Morgunblaðið - 18.08.2001, Page 40

Morgunblaðið - 18.08.2001, Page 40
MINNINGAR 40 LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Sigurður ÁrniSigurbergsson fæddist í Vest- mannaeyjum 23. maí 1957. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi 8. ágúst af völdum áverka er hann hlaut í vél- hjólaslysi á Vestur- landsvegi við Brúar- torg í Borgarnesi 24. júní síðastliðinn. Foreldrar hans eru Lilja Árnadóttir og Sigurbergur Guðna- son frá Vestmannaeyjum. Systir Sigurðar er Guðný Ósk gift Arn- laugi Bergssyni og eiga þau þrjú börn, Lilju, Sindra og Elínu Rós. Annan í jólum 1979 kvæntist Sig- urður eftirlifandi eiginkonu sinni, Hrefnu Guðjónsdóttur, f. 16. ágúst 1956. Foreldrar henn- ar voru Kristín Ólafsdóttir og Guðjón Kristinsson, bæði látin. Börn Sigurðar og Hrefnu eru: 1) Ás- geir, f. 24. maí 1978, unnusta hans er Elsa Ósk Alfreðs- dóttir. 2) Guðbjörg, f. 16. desember 1983, unnusti henn- ar er Arnfinnur Finnbjörnsson. 3) Kristín, f. 16. desember 1983. 3) Bergur, f. 15. apríl 1992. Sigurður nam við Iðnskólann í Vest- mannaeyjum og lauk sveinsprófi í plötusmíði og vélvirkjun. Meistararéttindi haut hann síðan í Vélsmiðjunni Magna hf., en þar vann hann og síðan í Vinnslustöðinni hf. Fjölskyldan flutti til Reykjavíkur 1990 og rak Sigurður eigið verkstæði þar. Útför Sigurðar fer fram frá Landakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Elsku pabbi okkar. Okkur langar að skrifa þér þetta bréf svo að þú vitir hvað við elskum þig mikið og söknum þín sárt. Nú þegar þú ert farinn frá okkur streyma minningar um huga okkar. Manstu þegar við fórum í allar útileg- urnar og skemmtum okkur svo vel, óðum yfir allar köldu árnar, en mamma þorði aldrei með okkur ofan í og stóð á bakkanum og hló. Þegar við systurnar unnum fótboltaleikina fylltumst við af ánægju, því við viss- um að þá værir þú svo stoltur af okk- ur. Þú varst alltaf svo góður við okkur, varst alltaf til staðar með góð ráð handa okkur og gerðir allt til að okk- ur liði sem best. En svo breyttist allt 24. júní. Við sátum inni í stofu að horfa á sjón- varpið þegar síminn hringdi og við fengum þessar hræðilegu fréttir. All- an þann tíma sem þú varst á sjúkra- húsinu stóðstu þig eins og hetja, en svo allt í einu varstu farinn. Við þökkum Guði fyrir þann tíma sem við fengum með þér og við vitum að hann hugsar vel um þig og á end- anum hittumst við aftur og þá verður gaman á ný. Elsku pabbi, sofðu rótt, þín elsk- andi börn, Ásgeir, Guðbjörg, Kristín og Bergur. Elsku pabbi minn. Þó að þú kveðjir um sinn þá mun ég aldrei þér gleyma og ég held áfram að reyna án þín að lifa, og til þín þetta ljóð skrifa. Vona að þú sért stoltur af því sem ég gerði og þó að þetta erfitt verði þá veit ég að núna líður þér vel og ég niður dagana tel þar til við hittumst aftur og ég veit það verður í þér sami kraftur. Við gerðum svo mikið saman, manstu hvað það var gaman? Að spila fótbolta, ferðast og allt það en elsku pabbi bíddu, því við hittumst aftur á nýjum og betri stað. Þín dóttir, að eilífu, Kristín. Kæri sonur. Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vorn grætir þá líður sem leiftur af skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. (H.Í.H.) Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Vald. Briem.) Vertu sæll, elsku vinur. Elsku Hrefna og börn; Guð gefi ykkur styrk í sorginni. Mamma og pabbi. Elsku bróðir. Við andlátsfregn þína allt stöðvast í tímans ranni. Og sorgin mig grípur, en segja ég vil með sanni, að ósk mín um bata þinn tjáð var í bænunum mínum, en guð vildi fá þig og hafa með englunum sínum. Við getum ei breytt því, sem frelsarinn hefur að segja, um hver fær að lifa, og hver á svo næstur að deyja. Þau örlög, sem við höfum hlotið, það verður að skilja. Svo auðmjúk og hljóð við lútum að frelsarans vilja. Þó sorgin sé sár og erfitt sé við hana að una, við verðum að skilja og alltaf við verðum að muna, að guð, hann er góður og veit hvað er best fyrir sína. Því treysti ég nú að hann geymi vel sálina þína. Þótt farin þú sért og horfin burt þessum heimi. Ég minningu þína þá ávallt í hjarta mér geymi. Ástvini þína ég bið síðan guð minn að styðja, og þerra burt tárin, ég ætíð skal fyrir þeim biðja. (Bryndís Halldóra Jónsdóttir.) Elsku Hrefna, Ásgeir, Elsa Ósk, Guðbjörg, Addi, Kristín og Bergur; Guð gefi ykkur styrk í þessari miklu raun. Ég kveð þig með söknuð í hjarta. Þín systir, Guðný Ósk. Elsku Siggi. Þá heiðursmaður kveður, er hljótt um heimabyggð, er horfin ár sem dýrar perlur skína. Við biðjum Guð að launa þér gjafir, hlýju og tryggð, er gröfin lokast hljóða. Og blessum minn- ing þína. Elsku Hrefna, Ásgeir, Guðbjörg, Kristín og Bergur; Guð gefi ykkur styrk í ykkar miklu sorg. Ykkar systrabörn, Lilja, Sindri og Elín Rós. „Blessaður, Minkurinn hérna!“; svona hófst síðasta símtal okkar svil- anna, að kvöldi 7. júní síðastliðins. Ég heilsaði og þá sagði Siggi: „Hvenær vaknarðu?“ Ég sagðist yfirleitt vera kominn á lappir upp úr sex til að koma mér í laugarnar. „Þá leggjum við í hann klukkan sex og ég verð þá fyrir utan hjá þér. Ég ætla að taka Berg með.“ Minkurinn var ekkert að hafa of mörg orð um hlutina, sagði það sem segja þurfti án orðalenginga. Og af stað vorum við farnir fyrir sex morguninn eftir. Bíllinn hans, sem er eins og verkstæði á hjólum, var vel hlaðinn, því Ásgeir hafði hjálpað pabba sínum kvöldið áður að setja ál- lokið á heita pottinn í Húsafelli í bíl- inn og líka slatta af timbri og öllu sem til þurfti til verksins. Siggi hafði smíðað lok yfir heita pottinn í Laugarási í fyrra og þótti það slík völundarsmíð að orlofsnefnd- in var staðráðin í að fá eins lok í Húsafell. Ég hafði líka farið með hon- um í Laugarás og vorum við hátt í tvo daga að ganga frá þar, en nú skyldi þetta ganga á einum degi. Við vorum byrjaðir að rífa skjól- vegginn við pottinn um hálf átta, af- tengja lagnir, færa pottinn, sníða timbur og fleira og fleira. Allt lék þetta í höndunum á Sigga, en ég var þarna eins og léttadrengur og hand- langari. Á meðan við unnum undi Bergur sér við flugdrekaflug, skrapp niður að á og allt í einu var hann kom- inn með hund í heimsókn, svo ekki „féll honum verk úr hendi“ frekar en pabba hans. Ekki var nú mikið litið upp frá verkinu, ég náði þó að skella 1944- réttum í örbylgjuofninn í hádeginu, og svo fengum við okkur tvo, þrjá kaffibolla á hlaupum, en reglulega var þó tekið í nefið! Það er skemmst frá að segja að við vorum að til að verða níu um kvöldið og þegar við renndum í hlað heima var útivistin orðin 17 klukkutímar. Ég held að þetta hafi ekki verið mjög óvenjulegur vinnudagur hjá Sigga, því þeir voru æði oft langir, svo langir að bakið var farið að gefa sig. En