Morgunblaðið - 11.10.2001, Qupperneq 58
DAGBÓK
58 FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI hefur tvisvar eðaþrisvar farið með fjölskyldu
sinni í keilu í Keiluhöllinni í Öskju-
hlíð. Keila er skemmtileg fjölskyldu-
íþrótt sem ungir jafnt sem gamlir
geta haft gaman af að iðka. Að flestu
leyti býður Keiluhöllin upp á góða
aðstöðu fyrir áhugafólk um keilu-
íþróttina. Nýlega er t.d. búið að bæta
tækjabúnaðinn þannig að stig eru nú
skráð sjálfvirkt inn á tölvuskjá.
Það er hins vegar eitt sem Vík-
verji á mjög erfitt með að sætta sig
við og skilja og það er hvers vegna
forráðamenn Keiluhallarinnar kjósa
að spila háværa tónlist í keilusalnum.
Víkverji kom í höllina um síðustu
helgi og ofbauð alveg hávaðinn í tón-
listinni. Fólk átti bókstaflega erfitt
með að halda uppi samræðum í saln-
um sökum hávaða.
Víkverji á erfitt með að trúa því að
viðskiptavinir Keiluhallarinnar kalli
eftir þessum hávaða. Ef svo er vakn-
ar sú spurning hvort ekki er hægt að
skipta salnum þannig að slökkt sé á
hátölurum í hluta salarins. Þannig
væri hægt að gefa þeim hluta hóps-
ins sem kýs að iðka þessa íþrótt í
heldur þægilegra andrúmslofti
möguleika á að njóta leiksins. Á því
er full þörf.
x x x
MIKIÐ hefur verið fjallað um les-blindu í fjölmiðlum að undan-
förnu. M.a. hefur fram komið að bið-
tími eftir greiningu er langur. Ekki
er víst að allir geri sér grein fyrir
þeim miklu erfiðleikum sem þeir
sem eiga við lesblindu að stríða
standa frammi fyrir. Lestur er lyk-
ilatriði í öllu námi og því bitna lestr-
arerfiðleikar óhjákvæmilega al-
mennt á námsárangri. Einhver
kynni að segja að þetta ætti þó alla-
vega ekki við um stærðfræði þar sem
lítið væri unnið með skrifaðan texta.
Víkverji sá nýlega samræmt próf
sem lagt var fyrir 4. bekk í stærð-
fræði í fyrra. Það kom honum mjög á
óvart að meirihluti prófsins byggðist
á lesdæmum. Í sjálfu sér voru dæm-
in ágæt, en þau byggðust greinilega
á þeirri hugsun að nemandinn ætti
að finna leiðir til að komast að nið-
urstöðu. Mjög mörg dæmi gengu út
á að nemandinn átti sjálfur að finna
út hvort hann ætti að beita samlagn-
ingu, frádrætti, margföldun eða deil-
ingu. Til að einhver von væri um góð-
an árangur á prófinu var augljóst að
lykilatriði var að nemandinn væri vel
læs og skildi spurningarnar. Vík-
verja sýndist augljóst að þeir sem
eiga við lesblindu að stríða hlytu að
eiga í miklum erfiðleikum með að ná
góðum árangri á þessu prófi þó að
stærðfræðikunnátta þeirra væri góð.
x x x
VÍKVERJI minnist þess þegarhann var sjálfur í barnaskóla að
fást við stærðfræðipróf. Þessi próf
byggðust að langstærstum hluta á
endalausum tölum. Nemandi sem
ekki kunni stakt orð í íslensku hefði
auðveldlega getað náð ágætis ár-
angri á þessum prófum. Þróunin á
seinni árum hefur greinilega ekki
verið lesblindum hagstæð að þessu
leyti. Þar með er Víkverji ekki að
segja að stærðfræðikennslan hafi
ekki tekið jákvæðum framförum.
Full þörf hefur örugglega verið á að
kenna nemendum að nýta stærð-
fræðikunnáttuna betur og benda
þeim á að fólk er stöðugt að nota
hana í daglegu lífi. En menn mega
ekki gleyma þörfum lesblindra.
Það er svo
undarlegt
SJÚKRALIÐI skrifaði op-
ið bréf til fjármálaráðherra
í Morgunblaðinu 4. október
sl. Svo sannarlega tek ég
undir þá lesningu en um
leið hryggir það mig að
gegnum árin hef ég aldrei
lesið grein launþega nema
fyrir hans eigin stétt. Und-
irrituð er ein af lægstu
silkihúfum metorðastigans,
umönnun aldraðra á nætur-
vöktum sl. 15 ár meðal ann-
arra verka, og er búin að fá
skömm á þessu. Nóg með
það. Ég skil vel samninga-
nefnd ríkisins, króna fyrir
krónu, safnast þegar sam-
an kemur frá láglaunafólk-
inu. Allt í hirslu merkja-
fólksins sem er með
lúkurnar í óteljandi ráðum
og nefndum og getur slegið
upp milljóna afmælisveislu
með tilheyrandi leikhús-
fólki og hljómsveitum.
