Morgunblaðið - 18.10.2001, Page 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2001 13
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef-
ur dæmt rúmlega fertugan karlmann
í sex mánaða fangelsi en hann var
fundinn sekur um að skera þáverandi
eiginkonu sína í hægri fótlegg með
þeim afleiðingum að hún hlaut 15
sentimetra langt skurðsár. Maðurinn
var dæmdur til að greiða henni
250.000 krónur í bætur auk greiðslu
alls sakarkostnaðar, þ.m.t. 200.000
krónur í málsvarnarlaun verjanda
síns.
Að auki var hann dæmdur fyrir að
brjóta rúðu í bifreið og trampa á vél-
arhlíf hennar. Loks var hann sak-
felldur fyrir líkamsárás en hann ját-
aði að hafa slegið mann í andlitið þar
sem maðurinn stóð í dyragætt heim-
ilis síns. Öll brotin áttu sér stað í
mars og apríl í fyrra.
Maðurinn var ákærður fyrir að
hafa reynt að stinga þáverandi eig-
inkonu sína í brjóstið og slá hana með
krepptum hnefa í höfuðið. Hvorki
hún né hann mundu eftir þessu og
taldi dómurinn því að það væri ósann-
að og var maðurinn því sýknaður af
þeim lið ákærunnar.
Talinn með geðklofa með
ofsóknarhugmyndum
Fram kemur í dómnum að mað-
urinn veiktist árið 1980 og var þá tal-
inn með geðklofa með ofsóknarhug-
myndum. Hann hefur misnotað
vímuefni og hafði sjúkdómurinn mjög
versnað við það. Maðurinn gekkst
undir geðrannsókn og var talinn sak-
hæfur. Sjálfur sagðist maðurinn hafa
verið í annarlegu ástandi af völdum
lyfja „tengdum geðlyfjum“ þegar
hann skar konu sína í fótlegginn og
sagðist muna illa eftir atburðinum.
Maðurinn hefur hlotið fjóra refsi-
dóma fyrir skjalafals, þjófnað, hús-
brot, eignaspjöll og fyrir brot gegn
valdstjórninni. Síðast hlaut hann dóm
í janúar 1998, tveggja mánaða fang-
elsi fyrir húsbrot, eignaspjöll og
þjófnað. Frá árinu 1976 til ársins
1988 gekkst ákærði undir fjórar dóm-
sáttir fyrir fíkniefnbrot, nytjastuld og
umferðarlagabrot.
Guðjón St. Marteinsson, héraðs-
dómari, kvað upp dóminn. Sigríður J.
Friðjónsdóttir flutti málið fyrir hönd
ákæruvaldsins en Björn Ólafur Hall-
grímsson, hrl. var til varnar.
Skar eig-
inkonu
sína í fót-
legginn
Fangelsi fyrir
líkamsárás og fleira
Í TILLÖGU að starfsreglum fyr-
ir aukaverk sóknarpresta og
fermingarfræðslu, sem lögð hefur
verið fram á kirkjuþingi, er gert
ráð fyrir að greitt verði úr
Kristnisjóði fyrir aukaverk
presta, svo sem skírn, fermingu
og hjónavígslu, og að greitt verði
einnig sérstaklega úr sjóðnum
fyrir fermingarfræðslu til við-
komandi sóknarkirkju eða ann-
arrar stofnunar á vegum kirkj-
unnar.
Kæmu þessar greiðslur í stað
þeirrar þóknunar sem prestar
hafa yfirleitt innheimt hjá sókn-
arbörnum.
Tillagan var rædd á kirkjuþingi
í fyrradag og vísað til nefndar
áður en hún kemur til síðari
umræðu síðar á þinginu en því á
að ljúka um miðja næstu viku.
Í tillögunni, sem sr. Halldór
Gunnarsson leggur fram, er gert
ráð fyrir 2.000 kr. greiðslu fyrir
skírnarathöfn, sama gjaldi fyrir
fermingu en 4.000 kr. gjaldi fyrir
hjónavígslu. Þá yrðu greiddar
7.000 kr. fyrir fræðslu hvers
fermingarbarns. Eru þær svipað-
ar og greitt hefur verið sam-
kvæmt skrá um þessi prestsverk.
Í greinargerð segir að vitað sé
að nokkrar sóknir hafi þegar sam-
þykkt að greiða slíkan kostnað og
bent á að fríkirkjurnar greiði
hann án þátttöku frá meðlimum.
Áætlað er að kostnaðarauki vegna
tillögunnar sé um 30 milljónir
króna á ári vegna aukaverkanna
að viðbættum um 25 milljónum
vegna fermingarfræðslunnar.
Kristnisjóður
greiði fyrir
prestsverk
MARGIR bifreiðaeigendur fagna
bjartviðrisdögum eins og þeim sem
glatt hafa Sunnlendinga að und-
anförnu, og líta þá þvottaplön hýru
auga.
