Morgunblaðið - 12.07.2001, Page 20
LANDIÐ
20 FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
STURLA Böðvarsson samgönguráð-
herra og Einar Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Íslandspósts heim-
sóttu nýlega afgreiðslur
fyrirtækisins í Varmahlíð og á Hofs-
ósi í Skagafirði.
Að sögn þeirra Sturlu og Einars
var ferð þessi farin til þess að líta á
afgreiðslurnar, sjá aðbúnað á hverj-
um stað og hitta starfsfólkið, sérstak-
lega í ljósi þeirrar neikvæðu umræðu
sem orðið hefði um þessar skipulags-
breytingar frá því að þær voru gerð-
ar.
Sagði Sturla að sér virtist sem
verulega skekkt mynd hefði verið
dregin upp, til dæmis í utandagskrár-
umræðum á Alþingi á síðastliðnum
vetri, þar sem látið hefði verið í veðri
vaka að með lokun pósthúsanna væri
nánast um að ræða að heilu byggð-
arfélögin væru lögð í rúst. Hins vegar
virtist sér sem nokkuð vel hefði til
tekist og í Varmahlíð væri verið að
undirbúa breytingar þannig að af-
greiðslan yrði betri og auðveldari.
Einar Þorsteinsson sagði að ný-
lega væri búið að flytja allan rekstr-
arvörulager Íslandspósts frá Reykja-
vík til Blönduóss og væri þetta liður í
hagræðingunni, unnt hefði verið að
losa dýrt húsnæði í Reykjavík og
fækka þar um tvö störf en á Blöndu-
ósi þyrfti ekki að fjölga störfum og
mun betri nýting fengist á því hús-
næði sem þar væri og styrkti þá
stöðu sem fyrirtækið hefði þar.
Rætt um samstarf
við Sparisjóð Vestfjarða
Þá sagði hann að nú væri unnið að
samningi við Sparisjóð Vestfjarða
um samstarf og væru viðræður um
þetta komnar á lokastig. Á Flateyri
væri samstarfið komið á en gert væri
ráð fyrir breytingum á fimm öðrum
stöðum. Einar sagði það sérstaklega
ánægjulegt að unnt hefði verið að
leigja húsnæði félagsins á Hofsósi til
ungra manna sem ætluðu að flytja
þangað hugbúnaðarfyrirtæki sitt og
væri mjög áhugavert ef Íslandspóst-
ur gæti jafnframt þeim hagræðing-
um sem þeir gerðu stutt uppbygg-
ingu fyrirtækja heimamanna með því
að leigja húsnæðið á góðum kjörum.
Sturla sagði að þeir hefðu viljað
fara á staðina þar sem umræða hefði
verið hvað mest og hugsanlega nei-
kvæðust, heyra mál heimamanna og
fara yfir þá reynslu sem fengin væri,
„og við höfum ekki orðið varir við
annað en bærilega sátt við ástandið
eins og það er.“
Þá sagðist Sturla ekki síður hafa
heyrt margar ánægjuraddir, sérstak-
lega meðal fólks í sveitunum, sem
þætti verulegur kostur að því að fá nú
póstinn alla virka daga vikunnar, og
vissulega væri þetta ekki í takt við þá
umræðu sem skapaðist þegar breyt-
ingarnar voru gerðar.
Samgönguráðherra og framkvæmdastjóri Íslandspósts í afgreiðslum fyrirtækisins í Skagafirði
Breytingar
tekist vel
María Runólfsdóttir útibússtjóri ásamt þeim Einari Þorsteinssyni og Sturlu Böðvarssyni og aðstoðarmönnum
þeirra, lengst til hægri er Gísli Gunnarsson forseti sveitarstjórnar Skagafjarðar.
Skagafjörður
NÁMSKEIÐ fyrir konur í byrj-
enda-og framhaldsflokki er nýjung
hjá Hestamiðstöðinni í Saltvík sem
rekin er af Bjarna Páli Vilhjálms-
syni og fjölskyldu hans og hafa þau
tekist sérlega vel að sögn þeirra
sem sótt hafa þessa kennslu í út-
reiðum.
Vegna mikillar eftirspurnar eru
fyrirhuguð fleiri námskeið þar sem
þessi fyrstu voru tilraun til þess að
bjóða upp á eitthvað nýtt.
