Morgunblaðið - 30.06.2001, Side 31

Morgunblaðið - 30.06.2001, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2001 31 éfum. ststærsti un fyrir ðalsteinn luthafinn tstærstur eða ekki f deilun- er hvort í meg- með yf- blaði í sins á A. astliðnum stjórnar vera og reynt að n um að g. Minni- e. tveir af fimm s á þeim nnisblað- órir hlut- því hins aðið hafi plagg hjá bindandi r svo og rmönnum sári hafa gar álits- m málstað oroddsen rð fyrir þar sem iðurstöðu bindandi yfjaversl- firlýsing- frá því í son hrl. iðurstöðu narmönn- nkans féllst á s, stjórn- Aðalsteins fari verð- m. Grím- formaður , banka- gögn „til eta óefn- amnings- gði í yf- n, fram- viðs Bún- mi bréf, þar sem að Grími ntar nið- verðmats Frumafls- 29. maí. gasemdir ar komið ankans á gu eign- g Grímur nn skilaði ð til þess ér fram- júní þar mikilvæg- étta væri tilkynnt r ekki til gu þætti hinn bóg- mlegt nú- efnið en fyrir mat gsins og ki verið meðferðar málsins af hálfu Búnaðarbankans. Þá kom fram í yfirlýsingu Gríms að stjórn Lyfjaverslunar hefði ákveðið að fara þess á leit við Fjármálaeftirlitið að það rannsaki tilurð þess að samskiptum Gríms og Búnaðarbankans væri lýst op- inberlega með jafnröngum hætti og fram komi í bréfi Yngva Arnar. Stjórn Lyfjaverslunar ætlaði jafn- framt að fara fram á að viðskipti Búnaðarbankans Verðbréfa með hlutabréf Lyfjaverslunar yrðu rannsökuð. Í framhaldi af yfirlýsingu Gríms Sæmundsen sendi bankastjórn Búnaðarbankans frá sér yfirlýs- ingu og harmaði að bankinn skyldi dragast inn í deilur innan Lyfja- verslunar. Úttekt endurskoðanda Lyfjaverslunar Samkvæmt núvirðismati endur- skoðanda Lyfjaverslunar, hjá end- urskoðunarskrifstofunni Deloitte & Touche, sem Grímur Sæmund- sen sagði í yfirlýsingunni 14. júní að fyrir hefði legið þegar Bún- aðarbankinn lagði fram slíkt mat, þá skilar fjárfesting Frumafls í Öldungi vegna Sóltúnsverkefnis- ins á bilinu 125-143 milljónum króna á 25 árum, á verðlagi ársins 1999. Um er að ræða núvirt inn- streymi fjármagns að viðbættu virði fasteignar í lok tímabilsins. Uppreiknað til núverandi verðlags er tekjustreymið á bilinu 140-160 milljónir króna á 25 árum auk virðis fasteignarinnar í lok tíma- bilsins. Í forsendum þessara út- reikninga er miðað við að vextir láns vegna framkvæmda séu 7,5% og miðað er annars vegar við 9% og hins vegar 10% ávöxtunar- kröfu. Endurskoðandi Lyfjaverslunar hefur lagt áherslu á að þessir nú- virðisreikningar séu ekki verðmat á Sóltúnsverkefninu. Við verðmat á fyrirtæki eru vanalegast framkvæmdir núvirð- isreikningar á tekjustreymi, sam- bærilegir við reikninga endur- skoðanda Lyfjaverslunar, að viðbættu mati á eignum auk mats á óefnislegum þáttum, s.s. við- skiptavild og öðru þess háttar. Frumafl eðlilega verðmetið Samkvæmt niðurstöðum sér- fræðingaskýrslu endurskoðunar- skrifstofunnar Endurskoðun og uppgjör ehf., sem unnin var að beiðni stjórnarformanns Lyfja- verslunar, er fyrirtækið Frumafl eðlilega verðmetið. Endurskoð- endurnir meta samning Öldungs á 355 milljónir króna og hlut Frum- afls þar af 302 milljónir, þ.e. 85%. Þá leggja þeir mat á fleiri þætti en núvirt tekjustreymi og virði fasteignar Frumafls. Stækkunar- möguleikar á Sóltúni eru metnir að núvirði 130 milljónir króna, samkeppnisforskot á 50 milljónir og viðskiptavild og framtíðarsýn á u.