Morgunblaðið - 10.07.2001, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 10.07.2001, Qupperneq 2
FRÉTTIR 2 ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isFram vann stig í Keflavík / B2 Vala stökk 4,2 m í Nice / B1 12 SÍÐUR48 SÍÐUR Sérblöð í dag Á ÞRIÐJUDÖGUM FANGELSISMÁLASTOFNUN og dóms- og kirkjumálaráðuneytið fóru ekki að lögum þegar fangi, sem dvalið hafði um skeið í áfangaheimili félaga- samtakanna Verndar, var færður til afplánunar í fangelsi vegna meintra brota á útivistarreglum heimilisins. Umboðsmaður Alþingis kemst að þessari niðurstöðu í nýju áliti og bein- ir þeim tilmælum til ráðuneytisins að taka mál fangans fyrir á ný, óski hann þess. Umboðsmaður telur að ráðuneytið hafi brotið á andmælarétti fangans og málsmeðferð Fangelsismálastofnun- ar hafi ekki verið í samræmi við hlut- verk og stöðu stofnunarinnar. Þeim tilmælum er beint til ráðuneytisins að það sjái til þess að málsmeðferð í sambærilegum málum verði hagað í samræmi við sjónarmið sem fram koma í áliti umboðsmanns. Var vísað frá áfangaheimili Forsaga málsins er sú að í byrjun júní 1999 veitti Fangelsismálastofnun umræddum fanga, sem þá afplánaði refsidóm á Litla-Hrauni, leyfi til að ljúka afplánun sinni á áfangaheimili Verndar, þangað sem hann fór. Í lok júlí það sumar ákvað húsnefnd heim- ilisins að víkja fanganum tafarlaust úr húsi vegna meintra brota á útivistar- reglum sem kváðu á um að dvelja ávallt á heimilinu frá kl. 23 að kvöldi til kl. 7 morguninn eftir. Húsnefndin byggði ákvörðun sína á vitnisburði matráðskonu heimilisins sem stað- festi að fanginn, ásamt tveimur öðr- um heimilismönnum, hefði ekki verið í húsinu klukkan hálfsjö að morgni 31. júlí. Fanginn, ásamt félögum sínum, var sama dag færður til afplánunar í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg. Hann var ósáttur við þessa máls- meðferð og kvartaði til Fangelsis- málastofnunar sem taldi að ekki hefði verið brotið á andmælarétti fangans. Fanginn sendi kæru til dómsmála- ráðuneytisins á hendur Fangelsis- málastofnun. Taldi hann að atvik málsins hefðu ekki verið nægjanlega rannsökuð áður en ákveðið var að færa hann til afplánunar í fangelsi. Gerði fanginn einnig athugasemdir við niðurstöðu málsins á grundvelli laga um andmælarétt og rannsóknar- og meðalhófsreglu stjórnsýslulaga. Með úrskurði sínum í desember 1999 staðfesti ráðuneytið ákvörðun Fang- elsismálastofnunar en fanginn kvart- aði til umboðsmanns Alþingis í febrú- ar árið 2000. Ekki fjallað um mál fangans á grundvelli stjórnsýslulaga Í áliti sínu gerir umboðsmaður at- hugasemd við það að Fangelsismála- stofnun hafi ekki, að fenginni vitn- eskju um afstöðu húsnefndar áfangaheimilisins um málefni fang- ans, fjallað um mál hans á grundvelli stjórnsýslulaga og tekið formlega stjórnvaldsákvörðun um hvort vista ætti fangann á ný í fangelsi eða leita annars úrræðis fyrir hann. Sam- kvæmt framlögðum gögnum hafi stofnunin ekki formlega látið málið til sín taka fyrr en í ágúst 1999 þegar lögmaður fangans sendi henni bréf. Umboðsmaður áréttar í álitinu að ákvörðun Fangelsismálastofnunar, um