Morgunblaðið - 09.09.2001, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BT KRINGLAN BT SKEIFAN
OPIÐ Í DAG
13-17
LABWAY DVD spilari
• Multi region
• Spilar alla diska s.s. MP3
• Innbygður Dolby Digital decoder
• Dolby Digital/DTS
• Fjarstýring
DVD TILBOÐ
FYLGIR
26.999
KARAOKE
FULLKOMINN
DVD SPILARI Á ÓTRÚLEGU VERÐI
OG HANNIBAL Á DVD
FYLGIR MEÐ
VIKAN 2/9 – 8/9
ERLENT
INNLENT
DAVÍÐ Oddsson for-
sætisráðherra segir að
skýr samdráttareinkenni
séu að koma fram í hag-
kerfinu sem Seðlabankinn
hljóti að taka tillit til við
ákvarðanir um vexti.
Birgir Ísleifur Gunnarsson
seðlabankastjóri segir að
vextir verði lækkaðir þeg-
ar forsendur eru til þess.
HAFIST var handa við
olíuhreinsun úr flaki El
Grillo, sem liggur á botni
Seyðisfjarðar, á miðviku-
dag. Ekki hefur verið
hægt að hefja dælingu
vegna veðurs.
22 STÚLKUR hafa leit-
að til neyðarmóttöku
vegna nauðgunar um síð-
ustu verslunarmanna-
helgi. Hjúkrunarfræð-
ingar sem voru á
Eldborgarhátíðinni hafa
skilað landlækni tillögum
til úrbóta.
SEIÐAVÍSITALA
þorsks í ár er með því
hæsta sem mælst hefur
frá því seiðarannsóknir
hófust. Klak þorskins
virðist því hafa heppnast
vel í ár.
JÓN Kristjánsson heil-
brigðisráðherra hafnar
hugmyndum um gjald-
tökur í heilbrigðiskerfinu
að fyrirmynd einkarek-
innar læknisþjónustu.
KJÖRRÆÐISMENN Ís-
lands komu saman til ráð-
stefnu í vikunni. 140 af
240 ræðismönnum Íslands
sátu ráðstefnuna.
HEIMILIS- og hesta-
sýningin Heimilið og Is-
landica 2001 var opnuð í
Laugardalnum á fimmtu-
dag.
Verðmæti Landssím-
ans 40,6 milljarðar
ÁKVEÐIÐ hefur verið að selja 49%
Landssíma Íslands í tveimur áföngum
á þessu ári. Lágmarksgengi á hluta-
bréfum Símans verður 5,75 og er fyr-
irtækið því a.m.k. 40,6 milljarða króna
virði, að mati PricewaterhouseCoop-
ers, aðalráðgjafa ríkisins við söluna.
Hlutafjárútboð Landssímans verður
19.–21. september og getur almenn-
ingur skráð sig fyrir allt að 300 þús-
undum.
Kjölfestufjárfestir mun kaupa fjórð-
ung heildarhlutafjár að loknu forvali
og verður honum tryggður meirihluti í
stjórn fyrirtækisins með ákveðnum
skilyrðum. Ýmsir sem hafa tjáð sig um
verðið telja það of hátt.
118 kærur vegna
úrskurðar
ALLS HÖFÐU 118 kærur borist til
umhverfisráðuneytisins á fimmtudag
vegna úrskurðar Skipulagsstofnunar
um umhverfisáhrif Kárahnjúkavirkj-
unar. Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, gekk á fund umhverf-
isráðherra á þriðjudag og afhenti hon-
um kæru fyrirtækisins. Í kærunni fer
Landsvirkjun fram á að úrskurði
Skipulagsstofnunar verði breytt og
fallist verði á virkjunarframkvæmdir
með eða án skilyrða.
4,3 milljarða halli
á ríkissjóði
HALLI á ríkissjóði á síðasta ári var
4,3 milljarðar en við afgreiðslu fjár-
laga var gert ráð fyrir 16,7 milljarða
króna rekstrarafgangi. Fjármálaráðu-
neytið segir skýringuna liggja í færslu
óreglulegra liða sem hafi áhrif á
rekstrarafkomu ársins. Rekstur árs-
ins hafi hins vegar skilað 17 milljörð-
um króna af handbæru fé sem sé held-
ur betri afkoma en ráð var fyrir gert.
