Morgunblaðið - 09.09.2001, Síða 26
KNATTSPYRNA
26 SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Við höfum sett okkur ákveðinmarkmið í riðlinum og eins og
er erum við efst, það eru reyndar
ekki búnir margir
leikir, en það var að
duga eða drepast
núna, við urðum að
vinna til að vera með
í myndinni. Ég er mjög ánægður
með leik stelpnanna og nú eru Spán-
verjar næstir og við eigum að geta
lagt þá, þeir eru á svipuðu reki og við
þannig að það á að geta farið alla
vega. Nú er að koma sér niður á jörð-
ina þrátt fyrir frækinn sigur og
halda áfram því sem við höfum verið
að gera,“ sagði Jörundur Áki.
Ásthildur Helgadóttir kemur inn í
liðið á ný. Hún virtist ekki geta beitt
sér af fullum krafti, en þú lætur hana
spila. Er hún mikilvægur hlekkur í
liðinu?
„Ásthildur er gríðarlega mikil-
væg. Við leggjum áherslu á að fá há-
ar sendingar fram og þar er hún
ásamt Margréti mjög mikilvæg. Per-
sónuleiki hennar er einnig þannig að
hún drífur liðið áfram og því var hún
látin leika í dag.“
Jörundur Áki var samþykkur því
að stelpurnar hefðu mátt sækja
meira upp í hornin á þriggja manna
vörn Ítala. „Við töluðum um að reyna
að fara upp í hornin og fengum frá-
bært færi í upphafi og það var skelfi-
legt að nýta það ekki. Við komumst
nokkrum sinnum upp í hornið hægra
megin í fyrri hálfleik og það vinstra
eftir hlé. Guðlaug Jónsdóttir hefur
verið slöpp síðustu daga, er með ein-
hverja flensu, en hún skilaði sinni
vinnu vel, við vildum að hún bakkaði
aðeins og keyrði þá frekar fram ef
færi gæfist.“
Hafðir þú engar áhyggjur af sam-
skiptum Eddu Garðarsdóttur og
leikmanns númer 8 hjá Ítölum?
„Jú, ég hafði það nú. Við fórum yf-
ir þetta í hálfleik og sem betur fer
tókst okkur að róa Eddu því við vild-
um alls ekki missa hana út af enda er
hún mikilvægur hlekkur í liðinu.“
Vörnin virkaði mjög traust í leikn-
um, rétt eins og á móti Rússum. Er
þetta ekki mjög þægileg staða?
„Jú, það er alveg rétt. Við þurfum
að byggja á þessu. Við erum með frá-
bæran markvörð og ég tel hana einn
albesta markvörð í heimi um þessar
mundir. Hún sýndi það með U-21 árs
liðinu í Noregi um daginn hvað hún
getur og þar vakti hún gríðarlega at-
hygli. Katrín og Íris eru gríðarlega
sterkar og drífa liðið áfram og Rósa
og Ásdís hafa vaxið mjög í síðustu
leikjum.
Það var mikil pressa á okkur í lok-
in og ég verð að viðurkenna að ég var
ekki mjög rólegur undir lokin. Eva
Sóley kom inn á og varð fyrir því
óláni að skora sjálfsmark og ég sagði
við hana eftir leikinn að það væru
ekki allir sem næðu því að skora í
landsleik,“ sagði Jörundur Áki, al-
sæll með stelpurnar sínar.
Duga eða drepast
„ÞAÐ var aldrei spurning um annað í okkar huga en að leggja upp
með að vinna Ítali. Við vorum ósátt við að tapa tveimur stigum gegn
Rússum og þar sem það eru aðeins þrír heimaleikir í keppninni kom
ekki annað til greina en leika til sigurs,“ sagði Jörundur Áki Sveins-
son, þjálfari kvennalandsliðsins, eftir sigurinn.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Það hefur oft einkennt góðamarkaskorara að þeir láti fara
lítið fyrir sér meginþorra knatt-
spyrnuleiks en skjóti
síðan upp kollinum
þegar mest á reynir.
Olga Færseth, fram-
herji íslenska
kvennalandsliðsins, er gott dæmi um
slíkan leikmann. Á 41. mínútu leiks-
ins fékk Olga knöttinn á miðjum vall-
arhelmingi Ítala og lék knettinum
eina 10 metra - þrumaði honum af
um 25 metra færi, efst í hægra mark-
hornið, en lítið hafði farið fyrir Olgu
fram að því. Olga var aftur á ferðinni
á 52. mínútu þegar hún skallaði
knöttinn í netið frá markteig, eftir
hornspyrnu Erlu Hendriksdóttur.
Það er ótrúlegt en satt en eina mark-
skot íslenska liðsins í síðari hálfleik
rataði rétta leið.
Það er regla frekar en undantekn-
ing að knattspyrnulið dragi sig aftar
á völlinn þegar forskoti er náð. Ís-
lenska liðið missti taktinn síðasta
hálftíma leiksins og ítalska liðið náði
að finna smugur á vörninni. Lipur
samleikur þeirra gerði íslenska lið-
inu erfitt fyrir og þung undiralda
benti til þess að ítalska liðinu tækist
að skora. Þóra Helgadóttir, mark-
vörður Íslands, sá hins vegar við öll-
um tilburðum ítalska liðsins en gat
lítið gert við því þegar Evu Guð-
björnsdóttur mistókst að hreinsa frá
marki íslenska liðsins og sendi knött-
inn í háum boga yfir Þóru og í mark-
hornið fjær. „Það er ekki það
skemmtilegasta að skora sjálfsmark
í annað skiptið sem maður klæðist A-
landsliðsbúningnum. Ég hitti bolt-
ann illa en sem betur fer varð þetta
mark ekki til þess að við töpuðum
leiknum,“ sagði Eva Guðbjörnsdótt-
ir eftir leikinn.