Guðrún Jacobsen.
Blaðberar
ÉG vil einfaldlega vara fólk
við því að gerast blaðberar
hjá Fréttablaðinu því þar
eru launin afar léleg miðað
við mikla vinnu.
Guðrún Egilsdóttir.
Tapað/fundið
Svartur jakki týndist
SVARTUR Vera Moda
jakki, síður, týndist á Gauki
á Stöng sl. föstudag. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 866 4498.
Úlpa týndist
í Biskupstungum
UPPÁHALDS úlpan mín
týndist er ég var í sumar-
húsi Rafiðnaðarsamband-
ins 15. sept. sl. Úlpan er
gulbrún með svörtum
skinnkanti. Einnig er
möguleiki að hún hafi týnst
við Úthlíð í Biskupstung-
um. Ég sakna hennar sár-
lega. Ef einhver hefur
fundið hana mundi það
gleðja mig mikið. Vinsam-
legast hafið samband við
Guðbjörgu í síma 554 4674.
Hjól í óskilum
HJÓL er í óskilum við Sól-
vallagötu 22. Eigandi getur
vitjað þess á staðnum.
Dýrahald
Hefur einhver séð
Litlu-Mísku?
SVÖRT og hvít læða týnd-
ist frá horni Njálsgötu og
Snorrabrautar sl. laugar-
dag. Hún var ómerkt og ól-
arlaus. Þeir sem hafa orðið
varir við hana hafi samband
í síma 681 4619 eða
698 4619.
Páfagaukur týndist
PÁFAGAUKUR, hvítur,
týndist frá Langholtsvegi
sl. mánudag. Þeir sem hafa
orðið hans varir hafi sam-
band í síma 553 7184.
Kettlingur fæst gefins
5 MÁNAÐA mjög falleg
læða, blíð og góð, óskar eft-
ir góðu heimili. Á sama stað
vantar kanínubúr og
hamsturbúr ef einhver þarf
að losna við svoleiðis. Upp-
lýsingar í síma 866 1311.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Koei
Maru no 58 og Mána-
foss koma í dag. Detti-
foss, Helgafell, Ak-
ureyrin og Shoshin
Maru fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Svanur, Tönsnes, Ven-
us og Obsa komu í
gær. Eversmeer fór í
gær.
Fréttir
Kattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl
2, opinn þriðjud. og
fimmtud. kl. 14–17.
Félag frímerkjasafn-
ara. Opið hús laug-
ardaga kl. 13.30–17.
Mannamót
Aflagrandi 40. Vinnu-
stofa kl. 9, boccia kl. 10,
kl. 13 bað, vinnustofa
og myndmennt.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta, opin
handavinnustofan, bók-
band og öskjugerð, kl.
9.45–10 helgistund, kl.
10.15 leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 13–16.30 opin
smíðastofan, kl. 10–16
púttvöllur opinn.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–
9.45 leikfimi, kl. 9–16
handavinna, kl. 14–15
dans. Helgistund kl. 10.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðju- og fimmtudög-
um kl. 13–16.30, spil og
föndur. Jóga á föstu-
dögum kl. 13.30. Kóræf-
ingar hjá Vorboðum,
kór eldri borgara í
Mosfellsbæ á Hlað-
hömrum fimmtudaga kl.
17–19.
Félagsstarfið, Furu-
gerði 1. Kl. 9 smíðar,
útskurður, glerskurður
og leirmunagerð. Ath.
enn eru laus pláss á
leirmuna- og glerskurð-
arnámskeiðin, kl. 9.45
verslunarferð í Aust-
urver, kl. 13.30 boccia.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Kl. 9–
13 handavinnustofan
opin, kl. 9.30 dans-
kennsla, kl. 14.30 söng-
stund.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Fimmtud. kl.
9.45 boccia, kl. 10 ker-
amik. Snyrtinámskeið
kl. 9. Spænska kl. 12.15.
Vinnuhópur 2 í gleri.
Leshringur á Bókasafni
Álftanesi byrjar 10. okt.
kl. 15. Föstudagur: Jap-
anskur pennasaumur –
nokkur pláss laus.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga frá kl.
10–13. Kaffi, blöðin og
matur í hádegi.
Fimmtudagur: Brids kl.
13. Framsögn kl. 16.15.
Félagsvist 4ra daga
keppni annan hvern
sunnudag, hefst sunnu-
daginn 14. október kl.
