Morgunblaðið - 09.09.2001, Qupperneq 50
DAGBÓK
50 SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Frank og Brúarfoss
koma í dag, Bold og Ak-
ureyrin fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn: Del-
lach kemur í dag, Brú-
arfoss kemur á morgun.
Mannamót
Aflagrandi 40. Á morg-
un kl. kl. 10 boccia, leik-
fimi og vinnustofa kl. 9,
baðþjónusta kl. 13, kl. 14
félagsvist. Versl-
unarferð á miðvikudag-
inn kl. 10, banki þriðju-
dag kl. 10.15.
Árskógar 4. Á morgun
kl. 9–12 opin handa-
vinnustofan, kl. 10.15
leikfimi, kl. 11 boccia, kl.
13.30–16.30 opin smíða-
stofan/útskurður, kl.
13.30 félagsvist, kl. 10–
16 púttvöllurinn opinn,
kl. 16 myndlist. Allar
upplýsingar í síma 535-
2700.
Bólstaðarhlíð 43. Á
morgun kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–12 búta-
saumur, kl. 10–11.30
samverustund, kl. 13.30–
14.30 söngur við píanóið,
kl. 13–16 bútasaumur.
Haustlitaferð verður
þriðjudaginn 25. sept-
ember kl. 13. Ekið um
Kjósarskarð til Þing-
valla. Farið um Grafning
og Línuveg heim. Kaffi-
hlaðborð í Nesbúð.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Fótaaðgerðir
mánu- og fimmtud.
Uppl. í síma 565 6775.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 á mánud.
kl. 20.30. Fótaaðgerða-
stofan opin frá kl. 10.
Skrifstofan Gullsmára 9
er opin á morgun kl.
16.30–18, s. 554 1226.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Á morgun
kl. 8 böðun, kl. 9 fótaað-
gerð og myndlist, kl.
9.30 hjúkrunarfræð-
ingur á staðnum, kl. 10–
12 verslunin opin, kl.
11.10 leikfimi, kl. 13
föndur og handavinna,
kl. 13.30 enska fram-
hald.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Á
morgun kl. 9 böðun og
hárgreiðslustofan opin.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ, miðvikudag-
inn 12. sept. kl. 14. í
Kirkjuhvoli verður
kynning á félags- og
tómstundarstarfinu í
haust. Opið veður í
vinnustofum og leiðbein-
endur útskýra vetr-
arstarfið. Skráð í vetr-
arklúbba, námskeið,
vinnustofur og leikfimi.
Fulltrúi frá Strætó
kynnir ný leiðakerfi.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Félagsmiðstöðin er opin
alla daga frá kl. 13–17.
Félagsvist á morgun kl.
13:30. Innritun á mynd-
listarnámskeið hjá Re-
bekku. Á morgun þarf
að greiða fyrir dags-
ferðina 13. sept.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Mánudagur:
Brids kl. 13. Dans-
kennsla Sigvalda fellur
niður. Þriðjudagur:
Skák kl. 13 allir vel-
komnir. Haustfagnaður
FEB og ferðakynning
Heimsferða verða hald-
in föstudaginn 14. sept-
ember. Húsið opnað kl.
18.30, veislustjóri Sig-
urður Guðmundsson,
matur, Ekkókórinn
syngur, leikarar úr
Snúð og Snældu
skemmta, ferðakynn-
ingar, happdrætti,
Hjördís Geirs og Guð-
mundur Haukur sjá um
dansinn. Haustlitaferð
til Þingvalla 22. sept-
ember kvöldverður og
dansleikur í Básnum.
Leiðsögn Pálína Jóns-
dóttir og Ólöf Þórarins-
dóttir. Skráning hafin.
Farið verður til Kan-
aríeyja 20. nóvember.
Upplýsingar á skrif-
stofu FEB kl. 10–16 í s.
588-2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Á morgun
kl. 9–16.30 opin vinnu-
stofa, handavinna og
föndur, kl. 9–13 hár-
greiðsla, kl. 14 fé-
lagsvist.
Gerðuberg, félagsstarf.
Á morgun kl. 9–16.30
vinnustofur opnar frá
hádegi spilasalur opinn,
kl. 13 ferðakynning frá
Ferðaskrifstofunni Sól,
Kýpur, m.a. happdrætti
„Gaman saman“, um-
sjón Edda Bald-
ursdóttir og Árni Norð-
fjörð, allir velkomnir, kl.
14. kóræfing hjá Gerðu-
bergskór, dans hjá Sig-
valda fellur niður.
Gjábakki, Fannborg 8.
Á morgun er handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum frá
kl. 9–17, gler- og postu-
línsmálun kl. 9.30,
Enskuhópar hittast kl.
13, þriðjud. 11. sept-
ember, kínversk leik-
fimi hefst kl. 17.15
þriðjudaginn 11. sept.
