Morgunblaðið - 11.10.2001, Side 61

Morgunblaðið - 11.10.2001, Side 61
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2001 61                                                                   !"#$  %" "&' """"(")" "*"+ )  %", "+- #$ "" " "./01) 2))& " "3%4"1$%&' %+")"5) 4++"*" % +" " 6"7$ "8 9"7$ 9":  &9";&* "< 9";&* "= 9"5> * ")"5 8   ?9"5> * ")"5"5$9"3 * "< 9"3 * "= "                             ;'   %# C      @%  3 %"A "8")0 @%  "B !"5$"3$ = ". 3& ) 3 "  % B)C " ) 7)4" 5/"B 7' 8/"< D%%  <"5)  ) = @%  5  #  E "21 8)%/"< "  % :'+ "#)  #)"8%) F)"31& ; "=)&C 3)  .)GH" #)I/ D)  J1"= !53 :4"#1) K)0 7 "1"// 7";) E " B)C J1)" L =)"8"#1  #1"K F & 3) "K"8 5   )"8 F .)GH" A"A "3%% #1"K 4"7 3 ) D1" )0 A"7)1"J1"8"#1) M = 3"="B 8"5/7N )")/""%"  ;"=) 3)  NK "#1 "K                  .)GH 3) .)GH J 3&) J D)  J O  P5K O  3) 3) 3%   75B O  P5K 75B O  .)GH # "5 3) 3) P5K O  A  J 3) 3) 75B    Bris – Bris „Á heildina litið þokkalegasti frum- burður og greinilegt að sveitin hefur færi á að þróa sig betur og þroska eftir að agnúarnir hafa verið sneidd- ir burt.“ (AET) Betrefi – The Flop Syndrome „Hljóðfæraleikur er ágætlega þéttur og hljómur hæfilega hrár... Strák- arnir eru að skemmta sér, rokka bara og róla og ferst það ágætlega úr hendi.“ (AET) Björk – Vespertine „Neistinn, krafturinn, lífið; sem um- vefur mörg af hennar fyrri verkum er óþægilega fjarri ... Leiðin sem farin er á þessari plötu er virðing- arverð; kannski líka skiljanleg en þrátt fyrir allt ekki nægilega vel út- færð að mínu mati.“ (AET) Kanga – Asante „Í raun er Asante tvær plötur; ann- ars vegar plata með afrískum trúar- söngvum í vestrænum búningi og síðan plata með vestrænum sálm- um.“ (ÁM) Kristján Hreinsson – Í stuði með guði „... Ég get því ekki spáð Í stuði með Guði langri og farsælli vegferð. Kristján þarf að gefa sér meiri tíma fyrir næstu útgáfu en umfram allt þarf hann að gefa meira af sjálfum sér.“ (HS) Lúna – Leyfðu mér að þegja þögn þinni „Lúna má vera stolt af þessari fyrstu og vonandi ekki síðustu út- gáfu sinni og þó ég leggi ekki í vana minn að verðleggja hljómplötur með stjörnum held ég þó að óhætt sé að gefa Lúna nokkur full tungl.“ (HS) múm – Please Smile My Noise Bleed „Please Smile My Noise Bleed er áhugavert verk og þeytivindur Þjóð- verjanna margar athyglisverðar. Sigurvegarinn hér er þó aftur á móti múm sjálf og greinilegt að það hefur verið fallegt á Galtarvita í sumar.“ (AET) múm – Remixed „Blöndurnar hér eru misjafnar eins og gengur og gerist en bæta sjaldn- ast nokkru við eða veita manni nýja sýn á annars ágætar grunn- uppspretturnar ... platan ætti a.m.k. að vera forvitnileg áhugamönnum um tónlist múm og jafnvel líka al- mennum raftónlistarpælurum.“ (AET) Sigtryggur Berg Sigmarsson – SHIP „Þetta er umhverfishljóðlist á þann hátt að Sigtryggur virkjar hlustand- ann (umhverfið) til að gefa verkinu merkingu ... Sú afstaða sem maður tekur skilgreinir því verkið og gerir það þar af leiðandi huglægara en gengur og gerist með tónlist.“ (HS) Salomon Kubl – 003 „... flest lögin bæði forvitnileg og spennandi og bera skapandi hugsun vitni. 