Morgunblaðið - 12.07.2001, Qupperneq 59
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2001 59
ÚTSALA
HEFST Í DAG
Allt að 60% afsl.
SMASH
Kringlunni, s. 553 1717
Kringlunni, s. 533 1717
Dæmi: áður nú
..............................skór .......9.900 ...........4.900
.............................skór .......9.990 ..........4.900
..............................skór .......9.900 ..........4.900
..............................buxur .....6.900 ..........3.900
..............................vindbuxur.............50% afsl.
.............................jakkar ...................50% afsl.
.............................jakkar ...................50% afsl.
.............................Allt að ..................50% afsl.
..............................bolir ......4.900 ..........1.900
fatnaður ..allt að 40%
buxur ..........frá 3.990
skór ........allt að 50%
fatnaður ..allt að 50%
jakkar.........frá 3.990
hettupeysur ......2.990
bolir .....................990
o.fl., o.fl.
St.Tropez
Charhartt
ÚTSALA
HEFST Í DAG
OPIÐ TIL KL.21.00 Í KVÖLD
OPIÐ TIL KL.21.00 Í KVÖLD
....á skordýrabit...
FLESTIR eldri Sega-eigendur muna
líklega eftir Fighting Vipers, slags-
málaleiknum sem gerði allt vitlaust
stuttu eftir að Virtual Fighter-æðinu
lauk. Nú hafa Sega og AM2 gefið út
framhald Fighting Vipers fyrir
Dreamcast en það heitir einfaldlega
Fighting Vipers 2.
Í Fighting Vipers var sagan frekar
veik eins og í flestum slagsmálaleikj-
um. Söguhetjur leiksins eru í gengi af
vandræðaunglingum sem komast að
því að ofurglæponinn B.M. er að
reyna að ná þeim. Þær ákveða að
berjast við hver við aðra þar
til þau bjarga heim-
inum á meðan B.M.
byggir risastórt fang-
elsi þar sem hann
hangir öllum stundum og að
lokum þarf sá sem lamdi alla
vini sína að fara þangað og berj-
ast við hann.
Spilendur geta valið um
sömu karaktera og í
fyrri leiknum.
Hreyfingar og
útlit karakter-
anna hefur
breyst ötlítið
en lögmálin eru
þau sömu. Flestir
karakteranna hafa
sérstakt vopn eins og
hjólabretti og línu-
skauta, tapi þau því
verða þau að berjast
með höndunum. Allir
karakterarnir hafa
brynju sem and-
stæðingarnir geta slegið af
þeim og verða þau þá fyrir
meiri skaða fái þau á sig högg,
þó verður hreyf- ingafrelsið
meira og spilendur geta gert
ofurbrögð sem rota andstæð-
inginn í nær einu höggi. Hvert slíkt
högg hefur mjög skrýtna endingu,
sum þeirra
skjóta óvin-
unum upp í
geim þar sem
þeir lenda á
kjarnorku-
sprengju sem
var einmitt á
leiðinni að sprengja
geimstöð, annað
slíkt högg skýtur
óvininum yfir í fjar-
læga borg sem spring-
ur þegar hann lendir.
Fighting Vipers er ekki
mjög góður slagsmálaleikur,
hönnun alls leiksins er slæm
og óspennandi og engin
saga heldur fólki við leikinn.
Þó nokkrir bónus karakterar
og borð standi til boða nennti
greinarhöfundur ekki að leita
að þeim. AM2 klúðraði tækifæri
til þess að bæta þegar gott nafn
Fighting Vipers.
Ingvi M. Árnason skrif-
ar um tölvuleikinn
Fighting Vipers 2
Slæmur slags-
málaleikur
Tölvuleikir
FORSPRAKKI hljómsveitarinnar
Smashing Pumpkins, Billy Corgan,
hefur upplýst að væntanlegt sé efni
frá sveitinni, bæði á geisladiskum
og stafrænum DVD-diskum. Um-
ræddar útgáfur verða þó ekki á
nýju efni frá hljómsveitinni heldur í
formi safndiska og upptakna frá
tónleikum.
Corgan kom óvænt fram á tón-
leikum sem haldnir voru til heiðurs
Smashing Pumpkins í Metro-
klúbbnum í Chicago. Hann sagði
áhorfendum að plata væri vænt-
anleg í lok þessa árs með öllum vin-
sælustu lögum sveitarinnar. Einnig
hyggjast Smashing Pumpkins gefa
út plötu með b-hliðum af Mellon
Collie and the Infinite Sadness,
Adore og Machina/The Machine of
Gold. Verður sú plata gefin út í tak-
mörkuðu upplagi.
Eins og áðut sagði ætlar sveitin
einnig að gefa út DVD-diska. Annar
á að innihalda öll tónlistar-
myndbönd sveitarinnar en hinn er
upptaka af kveðjutónleikum sveit-
arinnar.
Safnplata og afgangslög
Reuters
Billy Corgan.
Þurrmjólkun á Smashing Pumpkins hafin
Grafík: Bakgrunnar borðanna
eru „kassaðir“ og sumir jafn-
vel asnalegir. Karakterarnir
eru virkilega óspennandi og
úr sér gengnir, stereótýpur
níunda áratugarins.
Hljóð: Tónlist leiksins er
betri en í upprunalega leikn-
um en verður virkilega þreyt-
andi virkilega fljótt.
Stjórn: Nokkuð gott var að
stjórna vandræðaungling-
unum, en skipulagið er í raun
of einfalt því ekki er hægt að
stíga til hliðar, bara aftur á
bak og áfram.
Ending: Fighting Vipers
endist þar til spilendur eru
búnir að klára hann fjórum til
fimm sinnum, verkefni sem
getur ekki tekið meira en
þrjá til fjóra daga.