Gullsmári, Gullsmára
13. Á morgun leikfimi
kl. 15. Miðvikudaginn
12. september kl. 14
verður kynning á vetr-
arstarfseminni í Gull-
smára. Félagsheimilið,
Félag eldri borgara í
Kópavogi, Hana-nú
ásamt ýmsum áhuga-
mannahópum munu
kynna starfsemi sína.
Skráning á námskeið
verða á kynningunni.
Leikfimin er á mánu-
dögum og mið-
vikudögum kl. 9.05, að-
eins einn hópur í
september. Allir vel-
komnir.
Hraunbær 105. Á
morgun kl. 9 perlu-
saumur, postulínsmálun
og kortagerð, kl. 10
bænastund, kl. 13 hár-
greiðsla. Öll vetr-
arstarfsemin er farin í
gang, skáning í nám-
skeiðin stendur yfir,
bútasaumur, trémálun,
glerskuður, kortagerð
perlusaumur, útskurður,
postulínsmálun, leikfimi.
og almenn handavinna.
Hvassaleiti 56–58. Á
morgun kl. 9 böðun,
fótaaðgerðir, kl. 13 spil-
að.
Norðurbrún 1. Á morg-
un kl. 10–11 ganga, kl.
9–15 fótaaðgerð, kl. 12–
15 bókasafn. Leir-
námskeið hefst fimmtu-
daginn 5. október, frá kl.
10–15. Innritun stendur
yfir, takmarkaður fjöldi.
Upplýsingar í síma 568-
6960.
Vesturgata 7. Á morgun
kl. 9 fótaaðgerðir og
hárgreiðsla, kl. 9.15
handavinna, kl. 10–11
boccia, og ganga. Tréút-
skurður hefst miðviku-
daginn. 12. september.
Almenn handavinna er
byrjuð eftir sumarleyfi.
Vitatorg. Á morgun kl.
9 smiðjan og hár-
greiðsla, kl. 9.30 bók-
band, morgunstund og
handmennt, kl. 10 fóta-
aðgerðir, kl. 13 leikfimi
og frjálst spil. Öll starf-
semi í stöðinni er hafin
og skráning í eftirfar-
andi námskeið stendur
yfir, bókband, búta-
saum, glerbræðslu, gler-
skurð, körfugerð, leir-
mótun og smíði.
Hana-nú, Kópavogi.
Mánudagur 10. sept-
ember kl. 13 verður
spjallstund í Gjábakka.
Kynning verður á nám-
skeiðum Endurmennt-
unarstofnunar Háskóla
Íslands. Kristín
Jónsdóttir endurmennt-
unarstjóri og Sigrún
Björnsdóttir verkefn-
isstjóri mæta á fundinn.
Allir velkomnir.
Hallgrímskirkja. Eldri
borgarar, fimmtudaginn
13. september verður
farið frá kirkjunni kl. 10
að Moldnúpi undir Eyja-
föllum, kaffiveitingar
þar, ekið til Víkur í Mýr-
dal, komið við á Skóg-
um. Fararstjóri Pálmi
Eyjólfsson, verið vel-
komin upplýsingar veitir
Dagbjört í s. 510-1034
eða 561-0408.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids í
Gullsmára 13 mánudaga
og fimmtudaga. Skrán-
ing kl. 12.45. Spil hefst
kl. 13. Bridsdeild FEBK
í Gullsmára.
Háteigskirkja, eldri
borgarar, mánudaga fé-
lagsvist kl. 13–15.
Sjálfsbjörg, fé-
lagsheimilið Hátúni 12.
Á morgun kl. 19. brids.
Kvenfélag Kópavogs
vinnukvöld vegna basars
mánudag kl. 20 í Hamra-
borg 10.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra Kópavogi. Æfing-
ar/haustkynningar
verða í Digraneskirkju
11. og 13. september kl.
11.15.
Kristniboðsfélag karla.
Fundur veður í Kristni-
boðssalnum mánudag-
inn 10. september kl. 20,
Benedikt Arnkelsson
hefur biblíulestur. Allir
karlmenn velkomnir.
Í dag er sunnudagur 9. september,
252. dagur ársins 2001. Orð
dagsins: Statt upp, skín þú, því að
ljós þitt kemur og dýrð Drottins
rennur upp yfir þér!
(Jes. 60, 1.)
Í VIÐTÖLUM í fjölmiðl-
um við Helga Hjörvar, for-
seta borgarstjórnar, um
vanda heimilislauss fólks
talaði hann um heimili eða
gistiskýli fyrir þetta fólk.
Það er gott að fólkið fái
skjól en ég er hræddur um
að þetta fólk muni jafnvel
þurfa að búa þar lengi og
það leysir ekki vanda þess.
