Morgunblaðið - 09.09.2001, Qupperneq 58
FÓLK Í FRÉTTUM
58 SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
150 kennslustundir
Eitt útbreiddasta flrívíddarforriti› í dag. fia› er nota› til a› vinna grafískar myndir í
margmi›lun hvort sem er hreyfi- e›a kyrrmyndir. Forriti› er miki› nota› í tækniteiknun
og augl‡singa- og hreyfimyndager›.
Kennt flri. og fim. 18. september - 11. desember 17:00 - 21:00
3ds max 43ds max 4
firívíddfirívídd
HLJÓMSVEITINA Still-uppsteypu þekkja hugs-anlega ekki margir hér álandi, en þó hefur hún
verið óhemju dugleg við útgáfu
undanfarin ár, aukinheldur sem
hljómsveitin hefur náð býsna góð-
um árangri utan lands; er með
þekktustu hljómsveitum í tilrauna-
tónlist. Fyrir skemmstu komu út
tveir diskar með tónlist Still-
uppsteypu og að auki sendi einn
liðsmanna hennar frá sér sólóskífu.
Þriggja orða nafn
Stilluppsteypa, sem hefur sér-
kennilegt nafn sitt úr bútum
þriggja orða, var stofnuð árið 1992
og lék tilraunakennt pönk til að
byrja með með rafgíturum, tromm-
um og tilheyrandi. Smám saman
kvarnaðist úr sveitinni og tilraun-
irnar urðu róttækari og raftónlist-
arlegri. 1995 gekk Sigtryggur Berg
Sigtryggson síðan til liðs við þá
Stilluppsteypufélaga Heimi Björg-
úlfsson og Helga Þórsson og þann-
ig hefur sveitin verið skipuð síðan.
Þá voru þeir byrjaðir að nota seg-
ulbönd við tónsmíðar og -flutning,
en um líkt leyti hættu þeir félagar
tónleikahaldi um hríð, en urðu þess
iðnari við upptökur og útgáfu hjá
ýmsum erlendum fyrirtækjum. Af
upptökunum má nefna eftirfarandi:
7"; Stilluppsteypa, Inside AM /
Make Star Shine með Curver, A
Taxi To Tijuana, Nova - Disco,
Keep Checking Speed and Comp-
leteness of Urineflow Cut-Off, That
Would Be með Hafler tríóinu, 10";
Important Anti-Art Dances með
Melt-Banana, 12"; Reduce By Re-
ducing, snælduna Til eru hljóð- og
breiðskífurnar Car Dirty With Jam
on a Busy Street, One Side Mona
Lisa - The Front Side Only, The
Best Pet Possible, tpith or tetapth
með irr.app.(ext.), Has (Or Has
Not) Happened, Mort aux vaches,
Interferences Are Often Reques-
ted: Reverse Tendency as Parts
Nearly Become Nothing, Not a
Laughing Matter, But Rather a
Matter of Laughs, We Are Every-
one in the Room með TV Pow og nú
síðast Stories Part Five sem kom
út fyrir skemmstu. Til viðbótar við
þetta hafa þeir Heimir og Sig-
tryggur sent frá sér sólóskífur,
Heimir reyndar tvær slíkar, en
önnur sólóskífa Sigtryggs er víst
væntanleg, auk þess sem sveitin á
lög á fjórtán safnskífum.
Nýtt og nýrra
Síðasttöldu breiðskífurnar tvær,
We Are Everyone in the Room með
TV Pow og Stories Part Five, eru
nýjar af nálinni, en á fyrri disknum
eru upptökur af tónleikaferð Still-
uppsteypu með TV Pow um Banda-
ríkin síðastliðið haust, en þá lék
sveitin í New York, Washington,
Pittsburgh, Detroit, Cleveland og
Chicago. Tónleikahaldinu var þann-
ig háttað að sveitirnar fluttu hvor
sína dagskrá en síðan sameinuðust
þær á sviðinu í lokin og fluttu fimm-
tán mínútna spuna. Spuninn var
allur tekinn upp og síðan valið úr á
diskinn We Are Everyone in the
Room, sem Erstwhile Records gef-
ur út, en tónlistin á disknum var
ekki unnin frekar en að raða verk-
unum á diskinn, enda ekki vert að
spilla spunanum.
