Morgunblaðið - 11.10.2001, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 11.10.2001, Qupperneq 13
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2001 13 Nú býðst þér ótrúlegt tækifæri til þessarar heillandi borgar á ótrúlegu verði. Við eigum 20 sæti í vikuferð, 8 nætur, út þann 28. október, með heim- flugi þann 5. nóvember. Gist á Quality hótelinu, góðu 3ja stjörnu hóteli sem hefur verið afar vinsælt af farþegum Heimsferða síðustu 2 árin. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð kr. 47.970 Flug, gisting á Quality Inn hótelinu með morgunmat, skattar. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Forfallagjald kr. 1.800. Síðustu sætin til Prag í október Vikuferð til Prag 28. október frá kr. 49.970 Kynnisferðir með íslenskum fararstjórum Heimsferða LIÐIN eru rétt 10 ár í dag frá því Ís- land hreppti heimsmeistaratitilinn í brids í Yokohama í Japan í keppninni um Bermúdaskálina. Þetta var í fyrsta skipti sem Ísland vann slíkan titil í hópíþrótt og vakti það að von- um mikla athygli hér á landi og víð- ar. Íslenska liðið vann Pólverja í úr- slitaleik sem stóð yfir í þrjá daga og lauk 11. október 1991. Sýnt var beint frá lokasprettinum í Sjónvarpinu þótt þá væri enn mið nótt hér á landi og eftir nokkurn taugatitring, því Pólverjar náðu um tíma að saxa verulega á forskot Íslendinga í leikn- um, náðist titillinn í höfn. „Ég man þetta ljóslega enn. Það voru mörg skemmtileg augnablik á þessum síðustu klukkutímum og í heild var þetta spennandi og áhrifa- rík reynsla. Það var þó e.t.v. mest gaman fyrir okkur sem stóðum í eld- línunni að finna stuðninginn að heim- an og fá jákvæð viðbrögð frá kepp- endum annarra þjóða og forustumönnum alþjóðlegu brids- hreyfingarinnar sem fögnuðu með okkur,“ sagði Björn Eysteinsson, en hann var fyrirliði og þjálfari íslenska liðsins. „Þessi úrslit vöktu athygli víða um heim á sínum tíma og mörgum þótti merkilegt að þessi litla eyja í Atl- antshafi gæti státað af heims- mistaratitli í liðakeppni. Ég man enn þegar breskur blaðamaður sagði mér stoltur frá því nokkrum dögum síðar að hann hefði komið frétt á for- síðu Daily Telegraph í fyrsta skipti á ferlinum og það segir manni að þetta hefur þótt talsvert afrek,“ sagði Björn. Gríðarlegur tími sem fer í undirbúning Auk hans voru í íslenska liðinu Að- alsteinn Jörgensen, Guðmundur Páll Arnarson, Guðlaugur R. Jóhanns- son, Jón Baldursson, Þorlákur Jóns- son og Örn Arnþórsson. Þetta lið spilaði aldrei óbreytt framar fyrir hönd Íslands þótt nokkrir liðsmenn hafi spilað í íslensku landsliði síðan. Íslendingar hafa ekki komist aftur í keppnina um Bermúdaskálina en ágætis árangur hefur náðst í öðrum mótum. „Okkur hefur ekki tekist að keyra á þessum sömu mönnum sem gerðu garðinn frægan fyrir áratug. En það fer gríðarlegur tími í undirbúning ef ná á árangri og ég tel að þeir sem fóru til Yokohama séu búnir að leggja sitt af mörkum til þjóðarinnar og rúmlega það. Hjá bestu brids- þjóðum heims eru landsliðsmennirn- ir atvinnumenn en því er ekki til að dreifa hjá okkur. Ég held að það sé ekki hægt að