Morgunblaðið - 09.09.2001, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Námskeiðið Ég.is
Persónulegur
styrkur og
tækifæri
Starfsþróunarfyrir-tækið Skref fyrirskref stendur fyrir
námskeiðinu Ég.is, þjálfun
fyrir stjórnendur og
starfsmenn. „Þetta er
tveggja daga leiðtoganám-
skeið um tengsl, persónu-
legan styrk og tækifæri
sem fer fram á Hótel
Glym í Hvalfirði og hefst
fyrsta námskeiðið 12.
september nk.,“ sagði
Rakel Ýr Guðmundsdóttir,
verkefnastjóri námskeið-
anna. Hún var spurð um á
hvað yrði lögð áhersla á
námskeiðunum.
„Mesta áherslan verður
lögð á leiðtogatígulinn,
sem er þjálfunarlíkan til
þess að efla og þroska
leiðtogahæfileika. Þetta
líkan hefur verið í þróun sl. 30 hjá
prófessor Peter Kostenbaum.
Þetta tæki hefur verið notað mjög
víða í stórfyrirtækjum á borð við
IBM og Ford, þar hafa stjórn-
endur verið þjálfaðir. Hér á landi
hefur Skref fyrir skref þjálfað
stjórnendur hjá Landsvirkjun og
Orkuveitu Reykjavíkur með leið-
togatíglinum – auk þess hefur
hann verið notaður hjá ýmsum
öðrum fyrirtækjum.“
– Hvernig er leiðtogatígullinn
saman settur?
„Hann er samsettur úr fjórum
ásum sem eru næmi, framsýni,
djörfung og veruleiki. Þetta eru
þeir eiginleikar sem leiðtogi þarf
að þroska og búa yfir til þess að
geta orðið góður leiðtogi. Það er
mikilvægt að leiðtoginn hafi alla
ásana nokkuð jafna og viðhaldi
spennu þar á milli.“
– Hvað einkennir hvern ás?
„Næmi þýðir það að sýna um-
hyggju og innlifun. Næmur
stjórnandi er vakandi fyrir þörf-
um samstarfsmanna sinna. Fram-
sýni er að hugsa á nýjum og
stærri brautum. Framsýnn
stjórnandi hefur víðan
sjóndeildarhring. Djörfung er að
taka afstöðu og stjórna óhrædd-
ur. Djarfur stjórnandi sýnir
frumkvæði og bregst óhræddur
við aðstæðum í umhverfinu og
tekur áhættu. Veruleikinn er að
meta aðstæður út frá staðreynd-
um og raunsær stjórnandi styðst
við staðreyndir og einbeitir sér að
raunhæfum markmiðum. Hann
gerir sér engar grillur. Listin er
að halda jafnvægi milli þessara
ása og til þess að ná hámarks-
árangri sem leiðtogi þarf hann að
uppfylla þessi atriði og ná jafn-
vægi milli ásanna.“
– Hvernig fer þjálfunin fram?
„Áður en námskeiðið hefst
munu allir þátttakendur taka svo-
kallað leiðtogapróf þar sem þeir
eru látnir meta sjálfa sig með því
að svara spurningum. Síðan eru
tveir aðrir látnir svara sömu
spurningum um viðkomandi, t.d.
vinnufélagi og vinur
eða maki.
Þegar búið er að
svara öllum þessum
spurningum eru niður-
stöður teiknaðar upp
sem þrír tíglar og niðurstöður
svaranna hjá þessum þremur að-
ilum síðan bornar saman. Ef mik-
ið ósamræmi er milli tíglanna er
það vísbending um að viðkomandi
hafi nokkuð skekkta mynd af
sjálfum sér eða gefur a.m.k. til-
efni til að skoða af hverju þetta
misvægi er milli tíglanna.“
– Hefur þessi þjálfun reynst
vel?
„Hún hefur reynst gríðarlega
vel. Þetta er mjög gott hjálpar-
tæki til þess að sjá hvar styrkleiki
liggur og hvar viðkomandi hefur
tækifæri til þess að bæta sig svo
að hann verði öflugur leiðtogi.
Eftir þetta próf vinna þátttakend-
ur áfram með niðurstöðurnar á
námskeiðinu sjálfu.“
– Hvað erð þið með mörg nám-
skeið af þessu tagi?
„Námskeiðin eru þrjú á haust-
önn, þau fara öll fram á Hótel
Glym og hefjast hin tvö 27. sept-
ember og 25. október nk. Miðað
við viðbrögð munum við væntan-
lega verða með aukanámskeið í
nóvember.“
– Hvers vegna heitir námskeið-
ið Ég.is?
„Við vildum fá nafn sem væri
lýsandi fyrir það að námskeiðið
snýst einkanlega um einstakling-
inn og hvernig hann getur betur
nýtt eigin styrk og bætt sig með
sjálfsskoðun.“
– Fer fleira fram á námskeið-
inu en þjálfun með leiðtogatígl-
inum?
„Já, meðal annars verður
fjallað um skipulag og notkun
tengslanets og sex hatta aðferð
Edward De Bono, sem miðar að
því hvernig hægt er að stýra
fundum á árangursríkan hátt.
Einnig verður farið í aðra þætti,
svo sem hvernig takast má á við
breytingar og áhrif breytinga á
fólk. Þá verður farið í æfingar til
þess að takast á við hið óvænta,
en þar verða þátttakendur látnir
spreyta sig í útileikjum með það
að markmiði að láta
reyna á hópstarf, frum-
kvæði og samkeppni
meðal þátttakenda.
