug-
an er kölluð, að kvikna og þá flýja
rollur og önnur spendýr í það skjól
sem þær finna. Rollurnar við Más-
vatn í Þingeyjarsýslu nota utan-
gjóluna til að verjast vargnum og
safnast saman í vatnsborðinu og
láta goluna blása flugunni frá sér.
Að sögn kunnugra er þetta þó
ekki vargur nema í meðallagi, samt
safnast margar rollur saman alla
jafna þarna við Másvatn á sumrin.
Flýja varginn
Norður-Hérað
GAGNASAFN
MORGUNBLAÐSINS
mbl.is