Morgunblaðið - 11.10.2001, Qupperneq 55
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2001 55
LANDSFUNDUR Vinstrihreyfing-
arinnar – græns framboðs, VG, verð-
ur haldinn í Rúgbrauðsgerðinni í
Reykjavík dagana 19. til 21. október
næstkomandi. Þetta er annar lands-
fundur flokksins, sem stofnaður var í
febrúar 1999. Búist er við um 200
fundarmönnum, sem er töluverð
fjölgun frá síðasta landsfundi sem
haldinn var á Akureyri fyrir réttum
tveimur árum.
Yfirskrift og meginstef þessa
landsfundar er hugtakið „fjöl-
breytni“ sem Steingrímur J. Sigfús-
son, formaður VG, sagði á blaða-
mannafundi að vísaði til margs í
senn; fjölbreytni í menningu og
mannlífi, samfélagsgerðar og sam-
starfs þjóða og fjölbreytni í atvinnu-
lífi og öllu sem lyti að varðveislu
náttúru og umhverfis. Gestur lands-
fundarins verður Kristin Halvorsen,
formaður Sósíalíska vinstriflokksins
í Noregi, SV, sem átti góðu gengi að
fagna í nýafstöðum kosningum.
Meginstef landsfundarins myndar
uppistöðuna í aðalstjórnmálaályktun
fundarins og verður að auki umfjöll-
unarefni í sérstakri dagskrá á fund-
inum laugardaginn 20. október. Sá
dagskrárliður nefnist „Byggjum
framtíð á fjölbreytni“ og verður öll-
um opinn. Á fundinum munu margir
málefnahópar starfa en almennar
stjórnmálaumræður verða að kvöldi
fyrsta fundardags. Kosningar til
trúnaðarstarfa innan flokksins eiga
að fara fram á sunnudeginum en
ekki er reiknað með öðru en að nú-
verandi forystumenn haldi sínum
stöðum. Mótframboð hafa í öllu falli
ekki borist enn.
Steingrímur sagði að fyrir lands-
fundinum lægi afrakstur mikillar
vinnu hjá málefnahópum flokksins,
m.a. um sjávarútvegsmál, sjálfbæra
þróun, alþjóðamál, kvenfrelsismál og
sveitarstjórnamál, en þar verða
áhersluatriði og stefnumið gefin út í
sérstakri handbók. Hann sagði mikið
og gott uppbyggingarstarf hafa átt
sér stað hjá hreyfingunni að undan-
förnu og nýjar flokksdeildir verið
stofnaðar í mörgum sveitarfélögum.
Aðspurður sagðist Steingrímur
reikna með líflegum umræðum um
ýmis mál, t.d. kvenfrelsismál, al-
þjóðasamstarf og sveitarstjórnamál
á landsfundinum, en kosningar eru
þar framundan næsta vor. Búist er
við umræðum um framboðsmál á
þeim vettvangi en óljóst er um sam-
starf við aðra flokka á sumum stöð-
um, t.d. á Akureyri.
„Við munum kynna niðurstöður
málefnahópanna og drög að ályktun-
um á vefsíðu okkar þegar nær dreg-
ur landsfundinum en meðal þess sem
hefur verið til umfjöllunar í alþjóða-
málum er aukið og formlegt sam-
starf okkar við vinstri flokka á Norð-
urlöndum,“ sagði Steingrímur.
Landsfundur vinstri grænna verður haldinn 19. til 21. október
Áhersla lögð á fjölbreytni
í menningu og mannlífi
Morgunblaðið/Ásdís
Kristín Halldórsdóttir, ritari VG, Steingrímur J. Sigfússon, formaður
hreyfingarinnar, og Svanhildur Kaaber varaformaður kynntu lands-
fundinn sem fram fer í Reykjavík 19. til 21. október.