hans mottó var að gera vel og ljúka verkinu, og svo sannarlega eru lokin á heitu pottunum og allur frá- gangur þeirra góð dæmi um hand- bragðið hans. Þeir voru samrýmdir feðgarnir og náðu vel saman. Það sá ég í Húsafelli þennan dag, sem nú er mér afar dýr- mæt minning um Sigga mink, því að kvöldi 8. júní áttum við síðast orða- skipti er við kvöddumst við heimili mitt að loknu frábæru dagsverki. Minning um góðan dreng og elsku- legan svila. Megi algóður Guð vernda elsku Hrefnu og krakkana og styrkja þau í þeirra miklu sorg. Ágúst Karlsson. Með mikilli sorg í hjarta kveðjum við elskulegan frænda okkar, Sigurð Árna Sigurbergsson, sem tekinn var frá okkur allt of fljótt. Elsku Siggi. Að koma heim til ykk- ar Hrefnu var alltaf eins og að koma heim – bara aðeins betra. Ekkert var sjálfsagðara en að hýsa þá sem til ykkar komu – og voru það oft skraut- lega margir. Alltaf bauðstu alla vel- komna og hvergi var betra að vera. Þú varst alltaf svo góður við okkur frændsystkinin og alltaf vildirðu allt fyrir alla gera. Þú sagðir alltaf að þú ættir hlut í okkur öllum – og börnin sem við svo eignuðumst gerðir þú að þínum barnabörnum. Þú áttir svo mikið í okkur – og við í þér. Það var alltaf svo gott að leita til þín, ekki bara til að leita ráða, heldur einnig til huggunar. Þó svo að þú hafir kannski ekki alltaf vitað af því. Því þannig varstu. Nærvera þín ein nægði til að lyfta manni upp og kæta. Ef svo stóð á að þú varst á leiðinni í útilegu með fjölskylduna og eitthvert okkar var á leið til Reykjavíkur, var þeim hinum sama snarað með í úti- leguna. Það þótti þér ekkert tiltöku- mál. „Einstakur á við þá sem eru dáðir og dýrmætir og þeirra skarð verður aldrei fyllt.“ Þetta átti svo vel við þig, elsku Siggi. Þú áttir engan þinn líka. Þú lifðir lífinu eins lifandi og mögu- legt er. Prófaðir allt, gerðir allt; þú varst allt í öllu alls staðar. Slökkvilið, björgunarsveit, úteyj- arfélag. Alls staðar varstu hrókur alls fagnaðar. Sá er eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. (Hannes Pétursson.) Minningarnar um þig eru svo ótelj- andi margar að það gæti fyllt nokkr- ar bækur. Þær bestu eru samt geymdar í hjarta okkar. Elsku Hrefna, Ásgeir, Elsa, Krist- ín, Guðbjörg, Addi og Bergur; megið þið finna styrk og vera hvort öðru stoð og stytta á þessum erfiðu tímum. Elsku Siggi. Við þökkum fyrir þann tíma sem við fengum að njóta með þér. Megi minning þín lifa í hjarta okk- ar um ókomna tíð. Hrefna og Sigurlaug. Kæri frændi og vinur, það er erfitt að setjast niður og reyna með fáum orðum að minnast þín og þakka þér allar góðu stundirnar. Minningarnar frá Eyjum eru margar, t.d. lunda- veiðar, eggjatínsla og allar óvissu- ferðirnar sem okkur datt svo oft í hug að fara. Alltaf var gaman, enda varst þú mikið náttúrubarn. Kunnir svo vel að kenna öðrum að upplifa náttúruna á ótrúlegan hátt. Ég man svo vel eftir fyrstu ferðinni sem ég fékk að fara með þér út í Hellisey. Í þeirri ferð kenndir þú mér að taka í nefið, milli þess sem við tíndum egg, ég naut mín svo vel að fá að vera með þér. Kæri Siggi, það er erfitt að hugsa til þess að eiga ekki eftir að fá fréttir af þér eða hitta þig og hlusta á þig segja sögur af þér eða fjölskyldu þinni. Hef ég oft hlegið að því þegar þú sagðir mér frá hundinum ykkar, Skotta, sem átti að vera varðhundur en þegar á reyndi