þ.b. 378 milljónir. Þá geta þeir þess að samkvæmt samningi Lyfjaverslunar og seljanda Frum- afls sé kveðið á um að endurgjald til seljanda geti breyst eftir þeim lánskjörum sem Frumafl fær við fjármögnun Sóltúnsverkefnisins. Miðað við forsendur eins og þær séu í dag megi gera ráð fyrir að lækkunin á kaupverðinu geti orðið hæst tæplega 154 milljónir króna. Með hliðsjón af þessu öllu geti endurgjald fyrir Frumafl orðið lægst 707 milljónir króna sem þýði það að einungis þurfi eitt verkefni í viðbót við Sóltúnsverk- efnið til þess að Lyfjaverslun fái endurgreidd þau verðmæti sem félagið leggur í kaupin á Frumafli. Deilur fyrir dómstóla Þrír hluthafar í Lyfjaverslun reyndu að koma í veg fyrir að gengið yrði frá kaupum félagsins á Frumafli fyrir hluthafafund félagsins 10. júlí með beiðni um lögbann vegna kaupanna hjá Sýslumanninum í Reykjavík. Þetta voru hluthafarnir Aðal- steinn Karlsson, Guðmundur Birgisson og Lárus L. Blöndal. Sýslumaður synjaði lögbanns- beiðninni 20. júní. Þá kröfðust hluthafarnir úrlausnar Héraðs- dóms Reykjavíkur vegna ákvörð- unar Sýslumanns. Krafan um lögbann byggðist í fyrsta lagi á því að ákvörðun um kaupin á Frumafli hafi verið tekin á stjórnarfundi í Lyfjaverslun, sem ekki hafi verið löglega boð- aður og í annan stað að fram hafi verið komin krafa innan stjórn- arinnar um hluthafafund í félaginu áður en ákvörðun um kaupin yrði tekin. Hluthafarnir þrír gerðu aðra til- raun 22. júní til að ná fram lög- banni vegna kaupanna á Frumafli. Þá kröfðust þeir þess að lögbann yrði sett á að Jóhann Óli Guð- mundsson hagnýti sér það sem fylgir hlutafjáreign hans í Lyfja- verslun, sem hann fékk fyrir söl- una á Frumafli. Sýslumaður synj- aði þessari lögbannsbeiðni sam- dægurs og var henni einnig vísað til úrlausnar héraðsdóms. Ekki liggur fyrir hvenær úr- skurður héraðsdómur verður kveðinn upp. Hver sem niðurstaða dómsins verður er samkvæmt heimildum Morgunblaðsins ekki talið útilokað að deilurnar fari lengra og krafist verði riftunar á kaupunum á Frumafli eða stað- festingar á þeim fyrir dómstólum, eftir því hvernig mál þróast. Flestir sem að þessu máli koma eru þó sammála um að málaferli geti skaðað Lyfjaverslun Íslands og hugsanlegt sé að það muni hafa áhrif í þessum efnum, varðandi hvað deiluaðilar verða reiðubúnir til að ganga langt. Í eðlilegum farvegi gagnvart VÞÍ Spurning vaknar um það hvort Lyfjaverslun Íslands hefði átt að tilkynna tilvist minnisblaðsins um kaup félagsins á Frumafli, þar sem stjórn félagsins segir minn- isblaðið ígildi samnings, til Verð- bréfaþings Íslands í janúar síðast- liðnum. Helena Hilmarsdóttir, forstöðumaður viðskipta- og skráningarsviðs VÞÍ og staðgeng- ill forstjóra, segir að ef það hefur verið skilningur manna í janúar, er stjórnarmenn Lyfjaverslunar settu stafi sína á minnisblaðið, að um samning hafi verið að ræða, þá hefði átt að tilkynna um það til VÞÍ. Opinberlega hafi hins vegar ekki verið greint frá tilvist minn- isblaðsins fyrr en í júní og þá jafn- framt upplýst að stjórn Lyfja- verslunar telji félagið skuldbundið gagnvart Frumafli. Enda hafi þá fyrst verið greint frá því að fyrir lægi lögfræðilegt álit sem segði að minnisblaðið sé ígildi samnings. Helena segir að þetta mál hafi ekki komið upp gagnvart VÞÍ fyrr en deilur aðila hafi komið upp á yfirborðið í júní. VÞÍ hafi því ekki haft nokkra ástæðu til að kalla eftir gögnum frá Lyfjaverslun