Morgunblaðið - 09.09.2001, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 09.09.2001, Blaðsíða 14
ERLENT 14 SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ALLT útlit er fyrir að í kosning- unum á morgun muni norski Verka- mannaflokkurinn, sem hélt um stjórnartaumana í Noregi stærstan hluta 20. aldar, bíða sögulegan ósig- ur. Samkvæmt niðurstöðum skoð- anakönnunar sem birtar voru í Aft- enposten í vikulokin hyggjast að þessu sinni aðeins rúmlega 21% kjósenda greiða Verkamanna- flokknum atkvæði sitt, en fylgi við flokkinn á landsvísu hefur aldrei mælzt jafn lítið. Fyrir síðustu kosningar til Stór- þingsins árið 1997 lýsti þáverandi forsætisráðherra og leiðtogi Verka- mannaflokksins, Thorbjørn Jag- land, því yfir að flokkurinn yrði að fá að minnsta kosti jafnmörg at- kvæði og í kosningunum þar á und- an. Næðist það ekki myndi hann láta stjórnartaumana af hendi. Fyrir fjórum árum fóru leikar þannig að Verkamannaflokkurinn fékk 35% atkvæða en hafði áður 36,9% og Jagland vék fyrir minni- hlutastjórn miðflokkanna undir for- ystu séra Kjells Magne Bondevik úr Kristilega þjóðarflokknum. Rík- isstjórn Bondeviks féll í marz í fyrra og Verkamannaflokkurinn hreiðraði aftur um sig í stjórnar- ráðinu í Ósló, undir forystu Jens Stoltenbergs. „Sársaukamörk“ Stoltenbergs Nú benda skoðanakannanir til þess að fylgið við Verkamanna- flokkinn sé minnst 10% undir því sem það var í síðustu kosningum. Því hefur sú spurning brunnið á vörum margra, hvort flokkurinn muni í þetta sinn setja sér einhver slík „sársaukamörk“ eins og Jag- land gerði síðast. Stoltenberg hefur veigrað sér við að slá einhverjum slíkum mörkum föstum en segir þó að vissulega liggi mörkin einhvers staðar. „Það eru mörk. En ég vara mig á að nefna nokkrar tölur,“ hefur sænska dagblaðið Dagens Nyheter eftir norska forsætisráðherranum, sem ekki kærir sig um að gera sömu mistök og fyrirrennari hans Jagland (sem reyndar er enn for- maður flokksins og situr sem utan- ríkisráðherra í ríkisstjórn Stolten- bergs). „Það eru þeir sem mæta í kjörklefann sem gera út um þetta,“ sagði Stoltenberg á fimmtudag, í þeirri von að fyrri kjósendur Verkamannaflokksins „snúi heim“ og hindri að flokkurinn bíði nið- urlægjandi kosningaósigur. Stjórnmálaskýrendur telja að „sársaukamörk“ Stoltenbergs felist aðallega í tvennu. Í fyrsta lagi verði Verkamannaflokkurinn að verða stærri en Hægriflokkurinn, sem hefur mælzt með mjög svipað fylgi í skoðanakönnunum á lokasprettin- um fyrir kosningarnar. Bernt Aar- dal, einn kunnasti sérfræðingur Noregs í kosningarannsóknum, tjáði AP að vænta megi að flok- urinn afsalaði sér tilkalli til ríkis- stjórnarmyndunar ef hann fær und- ir fjórðungi atkvæða. Til þess að Verkamannaflokkur- inn geti haldið áfram um stjórn- artaumana verður, að mati Aardal, þingsætadreifingin milli flokkanna að vera þannig að Verkamanna- flokkurinn geti reitt sig á stuðning fastra samstarfsflokka eða að minnsta kosti breytilegs þingmeiri- hluta. En þótt Verkamannaflokkurinn geti sótt stuðning á þingi bæði á vinstrikantinn, til Sósíalíska vinstri- flokksins (SV), og inn á miðjuna, til Kristilega þjóðarflokksins og Mið- flokksins, má bóka að slíkt fjöl- flokkasamstarf verður mjög fjar- lægur kostur ef Verkamanna- flokkurinn verður eins veikur og spáð er. Hafa ber þó í huga í þessu sam- hengi, að á flokksþingi sínu árið 1998 samþykkti Verkamannaflokk- urinn í fyrsta sinn í sögunni að opna fyrir möguleikann á að eiga aðild að samsteypustjórn. Óánægja með stjórnarstefnuna En hver eru málefnin sem staðið hafa upp úr í kosningabaráttunni? „Þeir segja að við séum svo ríkir. En skólarnir grotna niður