Morgunblaðið - 11.10.2001, Page 10
FRÉTTIR
10 FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Þá sagði Össur einsýnt að við nú-verandi aðstæður hefði út-boðsgengið á hlutabréfum fyr-
irtækisins verið of hátt og spurði
hvers vegna ekki hefði verið farið að
ráðum markaðarins og þess aðila sem
séð hefði um útboðið, Búnaðarbanka
Íslands.
Össur gagnrýndi aukinheldur þá
aðferð að selja eigi kjölfestufjárfesti
25% hlut í fyrirtækinu eftir almennt
útboð og sagði slíkan fjárfesti fá
þannig mikinn aflsátt og væri þannig í
raun að fá tækifæri til þess að kaupa
fyrirtækið á lægra verði en litlu fjár-
festarnir á fyrri stigum útboðsins.
Þetta hafi valdið ákveðinni óvissu og
valdið því að lífeyrissjóðirnir hafi ekki
treyst sér til þátttöku.
Hvaða siðareglur gilda um
einkavæðingarnefnd?
Össur beindi athyglinni einnig að
nýjustu fréttum af því að forstjóri
Símans væri kominn í frí þar til kjöl-
festufjárfestirinn væri fundinn. Sagði
hann allt það mál mikinn hráskinna-
leik.
„Ég kvarta ekki undan því hvernig
hann og raunar stjórn fyrirtækisins
hefur haldið á hlut mínum og skatt-
borgaranna í því fyrirtæki. Það hefur
satt að segja tekist býsna vel. Nú er
forstjóri Símans sendur í frí þótt hann
hafi losað um umdeilanleg tengsl til
þess að sýna góða reglu á hlutunum
við einkavæðinguna og það er prýði-
legt fordæmi. Eða er það kannski
ekki fordæmi? Hvaða siðareglur gilda
um einkavæðingarnefndina sjálfa?“
Össur benti á að Hreinn Loftsson,
formaður nefndarinnar, væri einnig
stjórnarformaður í fimmta stærsta
fyrirtæki landsins og eignarhalds-
félag á vegum þess sem hann væri
líka stjórnarformaður í, fjárfest beint
eða óbeint í ýmsum óskráðum fé-
lögum sem starfa á sviðum sem væru
skyld starfsemi Landssímans. Spurði
hann samgönguráðherra því hvort
ekki þyrftu að gilda skýrar siðareglur
líka fyrir þá sem sitja í einkavæðing-
arnefnd og veita henni forstöðu, alveg
eins og forstjóra Símans, til þess að
koma í veg fyrir að árekstrar geti
hugsanlega komið upp í framtíðinni.
Ráðherra segir
verðmatið vandað
Sturla Böðvarsson (D), samgöngu-
ráðherra, benti á að aðdragandi sölu
Símans og allur undirbúningur hefði
verið afar vandaður. Vel á þriðja þús-
und einstaklingar hefðu skráð sig fyr-
ir hlut, þar af fleiri en 600 starfsmenn
fyrirtækisins. Þá sýni sautján fyrir-
tæki og sjóðir því áhuga að gerast
kjölfestueigendur í Símanum, sem
sýni hversu fyrirtækið sé talið góður
fjárfestingarkostur hjá þeim sem
þekki fjarskiptaheiminn hvað best.
„Ég verð að viðurkenna að ég er
sáttari við þá gagnrýni sem ég hef
setið undir fyrir hátt verð, en væri ég
sakaður um að standa fyrir sölu á
Símanum fyrir of lágt verð,“ sagði
hann og lagði áherslu á að Síminn
væri mikils virði, hvað sem þingmenn
stjórnarandstöðu eða einstakir sér-
fræðingar á fjármálamarkaði segðu.
Nefndi hann til marks um það að nú
færu bréf í fyrirtækinu á genginu 6,1
á Tilboðsmarkaði Verðbréfaþingsins,
miðað við gengið 5,75 til almennings á
dögunum.
Þá sagði ráðherra meginástæðu
þess að ekki hafi verið selt sl. vor, hafa
verið þá að Eftirlitsstofnun EFTA
hafði þá ekki skilað áliti sínu um
meintan ríkisstuðning við Símann
vegna kæru Tals hf. Sagði hann að þá
sögu ættu þingmenn Samfylkingar-
innar að þekkja. Ríkisstjórnin hefði
ekki talið forsvaranlegt að taka þá
áhættu og skapa óvissu um virði fyr-
irtækisins vegna meðferðar ESA.
