Morgunblaðið - 30.06.2001, Síða 44
FRÉTTIR
44 LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Náttúruleikskólinn Krakkakot
Bessastaðahreppi
Starfskraftur í eldhús
Ert þú lærð(ur) sem kokkur eða með góða
reynslu af störfum í mötuneyti? Þá endilega
hafðu samband, því okkur vantar hressa man-
neskju til starfa í eldhúsi leikskólans. Náttúru-
leikskólinn Krakkakot er heimilislegur fjögurra
deilda leikskóli með vel útbúnu eldhúsi, yndis-
legum börnum, góðu starfsfólki og mörgum
dýrum.
Um er að ræða vinnutíma frá kl. 8.30—14.00
virka daga.
Umsóknarfrestur er til 6. júlí.
Nánari upplýsingar veita Erla Thomsen leik-
skólastjóri og Hjördís Ólafsdóttir aðstoðarleik-
skólastjóri í símum 565 1388 og gsm 862 0006.
ⓦ á Reykjavíkur-
veg í Reykjavík
vantar í afleysingar
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
HÚSNÆÐI Í BOÐI
Til leigu
miðsvæðis í Reykjavík
Steinsteypt húsnæði á friðsælum stað er til
leigu. Húsnæðið hentar vel fyrir skrifstofuhald,
til kennslu eða fyrir léttan iðnað. Fyrsta hæðin
er björt, alls um 540 fermetrar með 335 cm loft-
hæð. Hæðin er tengd vörulyftu niður á jarð-
hæð, þar sem hægt er að keyra sendibíl að
lyftudyrum. Geymsluloft við lyftuhús er 42 fer-
metrar og lofthæð þar er 335 cm. Geymslu-
loftið, sem er ofan við fyrstu hæðina og tengist
einnig lyftuhúsinu, er um 317 fermetrar með
205 cm lofthæð.
Tryggð verða næg bílastæði.
Húsnæðið leigist tilbúið undir tréverk eða inn-
réttað að óskum leigutaka.
Laust nú þegar.
Nánari upplýsingar veitir Sigurjón Jónasson
í símum 551 8166 og 892 7927.
TIL SÖLU
Upplýsingar í síma 896 3130 og 557 9006.
TILBOÐ / ÚTBOÐ
F.h. Reykjavíkurhafnar er leitað eftir tilboð-
um í nokkur smáverk vegna frágangs gatna
og gangstétta í Sundahöfn. Um er að ræða
regnvatnslagnir, malbikun, kantsteinasteypu,
steyptar gangstéttar, þökulagning, allt með
tilheyrandi jarðvinnu. Útboðsgögn fást á skrif-
stofu okkar frá og með 3. júlí 2001, gegn
10.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: 12. júlí 2001 kl. 11:00, á
sama stað.
RVH93/1
TILKYNNINGAR
Nýtt aðsetur —
ný símanúmer
Einkaleyfastofan flytur starfsemi sína frá Lind-
argötu 9 á Skúlagötu 63 (2. hæð) mánudaginn
2. júlí næstkomandi.
Afgreiðslan verður lokuð 2. júlí.
Stofnunin opnar á Skúlagötu 63 3. júlí, kl.
10:00, sími 580 9400, bréfasími 580 9401.
Einkaleyfastofan.
Stórkostlegt úrval bóka, s.s.
Dalamenn, Strandamenn,
Bergsætt, nokkrar Árnesinga-
ættir, Vestfirskar ættir, Ættir
Austfirðinga, Sléttuhreppur,
Kollsvíkurætt, Ættarskrá
Bjarna Hermannssonar, Sýslu-
mannsævir, Manntal 1703,
Kjósamenn, Deildartunguætt,
M.A.-stúdentar, auk fjölda
annarra áhugaverðra bóka.
Bókaunnendur,
missið ekki af veislunni!
Gvendur dúllari — alltaf góður.
Fornbókasala, Kolaportinu.
SMÁAUGLÝSINGAR
KENNSLA
Ungbarnanudd
Námskeið fyrir for-
eldra ungbarna byrj-
ar fimmtudaginn 5.
júlí. Ath.: Aðeins 6
börn í hóp. Báðir
foreldrar velkomnir.
Sérmenntaður kennari með yfir
10 ára reynslu.
Uppl. og innritun á Heilsusetri
Þórgunnu, Skipholti 50c, símar
896 9653 og 562 4745.