Kennslan er bæði verkleg og
bókleg og í lok námskeiðs fá þátt-
takendur afhent viðurkenningar-
skjal.
Að sögn leiðbeinandans Maríu
Kristie Pálsdóttur gengu þau nám-
skeið sem nú eru nýlega búin mun
betur en hún bjóst við og tókst
mjög vel að efla áhuga kvennanna
auk þess sem þær öðluðust mun
meira öryggi gagnvart hestum.
Starfsemin í Saltvík er margþætt
og eru haldin mörg námskeið á vor-
in fyrir börn og unglinga og á dög-
unum fóru ellefu krakkar á firma-
keppni Grana eftir að námskeiði
þeirra lauk. Mikið er um útlendinga
og er Mývatnshringurinn vinsæll,
fimm daga ferð um Suður-Þingeyj-
arsýslu. Hún hefst í Félagsheim-
ilinu Heiðarbæ þar sem er gist og
farið í sund, en síðan er farið til
Þeistareykja og þaðan að Hraun-
brún í Mývatnssveit. Þá er farið
niður Laxárdal og endað á Breiðu-
mýri í Reykjadal. Í þessum ferðum
er að jafnaði 12-15 manns, en 40-50
hestar og eru hverjum manni því
ætlaðir 2-3 hestar. Í sumar verður
líklega farið í sex slíkar ferðir.
Hjá Hestamiðstöðinni er einnig
hægt að fá styttri túra og er nokk-
uð um að ferðafólk sem kemur til
Húsavíkur komi og farið í 1-2 tíma
styttri ferðir um nágrenni Saltvík-
ur. Þá er boðið upp á svefnpoka-
gistingu í íbúðarhúsinu og er pláss
fyrir 15 manns í rúmum.
Á veturna fara fram tamningar í
Saltvík og eru allt að því 70 hestar
á fóðrum en á sumrin eru nokkrir
hestar úr nágrenninu fengnir að
láni til þess að geta orðið við vax-
andi eftirspurn.
Hestamiðstöðin í
Saltvík með
kvennanámskeið
Laxamýri
Þorskurinn
kann að meta
laxaseiðin
ÞAÐ hefur vakið athygli þeirra sem
rennt hafa fyrir þorsk á sjóstöng eða
handfæri austanvert í innanverðum
Húnaflóa, Húnafirði svokölluðum,
hversu mikið er af laxaseiðum í maga
þorskanna.
Það er álit margra þeirra sem
renna færi í sjó á milli Blönduóss og
Skagastrandar að mikið sé af þorski
á þessum slóðum og tala menn jafn-
vel um að þorskurinn sem Hafrann-
sóknarstofnun týndi sé nú fundinn.
Margar af bestu laxveiðiám lands-
ins renna til sjávar í Húnaflóann og
ljóst er að þorskurinn veit það líka
og gerir sér laxaseiðin að góðu þegar
þau ganga í stríðum straumum til
sjávar þessa dagana.
Húnafjörður
RATLEIKIR eru vinsæl útivistar-
afþreying, en sá sem nú er verið að
undirbúa í Mývatnssveit er senni-
lega sá langviðamesti sem farið
hefur í gang hérlendis og þó víðar
væri leitað.
Það er rafgeymafyrirtækið
VARTA í Þýskalandi sem stendur
að þessari uppákomu sem er liður í
markaðsátaki þeirra. Áður hefur
farið fram forval meðal ungmenna
á aldrinum 18 til 22 ára um þátt-
tökurétt í þessari keppni.
Aðalleikurinn „prufukeyrður“
Nú um helgina var fjölmennt lið
frá Þýskalandi og frá Sel-Hóteli
Mývatni í sameiningu að prufu-
keyra aðalleikinn sem fara á fram
14.-16. ágúst. Úti í Hamborg var
annað lið starfsmanna og keppenda
og fór hluti leiksins fram um Int-
ernetið.
Farið var meðal annars út á Mý-
vatn á kajökum og í hestaferð með
Arngrími. Þá var hjólað sem hrað-
ast um víðan völl, gengið á fjöll og
margir viðkomustaðir heimsóttir í
ágætis veðri.
Ratleikur
við
Mývatn
Mývatnssveit
Þátttakendur hvíla lúin bein um leið og næsti áfangi er undirbúinn.