Undir lok júlí hafi jákvæð niðurstaða
borist frá Eftirlitsstofnuninni og sér-
fræðingar hefðu metið það svo að
haustið væri heppilegur tími fyrir söl-
una.
Ekki umhyggja fyrir öðrum
símafyrirtækjum
„Allt tal um að umhyggja fyrir öðr-
um símafyrirtækjum hafi ráðið þeirri
ákvörðun að selja í haust er tilraun til
þess að sverta pólitíska andstæðinga
og málflutningur sem ekki er sæm-
andi formanni Samfylkingarinnar,“
sagði Sturla ennfremur.
Jón Bjarnason (Vg) sagði í um-
ræðunni að Vinstri grænir hefðu alla
tíð verið andsnúnir einkavæðingu
Landssímans og væru það enn.
Nefndi hann sérstaklega hið mikla ör-
yggishlutverk fyrirtækisins og sagði
ekki rétta tímann nú að sýna gáleysi í
öryggismálum. „Þjóðin hafnaði þess-
ari sölu,“ sagði Jón og hvatti stjórn-
völd til þess að láta staðar numið og
endurmeta einkavæðingaráformin í
heild sinni.
Hjálmar Árnason (B) var ekki sam-
mála því að einkavæðingin væri
óskynsamleg. Hann sagði að tæplega
50 fyrirtæki væru nú starfandi á ís-
lenskum fjarskiptamarkaði og þar
ríkti „bullandi samkeppni“. Ákvörðun
Alþingis um sölu Símans lægi fyrir og
halda þyrfti því áfram samkvæmt
áætlun.
Hjálmar gagnrýndi stjórnarand-
stöðuna harðlega fyrir neikvæðni
gagnvart sölu Landsímans. Sagði
hann sölu hlutabréfa byggjast að
miklu leyti á huglægu mati kaupand-
ans og velti því upp hvort upphróp-
anir og yfirlýsingar hennar ættu þátt
í því að dregið hefði úr tiltrú almenn-
ings. Sagði hann framkomu stjórnar-
andstöðunnar hafa verið með ólíkind-
um og ábyrgð hennar væri mikil á því
að skaða hagsmuni ríkissjóðs.
Spurning um trúverðugleika
Bryndís Hlöðversdóttir (S) kvaðst
vonast til þess að ferlið við sölu Sím-
ans myndi ekki skaðast frekar en
þegar væri orðið. Benti hún á að for-
stjóri fyrirtækisins hefði nú vikið
tímabundið vegna trúverðugleika út-
boðsins og benti hún á að formaður
einkavæðingarnefndar hefði tekið
undir gagnrýnina í fjölmiðlum. Hann
hefði orðað það svo að ferlið þyrfti
ekki aðeins að vera hlutlaust, heldur
þyrfti það að virðast það líka.
Undir þetta sagðist Bryndís geta
tekið, enda snerist umræðan um trú-
verðugleika. Velti hún því upp hvort
tvöfalt hlutverk formanns einkavæð-
ingarnefndar, annars vegar við að
selja eignir ríkisins, og hins vegar
sem mikilvirkur í persónulegum við-
skiptum á markaði væri trúverðugt.
„Aftur komum við að trúverðug-
leikanum,“ sagði Bryndís og sagði
augljóst að sá einstaklingur sem hefði
það mikilvæga hlutverk að stýra viða-
mikilli sölu ríkiseigna og hefði mikið
um það að segja hvernig þær færu á
almennan markað, væri hafinn yfir
gagnrýni af þessu tagi. Ella sé trú-
verðugleiki ríkisstjórnarinnar og
einkavæðingaráformanna fyrir lítið.
Átti ríkissjóður
blákalt að valta yfir allt?
Athygli vakti í umræðunni, að tveir
þingmenn Sjálfstæðisflokksins gerðu
útboð Íslandssíma sl. vor að umtals-
efni, þrátt fyrir orð ráðherra um að
umhyggja fyrir öðrum símafyrirtækj-
um hafi ekki ráðið ákvörðun um að
selja bréf í Símanum á sama tíma sl.
vor.
Guðmundur Hallvarðsson, nýr for-
maður samgöngunefndar, sagði
þannig að ef bréf í Símanum hefðu
verið seld sl. vor hefði það ekki ein-
göngu skaðað Íslandssíma heldur
hefði það getað haft slæm áhrif á fjar-
skiptamarkaðinn í heild sinni. Sagði
hann það dæmigert fyrir þingmenn af
vinstri vængnum að taka ekki tillit til
þeirra sem væru að fóta sig á mark-
aðnum, en hugsa heldur eingöngu
þröngt um málið. „Átti ríkissjóður
blákalt að valta yfir allt og alla í vor?“
spurði Guðmundur.