13.30. Baldvin Tryggva-
son verður til viðtals
um fjármál og leiðbein-
ingar um þau mál á
skrifstofu FEB 25.
október nk. kl. 10.30–
11.30, panta þarf tíma.
Silfurlínan er opin á
mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10–
12. Skrifstofa félagsins
er flutt að Faxafeni 12,
sama símanúmer og áð-
ur. Félagsstarfið er
áfram í Ásgarði,
Glæsibæ. Upplýsingar á
skrifstofu FEB
kl. 10–16 í s. 588-2111.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 11
leikfimi, kl. 13 föndur
og handavinna.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Krukkumálun kl. 13 og
kynning á glerskurði.
Á morgun myndlist kl.
13, bridge kl. 13.30 og
pútt á vellinum við
Hrafnistu.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
glerskurður, kl. 10 leik-
fimi, kl. 15.15 dans. Op-
ið alla sunnudaga frá kl.
14–16 blöðin og kaffi.
Gerðuberg, félagsstarf.
Sund- og leikfimiæf-
ingar í Breiðholtslaug
kl. 9.30, kl. 10.30 helgi-
stund, umsjón Lilja G.
Hallgrímsdóttir djákni,
frá hádegi vinnustofur
og spilasalur opinn,
myndlistarsýning Val-
garðs Jörgensen stend-
ur yfir, listamaðurinn
er á staðnum, veitingar
í veitingabúð Gerðu-
bergs. „Kátir dagar,
kátt fólk“: Föstudaginn
12. okt. kl. 19 haust-
fagnaður á Hótel Sögu,
miðar til sölu hjá fé-
lagsstarfinu. Allar upp-
lýsingar á staðnum og í
síma 757-7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnnustofan op-
in, kl. 9.30 klippimynd-
ir, taumálun, kl. 9, kl.
9.05 og 9.50 leikfimi., kl.
13 gler- og postulíns-
málun, kl. 16.20 og kl.
17.15 kínversk leikfimi.
Dansað í kvöld frá kl.
20–22, Sigvaldi stjórnar.
Fjölskyldudagur í Gjá-
bakka laugardaginn 13.
okt kl. 14. Söngur, dans
óvæntar uppákomur,
vöfflukaffi. Allir vel-
komnir.
Gullsmári, Gullsmára
13. Postulínsmálun kl.
9.15, jóga, kl. 9.05
brids, kl. 13. handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum,
línudans kl. 17. Föstu-
daginn 12. október
syngja Gleðigjafarnir
inn í haustið frá kl. 14–
15. Kaffihlaðborð, heitt
súkkulaði með þeyttum
rjóma. Handverksmark-
aður verður frá kl. 13.
Margt góðra muna. All-
ir velkomnir.
Hraunbær 105. Kl. 9
opin vinnustofa, búta-
saumur, kortagerð og
perlusaumur, kl. 9.45
boccia, kl. 14 félagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun og bútasaumur,
kl. 10 boccia, kl. 13 fjöl-
breytt handavinna, kl.
14 félagsvist. Hársnyrt-
ing og fótsnyrting.
Norðurbrún 1. Kl. 9
tréskurður og opin
vinnustofa, kl. 10–11
ganga, kl. 10–15 leir-
munanámskeið.
Vesturgata 7. Kl. 9
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12 að-
stoð við böðun, kl. 9.15,
handavinna, kl. 10
boccia. Í dag, fimmtu-
daginn 11. október,
verður Þjónustu-
miðstöðin lokuð frá kl.
13 vegna undirbúnings
haustfagnaðar sem
hefst kl. 17.30. Föstu-
daginn 12. okt. kl. 15
verður Valdís frá Úr-
vali-Útsýn með kynn-
ingu á ferðum til Kan-
aríeyja, dregið verður
um ferðavinninga, 2
fyrir 1. Dansað við
lagaval Sigvalda,
rjómaterta með kaffinu,
allir velkomnir. Söng-
fuglar, kór félagsstarfs
aldraðra, Reykjavík,
verða með söng-
skemmtun, í tilefni 15
ára afmælis kórsins.
Sunnudaginn 14. októ-
ber kl. 15.30 í Ráðhús-
inu. Allir velkomnir.
Vitatorg. Kl. 9 smíði,
kl. 9.30 glerskurður og
morgunstund, kl. 10
boccia, kl. 13 hand-
mennt og frjálst spil, kl.
14. leikfimi, kl. 20 fé-
lagsvist. Haustfagnaður
verður 18. október kl.
19. Fjölbreytt dagskrá,
söngur, gamanmál og
gleði. Lukkuvinningur.
