Morgunblaðið - 30.06.2001, Blaðsíða 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2001 25
VESTUR-ÍSLENDINGURINN
Eric Olafson, forstjóri Tomax-fyrir-
tækisins í Utah í Bandaríkjunum,
hlaut nýverið frumkvöðlaverðlaun
ársins í Utah í flokki hugbúnaðar, en
verðlaunin eru gefin af alþjóðlega
bókhalds- og ráðgjafafyrirtækinu
Ernst & Young.
„Þetta er mjög mikil viðurkenning
til fyrirtækisins í heild, frá þróun til
markaðssetningar,“ segir Eric Olaf-
son. „Tomax hefur frá upphafi lagt
áherslu á að vera skapandi og hug-
vitssamt fyrirtæki og að fá viður-
kenningu frá eins mikilsvirtri stofn-
un og Ernst & Young er, er
lofsamlegt og mikið ánægjuefni.“
Eric Olafson er frá Gimli í Mani-
toba í Kanada og rafmagnsverk-
fræðingur að mennt. Ervin, faðir
hans, hefur verið mjög virkur í vest-
ur-íslenska samfélaginu í Manitoba
og var m.a. einn helsti hvatamaður
og formaður bygginganefndar
menningarmiðstöðvar á Gimli, The
Waterfront Centre, sem var form-
lega opnuð í haust sem leið, en í
henni eru íbúðir fyrir aldraða, mið-
stöð fyrir íslenska starfsemi í Mani-
toba og Safn íslenskrar menningar-
arfleifðrar í Nýja Íslandi, The New
Iceland Heritage Museum.
Tveir Kanadamenn af ís-
lenskum ættum útnefndir
á skömmum tíma
1988 gekk Eric til liðs við Tomax,
sem var lítið hugbúnaðarfyrirtæki í
Salt Lake City og hugbúnaður, sem
hann þróaði, vakti fljótlega athygli
og hefur síðan verið flaggskip fyr-
irtækisins. Þegar hann varð forstjóri
1990 voru starfsmenn átta en undir
hans stjórn hefur fyrirtækið vaxið og
dafnað og starfa nú um 200 manns
hjá Tomax. „Nú erum við í farar-
broddi á sviði hugbúnaðar fyrir sölu-
keðjur,“ segir hann.
Ernst & Young veita verðlaun í
mörgum flokkum í hverju ríki
Bandaríkjanna en í haust verða veitt
landsverðlaun í hverjum flokki og
valinn frumkvöðull ársins í Banda-
ríkjunum og koma þá allir verð-
launahafar til greina. Að sögn Erics
voru meira en 200 manns tilnefndir
til verðlaunanna í flokki hugbúnaðar,
en undir þennan flokk falla fyrirtæki
eins og t.d. Yahoo! og America On-
line. „Ég var kjörinn frumkvöðull
ársins í Utah en þó um persónuleg
verðlaun sé að ræða er þetta mikill
heiður og auglýsing fyrir fyrirtækið
og alla starfsmenn þess,“ áréttar
hann og undanskilur ekki Jaye, eig-
inkonu sína. „Þetta er viðurkenning
til alls hópsins.“
Eric er annar Kanadamaðurinn af
íslenskum ættum, sem fær frum-
kvöðlaverðlaun á skömmum tíma, en
Melanie Specula, sem á og rekur
verslun með notuð húsgögn og fleira
á Gimli, var útnefnd frumkvöðull
ársins 2000 í Manitoba af Samtökum
kvenna í atvinnurekstri í Manitoba.
Hefur slegið í gegn
Að sögn Jóns Baldvins Hannibals-
sonar, sendiherra Íslands í Washing-
ton, hefur Eric Olafson þróað hug-
búnað sem er heildarlausn fyrir
risavaxnar smásölukeðjur á borð við
Wal-Mart og fleiri. Jón Baldvin segir
að hugbúnaðurinn hafi slegið í gegn
og sé nú seldur víða í Bandaríkjun-
um, Kanada og í Japan. Þá telur Jón
Baldvin Evrópuinnrás væntanlega.
Eric Olafson hlaut frum-
kvöðlaverðlaun ársins í Utah
Frá afhendingu frumkvöðlaverðlaunanna. Frá vinstri Eric Olafson,
Jaye með verðlaunin og foreldrar Erics, Lois og Ervin Olafson.
FYRSTA kvikmyndahátíð Gimli,
The 1st Gimli Film Festival, verður
haldin í tengslum við Íslendinga-
daginn á Gimli í Kanada 3. til 6.
ágúst nk. og verður Friðrik Þór
Friðriksson, kvikmyndagerðarmað-
ur, sérstakur gestur hátíðarinnar.
Stjórn Íslendingadagsnefndar og
skrifstofa aðalræðismanns Íslands í
Winnipeg í samvinnu við íslenska
sendiráðið í Ottawa standa að þess-
ari íslensk-kanadísku kvikmyndahá-
tíð. Sýndar verða sjö leiknar myndir
í fullri lengd; Such A Long Journey
í leikstjórn Sturlu Gunnarssonar,
Tales From Gimli Hospital eftir
Guy Maddin, Englar alheimsins,
sem Friðrik Þór Friðriksson leik-
stýrir, 101 Reykjavík, sem Baltasar
Kormákur leikstýrir, Ikingut undir
stjórn Gísla Snæs Erlingssonar,
Black as Hell, Strong as Death,
Sweet as Love eftir Caelum Vatns-
dal og Kanadiana, sem Jón Ein-
arsson Gústafsson leikstýrir.