Þorgerður K. Gunnarsdóttir tók í
sama streng og sagði markmið einka-
væðingar ríkisfyrirtækja ekki vera að
valta yfir þá samkeppnisaðila sem
væru að fóta sig á annars viðkvæmum
og krefjandi markaði, heldur að
styrkja og efla samkeppnisumhverfið.
Krafa Samfylkingar um útboð á sama
tíma og annað fyrirtæki væri að reyna
að festa sig í sessi, lýsti miklu skiln-
ingsleysi og vanþekkingu á sam-
keppnismarkaði.
Vegna þessa lét Össur Skarphéð-
insson þess getið að stjórnarandstað-
an hefði ekki heyrt slíkar ræður þeg-
ar Tal hf. hefði verið sett á markaðinn
á sínum tíma. Þá hefðu ráðherrar og
þingmenn Sjálfstæðisflokksins ekki
komið og haldið stólparæður um það
hversu mikilvægt væri að hjálpa því
fyrirtæki og eigendum þess að koma
sér fyrir á markaðnum.
Áhugaleysi lífeyrissjóðanna
sérstakt rannsóknarefni
Guðmundur Hallvarðsson gagn-
rýndi lífeyrissjóðina í landinu reyndar
harkalega í sinni ræðu og sagði sér-
stakt rannsóknarefni hversu fálm-
kennd fjárfestingarstefna þeirra virt-
ist vera. „Mýmörg dæmi um
fjárfestingar í erlendum fyrirtækjum,
sem lífeyrissjóðirnir hafa tekið þátt í,
er með nokkuð sérstökum hætti, þar
sem sjóðirnir hafa hvorki þekkt haus
né hala á þeim fyrirtækjum sem þeir
hafa fjárfest í, t.d. í Bandaríkjunum,“
sagði hann.
Ögmundur Jónasson (Vg) lét ber-
lega í ljós áhyggjur sínar af væntan-
legum eigendum Landssímans og
sagði: „Með fullri virðingu fyrir Guð-
mundi Franklín Jónssyni, fjárfesti í
New York, og með fullri virðingu fyr-
ir Símanum á Möltu brá mér í brún
morguninn sem landsmenn fengu
þær fréttir að þessir aðilar ásamt öðr-
um kæmu til greina sem kjölfestu-
fjárfestir í Landssíma Íslands.“
Ögmundur sagði að slíkir aðilar
ættu að koma í stað þeirrar kjölfestu
sem núverandi eigandi fyrirtækisins
væri, íslenska þjóðin.
„Síminn stendur fyrir sínu“
Vegna þessa sagði Sturla Böðvars-
son að engum hefði sérstaklega verið
boðið að vera kjölfestufjárfestir, held-
ur hefðu fyrirtæki sóst eftir því. Ekki
hefði verið fallist sérstaklega á þeir
aðilar, sem Ögmundur nefndi, gerðu
tilboð. Sagði hann það vera fullkom-
lega óeðlilegt að láta að því liggja að
verið væri að sækjast eftir einum að-
ila frekar en öðrum.
Sagði Sturla að ríkisstjórnin myndi
halda sínu striki í einkavæðingará-
formum sínum. „Síminn stendur fyrir
sínu,“ sagði hann.
Harðar umræður á Alþingi um sölu á hlutafé ríkisins í Landssímanum
Trúverðugleiki for-
manns einkavæðingar-
nefndar dreginn í efa
Hart var tekist á um sölu á hlutafé ríkisins í
Símanum við umræður utan dagskrár á Al-
þingi í gær. Björn Ingi Hrafnsson fylgdist með
umræðunni, þar sem m.a. kom fram af hálfu
stjórnarandstöðu hörð gagnrýni á formann
einkavæðingarnefndar ríkisstjórnarinnar.
Morgunblaðið/Þorkell
Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, var málshefjandi
í umræðunum um sölu Símans.
bingi@mbl.is
ÖSSUR Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, var máls-
hefjandi í umræðunni og gagnrýndi hann í upphafi harðlega hvernig
til hefði tekist með fyrstu skrefin í einkavæðingu Landssímans. Tók
hann þar m.a. til verðmat félagsins, tímasetningu sölunnar og sölu-
aðferðina sjálfa. Gagnrýndi Össur harkalega að Síminn skyldi ekki
hafa verið seldur þegar markaðurinn fór með himinskautum á sínum
tíma og óskaði svara á því hver bæri ábyrgð á því og hefði ráðið því
að sölunni var frestað fyrr á árinu.