og fólk stendur í biðröðum á sjúkrahús- inu,“ hefur danska blaðið Politiken eftir eldri konu sem sótti kosninga- fund í Tromsø í Norður-Noregi. „Já, þar gætu þeir aldeilis notað eitthvað af olíupeningunum,“ segir vinkona konunnar, sem einnig er nokkuð við aldur. „En það á jú að geyma þá fyrir næstu kynslóð eft- irlaunaþega, segja þeir. Svo að við eigum ekki að fá neitt,“ segir hún. Þessar skoðanir gömlu vinkvenn- anna í Tromsø eru nokkuð lýsandi fyrir helztu átakamálin í norskum stjórnmálum um þessar mundir. Margir Norðmenn eru óánægðir með sitjandi ríkisstjórn og að hinn ráðandi meirihluti stjórnmála- manna skuli ekki vilja beina meiru af þeim rúmu 500 milljörðun norskra króna – um 5.000 milljörð- um íslenzkra króna – sem eru í olíu- sjóðnum norska (þar sem uppsafn- aður hagnaður norska ríkisins af Norðursjávarolíuvinnslunni er geymdur) til þess að leysa vanda- mál á borð við þau sem við blasa í skóla- og heilbrigðiskerfinu. Evr- ópumál – og utanríkismál yfirleitt – hafa ekki haft nokkra þýðingu í kosningabaráttunni að þessu sinni. Það er óánægjan sem vinkonurn- ar í Tromsø lýsa sem skýrir að í skoðanakönnunum hefur Sósíalíski vinstriflokkurinn tvöfaldað fylgi sitt frá úrslitum síðustu kosninga, og mótmælaflokki eins og Kystpartiet, flokki norður-norska hvalfangarans Steinars Bastesen sem fyrst kom manni á þing árið 1997, er nú spáð jafnvel þremur þingsætum. Það var þessi óánægja sem fyrir ári skilaði Framfaraflokki Carls I. Hagen í efsta sæti hins pólitíska vinsældalista en innbyrðis deilur og hneykslismál hafa síðan reytt fylgið af honum. Þó virðist Framfara- flokkurinn, sem hefur skapað sér sérstöðu meðal annars með rót- tækri afstöðu í innflytjendamálum, eiga víst svipað fylgi og hann fékk í síðustu kosningum, um 15%, eða lít- ið eitt minna, og skýrist það að miklu leyti vegna trausts persónu- fylgis Hagens. Það er annars Hægriflokkurinn, sem árið 1997 fékk aðeins 14,3% at- kvæðanna, sem hefur notið mestu fylgisuppsveiflunnar í kjölfar óvin- sælda ríkisstjórnarinnar nú á síð- ustu mánuðum. Fyrir nokkrum vik- um mældist fylgið við hann yfir 30% en var undir lok kosningabar- áttunnar á svipuðu róli og fylgið við Verkamannaflokkinn, á bilinu 21– 25%. Skýra valkosti skortir Sú mikla dreifing atkvæðanna á flokkana sem búizt er við veldur því að mikil óvissa ríkir um stjórnar- myndunarmöguleika. „Við nálgumst nú stöðu þar sem alls kyns samsteypur eru hugsan- legar. Kjósendur skortir skýra val- kosti. Þeir skynja ástandið þannig að það breyti engu hverjum þeir greiða atkvæði sitt,“ hefur Politiken eftir Anders Todal Jenssen, stjórn- málafræðiprófessor við háskólann í Þrándheimi. Hann og margir fleiri stjórnmála- skýrendur í Noregi eru sammála um að þetta valdi því að búast megi við lítilli kjörsókn. Í síðustu skoð- anakönnununum fyrir kosningarnar kvaðst hátt í fjórðungur kjósenda ekki hafa enn gert upp hug sinn, og má því reikna með að þessi stóri kjósendahópur muni annað hvort ekki fara á kjörstað, skila auðu eða ákveða fyrst í kjörklefanum við hvaða framboðslista hann merkir. Hægristjórn? Eins og er eiga átta flokkar full- trúa á Stórþinginu og alls eiga í kosningunum nú níu flokkar mögu- leika á því að fá fulltrúa kjörna á þing. „Þetta er algjör óreiða,“ tjáði Carl I. Hagen AP á fimmtudag. „Það eru engin stór málefni á dag- skrá í þessari kosningabaráttu. [Hún] hefur aðeins snúizt um hverj- ir eigi að sitja í næstu stjórn,“ sagði hann. Flestir Norðmenn njóti mik- illa lífsgæða og kæri sig kollótta um stjórnmál vegna þess, að sögn Hag- ens, „að það eru ekki lengur neinir skýrir valkostir“. Mæltist Hagen til þess að hann og leiðtogar