Seinni dag nám-
skeiðsins verður farið í
æfingar í að nota leiðtogatígulinn
í lífi og starfi. Við leggjum
áherslu á við þátttakendur að þeir
haldi áfram að nota tígulinn eftir
að námskeiðinu lýkur og að það
að þjálfa upp leiðtogahæfileika sé
ævilangt starf.
Námskeiðin eru fyrir stjórn-
endur og sérfræðinga og þá sem
vilja efla sig á tímum breytinga
og óstöðugleika.“
Rakel Ýr Guðmundsdóttir
Rakel Ýr Guðmundsdóttir
fæddist 23. maí 1972 í Reykjavík.
Hún lauk stúdentsprófi frá Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti og
BS-prófi í rekstrarfræði frá Við-
skiptaháskólanum á Bifröst. Hún
var rekstrarstjóri hjá Íslenska
útvarpsfélaginu frá árinu 1998
til maí 2001 og er nú verk-
efnastjóri hjá starfsþróunarfyr-
irtækinu Skref fyrir skref.
Mesta áhersl-
an lögð á leið-
togatígulinn
RANNSÓKN á hvarfi Valgeirs
Víðissonar, sem saknað hefur verið
síðan 19. júní 1994, er enn fram
haldið hjá lögreglunni í Reykjavík.
Rannsókn á þætti karlmanns, vegna
gruns um refsiverða aðild að hvarfi
Valgeirs, hefur hins vegar verið
hætt, þar sem lögreglunni þótti ekki
efni til að halda henni áfram. Síðast
var tekin skýrsla af manninum
vegna málsins í desember síðastliðn-
um.
Nýlega úrskurðaði Hæstiréttur
að lögreglan skyldi afhenda verj-
anda mannsins fjóra dómsúrskurði
um símhleranir í tengslum við rann-
sóknina. Í dómi Hæstaréttar er 1.
mgr. 88. gr. laga um meðferð op-
inberra mála, sem fjallar m.a. um
upptökur símtala, túlkuð með hlið-
sjón af meginreglu 1. mgr. 43. gr.
sömu laga um að verjandi skuli fá
endurrit gagna eins fljótt og unnt
er.
Þrátt fyrir að úrskurður Hæsta-
réttar hafi verið rannsóknaraðila
óhagstæður segir Egill Stephensen,
saksóknari hjá embætti lögreglu-
stjórans í Reykjavík, að úrskurður-
inn hafi ekki haft áhrif á ákvörðun
lögreglunnar um að hætta rannsókn
á hugsanlegum þætti mannsins í
hvarfi Valgeirs. Það hafi verið mat
lögreglunnar að ekki hafi þótt tilefni
til að láta manninn sæta rannsókn
lengur.
Að sögn Egils hafa margir grun-
aðir aðilar komið við sögu rannsókn-
arinnar og þrátt fyrir að aðgerðir
lögreglu gegn manninum hafi e.t.v.
verið meiri en gagnvart mörgum
öðrum grunuðum hafi hann ekki
haft sérstöðu í málinu, sem hann
segir alls ekki lokið.
Rannsókn á
mannshvarfi
haldið áfram
HREINDÝRAVEIÐITÍMABILIÐ
stendur nú sem hæst, en því lýkur
hinn 15. september næstkomandi.
Dýrin valsa um víðáttur Austur-
lands og ráða veður og vindar
miklu um ferðir þeirra. Hrein-
dýraeftirlitsmenn fylgjast náið
með ferðum dýranna svo veiði-
mönnum takist að fella þann
fjölda dýra sem hreindýraráð
veitir leyfi fyrir hverju sinni.
Í upphafi síðustu viku voru
veiðimenn m.a. við veiðar á marg-
umræddum Eyjabökkum. Þær
veiðilendur þykja ekki ákjósan-
legar vegna þess hve landið er
marflatt, blautt og torfært. Hall-
freður Emilsson lét erfiðar að-
stæður ekki aftra sér, felldi væna
hreindýrskú á miðjum Eyjabökk-
um og dró hana svo um langan
veg yfir keldur og mýrarfen að
akfærri slóð.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteins
Hallfreður Emilsson var ásamt fleirum við veiðar á Eyjabökkum. Snæfellið gnæfir yfir í allri sinni tign.
Hreindýra-
veiðar
á Eyja-
bökkum
♦ ♦ ♦
LANDLÆKNISEMBÆTTIÐ hef-
ur skrifað undir samning við Aðal-
skoðun hf. um undirbúningsvinnu að
gerð og þróun gagna vegna mark-
aðseftirlits með lækningatækjum.
Samningurinn felur í sér rann-
sóknar- og þróunarvinnu auk viða-
mikillar gagnasöfnunar um lækn-
ingatæki. Með markaðseftirliti er átt
við aðferð sem stjórnvöld beita til
þess að viðhafa skipulegt eftirlit með
vöru á markaði. Um er að ræða
skoðun á vöru á markaði og ákvörð-
un um það hvort hún samræmist
sérstökum eða almennum kröfum.
Mat á samræmi fer fram eftir föst-
um og vel skilgreindum verklags-
reglum.
Landlæknisembættið er með
þessum hætti að framfylgja evr-
ópskum kröfum sem gerðar eru til
stjórnvalda, sem hluti af EES-samn-
ingnum, um að fylgjast með og hafa
eftirlit m.a. með innflutningi lækn-
ingatækja.
„Stefnt er að því að markaðseft-
irlit með lækningatækjum verðið
boðið út með markaðseftirliti með
leikföngum og rafföngum af hálfu
Ríkiskaupa undir yfirumsjón Lög-
gildingarstofu haustið 2002,“ segir í
fréttatilkynningu.
Markaðs-
eftirlit með
lækninga-
tækjum