gera afrekskröfur til okkar bestu manna fyrr en komið er til móts við þá með einhverjum hætti,“ sagði Björn. Heldur virðist hafa dregið úr bridsáhuga á síðasta áratug og Björn segir að samkeppnin um at- hyglina sé vissulega gríðarleg. „Maður vildi sjá að Bridssamband Íslands setti meiri metnað í ung- lingastarf og vinni þar með mark- vissum hætti. Það er raunar ætlunin að halda lítið bridsmót í tilefni tíma- mótanna í dag, þar sem dyggir vel- unnarar og stuðningsaðilar brids- hreyfingarinnar koma við sögu og láta afraksturinn renna til unglinga- starfs bridssambandsins,“ sagði Björn. Mótið verður haldið milli klukkan 17-19 á Grand Hóteli í Reykjavík í dag og keppa heimsmeistararnir sjö þar við fulltrúa fjölmiðla og annarra fyrirtækja. Heimsmeistararnir hampa Bermúdaskálinni. Frá vinstri eru Björn Eysteinsson, Þorlákur Jónsson, Jón Bald- ursson, Örn Arnþórsson, Guðlaugur R. Jóhannsson, Aðalsteinn Jörgensen og Guðmundur Páll Arnarson. 10 ár liðin frá því Ísland hreppti Bermúdaskálina BOÐAÐAR skattalækkanir og breytingar á reglum um verðbólgu- reikningsskil hafa mismunandi áhrif á hagnað og skattgreiðslur nokkurra fyrirtækja sem skráð eru á Verð- bréfaþing, skv. grófum útreikning- um sem greiningardeild Búnaðar- bankans hefur gert og birtir eru á vefsíðu bankans. Við útreikningana er miðað við að skattabreytingarnar hefðu verið í gildi árið 2000 og eru skoðuð sérstaklega áhrif breyting- anna á hagnað fyrirtækjanna eftir skatta og heildarbreytingu opin- berra gjalda þeirra (sjá töflu). Bent er á að breyting opinberra gjalda sýnir breytingar á fjár- streymi frá rekstri og þar með áhrif á verðmæti fyrirtækjanna. Skattar Landsbankans lækka um 184 millj. kr. Samkvæmt yfirlitinu lækka opin- ber gjöld margra fyrirtækja veru- lega og töluverður mismunur verður á reiknuðum hagnaði þeirra eftir breytinguna. Þannig lækka skattar Landsbankans um 184 millj. kr. og hagnaður bankans eftir skatta hefði verið 193 millj. kr. hærri ef skatta- breytingarnar hefðu verið í gildi árið 2000. Opinber gjöld Kaupþings lækka um 124 millj. kr., Olíufélags- ins um 259 millj. kr. og Eimskips um 168 millj. kr., miðað við þessar for- sendur. Opinber gjöld Búnaðar- bankans myndu hins vegar aukast um 42 millj. og Íslandsbanka um 59 millj. kr. en bent er á að hagnaður Ís- landsbanka var óvenjulítill á árinu 2000 vegna endurmats á skulda- bréfaeign. Rekstur ársins 2001 gefi betri mynd af áhrifum skattbreyt- inganna bæði hvað Íslandsbanka og Búnaðarbanka varðar. Þannig geri áætlanir Íslandsbanka fyrir árið 2001 ráð fyrir 5 milljarða hagnaði fyrir skatta þannig að breytingar í skattamálum í ár myndu þýða um 400 milljónum króna lægri skatta bankans, að mati greiningardeildar Búnaðarbankans. Lítil áhrif tekjuskatts- lækkunar á sjávarútveg Áhrif lækkunar tekjuskattspró- sentunnar úr 30% í 18% á sjávarút- vegsfyrirtæki almennt verða hins vegar lítil í bráð að mati greining- ardeildarinnar. Bent er á að rekstur margra sjávarútvegsfyrirtækja hafi verið erfiður undanfarin ár og félög- in eiga mikið uppsafnað skattalegt tap. Við síðustu