Á Stories Part Five er aftur á
móti að finna upptökur frá þessu
ári, sem eru að mörgu leyti frá-
brugðnar því sem þeir félagar hafa
áður sent frá sér, eða eins og Sig-
tryggur sagði í viðtali fyrr í sumar:
„Tónlistin verður ... fjörugri og
hrárri; danshæfari og ruddalegri.“
Kátir piltar
Þeir Stilluppsteypufélagar hafa
jafnan verið spaugsamir eins og sjá
má á plötuheitum og nöfnum sem
þeir gefa lögum sínum og eins og til
að undistrika það kemur umslag
Stories Part Five nokkuð á óvart,
ekki þó Stilluppsteypuvinum sem
eru ýmsu vanir, heldur þeim sem
þekkja til raftónlistar því umslög
slíkrar tónlistar eru naum og lykl-
uð, myrk og alvarleg. Í áðurnefndu
viðtali ræddi Sigtryggur einmitt
umslagið á skífunni og segir að þeir
félagar hafi lagt mikla áherslu á að
ráða því að öllu leyti sjálfir. „Sú
mynd sem fólk fær af sveitinni er
því að hún sé grafalvarleg, naum-
og heildarhyggjusveit ... eitthvað
svoleiðis kjaftæði. Þetta finnst okk-
ur leiðinlegt því við viljum hafa
okkar fjarstæðukenndu nálgun
inni.“
Eins og getið er hafa þeir Heimir
og Sigtryggur tekið upp á því að
gefa út sólóskífur sem sumum þyk-
ir eflaust benda til þess að sveitin
sé að leysast upp, en þeir Heimir og
Helgi, sem staddir voru hér á landi
í stuttri heimsókn, segja það af og
frá. Á sólóplötunum sé einfaldlega
efni sem ekki hafi fallið að því sem
þeir hafa verið að gera saman. „Við
vinnum yfirleitt hver í sínu lagi og
komum síðan saman í stúdíói til að
setja saman plötur. Það er allur
gangur á því hversu tilbúið það er
sem menn koma með inn i hljóð-
verið og við gætum okkur á því að
hafa engar reglur. Það hefur líka
skipt máli í því sambandi að við er-
um duglegir að vinna með öðrum og
ná okkur í nýjar hugmyndir. Öll
okkar tónlist verður til í tilraunum
og þegar við síðan komum saman
veljum við úr það sem passar sam-
an. Stundum kemur fyrir að við er-
um sammála um að ekkert þurfi
frekar að eiga við viðkomandi hug-
mynd, en oft breytast þær líka eftir
því sem við leggjum í púkkið.“
Stilluppsteypa er vel við aldur af
rokksveit að vera, nálgast óðfluga
tíu ára afmælið og þeir félagar
segjast eins geta átt eftir að starfa
saman næstu hundrað árin. Það sé
ekki síst því að þakka að þeir geti
gert hvað það sem þeim sýnist utan
sveitarinnar. „Um leið og við förum
að einskorða okkur við einhverjar
ákveðnar aðferðir eða reglur hættir
þetta að vera eins gaman.“
Umframeftirspurn
Stilluppsteypuverjar eru lúsiðnir
eins og sjá má af útgáfulistanum,
en að þeirra sögn er eftirspurn eftir
útgáfum þó meiri en þeir fá annað,
auk þess sem mjög er þrýst á þá
um tónleikahald víða um heim.
„Það er alltaf skemmtilegra að gefa
út góðar plötur með einhverju milli-
bili en að vera sífellt að senda frá
sér efni bara vegna þess að einhver
vill gefa það út. Hvað tónleikana
varðar þá stóð til að við færum í
tónleikaferð um Evrópu í sept-
ember en henni var frestað fram yf-
ir áramót af ýmsum orsökum,“
segja þeir Heimir og Helgi, og
bæta við að ekki standi á þeim að
spila meira, en meðal annars vegna
þess að ekkert varð af Evr-
óputúrnum verði tónleikahald
óvenju lítið á þessu ári.
Þeir Heimir, Helgi og Sigtryggur
tóku sig allir upp fyrir fjórum árum
og fluttust til Hollands og Þýska-
lands þar sem þeir hafa dvalið síðan
og eru víst ekki á heimleið í bráð.
Tilgangurinn með utanförinni var
að leggja stund á tónfræði og listir,
Heimir og Helgi í Amsterdam í
Hollandi, en Sigtryggur í Hannover
í Þýskalandi. Flutningurinn út auð-
veldaði þeim hljómsveitarlífið til
muna, enda lítill markaður fyrir
raftónlist í litlu landi og því illt að
framfleyta sér á tilraunatónlist á
Íslandi. Það þykir þeim aftur á móti
ekki skipta svo ýkja miklu máli að
þeir skuli ekki allir búa á sömu
slóðum. „Við myndum líklega gera
meira ef við byggjum allir á saman
stað, en þetta er ekkert mál í Mið-
Evrópu, það væri annað uppi á ten-
ingnum ef einhver okkar byggi á
Íslandi.“
Eins og kemur fram í aðfaraorð-
um greinarinnar hafa tveir Still-
uppsteypudiskar komið á þessu ári
og að auki ein sólóskífa og enn
stefna þeir félagar í upptökur,
hyggjast taka upp DVD Audio disk
fyrir Staalplat í Linz í Austurríki í
framhaldi af tónleikum þeirra fé-
laga á raftónlistarhátíð. Frekari út-
gáfa er í bígerð, því diskur sem þeir
félagar gerðu með raftónlist-
armanninum Francisco López og
síðan stendur til að gera plötu með
Hafler-tríóinu.
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Fjarstæðu-
kennd nálgun
Eftir níu ára starf Stilluppsteypu liggja nítján út-
gáfur af ýmsum stærðum og gerðum. Fyrir
skemmstu sendi sveitin frá sér tvær plötur til og af
því tilefni tók Árni Matthíasson tali þá Heimi
Björgúlfsson og Helga Þórsson.