SÞ-ráðstefna um
kynþáttamisrétti
FULLTRÚAR á ráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna um aðgerðir gegn kyn-
þáttamisrétti, sem stóð yfir alla vikuna
í Durban í Suður-Afríku, náðu sam-
komulagi á laugardagsmorgun um
orðalag lokayfirlýsingar ráðstefnunn-
ar hvað varðar Mið-Austurlönd, að
sögn utanríkisráðherra Suður-Afríku,
Nkosazana Dlamini-Zuma. Áður hafði
náðst málamiðlunarsátt milli Evrópu-
og Afríkulanda um þrælahald og ný-
lendustefnu fyrri alda, með tillögu þar
sem skorað er á ríki, sem báru ábyrgð
á þrælasölunni, að leita leiða til að
„endurvekja reisn fórnarlambanna“.
Hafði ítrekað í það stefnt að ráð-
stefnan færi út um þúfur, en strax á
mánudag gengu fulltrúar Bandaríkj-
anna og Ísraels út af henni til að mót-
mæla árásum arabaþjóða á stefnu Ísr-
aela. Höfðu fulltrúar ESB einnig hótað
að ganga út, ef aðrir þátttakendur ráð-
stefnunnar væru staðráðnir í að senda
frá sér lokayfirlýsingu þar sem síon-
isma, þeirri stefnu að gyðingar eigi sér
þjóðarheimili í Ísrael, væri jafnað við
kynþáttahatur.
Sættir í Makedóníu
VONIR manna um sættir og varanleg-
an frið í Makedóníu jukust á fimmtu-
dag er Makedóníuþing lýsti yfir stuðn-
ingi við þá samninga, sem tekizt hafa
með slavneska meirihlutanum og al-
banska minnihlutanum. Þar er þó að-
eins um eins konar ramma að ræða og
viðbúið að ágreiningur geti orðið um
útfærsluna eða smáatriðin. Óttast
sumir að eftirleikurinn geti orðið erf-
iður, þær breytingar sem gera þarf á
stjórnarskránni til að uppfylla friðar-
samninginn. Samþykkt þingsins var
fagnað víða enda var eftir henni beðið
svo hermenn NATO gætu aftur tekið
til við að taka við vopnum frá skærulið-
um. Vopnasöfnunin hófst aftur á föstu-
dag.
LEIÐ nemenda í kaþ-
ólskum stúlknaskóla í
norðurhluta Belfast varð í
vikunni brennidepill
átaka n-írskra kaþólikka
og mótmælenda. Sam-
bandssinnar gerðu aðsúg
að stúlkum á leið sinni í
skólann, sem liggur í
gegnum mótmælenda-
hverfi. Kvað svo rammt
að þessu að stúlkurnar
þurftu lögregluvernd.
Heimatilbúin sprengja
sprakk á leiðinni á mið-
vikudagsmorgun.
HÓPUR flóttamanna,
sem höfðust við í rúma
viku um borð í norska
gámaflutningaskipinu
Tampa fyrir ströndum
Jólaeyju, voru á mánudag
ferjaðir yfir í ástralskt
herskip sem flytur þá til
Papúa-Nýju-Gíneu. Þaðan
verða þeir fluttir til Nýja-
Sjálands og Kyrrahafseyj-
arinnar Nauru. Áströlsk
stjórnvöld neituðu að taka
við flóttamönnunum.
STJÓRNVÖLD í
Bandaríkjunum tilkynntu
á fimmtudag að þau hefðu
fallið frá kröfu um að
Microsoft-hugbúnaðarris-
anum yrði skipt upp.
BINYAMIN Ben Eliez-
er, varnarmálaráðherra
Ísraels og annar tveggja
frambjóðenda í leiðtoga-
kjöri ísraelska Verka-
mannaflokksins, fullyrti á
miðvikudag að brögð
hefðu verið í tafli og
krafðist endurtalningar.
Mjótt var á munum milli
hans og Avram Burg
þingforseta. Lágu form-
leg úrslit enn ekki fyrir í
vikulokin.
FRAMKVÆMDIR við nýju versl-
unarmiðstöðina í Smáralind eru á
áætlun samkvæmt upplýsingum for-
svarsmanna byggingarstjórnar
Smáralindar.
Nú þegar rúmur mánuður er til
opnunar vinna um átta hundruð iðn-
aðarmenn og verkamenn á svæðinu
frá morgni til kvölds við smíði og
frágang innréttinga í verslunum
auk þess sem verið er að leggja
lokahönd á byggingarsvæðið og
nánasta umhverfi þess.