FÉLAGSLÍF
1. júlí sunnudagur.
Ölkelduháls-Hrómundartind-
ur-Nesjavellir.
Göngutími er um 6—7 klst. At-
hugið að farið er yfir Hengla-
dalaá og hana gæti þurft að vaða
upp að miðjum kálfum. Farar-
stjóri Eiríkur Þormóðsson. Brott-
för frá BSÍ kl. 10.30 með viðkomu
í Mörkinni 6. Verð 1500 fyrir fé-
lagsmenn, en 1800 fyrir aðra.
Sunnudagur 1. júlí kl.10.30
Reykjavegurinn 5. ferð
Djúpavatn — Vatnsskarð
Skemmtileg 5—6 klst. ganga,
m.a. skoðuð Hrútagjárdyngja.
Verð 1.700 kr. en 1.500 kr. fyrir
félaga. Brottför frá BSÍ.
Stansað v. kirkjug. Hafnar-
firði.
Spennandi helgar- og sumar-
leyfisferðir framundan:
6.—8/7 Heiðardalur — Höfða-
brekkuafréttur — Keringardalur.
6.—8/7 Jeppaferð að Sveinstindi
og víðar. Fimmvörðuháls og
Básar um hverja helgi.
Skoðið utivist.is og texta-
varp bls. 616.
ÍÞRÓTTIR
mbl.is
ÞAÐ er farið að lifna yfir Soginu og fyrstu lax-
arnir komnir á land. Óstaðfestar fregnir um
1-2 laxa úr ánni fyrir um viku reyndust ekki
haldgóðar, en nú í lok vikunnar voru fyrstu
skráðu laxarnir komnir á land. Þeir veiddust
allir á laxasvæði Ásgarðs. Fyrsti laxinn var 5
punda, síðar sama dag kom 10 pundari og loks
12 punda fiskur sem tók spón í Bátalóni. Menn
á bökkum Sogsins sáu fleiri fiska í Ásgarði og í
Alviðru sást lax á Öldunni þótt þar hefði ekki
veiðst neitt enn þá. Menn hafa einnig verið að
fá hrikalegar bleikjur í Soginu, sú stærsta til
þessa var 8 punda veidd á flugu í Ásgarði.
Fyrstu laxarnir
úr Eystri-Rangá
Eystri-Rangá var opnuð síðastliðinn þriðju-
dag og í gær voru komnir a.m.k. fimm laxar á
land, bæði stórir laxar og smálaxar. Áin hefur
verið lituð vegna hlýindanna og ekki hefur það
greitt fyrir um veiði. Reytingur af vænum sil-
ungi hefur einnig veiðst, bæði urriði og
bleikja. Í Ytri-Rangá hefur veiði einnig farið
rólega af stað og laxveiði verið fremur lítil.
Þetta er þó alvanalegt í báðum ám, í þær geng-
ur hafbeitarlax sem er jafnan heldur seinni til
að ganga úr sjó heldur en villtir stofnar.
Lítið af bleikju
Fremur rólegt hefur verið í bleikjuveiðinni
á silungasvæði Víðidalsár. Á stundum hefur
norðanbál skemmt fyrir, en þess á milli hefur
lygnt en þá hefur veiði ekki verið lífleg. Menn
hafa þó aðeins reytt upp fiska og í vikunni var
einhver hreyfing á nýjum fiski, en það var
frekar smá bleikja sem tók illa. Mönnum gekk
betur að fá eldri og vænni fiska til að taka.
Mok á Auðkúluheiði
Hópur veiðimanna sem var í vötnum á Auð-
kúluheiði um síðustu helgi stóð í stórræðum.
Þetta voru mest fluguveiðimenn og þeir fengu
„marga kassa“ af bleikju, en hirtu þó aðeins
1-3 punda fiska. Kapparnir voru aðallega í
Mjóavatni og Friðmundarvötnum og flugurn-
ar sem bestan afla gáfu voru Zugbug og Pea-
cock. Bleikjan tók ósköp næmt hjá þeim félög-
um sem gripu þá til þess að nota tökuvara.
Voru þá dæmi um að bleikjurnar skytu hausn-
um upp úr vatninu og gripu um appelsínugula
tökuvarana.
Fyrstu laxarnir úr
Soginu og E-Rangá
Jóhann Birgisson og Ingólfur Kolbeins-
son með bleikjuhrúgu úr norðlenskum
silungsvötnum.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?