003 er því á heildina litið vel heppnað og ánægjulegt ferðalag í út- nára samtímaraftónlistar.“ (AET) Siggi Ármann – Mindscape „Mindscape hefur, þrátt fyrir allt, margt gott að geyma ... Nokkur byrjendabragur er á plötunni í heild en með frekari tóniðkunum og áframhaldandi plötugerð ætti gott eitt að vera í vændum.“ (OH) Svenni Björgvins & Co. – Spilafíkillinn „Hér er um að ræða látlausa afurð; grandleysislegt og stælalaust al- þýðupopp ... þó fyrst og síðast sak- leysislegt og sómakært verk sem vex í áliti með hverri spilun.“ (AET) Arnar Eggert Thoroddsen Árni Matthíasson Heimir Snorrason Orri Harðarson GÓÐAR HLJÓMPLÖTUR ÞAÐ er pottþétt mál að þegar ný Pottþétt- plata kem- ur á mark- aðinn skýst hún á leifturhraða upp í hásæti Tónlistans. Þessa vikuna heldur platan krúnunni en þessi vin- sæla safnplöturöð hefur þjónustað þeim sem vilja vita hvað í gangi er í dægurtónlist- arheimum í árafjöld. Að venju skreyta íslenskir listamenn útgáfuna að einhverju leyti og eru Í svörtum fötum, Á móti sól og Rakel Sif Sigurð- ardóttir fulltrúar Frónsins í þetta sinnið. Af er- lendum listamönnum sem diskinn prýða má nefna Robbie Williams, U2, R.E.M., NSYNC, Fatboy Slim, Daft Punk og Destiny’s Child. Þétt á poppinu! ÞAÐ eru nú meiri lætin í henni Dido blessaðri þessa vikuna. Hnátan vill engan veginn sætta sig við sæti eins og það 42. og tekur undir sig tilhaup og hoppar alla leiðina í 18. sætið, takk fyrir. Plata hennar sem hér um ræðir, No Angel, kom upp- runalega út árið 1999 og virtist ætla að safna ryki í bakher- bergjum plötubúðanna stuttu eftir útgáfu. En þá tók rapparinn gríð- arvinsæli, Eminem, sig til og notaði bút af plötunni í hinu feiki- vinsæla lagi „Stan“. Eft- ir það tók salan á No Angel heldur en ekki kipp og hefur runnið út eins og heitar lummur æ síðan. Já, ævintýrin gerast svo sannarlega enn. Englarödd! ÞAÐ mætti segja okkur hér á Fólki í fréttum að rauði dregillinn hefði verið dreginn út fyrir inngöngu Kylie Minogue á Tónlistann. Og örugg gekk þessi ástralska poppdíva inn á listann sína fyrstu viku, með nýja plötu sína Fever undir arminum, og settist hæglátlega í 17. sætið. Kylie man tímana tvenna í poppheimum, byrj- aði sem hálfgildings barnastjarna árið 1988 en þessi nýjasta afurð hennar er áttunda breið- skífa söngkonunnar, hvorki meira né minna. Við tökum því hæversklega ofan fyrir áströlsku prinsessunni og bjóðum hana velkomna í ríki- dæmi Tónlistans. Poppdrottning! ÞEIR ætla að verða þaulsætnir á listanum, Kálhorníu- rokkararnir í Linkin Park. Plata þeirra Hy- brid Park, sem er þeirra fyrsta, er nú búin að vera í 31 viku á lista og telst því víst vera öldungur Tónlist- ans þessa vikuna. Glúrin samsuða Linkin Park á rokki Korn og Limp Bizkit, þar sem áhrifum úr rokki og rappi er smekklega hrært saman, virðist ganga vel í rokkvænan Íslandslýð og hafa lög eins og „One Step Closer“ og „Papercut“ hljómað ótt og títt á öldum ljósvakans að undanförnu. Hvað get- ur maður sagt? Meira rokk! Blöndunarkenningin!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.