vegna þessa. Það hefði hins vegar ekkert upp á sig að gera það nú. Gagn- vart VÞÍ skipti mestu máli, úr því sem komið er, að öllum fjárfestum sé ljós sú óvissa sem er hjá Lyfjaverslun og að þeir fái að fylgjast með framvindu mála. Félagið sé á at- hugunarlista þingsins til þess að vekja athygli fjárfesta á óvissunni. Mál Lyfjaverslunar gagnvart Verðbréfaþingi Íslands séu því nú, þrátt fyrir allt, í eðlilegum farvegi. Samningur um rekstur hjúkrunarheimilis Undirrót deilnanna innan Lyfja- verslunar er samningur Öldungs hf. við heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytið frá apríl 2000. Forsaga þess máls er sú að í des- ember 1998 var auglýst forval vegna útboðs um einkafram- kvæmd á byggingu, rekstri og fjármögnun hjúkrunarheimilis við Sóltún í Reykjavík. Leitað var eft- ir aðilum til þátttöku í lokuðu út- boði, sem væru tilbúnir til að selja heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytinu þjónustu sem felst í að leggja til og reka hjúkrunar- heimili fyrir aldraða sjúklinga í 25 ár. Þrjár þátttökutilkynningar bárust í forvalinu. Tveir þátttak- endur tóku svo þátt í útboðinu. Það voru annars vegar Securitas ehf. og Verkafl hf. og hins vegar Nýsir hf. og Ístak hf., auk þriggja einstaklinga. Að mati verkefnis- stjórnar voru bæði tilboðin vel fullnægjandi en að mati heilbrigð- is- og tryggingamálaráðuneytisins voru þau of há og var þeim báðum hafnað. Tilboð Securitas var lægra en tilboð Nýsis, sem skýrist af nokk- uð lægri húsnæðiskostnaði. Þjón- ustuþáttur tilboðs Nýsis var hins vegar lægri en hjá Securitas. Í janúar 2000 var tekin ákvörð- un um það í heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytinu að semja við Securitas og Verkafl um byggingu og rekstur hjúkrunarheimilisins við Sóltún og undirrituðu þessir aðilar þá viljayfirlýsingu þar um. Það var svo í apríl 2000 sem heil- brigðisráðherra og fjármálaráð- herra undirrituðu samning við Öldung hf., félag sem þá var í eigu Securitas og Íslenskra aðalverk- taka hf., um að fyrirtækið leggi til og reki hjúkrunarheimili fyrir mikið veikt fólk í Sóltúni í Reykja- vík. Umsamið daggjald samkvæmt samningnum er um 30% hærri fjárhæð en upphafleg áætlun verkkaupa samkvæmt útboðinu hljóðaði upp á en ein- ungs 5% lægri fjár- hæð en samkvæmt til- boði Securitas, sem heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytinu hafði fundist of hátt. Samningurinn var reyndar í veigamikl- um atriðum frábrugðinn útboðinu. Rýmum var til að mynda fjölgað um 53%, samsetningu vistmanna var breytt svo og þátttöku í lyfja- kostnaði. Athugasemdir Ríkisend- urskoðunar Í mars síðastliðnum var birt skýrsla Ríkisendurskoðunar um hjúkrunarheimilið að Sóltúni og um samanburð á heildarútgjöldum fimm hjúkrunarheimila á legudag á árinu 1999 við umsamið dag- gjald hjúkrunarheimilisins við Sól- tún. Skýrslan var gerð að beiðni forsætisnefndar Alþingis en Ög- mundur Jónasson alþingismaður óskaði í september á síðasta ári eft- ir svörum við nokkrum spurningum sem lutu að útboði, hagkvæmni, kostnaði og fleiru í tengslum við samninginn. Samanburður Ríkisendurskoðun- ar leiddi m.a. í ljós að daggjald Sól- túnsheimilisins sé um 14% hærra en hjá samanburðaraðilunum. Þá segir í skýrslunni að í ljósi þess hve breytingar hafi verið umtalsverðar á samningnum við Öldung með hliðsjón af því hvernig staðið hafi verið