Helgi talaði líka um að fólk
yrði að vera á leigumark-
aðnum í þessari tveggja
ára bið sem er sögð vera
eftir íbúð hjá borginni. En
það er nú svo að ég veit
dæmi þess að fólk hafi
þurft að bíða mikið lengur.
Hann talaði um niður-
greidda leigu, jafnvel æv-
ina á enda. Skilur hann það
ekki að fólk er á götunni
vegna þess að það getur
ekki borgað þessa himin-
háu leigu sem er á leigu-
markaðnum? Tvö ár á
flækingi eru mjög langur
tími. Það er ekki bara um
óreglufólk að ræða sem er
heimilislaust það er líka
reglusamt fátækt fólk,
jafnvel með börn. Á
kannski að bjóða því fólki
að búa í gistiskýlum? Allir
þurfa að eiga öruggt heim-
ili og finnst mér mál til
komið að borgarstjórn
leysi þennan vanda eins og
hægt er. Mér finnst skrýt-
ið af hverju ekkert heyrist
frá borgarstjóra um þetta
stóra alvarlega mál þar
sem velferð fólks og barna
er í hættu.
Hallgrímur
Kristinsson.
Nýtur Garðabær
friðhelgi ?
ÉG vil svara pistli um
Garðabæ sem birtist í Vel-
vakanda 1. september sl.
Þar er því haldið fram
að Garðabær njóti ein-
hverrar sérstakrar frið-
helgi og að hér komist
„vandræða“unglingar upp
með hvað sem er. Það sýn-
ir nú ekki mikið mann-
dómsmerki að koma með
svona fullyrðingar og
skrifa svo ekki einu sinni
undir nafni. Viðkomandi
sem skrifaði bréfið heldur
því fram að ekki sé óhætt
að fara út að ganga vegna
hættu af að vera ofsóttur
af unglingum.Ég mundi nú
halda að unglingar í bæn-
um hafi eitthvað annað og
betra að gera en að elta
aldrað fólk. Og það þarf
ekki meira en að keyra í
gegnum bæinn til að sjá að
hér er fullt af fólki sem fer
út að ganga bæði á kvöldin
og á daginn, ég held að
flestir, ef ekki allir, telji sig
frekar örugga að ganga í
gegnum bæinn. Og ekki er
hægt að kenna unglingum
um öll innbrot sem eru
framin. Þótt innbrotið hafi
ekki komið í fjölmiðlum
þarf það ekki að þýða að
bærinn njóti friðhelgi. Ef
öll innbrot sem eru framin
kæmu í fréttunum þá væri
nú bara ekki pláss fyrir
mikið meira í fréttatíman-
um. Ég er alls ekki að
halda því fram að hér ger-
ist aldrei neitt og að
Garðbæingar séu einhverj-
ir englar, en hérna búa
bara venjulegir unglingar
eins og í öllum öðrum bæj-
arfélögum. Ekki kemur
það í fréttunum í hvert
sinn sem einhver kastar
kínverja annars staðar.
Njóta þá öll bæjarfélög
friðhelgi? Og svo má líka
nefna það að nemendurnir
sem voru að sprengja
reyksprengjur og fremja
önnur skemmdarverk,
þurftu að taka afleiðingun-
um og borga skaðabætur
og voru einhverjir reknir
úr skólanum. Nemandinn
sem skrifaði bréfið segir
líka að ekkert af þessu hafi
komið fram í fjölmiðlum,
en næstum öll þessi dæmi
sem hann taldi upp komu í
fjölmiðlum. Svo ég mundi
halda að Garðabær sé bara
venjulegur bær með venju-
legum en uppátækjasöm-
um unglingum.
Vigdís Halldórsdóttir,
nemandi í 10. bekk
Garðaskóla.
Dýrahald
Maja er týnd
HÚN Maja fór að heiman
frá sér mánudaginn 3.
sept. og hefur ekki komið
heim aftur. Hún býr á
Hrísateigi 21 og hennar er
sárt saknað af dóttur, fóst-
ursystrum og eigendum.
Hún er 2 ára, þrílit, hvít,
svört og rauð, með rauða ól
og skilti. Ef einhver veit
hvar hana er að finna, vin-
samlega látið vita í síma
5882378. Nágrannar eru
einnig beðnir um að at-
huga í geymslur og skúra.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Borgarstjórn
finni lausn
Víkverji skrifar...
ÞAÐ fer íslenskum knattspyrnu-áhugamönnum afskaplega illa
að fyllast bjartsýni. Það kom vel í
ljós í vikunni. Eftir stórglæsilegan
sigur á sterku liði Tékka um síðustu
helgi hamaðist hver sérfræðingurinn
á fætur öðrum að spá því að Íslend-
ingar næðu að minnsta kosti þriðja
sætinu í riðlinum eða jafnvel öðru
sæti og fengju þar af leiðandi auka-
leik um laust sæti á HM í Japan og
Suður-Kóreu á næsta ári. Til þess
þyrfti bara að vinna Norður-Íra í
Belfast og Dani í Kaupmannahöfn.
