Morgunblaðið - 12.07.2001, Side 60
FÓLK Í FRÉTTUM
60 FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FÁTT VIRÐIST ganga betur í
leikhúsum en söngleikir, nema þá
kannski farsar og fíflalæti ýmiskon-
ar. Ekki alls fyrir löngu setti Leik-
félag Reykjavíkur upp leikgerð Ill-
uga Jökulssonar á sögum Kiplings
um mannsbarnið Móglí. Nokkru síð-
ar kom svo út
geisladiskur með
herlegheitunum,
þar sem tónlist
Óskars Einarsson-
ar skipar stóran
sess og er hér til
umfjöllunar.
Hljóðdæmin á
Móglí eru vand-
lega lesin af geisla-
spilurum sem tutt-
ugu talsins en
lögin á geislaplöt-
unni eru þó ekki nema níu. Önnur
hljóðdæmi eru leikræns eðlis og
verða eðli málsins samkvæmt ekki
tekin til umfjöllunar hér. Undir hin-
um leikrænu hljóðdæmum má þó
víða heyra ýmis örstef, oftast leikin á
gítar og harmonikku. Þessi áhrifs-
stef eru afar vel til fundin og haglega
samsett. Þjóðlagahefðum ýmiss kon-
ar er blandað saman og laglínusterk
eru stefin undantekningarlítið.
Í eiginlegu lögunum níu er einnig
að finna sterkar laglínur. Dæmi um
afar vel heppnaða smíð er „Litla
mannsbarn“ sem Katla Margrét
Þorgeirsdóttir syngur af fádæma ör-
yggi og innlifun. Það er nokkuð fátítt
að heyra svo góða söngrödd úr leik-
húsheimum en Katla skákar stórum
hluta íslenskra dægursöngkvenna.
Fleiri dæmi um laglínusterkar
smíðar Óskars eru annars vegar hið
Webber-skotna lag, „Það er svo
skrítið“, allsæmilega sungið af Frið-
riki Friðrikssyni, og hins vegar loka-
lagið, „Þótt þú farir okkur frá“, sem
er afar amerískt í eðli og gæti þess
vegna verið beint frá Hollywood. Vel
samið, engu að síður. Þótt flestar
smíðar Óskars séu laglínusterkar er
sumt sem ekki er jafntónvænt. Lagið
„Þvílíkir hrammar“, sungið af þeim
Gunnari Hanssyni og Jóhanni G. Jó-
hannssyni, er dæmi um söngleikja-
smíð eins og þær gerast hvað verst-
ar. Þetta er heldur vandræðaleg,
þófkennd og óþjál smíð en slíkt er þó
einkennilega algengt í leikhúsi. „Því-
líkir hrammar“ er því kannski ekki
svo galin smíð og á ósköp eðlilegum
leikhússtalli þótt lakari sé hún en
aðrar smíðar sem plötuna prýða.
„Söngur Balú“, sem þeir Theódór
Júlíusson og Friðrik Friðriksson
syngja leikrænt, er annað lag sem
fellur svolítið undir leikhúshefðina.
Það skilur og lítið eftir sig en laglín-
an er þó hljómþýð, enda smíðin ein-
föld, fislétt sveifla eftir bókinni.
Flest lögin á Móglí eru eins og áð-
ur segir eftir Óskar Einarsson. Und-
antekningarnar eru tvær; annars
vegar syngur Jóhanna Vigdís Arn-
ardóttir nýja út-
færslu á Habanera
úr Carmen listavel
og leikrænt (sjald-
gæf blanda) og
hins vegar er lag
sem kallast „Hei
hei“, eftir Franco
nokkurn Godi,
heldur óspennandi.
Enn er ógetið
tveggja lagasmíða
Óskars, „Skógur-
inn er okkar skjól“
og „Aparapp“. „Skógurinn“ er hin
ágætasta smíð þótt heldur sé útsetn-
ingin of slípuð miðað við alþýðleik-
ann og þjóðlagakeiminn í eðli tón-
smíðarinnar. „Aparappið“ er fjörugt
en leiðingjarnt þótt það innihaldi
kærkomið skýrmælgi sem verður að
teljast afar sjaldgæft hjá íslenskum
röppurum. Undarlegt.
Hljóðfæraleikarar plötunnar skila
sínu af stakri prýði enda eru miklir
fagmenn á ferð. Jón Elvar Haf-
steinsson gítarleikari og Kjartan
Valdemarsson á harmonikku gera
sérdeilis góða hluti og útsetningarn-
ar eru yfirleitt prýðilegar þótt lítið
sé um frumlegheit.
Að lokum er rétt að vekja athygli á
afbragðsgóðum textum Illuga Jök-
ulssonar, en ég læt þó bókmennta-
og leikhússpekingum eftir að velta
sér frekar upp úr þeim.
Móglí er vel heppnuð plata og
sennilega afar eiguleg þeim sem
verksins nutu í Borgarleikhúsinu.
Leikhúslög
TÓNLIST
G e i s l a p l a t a
Móglí, geislaplata með tónlist úr
samnefndum söngleik. Leikgerð úr
sögum Rudyards Kiplings var í
höndum Illuga Jökulssonar en Ósk-
ar Einarsson samdi þorra tónlistar-
innar. Óskar sá einnig um forritun
og lék á hljóðfæri í félagi við Jón
Elvar Hafsteinsson, Kjartan Valde-
marsson, Gunnlaug Briem og Jó-
hann Ásmundsson. Gunnar Smári
Helgason hljóðritaði og -blandaði í
Hljóðsmáranum. Borgarleikhúsið
gefur út en Japis dreifir.
MÓGLÍ
Orri Harðarson
Morgunblaðið/Jim Smart
Friðrik Friðriksson í hlutverki Móglís.
Bankastræti 3,
sími 551 3635
Póstkröfusendum
Lífrænar jurtasnyrtivörur
24 stunda dag- og næturkrem
BIODROGA
Lifandi tónlist
Vesturgötu 2, sími 551 8900
Í kvöld
KRINGLUNNI, SÍMI 5811944 & LAUGAVEGI 95, SÍMI 5521844
ÚTSALAN
HEFST Í DAG
INTER DOUBLE BOLIR 1.290 490
SHORT PEYSUR 2.990 1.290
SODA SKYRTUR 3.990 1.490
LONDON PRJÓNAPEYSUR 5.490 1.990
COCO JAKKI 4.990 2.490
O.FL. SPENNANDI ÚTSÖLUTILBOÐ
OPIÐ Í KRINGLUNNI TIL KL. 21.00