varð raunin önnur; þegar svalahurðin fauk upp að nóttu til stökk Skotti undir sæng. Já, þú hafð- ir alltaf frá svo mörgu að segja. Þó svo alltaf hafi verið mikið að gera og gerast hjá þér gafstu þér tíma fyrir þá sem þörfnuðust þín. Minnist ég þess hve góður þú varst við afa þinn Árna og hve oft þú heimsóttir hann á Dvalarheimilið Hraunbúðir í Eyjum. Er ég viss um að hann tekur vel á móti þér. Kæri frændi, þú áttir ynd- islega konu og fjögur börn sem oft fengu að upplifa skemmtilegar stundir með þér. Ég veit að söknuð- urinn verður mikill enda varst þú góður, traustur og skemmtilegur pabbi. Elsku Siggi, nú í dag er ég kveð þig í hinsta sinn bið ég góðan guð að styrkja og vaka yfir elsku Hrefnu, börnunum ykkar, Ásgeiri, Kristínu, Guðbjörgu og Bergi, foreldrum og systur, Bergi, Lilju og Guðnýju. Blessuð sé minning Sigga. Þó í okkar feðrafold falli allt sem lifir enginn getur mokað mold minningarnar yfir. (B. Jónsson.) Þinn frændi og vinur, Kristinn Guðni. Öll tjáning verður sem tilgerðar- legt hjóm þegar sorgarfréttir slá mann. Það sem er efst í huga og mað- ur ætlar að koma orðum að hljómar marklítið og innantómt. Samt reyni ég að kveðja Sigga minn. Þótt langt væri milli okkar í aldri varð hann snemma félagi minn og góðvinur, miklu fremur en unglingur í götunni sem fyrir tilviljun sóttist eftir félags- skap okkar sem áhuga höfðum á veið- um og fjallaferðum. Ég efast um að Siggi hafi verið meira en tíu ára gamall þegar ég sagði honum eitt vorkvöldið að nú gæti hann ekki komið með okkur bræðrunum út í Hellisey næsta dag af því að við færum svo snemma. Þeg- ar ég opnaði útidyrnar morguninn eftir lá drengurinn á blettinum fram- an við húsið og svaf. Þetta segir ým- islegt um áhugann, kjarkinn og ein- urðina sem þessum unga peyja var gefin. Það var lítil kvöð að hafa hann með, hann naut þess að taka til hendi og lá aldrei á liði sínu. Siggi var snemma lagtækur og úrræðagóður sem við nutum sem vorum meiri klaufar. Sjóveiki var kvilli sem kvaldi hann þegar hann var yngri. Þegar hann lufsaðist upp á bryggju grænn í framan og skjögrandi eftir slark túra hélt maður að kannski yrði nú bið á að strákurinn falaðist eftir fari. Nei, ekki Siggi. Hann var ótrúlega fljótur að taka gleði sína og aldrei svo illa kominn að hann vildi ekki vera með. Hrafn og máfur eru ekki aufúsu- gestir í lundabyggð. Þegar við bræð- ur fengum nytjarétt í Hellisey reynd- um við að fækka vargfugli í eynni eftir bestu getu. Enginn gekk þó öt- ullegar fram í þessu þjóðþrifaverki en Siggi. Einhverjum í veiðineytinu þótti nóg um og sagði að hann færi um svæðið eins og minkur. Meira þurfti ekki til. „Siggi minkur“ festist við hann. Hann hafði ekkert á móti nafngiftinni og fékk einhverntíma bréf með þessari utanáskrift. Eins og sjá má var ævintýraþráin rík í eðli drengsins, en hann var líka kapps- fullur þannig að stundum keyrði úr hófi. Öfgarnar teygðu hann á ystu nöf þannig að félögum hans stóð ekki alltaf á sama. Flestir þekktu þessa hlið á kappanum en færri vissu hve mjúkar taugar hann átti, en blíða var annar eðlisþáttur í fari hans. Hann var vingóður og vinfastur og einstak- lega hlýr við þá sem honum þótti vænt um. Hitt er annað mál að það hæfði ekki karlmenni að flíka tilfinn- ingum og því gátu vinahót hans verið öfgafull. Ég fékk stundum að kenna á því hvað við vorum nánir. Með