Morgunblaðið - 11.10.2001, Síða 65

Morgunblaðið - 11.10.2001, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2001 65 Það var margt um manninn á þessari tvö- földu opnun og mál manna að galleríið væri velkomið í reykvískan heim myndlist- arinnar. Nýja galleríið er sannkallað fjöl- skyldugallerí því það er rekið af mæðgunum Hönnu Gunnarsdóttur og Önnu Jóa. Markmið Gallerís Skugga er að skapa lif- andi og metnaðarfullan vettvang til sýn- ingahalds innlendra og erlendra myndlist- armanna. Galleríið er á Hverfisgötu 39 í miðborg Reykjavíkur og mun auk sýning- arhalds standa fyrir ýmsum uppákomum er tengjast listsköpun í víðasta skilningi orðs- ins. Í hverjum mánuði munu aðstandendur Skugga t.a.m. miðla áhugasömum gestum merkri skáldsögu úr bókmenntasögunni eða samtímaumræðunni og áhugaverðri kvik- mynd úr hefðarbrunni kvikmyndanna. Sýningin „Hver með sínu nefi!“ stendur til 21. október. Galleríið er opið milli klukk- an 13 og 17 frá þriðjudegi til sunnudags. Nýtt gallerí opnað við Hverfisgötu í Reykjavík Galleríið er á tveimur hæðum og var húsfyllir á þeim báðum! Hanna Gunn- arsdóttir eig- andi og Anna Jóa umsjón- armaður. Skuggalegt gallerí Morgunblaðið/Árni Sæberg Gallerí hafa löngum verið kærkominn samkomustað- ur listamanna: Hér ræða Sjón og Þorri Hringson málin undir sex augu. ÞAÐ sætir ætíð tíðindum í íslensku menningarlífi þegar nýtt gallerí hefur göngu sína. Gallerí Skuggi var formlega opnað á laugardaginn með sýning- unni Hver með sínu nefi! þar sem þau sýna verk sín Akusa, Birgir Andr- ésson, Guðmundur Oddur og Lilja Björk. SUNNUDAGINN 14. október næstkomandi verður Siglfirðingafélagið, áttahagafélag Siglufjarðar í Reykjavík og nágrenni, 40 ára. Af því tilefni verður slegið upp helj- arinnar afmælisveislu á laugardagskvöld- inu á Hótel Sögu og „fagnað gífurlega á miðnætti þegar sá 14. rennur í hlað,“ eins og Jón Sæmundur Sigurjónsson, einn af skipuleggjendum kvöldsins, orðar það. Jón segir að í raun liggi rík hefð að baki því að félagið hafi verið stofnað á sínum tíma. „Siglufjörður byggðist upp í kringum aldamótin 1900 af fólki sem kom alls staðar að af landinu,“ útskýrir Jón. „Þannig að það eru fæstir að stofni til Siglfirðingar langt aftur í aldir. Allir þessir hópar stofnuðu með sér átthagafélög á Siglufirði. Við ólumst upp við það að það var til Skagfirðinga- félag, Eyfirðingafélag, Þingeyingafélög, Austfirðingafélag o.s.frv. Lífið á vetrum var þannig að það voru árshátíðir þessara fé- laga fram eftir öllu og alltaf sama fólkið, en ekki alltaf þeir sömu sem buðu (hlær).“ Jón segir starfið í félaginu mátulega líf- legt. „Við erum með fasta dagskrá á hverj- um vetri. Árshátíðir, sem nú er afmæl- ishátíð, á haustin höldum við upp á Siglufjarðardaginn með miklu kaffisamsæti og síðan erum við með barnaball á milli jóla og nýárs fyrir þessa allra yngstu. Starfið svona snýst í kringum þessar uppákomur og svo gefum við út fréttablað sem prentað er í 2000 eintaka upplagi.“ Dagskrá kvöldsins verður ann- ars með þeim hætti að byrjað verður með glæsilegum kvöld- verði kl. 20.00. Svo taka við skemmtiatriði; Jóhannes eft- irherma treður upp, Siglórevía verður flutt undir stjórn Valgeirs Skagfjörð og svo koma Þorvaldur Halldórsson og son- ur og halda uppi skemmtan. Dansað verður svo fram á nótt með hljómsveitinni Saga Klass. Heiðursgestur kvöldsins verður for- seti Íslands. Siglfirðingafélagið 40 ára Siglóstemmning á Sögu Þorvaldur Halldórsson Valgeir Skagfjörð Sýnd kl. 4. Íslenskt tal. Vit 265. Sýnd kl. 4. Íslenskt tal. Vit 245 Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit 268  Kvikmyndir.com  Rás 2  Mbl Sýnd kl. 3.40, 5.45, 8 og 10.10. Vit 281 Sýnd kl. 6 og 10. B. i. 12. Vit 270 Í leikstjórn Steven Spielberg  Radíó X  HK DV  Kvikmyndir.is Kvikmyndir.com  Mbl FRUMSÝNING Ótrúlegar tæknibrellur, brjáluð spenna og veisla fyrir augu og eyru. Þú hefur aldrei séð annað eins. Sýnd kl. 6. Ísl tal. Vit 265. DV Strik.is strik.is kvikmyndir.isSýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 12. Vit 273 Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit nr. 278 Allir vilja þeir sneið af „glæpakökunni“ Nýjasta snilldar- verkið frá meistaranum Woody Allen. Með hreint út sagt úrvalsliði leikara: Hugh Grant , Tracey Ullman , Michael Rapaport og Jon Lovitz . Sýnd kl. 8 og 10.10. B i. 16. Vit 251  strik.is Mögnuð stuðmynd í nánast alla staði!  Kvikmyndir.is Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Beint á toppinn í USA www.skifan.is Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.  Tvíhöfði/Hugleikur  Hausverk.is  USA TODAY 1/2 NY POST  Kvikmyndir.com  RadioX Hollywood í hættu Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. Ertu tilbúin fyrir Jay og Silent Bob... því þeir eru gjörsamlega steiktir! Frá Kevin Smith, snillingnum sem gerði Clerks, Mallrats, Chasing Amy og Dogma kemur ein fyndnasta mynd ársins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.