Morgunblaðið - 11.10.2001, Page 29

Morgunblaðið - 11.10.2001, Page 29
10.15 hinn 9. október. Unnið að tyrfingu í lokaátökum við frágang lóðarinnar umhverfis Smáralind, einum sólarhring fyrir opnun. 12.30 hinn 9. október. Mörg handtökin og margvíslegar stillingar þurfti við lokafrágang eldvarnarkerfis byggingarinnar og stóðu prófanir yfir fram eftir nóttu. 22.30 hinn 9. október. Margar hendur unnu við að setja vörur í hillur verslana langt fram eftir kvöldi og aðfaranótt opn- unardagsins. Í Sock Shop keppt- ust ungir sem aldnir fram eftir kvöldi við að taka varning upp úr kössum og gera klárt fyrir opnun. 1.30 aðfaranótt 10. október. Iðnaðarmenn taka sér pásu eftir langa og stranga vinnudaga en sumir höfðu unnið tvo sólar- hringa samfleytt þegar opn- unarhátíðin hófst. Nauðsynlegt var þó að hvíla lúin bein stöku sinnum og dreypa á orkudrykkj- um fyrir lokatörnina. 5.30 aðfaranótt opnunardags. Búið að fjarlægja drasl og dót iðnaðarmanna af gólfum og þrif og bón í fullum gangi í morgunsárið. 10.10 hinn 10.10 árið 2001. Gestir fagna og ljósmyndarar fjölmiðlanna keppast við að fanga augnablikið þegar Smáralind er opnuð formlega. Morgunblaðið/Árni Sæberg Fólk streymdi inn í Smáralind þegar eftir opnun klukkan tíu í gærmorgun en þangað komu um 45.000 manns í gær. aldar hafi Sambandið ráðgert að setja upp höfuðstöðvar sínar á sama stað og Smáralind stendur í dag, en horfið frá þeim ráðahag. Þá hafi IKEA, BYKO og Hagkaup keypt landið og hafið undirbúning að byggingu 40–50 þúsund fer- metra verslunarmiðstöðvar og kynnt þau áform árið 1990, en hætt við vegna þeirrar efnahags- lægðar sem þá ríkti. „Það voru síð- an núverandi eigendur sem hófu undirbúning árið 1993 og þetta glæsilega mannvirki er ávöxt- urinn.“ Smáralind flaggskip fyrirtækja í Kópavogi Gunnar sagði áræðni og mikinn dugnað hafa þurft til að ráðast í þessar framkvæmdir og segja mætti að uppbyggingin í Kópavogi hafi einkennst af þessum atriðum. Sigurður Geirdal, bæjarstjóri Kópavogs, sagði að í Kópavogi hefði átt sér stað mikil uppbygging á undanförnum árum, bæði í íbúa- byggð og atvinnuhúsnæði. „Og það svo að á síðustu fimm, sex árum hafa sjö hundruð ný fyrirtæki flutt í Kópavoginn og langflest hingað í dalinn. Ég held að á engan sé hall- að þótt ég kalli Smáralind flagg- skip þessara fyrirtækja og þessa iðandi mannlífs sem einkennir þetta svæði.“ Bæjarstjórinn sagði Smáralind vera ævintýri út af fyrir sig og bjartsýni, djörfung og kraft hafi þurft til að hrinda þessum áform- um í framkvæmd. Gert hafi verið ráð fyrir stórri verslunarmiðstöð á þessum stað fyrir löngu og skipu- lag og samgöngukerfi tekið mið af því frá upphafi. Þá sagðist Sig- urður gera sér vonir um að Smáralind myndi leggja sitt af mörkum á menningarsviðinu, enda væri Vetrargarðurinn líkastur tón- listarhöll og byði upp á marga möguleika. Meðal atriða á opnunarhátíðinni var afhjúpun á styttu Nínu Sæ- mundssonar, Hafmeyjunni, en það var Kristín Rós Hákonardóttir, heims- og ólympíumeistari í sundi, sem afhjúpaði styttuna sem standa mun í Sumargarðinum. Þetta er frumgerð styttunnar en síðari gerð hennar olli miklu fjaðrafoki þegar hún var sett upp á Tjörninni árið 1959 og sprengd í loft upp á nýárs- nótt 1960 af óþekktum aðilum. Við eftirgrennslan kom í ljós að fyrri gerð styttunnar var ennþá til í Kaliforníu í Bandaríkjunum og ákvað stjórn Smáralindar að flytja hana til landsins. Morgunblaðið/Þorkell Geir Haarde fjármálaráðherra kynnir sér vöruverð hjá versluninni Zara ásamt Pálma Kristinssyni, framkvæmdastjóra Smáralindar. Morgunblaðið/Þorkell Kristín Rós Hákonardóttir afhjúpaði Hafmeyju eftir Nínu Sæmundsson, sem standa mun í Sumargarði Smáralindar. FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2001 29 Kl. 05.30 Kl. 22.30 Kl. 01.30 Kl.10.10

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.