Morgunblaðið - 11.10.2001, Síða 22
NEYTENDUR
22 FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BLÓMASKREYTINGAR lúta lög-
málum náttúrunnar og tískunnar
og í báðum tilvikum hefur hver
árstíð sitt tiltekna stef. Sérhvert
tískustef er jafnframt tengt
straumum og stefnum í fata- og
innanhússhönnun, auk þess sem
því er ætlað að magna kenndir
sem plöntur og blóm geta vakið
með manninum. Þegar tískan er
annars vegar er að öllu jöfnu
hugsað langt fram í tímann (til
dæmis frameftir 2002) og fullyrt
er að eftirspurnin á næsta ári
verði helst eftir skreytingum með
glaðlegum og kraftmiklum mun-
aðarblæ. Hin árstíðabundnu stef
eru jafnan kynnt á Evrópuvísu og
nýverið kom hollenski blóma-
skreytingameistarinn Pujari
Plattel hingað til lands og hélt
sýnikennslu fyrir liðsmenn Félags
blómaverslana. Plattel er meistari
í blómaskreytingum og jafnframt
í hópi þeim sem leggur línurnar í
blómatískunni frá ári til árs.
Náttúruleg efni, einfaldleiki
og form sem fá að njóta sín
Á heimasíðu hollenska Blóma-
ráðsins segir að fjöldaframleiðsla
hafi aukið sókn fólks í hluti með
eilítið persónulegri blæ. „Hlutir
eru settir í nýtt samhengi, hug-
myndauðgin ræður ríkjum og lit-
ir, form og mynstur koma á
óvart,“ segir um framvinduna
í blómaskreytingum.
Einnig segir að lykilorð
næsta vors verði ferskleiki
og þjóðlegir tónar. Næsta
sumar verður endursköp-
unin í fyrirrúmi með
handgert efni og endur-
vinnslu að leiðarljósi. Þá
skellur haustið á með
skýrum útlínum og
íburðarmeiri efniviði í
andstæðum litum. Yf-
irskrift þarnæsta vetr-
ar er svo gersemar nátt-
úrunnar, þar sem teflt er
saman hrjúfleika og
mýkt, felulitum og áber-
andi skrauti.
Nanna B. Viðarsdóttir,
blómakona hjá Breiðholts-
blómum, segir skreyt-
ingar þar sem eitt
blóm er uppistaðan
verða áberandi í vetur.
Höfuðstef vetrarins verða
náttúruleg efni, einfaldleiki
og form, með óvenjulegum
tilbrigðum inni á milli, segir
Nanna ennfremur, og nefn-
ir dæmi þar sem blóma-
skreytingameistarinn leik-
ur sér með eitt blóm og
stilkurinn er vafinn með
einangrunarlímbandi,
sem að öllu jöfnu er notað
í rafvirkjun.
„Skreytingar byggðar
upp á einu blómi verða
áberandi í vetur, einnig
leikur að einföldum hlut-
um sem settir eru í nýtt
samhengi. Skreyta og
breyta, eru einkunnarorðin.
Jólaskreytingarnar munu
einkennast af rómantík, dýpt
og mýkt. Mikið verður af
aukahlutum og glingri, krist-
öllum, semelíu-steinum og
vír og gyllti liturinn kem-
ur aftur með alls kyns
smádóti. Eiginlega er um
að ræða tvenns konar aðferðir í
vetur, það er stílhreint, einfalt og
naumt annars vegar, og rautt og
rómantískt hins vegar, jafnvel út í
plómulitt og bleikt,“ segir hún.
Vorið 2002 verður tileinkað
þjóðlegum minnum og afturhvarfi
til fortíðar, líkt og áður er getið,
og nefnir Nanna útsaum og tré-
klossa sem dæmi um hollenskan
sveitarómantíkurstíl.
„Næsta sumar er endursköp-
unin aðalhugsunin og leikur að
plastkenndum efnum,“ segir hún
ennfremur.
Aðventukransar eru árvisst
skreytingarúrræði á mörgum
heimilum í desember og segir
Nanna ýmsa möguleika í boði í ár.