að lagaskilyrði hafi skort og fang- inn þurft að ljúka afplánun sinni í fangelsi, hafi verið stjórnvaldsákvörð- un. Samkvæmt stjórnsýslulögum sé meginreglan sú að hlutaðeigandi fangi eigi þess kost að tjá sig um atvik máls áður en ákvörðun er tekin í máli hans. Fangelsismálastofnun og dómsmálaráðuneytið Brotið á fanga að mati umboðsmanns Alþingis MIKIL þörf er á blóðgjöfum í Blóð- bankanum þessa dagana og hefur verið hringt út í blóðgjafa á skrá og þeir beðnir um að koma og gefa blóð. „Það er alltaf mjög erfitt að ná í blóð- gjafa á sumrin, þegar margir eru á faraldsfæti,“ segir Sigríður Ósk Lár- usdóttir hjá Blóðbankanum. Hún segir að tveir starfsmenn sitji við símann allan daginn og hringi í blóð- gjafa, þannig að mun meira þurfi að hafa fyrir því að ná í blóðgjafana en ella. Hún segir að á hverjum degi þurfi um 70 blóðgjafa, en að dagsmeðaltal- ið síðustu daga hafi verið lægra og því gangi smám saman á birgðirnar þótt neyðarástand hafi enn ekki skapast. Ekki minni þörf yfir sumarið Þörfin fyrir blóðgjafir minnkar ekkert yfir sumarið. Sigríður segir að svolítið hafi dregið úr aðgerðum á sjúkrahúsunum, en að móti komi að slys hafi verið tíð það sem af er sumri. Þörf er á blóðgjöfum úr öllum blóðflokkum, að sögn Sigríðar Ósk- ar. „Ég hvet alla sem eru hraustir til að koma til okkar og gefa blóð og endilega muna eftir okkur fyrir sum- arfríið. Einnig vil ég hvetja fólk sem býr úti á landi og eyðir sumarfríinu sínu í Reykjavík að kíkja til okkar,“ segir hún. Afgreiðslutími Blóðbankans er kl. 8–19 mánudaga og fimmtudaga, 8– 15 þriðjudaga og miðvikudaga og 8– 12 á föstudögum. Sigríður Ósk segir að alltaf sé heitt kaffi á könnunni og eitthvað gott á boðstólum fyrir blóð- gjafa. Gengið hef- ur á birgðir Blóðbanka GULLREGN heitir þetta fallega tré og stendur í garði Íbúða aldr- aðra við Lönguhlíð 3 í Reykjavík. Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir, forstöðumaður, segir að tréð hafi verið gróðursett við opnun húss- ins árið 1978. „Það er alveg óhemjufallegt þetta tré, maður hefur helst á til- finningunni að maður sé kominn til suðurlanda,“ sagði hún. Ingi- björg taldi að tréð væri orðið nokkuð stórt í samanburði við önnur hér á landi og sagði það orðið nokkuð fyrirferðarmikið í garðinum hjá þeim. Aðspurð sagðist hún hafa heyrt af því að blóm gullregnsins væru eitruð og það gat Margrét Magnúsdóttir, garðyrkjufræðingur hjá garð- yrkjudeild Reykjavíkur, staðfest. „Gamla garðagullregnið er eitrað, en svo er líka til blend- ingsgullregn sem er ekki eitrað og blómstrar fyrr,“ sagði hún. Margrét bætti engu að síður við að lítil hætta væri á ferðum því blóm gullregnsins væru ekki ban- eitruð og ólíklegt að einhver vildi leggja sér þau til munns, gul og bragðvond eins og þau væru. „Krakkar yrðu örugglega fljótir að spýta þeim út úr sér aftur,“ sagði hún. Morgunblaðið/Sigurður Jökull Gullregn blómstrar í Reykjavík HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær sjúkraþjálfara til að greiða konu rúmlega 2,6 milljónir í bætur vegna áverka sem hún hlaut af meðferð hjá honum