Morgunblaðið - 11.10.2001, Side 9

Morgunblaðið - 11.10.2001, Side 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2001 9 FRAMKVÆMD EES-samningsins, m.a. í ljósi fyrirsjáanlegrar fjölgunar aðildarríkja ESB, var meðal þess sem var til umfjöllunar á ráðsfundi Evrópska efnahagssvæðisins sem Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra sat í Lúxemborg á þriðjudag. Af hálfu EFTA-ríkjanna var ítrek- að mikilvægi þess að hefja undirbún- ing samhliða stækkun EES í því skyni að tryggja áframhaldandi eins- leitni innan markaðarins. Ráðherrar EFTA-ríkjanna lýstu ánægju með yfirlýstan vilja ESB til að kanna leið- ir til viðeigandi þátttöku EFTA- ríkjanna þriggja í svonefndu Lissa- bon-ferli, sem miðar að því að ESB verði virkasta og samkeppnishæf- asta efnahagssvæði heims árið 2010, að því að fram kemur í fréttatilkynn- ingu. Einnig var fjallað um þær breytingar sem hafa orðið á ESB síð- an EES-samningurinn var gerður og hugsanleg áhrif misræmis á eins- leitni innan markaðarins. EFTA-rík- in lýstu af því tilefni yfir vilja til að kanna með hvaða hætti hægt væri að aðlaga lagalegan grundvöll samn- ingsins breyttum aðstæðum. Loks var ESB bent á að frjálsu vöruflæði væri enn ábótavant vegna tolla á sumar tegundir fisks og annarra sjávarafurða frá EFTA-ríkjum. Það væri ekki í samræmi við viðleitni allra samningsaðila til að tryggja einsleitni innan markaðarins. Afleiðingar hryðjuverkanna í Bandaríkjunum voru einnig til um- fjöllunar, sem og öryggis- og varn- armál í Evrópu. Ráðherrarnir voru einhuga um aðgerðir gegn alþjóð- legri hryðjuverkastarfsemi. Utan- ríkisráðherra lagði í því sambandi áherslu á mikilvægi aukins sam- starfs ESB og Atlantshafsbanda- lagsins og aðildarríkja þeirra. Vilji til að aðlaga lagagrunn breytt- um aðstæðum Í NÝRRI reglugerð fjármálaráð- herra um skipulag opinberra fram- kvæmda er mælt fyrir um ítarlegri undirbúning framkvæmda en verið hefur, skýrari áfangaskiptingu og skýrara hlutverk og ábyrgð þeirra sem sinna einstökum verkáföngum. Reglugerðin er ávöxtur starfs nefnd- ar sem ráðherra skipaði í ársbyrjun til að fara yfir verklag við opinberar framkvæmdir. Í reglugerðinni er lögð áhersla á ítarlegan undirbúning opinberrar framkvæmdar og frumathugun. Með frumathugun er átt við könnun á þörfum sem leysa á og samanburð á mögulegum lausnum. „Slík könnun getur beint sjónum manna að öðrum möguleikum en byggingu mannvirk- is eins og t.d. leigu eða endurskipu- lagningu starfseminnar,“ segir m.a. í frétt frá fjármálaráðuneytinu. Segir að með frumathugun sé umfang framkvæmdar mótað og því sé vönd- uð greining mikilvæg. Þá mælir reglugerðin fyrir um skýrari áfangaskiptingu sem tekur til frumathugunar, áætlunargerðar, verklegrar framkvæmdar og skila- mats. Samkvæmt reglugerðinni verður ekki heimilt að hefja áætlun- argerð fyrr en fjármálaráðuneyti hefur fallist á frumathugunina. Framkvæmdin sjálf skal fara fram á grundvelli áætlunargerðarinnar og innan ramma hennar og skýr fyrir- mæli eru um að fari verk út fyrir samþykkt áætlun skuli leggja endur- skoðaða áætlun fyrir fjármálaráðu- neytið til samþykktar eða fram- kvæmd stöðvuð að öðrum kosti. Framkvæmdasýslan beri ábyrgð á verklegri framkvæmd Reglugerðin mælir einnig fyrir um hlutverk og ábyrgð þeirra sem sjá um einstaka áfanga verks. Eðli máls samkvæmt komi margir að mótun og gerð mannvirkja, bæði stjórn og ráðgjöf, og mikilvægt sé að ábyrgðarskil þeirra aðila séu skýr og að alltaf fari saman fagleg og stjórn- unarleg ábyrgð. Tekið er fram í reglugerðinni að hlutaðeigandi ráðu- neyti sjái um og beri ábyrgð á frum- athugun og áætlunargerð. Fram- kvæmdasýsla ríkisins beri síðan ábyrgð á verklegri framkvæmd og skilamati. Hún stjórni framkvæmd og beri ábyrgð á að hún sé unnin á grundvelli samninga við verktaka og í samræmi við áætlanir ráðuneyta og fjármálaráðuneyti hafi formlega fall- ist á. Framkvæmdasýslu ber einnig að sjá um eftirlit og upplýsa ráðu- neyti reglulega um framvindu verks og fjárhagslega stöðu. Kalla beri án tafa eftir endurskoðun á áætlun ef stefni í röskun á kostnaði. Skipulag opinberra framkvæmda Mælt fyrir um skýrari ábyrgð Eddufelli 2 sími 557 1730 Bæjarlind 6 sími 554 7030 Opið mán.–fös. frá kl. 10–18 og lau. kl. 10–15. Fullt af nýjum vörum Gleræting Mjög fljótlegt í 3 einföldum skrefum Festa stensilinn Bera kremið á Skola með vatni ÓÐINSGATA 7 562-8448 Ný sending Ullar- og kasmírkápur Frakkar Úlpur Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00. Fallegar gjafavörur Kr. 4.200 DUKA Kringlunni 4-12, sími 533 1322. Kr. 5.900 Kringlunni - sími 581 2300 VANDAÐUR DÖMU- OG HERRAFATNAÐUR Þýskir vetrarjakkar Laugavegi 84, sími 551 0756 JAEGER CASSINI GISPA Úrval af peysum Sprengitilboð - rýmum fyrir vörum Handskorin roccoco húsgögn 40%—50% afsláttur. Ljós, styttur, klukkur 20% afsláttur. Handofnir dagdúkar og rúmteppi 20% afsláttur. Ekta pelsar 50% afsláttur- tilvalin jólagjöf. Verið velkomin. Opið virka daga frá kl. 11—18 og laugard. frá kl. 11-16. Sigurstjarnan, Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin), sími 588 4545.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.