Óvenjulegur leiktími hefur eflaust
haft sitt að segja að gestirnir frá
Ítalíu voru lengi að átta sig og eftir
aðeins 15 sekúndur fékk Guðlaug
Jónsdóttir besta færi Íslands í leikn-
um, en markvörður Ítalíu varði skot
Guðlaugar. Fyrirfram mátti búast
við því að ítalska liðið héldi knett-
inum meira innan sinna raða og það
yrði hlutskipti Íslendinga að verjast
og beita skyndisóknum. Jörundur
Áki Sveinsson, þjálfari íslenska liðs-
ins, ætlaði liðinu að fara varlega í
sakirnar og 4:5:1 leikaðferð liðsins
gekk fullkomlega upp. Olga Færseth
var oft einmana í framlínunni gegn
þremur öftustu varnarmönnum Ítal-
íu en Olgu og Guðlaugu Jónsdóttur
gekk þó vel að komast upp hægri
kantinn þar sem ítalska vörnin var
veikust fyrir.
Í fjölmiðlum höfðu leikmenn ís-
lenska liðsins lýst því yfir að líkams-
styrkur þeirra ætti að duga gegn
liprum ítölskum leikmönnum og það
kom á daginn. Edda Garðarsdóttir,
Margrét Ólafsdóttir og Ásthildur
Helgadóttir voru fastar fyrir á mið-
svæðinu, en yfirferðin á þeirri síðast-
nefndu var ekki mikil en Ásthildur
bætti það upp með útsjónarsemi. Oft
á tíðum hrukku ítölsku leikmennirn-
ir af þeim íslensku en byltur gest-
anna voru margar. Eina markverða
marktækifæri Ítala var stangarskot
á 17. mínútu en annars var lítið um
færi.
Í heilsteyptu liði Íslands bar mest
á Þóru Helgadóttur í markinu, Rósu
Júlíu Steinþórsdóttur, hægri bak-
verði, og Katrínu Jónsdóttur mið-
verði, auk markaskorarans Olgu
Færseth. Þóra varði vel þegar á
reyndi en það sem mestu máli skiptir
er að Þóra geislar af öryggi og gerir
varnarmönnum liðsins auðveldara að
vinna sína vinnu. Rósa skilaði sínu
hlutverki óaðfinnanlega, hún vann
knöttinn í gríð og erg af sóknar-
mönnum Ítalíu, og var virk í sókn.
Katrín Jónsdóttir steig varla feilspor
í leiknum og lék vel.
Morgunblaðið/Ómar
Þóra Helgadóttir fór á kostum í marki Íslands og sýndi á tíðum
stórbrotna markvörslu. Hér hirðir hún knöttinn áður en Chiara
Gazzoli kemst að honum.
ÞÆR tóku stórt skref daginn fyrir leikinn stóra. Að eigin frumkvæði
fóru valkyrjurnar ótroðnar slóðir til að vekja á sér athygli og mörg-
um þótti skrefið vera stórt. Leikmenn íslenska kvennalandsliðsins
sýndu síðan í verki að þeir geta einnig látið verkin tala úti á iða-
grænum knattspyrnuvellinum og 2:1 sigur á firnasterku ítölsku liði í
undankeppni heimsmeistarakeppninnar fer líkast til í sögubæk-
urnar sem einn fræknasti sigur kvennalandsliðsins frá upphafi.
Rúmlega 1.200 áhorfendur mættu á Laugardalsvöllinn og vafalaust
hefur nýstárleg kynningarleið landsliðsins haft sitt að segja um að
aldrei fyrr hafa jafnmargir mætt á kvennalandsleik.
!" # "
$% % & ' ) *
"6
!'
+
,
%$
$
,)- ) $ ./
$- 0 "
") $%)-% "
'
- -
6
! - , *
$ * $%)-'
$ )-
'
%$ 8
0
@ B!/
-
$%)
) ,
;!4 C
)DD"
?/
1
' /
7/!
0&/!
E!
0!/
.
/!/
9! !
?
!/
F8
?
!!/
G"H
@
/!/
F8
0
@ B!/
$+H
8
@!/
9!
' /
5
7
> !/
8
'!/
6
!
'!!44 !
; !B
1
.223
<!
)-' )
3.% %-
9
C
3./2
I/C
4
<!
/
5
6 $$
0
3
'
!4: 7 !B D
D
D
$
+
G
""
%
;!4 C
DD+
@
1 @ 5
!!
I
JJ
I
I F@
5!
)%H
5
( JJ
(
,!!
5
(
,
F0
0
$H
K
0
F,
@JJ
%H
7
@
0 7 "
* .2
$
@
!4 B C
7
!4 B C 0 "CM
82
+CM
/.
+C"
9:
Sigurður Elvar
Þórólfsson
skrifar
Létu verkin tala
150 kennslustundir
Margmi›lunarforrit me› frábæra eiginleika til a› vinna me› texta, myndbönd,
ljósmyndir, hreyfimyndir og hljó›. Forriti› heldur utan um alla flessa flætti og sameinar
flá í eina heild, fla› n‡tist vel til a› útbúa áhugavert margmi›lunarefni sem au›velt
er a› koma á framfæri.
Kennt flri. og fim. 18. september - 11. desember 17:00 - 21:00
Director 8.5Director 8.5
Margmi›lunMargmi›lun