í apríl 1998. Héraðsdómur taldi sýnt að sjúkra- þjálfarinn hefði sýnt af sér vítavert gáleysi með því að veita konunni meðferð sem var ekki á hans færi, hvorki þekkingarlega né tæknilega. Konan hafði leitað til heilsu- gæslulæknis vegna verkja í mjóbaki og síðan snúið sér til sjúkraþjálf- unarstöðvar. Konan lýsti því svo að eftir 8–10 skipti hjá sjúkraþjálfar- anum hafi hún verið nokkurn veg- inn verkjalaus í bakinu. Hinn 2. apríl hafi sjúkraþjálfarinn spurt hana hvort hún væri stíf í öxlum og hálsi. Því hefði hún játað. Hann hafi þá nuddað á henni axlirnar og síðan sagt henni að leggjast á bakið. Í skriflegri skýrslu lýsti hún fram- haldinu svo: „Hann tók höfuð mitt á milli handa sér og velti því fram og aftur smástund, sneri því til vinstri og sagði: „Nú kemur svolítill hnykk- ur.“ Þá kippti hann höfðinu eld- snöggt alla leið til vinstri. Það brak- aði mikið í hálsliðnum og ég fann gífurlegan sársauka leggja um mig alla, hálsinn, höfuðið og líkam- ann...“ Um kvöldið fann hún fyrir eymslum í hálsinum og daginn eftir hafði verkurinn ágerst það mikið að hún fór fyrr heim úr vinnunni. Hún hafi síðan fundið fyrir ýmsum ein- kennum, m.a. doða, jafnvægisleysi, höfuðverk og náladofa í höndum og fingrum. Um haustið greindist hún með brjósklos í hálsi en konan hafði fyr- ir meðferðina hjá sjúkraþjálfaran- um ekki átt við slíkt að stríða. Brjósklosið var rakið til áverka á hálsi sem dómnum þótti sannað að konan hefði orðið fyrir við meðferð- ina hjá sjúkraþjálfaranum. Ágreiningur málsaðila laut aðal- lega að því hvort sjúkraþjálfarinn hefði beitt hálshnykkingu eða svo- kallaðri IV. stigs liðlosun eins og sjúkraþjálfarinn hélt fram. Hann neitaði því ennfremur að hafa varað konuna við að hún mætti eiga von á svolitlum hnykk. Á þetta féllst dómurinn ekki og taldi að sjúkraþjálfarinn hefði með aðgerðum sínum tekið áhættu á kostnað konunnar með þeim afleið- ingum að hún varð fyrir varanlegu tjóni. Kristjana Jónsdóttir héraðsdóm- ari kvað upp dóminn. Páll Arnór Pálsson hrl. rak málið fyrir hönd konunnar en Ólafur Axelsson hrl. var til varnar. Sjúkraþjálfari dæmdur til að greiða 2,6 milljónir í skaðabætur Talinn hafa sýnt gáleysiLÖGREGLAN í Hafnarfirði hefur fengið nokkrar tilkynningar um að skipverjar á rússneskum togurum sem nú liggja í Hafnarfjarðarhöfn hafi boðið áfengi og tóbak til sölu. Ekkert slíkt hefur þó verið staðfest að sögn lögreglunnar. Í dagbók lögreglunnar kemur fram að helgin hafi verið nokkuð er- ilsöm. Talið er að um 500 til 600 er- lendir sjómenn, einkum Rússar, dvelji í skipum í höfninni. Lögreglan þurfti að hafa afskipti af nokkrum þeirra vegna ölvunar á skemmtistöð- um og utandyra. Samkvæmt upplýs- ingum frá lögreglunni voru þetta þó ekki meiri átök en gengur og gerist um helgar. Sjö kvartanir bárust vegna hávaða frá samkvæmum ungmenna í heima- húsum. Þá hafði lögreglan þrisvar afskipti af ungmennum sem grunuð eru um fíkniefnaneyslu og voru hald- lögð tól og tæki sem notuð eru við þá iðju. Annasamt hjá lögregl- unni í Hafnarfirði ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.