„Eitt dæmi er einfaldur krans
með 6–7 stjökum, vafinn með
blöðum og skreyttur litlum epl-
um. Annar möguleiki er aðventu-
krans með austrænum blæ, eins
og beint upp úr 1001 nótt,“ segir
hún að síðustu.
Skreytt, breytt og í nýju samhengi
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Nýstárleg aðventuskreyting í
hefðbundnum jólalitum.
Einfalt og náttúrulegt en með óvæntu sniði; stilkar gerberu vafðir einangrunarlímbandi.
Blómaskreytingameistarar hafa lagt línurnar í skreytingum komandi tíðar
Gladíóla með
laufblaði, skreytt
litlum speglum.
SAMTÖK verslunar og þjónustu
gáfu nýlega út reglur um gjafakort
til leiðbeiningar fyrir verslanir sem
selja kort af því tagi eða láta fylgja
með annarri vöru. Kemur fram í til-
kynningu frá SVÞ að þar sem gjafa-
kort verði æ algengari aukist hættan
á fölsunum og misnotkun að sama
skapi.
Gjafakort er ávísun á verðmæti og
oft stílað á handhafa. Því getur hver
sá sem kemur í verslun með kortið
keypt gegn framvísun þess. Ef kort-
ið týnist á upphaflegur eigandi eng-
an kröfurétt á verslunina. Annar
möguleiki er því sá að kortið sé stílað
á tiltekna persónu. Gildistími gjafa-
korta er venjulega fjögur ár frá út-
gáfu. Í 6. grein verklagsreglna við-
skiptaráðuneytisins segir um
gjafakort að almennur fyrningar-
frestur á slíkum kröfum sé fjögur ár,
samanber lög númer fjögur frá 1905.
Í 5. grein verklagsreglna segir einn-
ig að mikilvægt sé að kröfur vegna
gjafakorta séu færðar í bókhald
verslunar og að þær haldi gildi sínu
gagnvart þeim sem útgefandi kann
að framselja rekstur sinn til. Mögu-
legt er að gildistíminn sé styttri og í
slíkum tilvikum á gildistíminn að
koma fram á gjafakortinu, auk þess
sem láta á viðskiptavininn vita af því
þegar kortið er keypt. Gildistími al-
mennra gjafakorta ætti minnst að
vera eitt ár, segir SVÞ ennfremur,
og á útgáfudagur að koma fram á
kortunum. „Ef verslun skiptir um
eiganda verður að taka tillit til gjafa-
korta sem ekki hafa verið innleyst.
Hið sama á við ef útgefandi fram-
selur öðrum verslunarreksturinn.“
Munið skilaréttarmerkin
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið
gaf út verklagsreglur um skilarétt
fyrir ári þar sem meðal annars er
fjallað um gjafamerki. Þar kemur
fram að hægt eigi að vera að fá gjafir
merktar sérstöku merki í verslunum
svo ekki þurfi að framvísa kassa-
kvittun sé vöru skilað. Í jólaverslun
skal miða við að varan sé afhent 24.
desember og fá verslunareigendur
frjálsar hendur með útfærsluna. Í
sumum verslunum tíðkast að útfæra
sérstök jólamerki, sem veita skila-
rétt í tiltekinn dagafjölda eftir jól, til
dæmis til 6. janúar.
Um leið og reglurnar voru gefnar
út komu út límmiðar með áletruninni
skilaréttur – þinn réttur og teljast
verslanir sem setja hann upp hafa
skuldbundið sig til þess að fram-
fylgja verklagsreglum ráðuneytis-
ins. Telja Samtök verslunar og þjón-
ustu það gæðavottun fyrir verslanir
að taka upp reglurnar og nota skila-
réttarmerkin.
Þróunarfélag miðborgarinnar
hefur komið á fót sameiginlegu
gjafakorti fyrir verslanir og
þjónustufyrirtæki í miðborginni.
Reglur um
gjafakort
og gjafa-
merkingar
Lyklakippur
Litir: Gyllt, silfrað
aðeins 350 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is