Í stórverslun Debenhams hefur
hópur iðnaðarmanna unnið nær
sleitulaust við smíðar og flísalögn
frá því í apríl og eru handtökin orð-
in ansi mörg að sögn Ólafs Geirs-
sonar smiðs. Aðspurður segir hann
vinnudaginn oft æði langan þar sem
menn leggi ekki niður sagir og
hamra og önnur verkfæri fyrr en
um tíu á kvöldin en vinnudagurinn
hefst fyrir átta á morgnana.
„Hér er nú unnið sjö daga vik-
unnar til að ljúka verkinu en tíminn
æðir áfram og fer nú senn að verða
af skornum skammti þar sem starfs-
menn koma strax á mánudag til að
raða vörum í hillurnar, svo það er
eins gott að spýta í lófana áður en
allt fyllist hérna af vörum,“ sagði
Ólafur. Hann benti orðum sínum til
stuðnings á stóran snyrtivörustand
sem þegar hefur verið komið upp í
versluninni.
Til viðbótar við þann flokk tutt-
ugu iðnaðar- og verkamanna sem
hefur unnið í Debenhams und-
anfarna mánuði hafa að sögn Ólafs
sjö smiðir bæst í hópinn síðustu
daga til að leggja lokahönd á inn-
réttingarnar. „Við þurftum að
sækja strákana alla leið norður á
Akureyri þar sem allir smiðir á suð-
vesturhorninu voru upp fyrir haus í
vinnu,“ sagði Ólafur. Spurður hvort
þeir næðu að klára verkið í tæka tíð
leit hann sem snöggvast yfir smiða-
skarann og kallaði yfir hamars-
höggin: „Já, það verður ekkert
mál.“
Í verslun Hagkaups hafa iðn-
aðarmenn þegar lokið störfum og
flokkur manna farinn að fylla á hill-
ur sérvörudeildar og matvörudeild-
ar verslunarinnar. Andri Þór Sig-
urjónsson, verkstjóri áfyllingar,
segir verkið ganga hratt og vel en
fimmtán manns voru á föstudag við
að fylla í hillur og sagði Andri fjölda
starfsmanna fara dagvaxandi.
Spurður hvenær vinnunni skuli
lokið segir hann tímamörkin miðast
við 2. október þegar verslun Hag-
kaups á Smáratorgi verður lokað og
starfsmenn hennar flytjast yfir í
Smáralind. „Við höfum því tæpan
mánuð til stefnu en með þeim hraða
sem nú er unnið á verður það ekkert
vandamál. Hér er bara unnin eðlileg
dagvinna eða frá 8 til 18 og ætti
ekki að reynast nauðsynlegt að
grípa til sólarhringsvakta eins og
margir iðnaðarmennirnir hafa þurft
að vinna til þessa,“ sagði Andri.
Opnun nýju verslunarmiðstöðvarinnar í Smáralind
Hópur iðnaðar- og verkamanna leggur nú lokahönd á frágang lóðar Smáralindar.
Mánuður
til stefnu
og hraðar
hendur við
störfin
Morgunblaðið/Ásdís
Björgvin Sigurðsson og Guðmundur Rúnarsson starfa við hilluáfyll-
ingar í Hagkaupi þar sem unnið er í akkorði.
Ólafur Geirsson smiður.
TÍU kennarar og starfsmenn Ás-
landsskóla í Hafnarfirði hafa sent yf-
irlýsingu til fjölmiðla þar sem þeir
lýsa fullu trausti á stjórn skólans.
„Eins og við má búast eru byrj-
unarörðugleikar í starfi nýs skóla í
nýju hverfi en verkefni okkar hefur
verið að leysa úr þeim af skynsemi
og jákvæði. Það finnst okkur hafa
tekist,“ segir í yfirlýsingunni en til-
efni hennar er fréttaflutningur Rík-
issjónvarpsins undanfarna daga.
Í yfirlýsingunni er fullyrt að rangt
sé að hvorki hjúkrunarfræðingur né
íþróttakennari starfi við skólann og
að kennarar hafi ekki fengið greidd
laun. Foreldrastarf sé í undirbúningi
og skólastjórinn hafi af persónuleg-
um ástæðum tekið sér leyfi frá störf-
um og staðgengill hafi verið skipað-
ur.
Lýsa trausti
á stjórn Ás-
landsskóla