að málum í upphafi og jafn- ræðissjónarmiðum hefði verið eðli- legra að bjóða þjónustuna út á ný. Fram kemur í skýrslu Ríkis- enduskoðunar að Nýsir hafi boðist strax að fenginni höfnun tilboðs til þess að koma með tillögur um hag- stæðari lausnir. Þá vitnar Ríkisend- urskoðun til þess að samkvæmt út- boðsstefnu ríkissjóðs frá 25. maí 1993 skuli hin almenna stefna í inn- kaupum ríkisins vera sú að útboð sé viðhaft. Báðum þátttakendum útboðsins hefði því að minnsta kosti átt að vera gefinn kostur á að koma með ný tilboð. Það var ekki gert. Rekstur hjúkrunarheimila arðbærari en vitað var Eitt af því sem gerir deilurnar innan Lyfjaverslunar athyglisverð- ar fyrir fleiri en hluthafa félagsins er það nýmæli að rekstur hjúkr- unarheimilis fyrir aldraða geti ver- ið eins arðbær og raun ber vitni. Skýringar meirihluta stjórnar Lyfjaverslunar þar á eru m.a. þær að samningurinn bjóði upp á tæki- færi fyrir félagið á nýjum sviðum. Ávinningur af rekstri af þessu tagi er hins vegar nokkuð sem ekki hef- ur verið mjög uppi á borðum hér á landi, né víðast hvar annars staðar áður, a.m.k. ekki í þeim mæli sem meirihluti stjórnar Lyfjaverslunar telur. Ljóst er að verðmæti Frumafls stafar af samningi Öldungs hf., dótturfélags fyrirtækisins, við ríkið um rekstur Sóltúnsheimilisins. Með hliðsjón af því verði sem Lyfja- verslun greiðir fyrir Frumafl, hátt í níu hundruð milljónir króna miðað við gengi hlutabréfa Lyfjaverslunar að undanförnu, en reyndar án hugsanlegrar vaxtaleiðréttingar, virðist samningurinn við ríkið vera góður fyrir rekstraraðila Sól- túnsheimilisins. Það kemur reyndar einnig fram í því að hjúkrunarfor- stjóri Sóltúnsheimilisins hefur sagt að þar verði greidd hærri laun en kjarasamningar bjóði upp á, þar sem aukið svigrúm verði til launa- greiðslna. Þetta er nýmæli í tengslum við hjúkrunar- eða elliheimili því um- fjöllun á opinberum vettvangi um önnur hjúkrunarheimili en Sól- túnsheimilið hefur hingað til snúist um annað en mikinn hagnað af starfseminni eða aukið svigrúm til launagreiðslna. Skemmst er að minnast deilna stjórnenda elliheim- ilisins Grundar og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins vegna daggjalda, en það var einmitt þetta sama ráðuneyti sem samdi við Öld- ung hf. um rekstur Sóltúnsheimil- isins. Þáttur ríkisins í þessu máli er því nokkuð stór. Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, sagðist í samtali við Morgunblaðið í fyrra- dag ekkert hafa að segja um þær deilur sem verið hafi innan Lyfja- verslunar. Þær séu ekkert á hans borði og ekkert hafi komið fram sem gefi tilefni til að ráðuneytið taki Sóltúnssamninginn upp. Frumafl og Öldungur Jóhann Óli Guðmundsson stofn- aði og var aðaleigandi öryggisþjón- ustufyrirtækisins Securitas. Fyrir- tækinu var skipt upp í tvö fyrirtæki í upphafi árs 2000, annars vegar í öryggisþjónustuna Securitas og hins vegar í Frumafl. Hlutur Securitas í dótturfélaginu Öldungi fylgdi Frumafli í þeim skiptum. Jó- hann Óli seldi sinn hlut í Securitas á síðari hluta síðasta árs en Frum- afl var í hans eigu. ýn og völd innan Lyfjaverslunar Íslands hf. í kjölfar kaupa félagsins á fyrirtækinu Frumafli ehf. ð g Morgunblaðið/Golli gretar@mbl.is Veruleg um- skipti urðu í valdahlut- föllum innan hluthafahóps félagsins með kaupunum á Frumafli

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.