Enn einu sinni sannaðist að best
er að halda sig við jörðina, fagna
þegar ástæða er til en vera auðmjúk-
ur og lítillátur þess á milli.
x x x
VÍKVERJA hefur borist eftirfar-andi bréf frá Gunnari H. Ingi-
mundarsyni, rekstrarstjóra Hins ís-
lenska bókmenntafélags:
„Ágæti Víkverji.
Í tilefni skrifa þinna sl. sunnudag
um nám vinkonunnar í 8. bekk.
Það hefur almennt verið vandi
bókaútgefenda að endurnýja reglu-
lega gerð námsefnis. Helgast það
einkum af kostnaðarsamri vinnu höf-
unda og prentsmiðja og einnig því að
ekki er tryggt að milli ára sé sama
námsefnið kennt, það á reyndar
fremur við eldri bekki og framhalds-
skóla.
Alvarlegasti vandi útgefenda er þó
hversu mikið af námsefni er LJÓS-
RITAÐ! Fyrir ljósritin fær útgef-
andinn ekki krónu í sinn hlut til þess
að geta endurnýjað námsbækurnar.
Allt frá 1. bekk grunnskóla til loka
háskólanáms er ýtt að nemendum
ljósrituðum æfingablöðum, greinum
og jafnvel stórum hluta útgefinna
námsbóka og -rita sem útgefandinn
á enn nægar birgðir af. Það er mark-
visst, meðvitað eða ómeðvitað, allt
frá fyrstu tíð ýtt undir virðingarleysi
nemenda fyrir því að kaupa og eiga
vandaðar (skóla)bækur, sem jafnvel
síðar á lífsleiðinni verða nauðsynleg-
ar uppflettibækur til símenntunar
eða til ánægju þegar kvöð skyldu-
lesningar er að baki.
Sagt hefur verið að blindur sé bók-
laus maður, velta má fyrir sér hvort
hálfblindur sé sá sem af ljósritum
lærir – þegar textinn er slitinn úr
samhengi við heildarverkið. Kannski
er þetta aðeins tímanna tákn, náms-
efnið einnota „rusl“, sem henda má
strax eftir notkun. En reginmunur
er á lausum, ósamstæðum pappírs-
ljósritum og fallegri og vandaðri bók
– prentgrip sem sómir sér vel í heim-
ilisbókasafninu. Hvernig verður
komið fyrir „bókaþjóðinni“ í nánustu
framtíð, ef innan skólakerfisins verð-
ur haldið áfram á þessari óheilla-
braut og verðmætamati ungmenna
nútímans ekki snúið við – þar sem
allt annað en (nauðsynleg) bókakaup
situr í fyrirrúmi? Fyrir stuttu tók
fréttastofa Sjónvarps viðtal við
framhaldsskólanemendur sem voru í
óða önn að kaupa skólabækur, nýjar
og notaðar, en formáli spyrjandans
var eitthvað á þessa leið; „er ekki
dýrt að kaupa bækur?“, eins og það
skipti öllu máli, ekki það hvort bæk-
urnar væru álitlegar, virkuðu spenn-
andi, væru vel fram settar o.s.frv,
nei, inntak fréttamannsins var „er
ekki hræðilegt að þurfa að kaupa
bækur?“! Líklega áhrif af óhóflegri
ljósritunarnotkun á námsferlinum.
Vonandi geta Víkverji og félagar
hans notað áhrifamátt sinn í barátt-
unni.“
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
LÁRÉTT:
1 kæti, 4 hæðum, 7 garm,
8 hagnaður, 9 álít, 11
væna, 13 baun, 14 mork-
in, 15 þungi, 17 heiti, 20
illgjörn, 22 lýkur, 23
áþekkum, 24 geil, 25
ákveð.
LÓÐRÉTT:
1 áfjáð, 2 örðug, 3 ekki
gott, 4 skraf, 5 streymir
áfram, 6 vatnafiskur, 10
ólyfjan, 12 óhljóð, 13 bók-
stafur, 15 karldýr, 16
hrotta, 18 ílát, 19 skóla-
gangan, 20 andvari, 21
sundfugl.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 spikfeita, 8 sækir, 9 dolla, 10 lóu, 11 merka, 13
rómur, 15 hests, 18 signa, 21 orm, 22 spónn, 23 álfur, 24
sparnaður.
Lóðrétt: 2 pukur, 3 karla, 4 eldur, 5 túlum, 6 ósum, 7
saur, 12 kot, 14 óði, 15 hæsi, 16 skólp, 17 sonur, 18
smána, 19 giftu, 20 aura.
K r o s s g á t a