MORGUNBLAÐINU hefur
borist eftirfarandi yfirlýsing frá
Hreini Loftssyni hrl., formanni
framkvæmdanefndar um einka-
væðingu:
„Vegna ummæla Össurar
Skarphéðinssonar og fleiri
þingmanna Samfylkingarinnar
um undirritaðan í utandag-
skrárumræðum um málefni
Landssímans fyrr í dag vil ég
taka fram eftirfarandi:
Ég er hvorki sjálfur né félög
sem ég tengist þátttakandi í því
söluferli sem nú stendur yfir á
vegum framkvæmdanefndar
um einkavæðingu f.h. sam-
gönguráðherra og miðar að því
að selja 25% hlut í Landssíman-
um til kjölfestufjárfestis. Þá er
ég ekki í neinum tengslum,
hvorki beinum né óbeinum, við
nokkurn þeirra aðila sem til-
kynnt hafa um þátttöku í sölu-
ferlinu, annast hvorki upplýs-
ingagjöf til þeirra eða
samskipti að einu eða neinu
leyti. Við söluna er fylgt skýr-
um reglum sem kynntar hafa
verið opinberlega og hlutverk
framkvæmdanefndar um einka-
væðingu er að tryggja að eftir
þeim sé farið í hvívetna.“
Yfirlýsing frá
Hreini Loftssyni
Ekki tengdur
þátttakend-
um í útboði
Símans
9. þingfundur hefst á Alþingi í dag
kl. 10.30.
Á dagskrá eru eftirtalin mál:
Fjáraukalög 2001, lagafrumv.
Heimild til að staðfesta samþykkt
um alþjóðareglur til að koma
í veg fyrir árekstra á sjó.
Rafræn eignarskráning
verðbréfa.
Samningsgerð, umboð og ógildir
löggerningar.
Iðnaðarlög.
FJÓRIR þingmenn Sjálfstæðisflokks
hafa lagt fram á Alþingi frumvarp til
laga um breytingu á lögum um versl-
un með áfengi og tóbak. Með frum-
varpinu er lagt til að opnað verði fyrir
smásöluverslun með áfenga drykki á
vegum fleiri aðila en Áfengis- og tób-
aksverslunar ríkisins, ÁTVR.
Vilhjálmur Egilsson er fyrsti flutn-
ingsmaður frumvarpsins. Í því er lagt
til að ÁTVR skuli framselja einkaleyfi
sitt til smásölu áfengis samkvæmt
áfengislögum til verslana sem upp-
fylla tvenns konar skilyrði, annars
vegar að hafa fengið leyfi sveitar-
stjórnar til reksturs á áfengisútsölu
og hins vegar að rekstraraðili versl-
unar, sem fyrst og fremst versli með
aðrar vörur, uppfylli ákveðin skilyrði,
m.a. um hillurými.
Í greinargerð með frumvarpinu
segir að nú sé svo komið, að viðskipta-
vinir geri sífellt harðari kröfur um
eðlilegan aðgang að vörunni, enda sé
neysla áfengis fyllilega lögleg eftir að
tilskildum aldri er náð.
„Sífellt fleiri viðskiptavinir vilja
ekki vera neyddir til viðskipta við
ÁTVR og taka ekki undir þá skoðun
að viðskipti þeirra séu slíkt vandamál
að það þarfnist einokunar ríkisins á
þeim,“ segir í frumvarpinu. Þar er
þess einnig getið að með því sé ekki
gert ráð fyrir að ÁTVR verði lögð nið-
ur, en ætla megi að samkeppnisstaða
einokunarsölunnar versni nokkuð við
þessa breytingu. Tíminn einn leiði svo
í ljós hvort fyrirtækið verði sam-
keppnisfært í þeirri takmörkuðu sam-
keppni sem það þurfi að takast á við.
Sérstaklega megi þó reikna með að
breyting verði til batnaðar fyrir kaup-
endur vörunnar í hinum fámennari
byggðum á landsbyggðinni sem hing-
að til hafi mátt þola grófa mismunun
af hálfu ÁTVR.
Fleiri fái að
selja áfengi
en ÁTVR