UNDANFARINN misseri hefur
Íslensk erfðagreining ásamt
lungnalæknunum Andrési Sigvalda-
syni og Þórarni Gíslasyni á Land-
spítala – háskólasjúkrahúsi á Vífils-
stöðum stundað viðamiklar
rannsóknir á erfðum lungnateppu-
sjúkdóma, sem eru lungnaþemba
og langvinn berkjubólga. Tilgangur
verkefnisins er að reyna að finna
orsakir þessara sjúkdóma og leita
leiða til lækninga og fyrirbyggjandi
aðgerða. Rannsóknin hefur verið
unnin með leyfi Persónuverndar og
vísindasiðanefndar.
„Lungnasjúkdómar þeir sem hér
um ræðir eru meðal algengari dán-
arorsaka í heiminum og má ætla að
á Íslandi séu að minnsta kosti
10.000 manns með þessa sjúkdóma
á mismunandi stigi. Tvö til fjögur
þúsund þeirra leiti læknis árlega og
tvö til fjögur hundruð liggi á
sjúkrahúsi árlega vegna þeirra. Á
Íslandi þurfa um 200 manns dag-
lega súrefnismeðferð fyrst og
fremst vegna langvinnra lungna-
teppusjúkdóma. Þessir lungnasjúk-
dómar eru algengastir meðal reyk-
ingafólks en einnig eru aðrir
áhættuþættir þekktir. Í vissum ætt-
um eru hlutfallslega mjög margir
með ofangreinda sjúkdóma.
Til að gera aðstandendum rann-
sóknarinnar mögulegt að meta nið-
urstöðurnar og þar með auka
möguleikana til að ná áðurnefndu
markmiði er óskað eftir þátttöku
einkennalausra reykingamanna og
kvenna. Óskað er eftir þátttöku
bæði karla og kvenna sem eru 60
ára eða eldri og hafa reykt sem
svarar til 20 vindlinga á dag í a.m.k.
20 ár og eru án einkenna um
lungnateppusjúkdóma,“ segir í
fréttatilkynningu.
Rannsóknin felst í því að viðkom-
andi kemur í stutt viðtal hjá hjúkr-
unarfræðingi og blóðsýnatöku. Þeir
sem sjá sér fært að leggja þessari
rannsókn lið eru vinsamlega beðnir
að hafa samband við þjónustumið-
stöð í Nóatúni í Reykjavík, þar sem
nánari útskýring verður veitt.
Stunda rannsóknir á erfð-
um lungnateppusjúkdóma
FYRIR skömmu barst Iðnskólanum
í Hafnarfirði gjöf frá Merkúr hf.
sem mun nýtast vel við kennslu í
bygginga- og tréiðngreinum. Skól-
anum var afhentur pakki af 11
steypumótaflekum frá PERL og
fylgibúnaði ásamt nýjustu útgáfu af
ELPOS-hugbúnaði til að skipu-
leggja mótauppslátt og reikna út
efnisþörf. Það voru þeir Þröstur
Lýðsson forstjóri, Jóhann Ólafur
Ársælsson framkvæmdastjóri og
Vilhjálmur Baldursson þjón-
ustustjóri, sem afhentu kennurum
og skólameistara mótin. Iðnskólinn
í Hafnarfirði býður upp á fjölbreytt
nám. Nemandafjöldi hefur vaxið
undanfarin misseri og stunda nú yf-
ir 500 nemendur nám við skólann.
Færa Iðn-
skóla Hafn-
arfjarðar gjöf
EFTIR fyrri keppnisdag stóru al-
þjóðlegu International-danskeppn-
innar sem haldin er árlega í
Brentwood í Bretlandi, stóðu þrjú ís-
lensk danspör eftir í úrslitum. Það
var atvinnumannadansparið okkar
Adam Reeve og Karen Björk Björg-
vinsdóttir sem náði 2. sætinu í Pro-
fessional Rising Star, í suður-amer-
ískum dönsum, Björn Ingi Pálsson
og Ásta Magnúsdóttir, Kvistum, sem
náði 3. sætinu í aldurshópum 10-11
ára, suður-amerískum dönsum og
Jónatan Arnar Örlygsson og Hólm-
fríður Björnsdóttir, Gulltoppi, sem
náðu 4. sætinu í aldursflokknum 12-
13, í suður-amerískum dönsum. Ís-
lendingar áttu 4 önnur pör í undan-
úrslitum, þau Davíð Gill Jónsson og
Helgu Björnsdóttur, Friðrik Árna-
son og Söndru Júlíu Bernburg, Karl
Bernburg og Helgu Soffíu Guðjóns-
dóttur og Þorleif Einarsson og Ástu
Bjarnadóttur, öll í suður-amerísku
dönsunum. Á morgun verður keppt í
sígildu dönsunum. Davíð Gill og
Helga komust einnig í undan-úrslit í
suður-amerísku dönsunum á Imper-
ial-keppninni sem haldin var á
sunnudag.