Þótt fyrsti vetrardagur nálgist
óðfluga voru fáir fyrirboðar um
kulda og dimmviðri í loftinu í gær
og fyrradag og gafst gott tækifæri
til að njóta útiveru um leið og
heimilisbíllinn var tekinn í gegn.
Skýjað verður með köflum í dag
og fer veður hlýnandi í framhald-
inu.
Spáð er bjartviðri á landinu
fram á sunnudag, að undanskilinni
súld við austurströndina á föstu-
dag og laugardag.
Bíllinn
bónaður
í veður-
blíðunni
Morgunblaðið/Kristinn
LEITAÐ hefur verið leiða til að
skjóta styrkari stoðum undir rekstur
Heilsustofnunar NLFÍ í Hveragerði,
m.a. með því að vera í samvinnu við
erlenda aðila varðandi fyrirhugaða
uppbyggingu stofnunarinnar, að
sögn Gunnlaugs K. Jónssonar, for-
seta Náttúrulækningafélags Íslands
og stjórnarformanns Heilsustofnun-
arinnar í Hveragerði.
Viðræður milli stofnunarinnar og
heilbriðgðisráðuneytisins standa yf-
ir, m.a. um fé til framkvæmda, og
vænst er niðurstöðu á næstu dögum.
Ennfremur óskaði stofnunin eftir
endurskoðun á þjónustusamningi um
rekstur stofnunarinnar í upphafi
þessa árs í ljósi reynslunnar á síðasta
ári.
Aðspurður hvort ríkið hafi staðið
við skuldbindingar sínar á grundvelli
gildandi samnings, segir Gunnlaugur
að uppi séu mismunandi sjónarmið
um hvernig túlka beri samninginn.
„Við erum í þeim sporum núna að
leysa þau mál og allt það ferli er
nokkuð eðlilegt, þótt það hafi kannski
gengið dálítið seint að okkar mati,“
segir Gunnlaugur „Við teljum okkur
hafa ákveðin rök fyrir því að það sé
full ástæða til að fara ofan í þessa
hluti í ljósi reynslunnar,“ bætir hann
við.
„Heilsustofnunin í Hveragerði er
ekki í eigu ríkisins heldur í eigu Nátt-
úrulækningafélags Íslands og það er
ýmislegt sem tengist þessu, bæði fé
til framkvæmda og annað sem menn
eru að ræða um. Ég hef þær vænt-
ingar, eins og ég held að viðsemjend-
ur okkar í ráðuneytinu hafi, að okkur
takist að leysa þessi mál fyrir
helgina,“ segir Gunnlaugur.
Á annað hundrað manns starfa á
stofnuninni í Hveragerði.
Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði
Reynt að skjóta styrkari
stoðum undir reksturinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði, en viðræður standa nú yfir
við heilbrigðisráðuneytið og er niðurstaðna að vænta fyrir helgi.
NÍU íslensk matvælafyrirtæki
munu kynna vörur sínar á íslenskri
matvælaviku í Kína dagana 27.
október til 2. nóvember næstkom-
andi. Matvælavikan er haldin í til-
efni af því að um þessar mundir eru
liðin þrjátíu ár frá því að stjórn-
málasamband var tekið upp milli
landanna tveggja.
Matvælavikan hefst á kynningu á
íslenskum matvælum á Radisson
SAS hótelinu í Peking og er hún
einkum ætluð völdum hópi við-
skiptavina frá hótelum og veit-
ingastöðum. Halldór Ásgrímsson ut-
anríkisráðherra verður viðstaddur
opnunina en dagana sem kynningin
er haldin verður hann í opinberri
heimsókn í Kína. Það er Íslensk-
kínverska viðskiptaráðið sem stend-
ur að matvælavikunni ásamt Við-
skiptaþjónustu utanríkisráðuneyt-
isins og Útflutningsráði Íslands.
Einnig verður opnuð ljósmyndasýn-
ing á myndum Páls Stefánssonar
ljósmyndara á Radisson hótelinu.
Þá mun kínversk óperusöngkona
syngja íslensk lög. Fyrirtækin sem
munu taka þátt í matvælavikunni
eru E. Ólafsson, sem kynnir graflax,
reyktan lax, grásleppukavíar og
þorskalifrarpaté, Fiskeldi Eyja-
fjarðar, er kynna mun eldislúðu,
Norðurís, sem kynnir bragðefni úr
humar, rækju og ufsa, Sameinaðir
útflytjendur kynna rækju, Sæbýli
býður upp á sæeyru, Jón Ásbjörns-
son býður saltfisk, Sláturfélag Suð-
urlands kynnir hangikjöt og lamba-
kjöt, Ora mun kynna síld, kavíar og
fyrirtækið Þórsbrunnur kynnir ís-
lenskt vatn.
Að sögn Stefáns Guðjónssonar
hjá Íslensk-kínverska viðskipta-
ráðinu, hafa sum þessara fyrirtækja
þegar haslað sér völl á kínverskum
markaði en hin eru að kynna sér
markaðinn.
Íslensk matvæli kynnt í Kína