áramót nam upp- safnað skattalegt tap Samherja og ÚA tæplega 2 milljörðum og Granda og HB tæplega 900 millj. kr. 1,7 milljarða hærri trygg- ingagjöld atvinnuveganna Ekki liggja fyrir gögn um hvaða áhrif skattabreytingarnar munu hafa á atvinnugreinarnar í landinu. Nýjustu upplýsingar Þjóðhagsstofn- unar um atvinnuvegina eru byggðar á athugun á ársreikningum fyrir- tækja frá 1997. Séu þessar upplýs- ingar um launagreiðslur og eigið fé atvinnuveganna framreiknaðar til ársins 2001 má ætla, skv. lauslegum útreikningum sem gerðir hafa verið, að tryggingagjöld atvinnuveganna myndu aukast um nálægt 1,7 millj- arða kr. Eignarskattar lækka hins vegar um ríflega tvo milljarða skv. þessum útreikningum. Nemur mis- munur hærra tryggingagjalds at- vinnuveganna og lægri eignarskatta því um 400 millj. kr. í lægri gjöldum atvinnuveganna ef byggt er á þess- um framreiknuðu upplýsingum. Tryggingagjald er greitt af greiddum vinnulaunum í landinu. Skv. upplýsingum Ríkisskattstjóra voru greiðendur tryggingagjalds rúmlega 10.100 á síðasta ári. Al- mennt tryggingagjald er 5,23% og til viðbótar bætist við 0,65% trygging vegna launa sjómanna. Séu launa- greiðslur sjávarútvegsins (útgerðar og fiskvinnslu) 1997 framreiknaðar til ársins 2001 nema þær tæplega 43 milljörðum kr. Miðað við þessar for- sendur má ætla að tryggingagjald sjávarútvegsins af launum myndi aukast um nálægt 250 millj. kr. vegna hækkunar gjaldsins um 0,77%. Framreiknað eigið fé sjávar- útvegsins nemur tæpum 52 milljörð- um kr. og lækka eignarskattar sjáv- arútvegsins skv. því um 440 millj. kr. vegna ákvörðunar ríkisstjórnarinnar miðað við þessar forsendur. Mis- munur hærra tryggingagjalds og lægri eignarskatta nemur um 190 millj. kr. í lægri gjöldum sjávarút- vegsins. Til samanburðar eru framreiknað- ar launagreiðslur verslunarfyrir- tækja 1997 um 43,7 milljarðar kr. að núvirði skv. þessum útreikningum. Hækkun tryggingagjalds um 0,77% hefði skv. þessum forsendum í för með sér tæplega 340 millj. kr. hærri tryggingagjöld verslunarinnar. Framreiknað eigið fé verslunarinnar nemur ríflega 60 milljörðum kr. Mið- að við þá fjárhæð myndu eignar- skattar verslunarinnar lækka um rúmlega 100 millj. kr. við skatta- breytingarnar. Mismunurinn af hækkun tryggingagjalds og lækkun eignarskatta í versluninni er skv. þessum útreikningum um 50 millj- ónir kr. Boðaðar breytingar ríkisstjórnarinnar á sköttum og reikningsskilum fyrirtækja Mismunandi áhrif á fyrir- tæki og atvinnugreinar                               !   "  # $   %#&  '   &   ( )* + !,"-    !,                 ./012 344 ./.53 267 781 .80 468 765 255 10 754 .00 668 9162 9122 9704 933. 4.2 6. 920. 67 9.5 570 .23 .17 6. 948 9.. 9.4 83 26 .0 44 .2 40 .2 9.57 9201 92.8 91 9741 6 923 .8 ,   /  :; <       :;     &  (:  ;$  Skattalækkanir og breytingar á reglum um verðbólgureikningsskil hafa mismunandi áhrif á hagnað og skattgreiðslur fyrirtækja. Lækkun eignarskatta og hækkun trygg- ingagjalds koma einnig mismunandi út gagnvart einstökum atvinnugreinum. omfr@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.