Þrjú danspör
í úrslitum á
International
í Bretlandi
„Á HEIMASÍÐU ÍAV, iav.is, er í
boði frí ráðgjöf arkitekts og nefnist
þjónustan Hús og hönnun. Þar er
hægt að senda inn fyrirspurnir um
allt milli himins og jarðar sem snýr
að húsum og hönnun. Það er Ólöf
Örvarsdóttir arkitekt sem svarar
fyrirspurnum. Hún er menntuð arki-
tekt frá arkitektaskólanum í Osló og
var einnig við nám á Ítalíu ásamt því
að vinna á arkitektastofu þar. Hún
hefur unnið við fjölbreytt hönnunar-
störf á undanförnum árum og m.a.
teiknað íbúðarhúsnæði, endurbætur
á eldri húsum, unnið við innanhúss-
hönnun, hannað húsgögn og innrétt-
að heimili, veitingastað og hár-
greiðslustofu.
Allar spurningar og öll svör eru
svo birt á iav.is og flokkuð niður í
ákveðna flokka eins og eldhús, bað-
herbergi, gluggar og gardínur, litir
o.s.frv. Þannig geta þeir sem eru að
breyta og bæta heima hjá sér fengið
svör við þeim spurningum sem upp
kunna að koma,“ segir í fréttatil-
kynningu frá ÍAV.
Frí ráðgjöf
arkitekts
FIMMTA málþing Rannsóknar-
stofnunar Kennaraháskóla Íslands
verður haldið 12. og 13. október nk.
Föstudaginn 12. október kl. 16.15
verður þingið sett í sal Sjómanna-
skóla Íslands. Þá heldur Jörgen
Pind, prófessor við Háskóla Íslands,
inngangsfyrirlestur sem hann nefn-
ir: Lestur, mál og skynjun: Hverju
breyta nýlegar heilarannsóknir fyrir
kennara? Laugardaginn 13. október
verða í boði málstofur í húsnæði
Kennaraháskóla Íslands við Stakka-
hlíð frá kl. 9 til 16.30. Skráning hefst
kl. 8.30. Að þinginu standa Kenn-
araháskóli Íslands, fulltrúi á vegum
Evrópska tungumálaársins, Félag
íslenskra leikskólakennara, Félag
grunnskólakennara, Félag fram-
haldsskólakennara, Félag tónlistar-
skólakennara, Íþróttakennarafélag
Íslands, Félag framhaldsskóla,
Grunnur – samtök forstöðumanna
skólaskrifstofa, menntamálaráðu-
neytið, Fræðslumiðstöð Reykjavík-
ur, Leikskólar Reykjavíkur, Þroska-
þjálfafélag Íslands og Rannsóknar-
stofnun KHÍ.
Málþing um
rannsóknir,
nýbreytni og þróun
„NÝ dögun, samtök um sorg og
sorgarviðbrögð, stendur fyrir opnu
húsi í kvöld, fimmtudag kl. 20-22 í
Safnaðarheimili Háteigskirkju, 2.
hæð (gengið er inn frá bílastæðunum
við Sjómannaskólann). Áhersla er
lögð á úrvinnslu sorgar í gegn um
samtal og slökun. Allir syrgjendur
eru velkomnir og engrar kunnáttu
krafist. Sr. María Ágústsdóttir, for-
maður félagsins, leiðir samveruna,“
segir í fréttatilkynningu.