Á hátíðinni verða fimm stutt-
myndir og þar á meðal ein eftir
Martein Þórsson. Þá verða þrjár til
fimm heimildarmyndir, m.a. Tied by
Blood, a Journey Into Genealogy,
eftir David Arnason, Guðjón Arn-
grímsson og fleiri, Scattering of
Seedssaga of Hope: An Icelandic
Odyssey, eftir Juliann Blackmore-
Whitney og Ásthildi Kjartansdótt-
ur, og The Importance of Being
Icelandic eftir Jón Einarsson Gúst-
afsson.
Menningartengslin styrkt
Harley Jonasson, forseti Íslend-
ingadagsnefndar, var á Íslandi á
dögunum í boði Davíðs Oddssonar,
forsætisráðherra, en í ferðinni átti
hann auk þess fundi með m.a. Ólafi
Ragnari Grímssyni, forseta Íslands,
og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur,
borgarstjóra. Hann segir tilgang
ferðarinnar hafa verið að treysta
tengsl Íslands við Íslendingadaginn
á Gimli, en forsætisráðherra leggi
mikið upp úr menningarsamskipt-
um Íslands við Manitoba og ekki
síst við Íslendingadaginn.
Íslendingadagurinn var fyrst
haldinn í Winnipeg en hátíðin var
flutt til Gimli 1932 og hefur verið
þar árlega síðan. Fjallkonan kom
fyrst fram 1928, en fjallkonan í ár er
Margret Lovisa Wishnowski, fyrr-
verandi íslenskukennari frá Riv-
erton, og er hún sú 73. í röðinni.
Hún er dóttir Jóns Hallgrímssonar,
sem fæddist á Íslandi, og Jóhönnu
Sigrúnar Eastman.
Í fyrra var þess minnst að 125 ár
voru frá landnámi Íslendinga við
Winnipegvatn en í ár eru 125 ár síð-
an Íslendingar settust að í Riverton
og 100 ár frá því þeir settust að í
Árborg. Vegna þessa verða sérstök
hátíðarhöld á viðkomandi stöðum og
hefjast þau með bátasiglingu í
Riverton á morgun, 1. júlí, en 13. til
22. júlí verður sérstök hátíð í Ár-
borg.
Gert ráð fyrir um
50.000 gestum
Íslendingadagurinn nýtur mikilla
vinsælda fólks í Kanada og Banda-
ríkjunum af íslenskum ættum. Har-
ley Jonasson segir að í fyrra hafi
gestir verið um 60.000 og í ár sé
gert ráð fyrir um 50.000 gestum, en
íbúar Gimli eru innan við 5.000.
Fyrir fjórum árum lagði hann til að
komið yrði á fót nokkurs konar
torgi í skemmtigarðinum á Gimli
þar sem fólk gæti hist, en Íslend-
ingadagurinn væri fyrst og fremst
hátíð þar sem ættingjar og vinir
hefðu tækifæri til að koma saman.
Þingvellir Nýja Ísland varð til í
fyrra og segir Harley að útfærslan
hafi tekist vel, en hugmyndin sé sótt
til Alþingis á Þingvöllum, þar sem
fólk hafi sýnt sig og séð aðra. Á
svæðinu er m.a. eldhús ömmu, þar
sem kaupa má íslenskan mat, kynn-
ingarbásar, listasýningar og fleira,
og verður starfsemin aukin í ár.
Fjölbreytt dagskrá
Að vanda verður fjölbreytt dag-
skrá á hátíðinni á Gimli. Til stóð að
frumsýna leikrit eftir Ragnar Arn-
alds, en því hefur verið frestað.
Annars má nefna að Markús Örn
Antonsson, útvarpsstjóri, flytur
minni Kanada, Álafosskórinn undir
stjórn Helga Einarssonar syngur og
sendiherrarnir Hjálmar W. Hann-
esson, sendiherra Íslands í Ottawa,
og Eiður Guðnason, aðalræðismað-
ur Íslands í Winnipeg, verða í fyrsta
sinn á Íslendingadagshátíð, en þeir
eru í stjórn kvikmyndahátíðarinnar.
Í stjórninni eru einnig Janis John-
son, þingmaður í Ottawa, Harley
Jonasson, forseti Íslendingadags-
nefndar, Helga Stepenson, stjórn-
armaður Alþjóða kvikmyndahá-
tíðarinnar í Toronto, og kvik-
myndagerðarmennirnir Sturla
Gunnarsson í Toronto, Caelum
Vatnsdal í Winnipeg, Matt Holm í
Winnipeg og Jón Einarsson Gúst-
afsson í Winnipeg.
Gert ráð fyrir um 50.000 gestum á Íslendingadaginn á Gimli í Kanada í sumar
Íslensk-kanadísk kvik-
myndahátíð í fyrsta sinn
Ljósmynd/Jón E. Gústafsson
Harley Jonasson, forseti Íslendingadagsnefndar, og Margret Lovisa
Wishnowski fjallkona ásamt „prinsessunum“ Önnu Davison og Gillian
Robinson framan við þinghúsið í Winnipeg 17. júní sl.