Hægri- flokksins og Kristilega þjóðar- flokksins tækju höndum saman um að gefa kjósendum fyrirheit um að þessir þrír flokkar myndu stefna að stjórnarsamstarfi, næðu þeir þing- meirihluta; þannig hefðu kjósendur skýran valkost. En þessi hvatningarorð Hagens hlutu dræmar undirtektir. Jan Pet- ersen, formaður Hægriflokksins, gaf lítið fyrir frýjunarorð Fram- faraflokksleiðtogans. Þó hefur þessi möguleiki oft verið ræddur í fjöl- miðlum. Uppi eru kenningar um, að Petersen – sem skortir persónu- fylgi til að geta gert trúverðugt til- kall til forsætisráðherraembættis- ins – ætli sér utanríkisráð- herrastólinn í hugsanlegri samsteypustjórn með Kristilega þjóðarflokknum, sem Kjell Magne Bondevik myndi fara fyrir. Þessir tveir flokkar myndu þó ekki ráða yfir þingmeirihluta og því vera háð- ir stuðningi þingmanna Framfara- flokksins og jafnvel fleiri flokka, eftir því hvernig þingsætin dreifast er talið hefur verið upp úr kjörköss- unum. Þrátt fyrir að Framfaraflokkur- inn sé búinn að losa sig við róttæk- linga í eigin röðum og flokksleiðtog- inn Hagen hafi lagt sig fram um að breyta ímynd flokksins þannig að hann verði vænni kostur til ríkis- stjórnarsamstarfs hafa ýmsir stjórnmálaleiðtogar, þar á meðal bæði Petersen og Bondevik, viljað – alla vega í orði – loka alveg á slíkt samstarf. Ef mynda á hægristjórn þarf því að yfirstíga ýmsar hindranir. Það kann þó að hjálpa til að Bondevik hefur á síðustu mánuðum verið sá stjórnmálamaður sem flestir Norð- menn myndu vilja sjá sem forsætis- ráðherra, en þar sem miðflokkarnir sem að baki honum standa njóta að- eins stuðnings innan við fimmtungs kjósenda geta þeir augljóslega ekki gert tilkall til að stjórna landinu einir. Hver sem úrslitin verða munu Norðmenn þurfa að lifa næstu fjög- ur árin við þá samsetningu Stór- þingsins sem þau leiða af sér, þar sem lokað er fyrir það í stjórnar- skrá landsins að þing sé rofið áður en kjörtímabili þess lýkur. Óskýrar línur fyrir stórþingskosningar Norðmenn ganga til þingkosninga á morgun, 10. september. Útlit er fyrir að stjórnarmyndun verði erfið, skrifar Auðunn Arnórsson, þar sem atkvæðin virðast ætla að dreifast enn meir milli flokk- anna en áður.                                                                     !" #$              %&'  (     )  '  ( *   + )                          !    "##$ % &  !  "% ,         -    .       +       )    &        !           !    #    #       !  /     '            (!  ")*  "##$ + &   0       (    1   , $                        (     !     2)           3  $      +                           /       +     4&'                     , - '   !  !! !  !  !  !  *   !!      "*  + &   2        )   )       (        !"        5       6      )             )   )   (     !    7  / 4&  &'    +& !   3     899:   +   !  ,     (                ;<<<  ,  =   +      . !  & /               0! '   "*$   !    "##$ + &   1! 2  ! 3 44  >                "   =   "     )   ! 3!    '  ?          @ @   !           / 4&  , &'  5             6 7  8 !  $*#  "##$ "" &  !  =      @ !  @             !" +                  /       -            ! .     !  #   &         &      #  4& !    A!   ' &'  0/!  !  !              . !  '  ! 9   2 3 0/&         % :  !    "##$ +        #             &      6      B<C          @ @       )       "              )    +   & !     (       !     ;! 04  )*  "##$ % &   4            '  (          899:    !  D(;C    = /  '  & )      ,            "  (          )     %    34=&  0                0  1!! ;6..<7=-7 9 =670.< 0>7?-=@-=A Jens Stoltenberg Kjell Magne Bondevik Carl I. Hagen auar@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.