Samtal um sorg
LÆKNAFÉLAG Reykjavíkur
fjallar um streitu og þunglyndi í
þessari viku. Ólafur Þór Ævarsson
geðlæknir heldur erindi og svarar
fyrirspurnum í kvöld, fimmtudags-
kvöld, kl. 20 í húsnæði læknasamtak-
anna (á 4. hæð), Hlíðasmára 8 í
Kópavogi.
Aðgangur er ókeypis og allir vel-
komnir.
Streita og þunglyndi
SJÁLFSBJÖRG eflir til fjáröflunar
um land allt dagana 11.–14. október.
Seldar verða rúðusköfur með merki
og nafni Sjálfsbjargar og kostar
stykkið kr. 500.
Allur ágóði rennur til uppbygging-
ar á starfi aðildarfélaga Sjálfsbjarg-
ar víða um land.
Sjálfsbjörg selur
rúðusköfur
AÐALFUNDUR Skógræktarfélags
Íslands, sem haldinn var í Reykja-
vík
24.–26. ágúst 2001, samþykkti
einróma að ástæða væri til þess að
vekja athygli á mjög rausnarlegum
framlögum Umhverfissjóðs verslun-
arinnar til styrktar starfsemi skóg-
ræktarfélaga undanfarin ár.
„Stuðningur Umhverfissjóðsins
hefur m.a. auðveldað skógræktar-
félögunum að bæta aðstöðu fyrir al-
menning til að njóta útivistar í
skógræktarreitum félaganna.
Umhverfissjóður verslunarinnar
hefur frá árinu 1996 úthlutað
styrkjum í ýmiss konar verkefni í
skógrækt á vegum aðildarfélaga
Skógræktarfélags Íslands, samtals
um 34 milljónum. Auk þessara fjár-
muna hefur sjóðurinn einnig veitt
styrki ýmsum öðrum samtökum og
aðilum sem vinna að skógrækt og
uppgræðslu. Fé til ráðstöfunar í
umhverfissjóð verslunarinnar kem-
ur af gjaldi sem ákveðnar verslanir
í samtökum þeirra innheimta af
plastburðarpokum,“ segir í frétta-
tilkynningu.
Umhverfissjóður
styður skógrækt
LANDVERND og Umhverfisstofn-
un Háskóla Íslands standa fyrir
málstofu í dag, fimmtudag 11. októ-
ber, kl. 16 í Ráðhúsi Reykjavíkur,
þar sem skipulag og umhverfismál
á höfuðborgarsvæðinu verða til um-
ræðu.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
borgarstjóri í Reykjavík, verður
frummælandi á fundinum en auk
hennar mun Fríða Björk Ingvars-
dóttir, blaðamaður á Morgun-
blaðinu, flytja erindi. Hafdís Haf-
liðadóttir, skipulagsstjóri í
Hafnarfirði, Jóhann Sigurjónsson,
bæjarstjóri í Mosfellsbæ, og Jó-
hann J. Ólafsson, formaður Sam-
taka um betri byggð, munu síðan
sitja í pallborði ásamt Ingibjörgu
Sólrúnu og Fríðu Björk.
Umhverfi og skipu-
lag í höfuðborg
Röng höfundarkynning
Héðinn Unnsteinsson ritaði grein í
blaðið í gær í tilefni af alþjóðlegum
geðheilbrigðisdegi. Hann var rangt
kynntur undir greininni, en hið rétta
er að höfundur er verkefnisstjóri
Geðræktar.
Morgunblaðið biðst velvirðingar á
mistökunum.
Rangt föðurnafn
Í aldarminningu um Magneu Dag-
mar Þórðardóttur á blaðsíðu 43 í
Morgunblaðinu í gær, miðvikudag-
inn 10. október, er rangt farið með
föðurnafn hennar í fyrirsögn. Er
beðist velvirðingar á þessum mistök-
um.
LEIÐRÉTT