Skráning og upplýs-
ingar í síma 561-0300.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.15 í Digra-
neskirkju.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids í
Gullsmára 13 mánudaga
og fimmtudaga. Skrán-
ing kl. 12.45. Spil hefst
kl. 13.
Ga-fundir spilafíkla kl.
20.30 á fimmtud. í
fræðsludeild SÁÁ, Síðu-
múla 3–5, og í Kirkju
Óháða safnaðarins við
Háteigsveg á laugard.
kl. 10.30.
Sjálfboðamiðstöð
Rauða krossins, Hverf-
isgötu 105: Í dag kl. 13–
16 er prjónað fyrir
hjálparþurfi erlendis.
Efni á staðnum. Allir
velkomnir.
Kvenfélag Kópavogs,
fundur í kvöld kl. 20.30
í Hamraborg 10. Anna
Guðmundsdóttir kynnir
íslenskar húðvernd-
arvörur fyrir alla fjöl-
skylduna.
Úrvalsfólk. Haust-
fagnaður verður á Hót-
el Sögu, Súlnasal,
föstud. 19. okt. kl. 19.
Matur, tískusýning,
skemmtiatriði, aðgöngu-
miðar seldir hjá Reb-
ekku og Valdísi, s. 585-
4000.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra, leik-
fimi kl. 11 í Ásgarði,
Gæsibæ.
Kristniboðsfélag
kvenna, Háaleitisbraut
58–60. Biblíulestur í
umsjá Benedikts Arn-
kelssonar. Fundurinn
hefst kl. 17. Allar konur
velkomnar.
Í dag er fimmtudagur 11. október,
284. dagur ársins 2001. Orð dagsins:
Ofmetnaður hjartans er undan-
fari falls, en auðmýkt er undan-
fari virðingar.
(Orðskv. 18, 12.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 mjög lítill, 8 skinnkápu,
9 megnar, 10 nóa, 11
gyðja, 13 dý, 15 örgrunn-
ur hellir, 18 ausa, 21 fugl,
22 sori, 23 mannsnafn, 24
flekkaðir.
LÓÐRÉTT:
2 borguðu, 3 kvenfuglinn,
4 rúmbrík, 5 mannsnafn,
6 styrki, 7 hafa fyrir satt,
12 hef not af, 14 bókstaf-
ur, 15 frásögn, 16
óhreinka, 17 vondur, 18
sýkja, 19 gæðablóði, 20
digur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 lögur, 4 fipar, 7 vitur, 8 rosti, 9 tek, 11 synd, 13
urga, 14 Íslam, 15 bull, 17 ljón, 20 und, 22 kopar, 23 rós-
in, 24 raupa, 25 plata.
Lóðrétt: 1 lævís, 2 gætin, 3 rýrt, 4 fork, 5 posar, 6 reiða,
10 ellin, 12 díl, 13 uml, 15 búkur, 16 loppu, 18 jaska, 19
nenna, 20 urta, 21 dráp.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
HAFIÐ þið fylgst með
launasamningum sjúkra-
liða? Það hef ég gert, en
þegar samningarnir
runnu út var ég einu ári
yngri en nú. Hvað er að
ríkinu? Viljið þið lenda í
slysi, mæta svo á slysó
og ekki geta fengið
meðhöndlun einungis
vegna þess að ríkið vill
ekki gefa einhverju mik-
ilvægasta fólkinu í al-
mennri heilbrigðisþjón-
ustu mannsæmandi
laun.
Ég tók mig til og
skoðaði laun móður
minnar sem er sjúkraliði
og bróður míns sem er
17 ára og vann hjá
vegavinnunni. Þar sá ég
að meðallaun bróður
míns eru hærri en móð-
ur minnar sem er með
31 árs starfsreynslu.
Ekki held ég að
launasemjendur ríkisins
yrðu glaðir ef þeir yrðu
settir á sömu launakjör
og sjúkraliðar.
Á meðan laun hjá
sjúkraliðum eru sama
og engin og samningar í
lausu lofti get ég ekki
fundið marga sem
myndu láta sér detta í
hug að læra sjúkralið-
ann. Það getur verið að
ykkur finnist þetta ein-
ungis leiðinlegt kvein í
unglingi, en ég spyr:
Mynduð þið vilja vera í
sömu sporum og sjúkra-
liðar?
Mér finnst illa farið
með það fólk sem er í
þeim stöðum sem heldur
okkar kæra landi á lífi.
Það er að segja lögregl-
una, slökkviliðið, sjúkra-
liða o.fl.
Ímyndið ykkur ef allir
þessir aðilar myndu fara
í verkfall eða segja upp.
Ég held að þá myndi
landið okkar kæra lam-
ast.
Tinna Berg Petersen,
15 ára.
Hugleiðingar um verkfall sjúkraliða