árunum efldust tengslin og varð Siggi eins og einn af fjölskyldu okkar bræðra, og sjálfgefið var að hann yxi inn í veiðineyti Helliseyinga. Að sjálfsögðu var Siggi þótt ungur væri einn þeirra sem dvöldu í Eyjum í Heimaeyjargosinu og unnu að björgunarstörfum. Þar bar fundum hans og Hrefnu saman og bundust þau afar sterkum böndum. Siggi tók meistarapróf í vélsmíði og vann við þá iðn fyrst um árabil í Eyjum lengst af hjá Vinnslustöðinni og kom sér oft vel hve hann var ósérhlífinn. En síð- ustu árin starfaði hann sjálfstætt í Reykjavík. Ég dáðist oft að honum fyrir útsjónarsemi og handlagni, þetta sýndi sig til dæmis þegar hann bjargaði mér ef mikið lá við með lag- færingar og breytingar á kvikmynda- tækjum, eða jafnvel nýsmíði. Og þeg- ar Rúrí, kona mín, kynntist Sigga fékk hún strax miklar mætur á hon- um sem góðum dreng og flinkum og traustum handverksmanni. Hún leit- aði því með verkefni sín til hans. Verk hennar voru oft snúin og ekki sjálf- gefið að finna lausnir á erfiðum sam- setningum eða festingum, en ef Siggi tók að sér verkið var það í öruggum höndum. Siggi var einstaklega hjálpfús og greiðvikinn að eðlisfari, og gat ekki neitað neinum sem til hans leitaði. Má segja að það hafi komið honum í koll. Þótt hann nyti þess að vera vel á sig kominn gátu vinnudagarnir teygst of langt fram á nótt dag eftir dag og því lítill tími til svefns. Heima í Eyjum var hann þess utan bæði í slökkviliðinu og björgunarsveitinni. Þannig var Siggi, ávallt óspar á sjálf- an sig. Ég hugsa að Siggi hafi haft líkamsburði á við tvo, en hann var um leið fimur eins og köttur. Þetta kom gleggst í ljós í bjargi þegar farið var til eggja. Tamast var honum að fara laus eða nota stuðningsband. Maður sá hann þræða sig bekk af bekk stundum á stöðum sem enginn þekkti og lesa sig svo á handvað upp á brún. Þetta er heilmikil þrekraun, ekki síst með fullan barm af eggjum. Þekktustu fjallaferðir hans eru sennilega í Fiskhellum þar sem hann labbaði frá grasi, lóðrétt bergið, alla leið upp á fjallsbrún á þjóðhátíð, í leiðinni heilsaði hann upp á sigmann- inn í ofanferð. Þetta hefur enginn leikið eftir honum fyrr eða síðar þótt í Eyjum hafi verið margir knáir bjarg- menn. Teygður milli tveggja skauta var Siggi ekki alltaf sáttur. Hrefna konan hans vissi kannski ein hvað honum leið. Eftir að fjölskyldan flutti til Reykjavíkur varð erfiðara með bjargferðir. Eignaðist Siggi þá mót- orhjól og naut þess að bregða sér skottúra út úr bænum. Stundum fékk Bergur, sonur hans, að koma með. Í síðustu ferðinni varð svo óhappið. Hjólið skrikaði í beygju og þeir end- uðu utan vegar, Siggi illa slasaður en Bergur slapp með skrámur. Fyrst eftir slysið efaðist ég ekki um að þetta hraustmenni kæmi al- heilt til baka. Auðvitað var það ósk- hyggja. Þegar á leið dofnaði sú von. Mitt í öllum þrautum og örvilnan var eitt sem vakti honum alltaf bros, en það var þegar Bergur litli kom til hans. Sú staðreynd að hann væri hólpinn var honum greinilegur léttir, að sjá hann var staðfesting á að drengurinn hafði sloppið. Það var aðdáunarvert að fylgjast með fjölskyldunni hvernig hún var einhuga um að hjálpa þeim feðgum meðan þeir þurftu mest á umönnun að halda, að því býr Bergur litli. Svo ötullega börðust þau að ef hægt hefði SIGURÐUR Á. SIGURBERGSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.