Morgunblaðið - 18.10.2001, Side 15
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2001 15
ALDRAÐIR í Kópavogi munu
ganga í hús í bænum á laug-
ardag og taka við fjárframlög-
um. Þetta er liður í almennri
fjársöfnun meðal bæjarbúa,
sem miðar að því að safna fé til
þess að hægt verði að ljúka
framkvæmdum við stækkun
Sunnuhlíðar, hjúkrunarheim-
ilis aldraðra í Kópavogi.
Karl Gústaf Ásgrímsson,
formaður Félags eldri borg-
ara í bænum, segist hafa feng-
ið jákvæð viðbrögð frá sínu
fólki og að allt stefni í góða
þátttöku í söfnuninni á laug-
ardaginn. „Öll mál sem snerta
aldraða í Kópavogi snerta fé-
lagið okkar líka og þess vegna
munum við leggja okkar af
mörkum og ganga í hús,“ segir
Karl.
27 rúm bætast við
Framkvæmdir við stækkun
Sunnuhlíðar hófust í nóvem-
ber á síðasta ári og er vonast
til að hægt verði að taka 20
herbergi af þeim 25 sem verða
í nýja húsnæðinu, í notkun í
nóvember. Í húsinu verða 22
rúmgóð einstaklingsherbergi
með snyrtingu og þrjú tveggja
manna herbergi auk matsalar
sem nýtist einnig sem hátíð-
arsalur. Efri hæðin er að
verða tilbúin en vonast er til að
með þeim framlögum sem
safnast á laugardaginn verði
hægt að taka neðri hæðina í
notkun á vormánuðum.
„Helstu styrktaraðilar
Sunnuhlíðar í gegnum árin
hafa verið Kópavogsbær,
Rauði kross Íslands, Verslun-
armannafélag Reykjavíkur
auk margra annarra,“ segir
Guðjón Magnússon, formaður
Sunnuhlíðarsamtakanna sem
reka heimilið. Hann segir
einnig fjölda einstaklinga í
gegnum tíðina hafa lagt sam-
tökunum lið með ýmsum
hætti. „En á laugardaginn
treystum við á eldri Kópa-
vogsbúa til að hjálpa okkur í
söfnuninni og þess vegna
fengum við Félag eldri borg-
ara til liðs við okkur.“
Magnús segir að reynt sé að
höfða til eldri íbúa bæjarins í
söfnuninni og þeim boðið að
gerast styrkaraðilar með því
að ánafna Sunnuhlíðarsam-
tökunum ákveðna upphæð.
Biðlistum útrýmt
Þörfin fyrir stækkun
Sunnuhlíðar er brýn, þar sem
hjúkrunarheimilið er það eina
sinnar tegundar í bænum, en
síðan það var tekið í notkun
fyrir tæpum 20 árum hefur
fjöldi aldraðra, 67 ára og eldri,
þrefaldast í Kópavogi. Aldrað-
ir hafa því þurft að leita til ná-
grannasveitarfélaganna og
jafnvel út á land, til að fá sam-
bærilega hjúkrunarþjónustu
og býðst í Sunnuhlíð, að sögn
Guðjóns.
Nú eru um 30 einstaklingar
á biðlista og mun nýja bygg-
ingin útrýma honum að mestu
og vel hefur tekist að manna
þau störf sem skapast með
stækkun Sunnuhlíðar, að sögn
Jóhanns Árnasonar, fram-
kvæmdastjóra heimilisins.
30 milljónir vantar
Byggingarkostnaður við ný-
bygginguna er áætlaður 265
milljónir króna en þegar hefur
verið varið 220 milljónum til
verksins. Ríkið greiðir 40% af
kostnaðinum en Guðjón segir
að enn vanti um 30 milljónir
upp á til að hægt sé að ljúka
framkvæmdunum. „Við gerum
okkur grein fyrir að líklega
náum við ekki að safna allri
upphæðinni á laugardaginn,
en söfnunin mun halda áfram
að einhverju marki á næst-
unni. En við erum bjartsýn og
treystum á að samborgarar
okkar taki söfnuninni vel og
við hvetjum Kópavogsbúa til
að leggja þessu málefni lið.“
Miðstöð söfnunarinnar
verður í safnaðarheimili
Digraneskirkju og hefst hún
kl. 10 á laugardagsmorgun.
Auk þess sem safnað verður
með því að ganga í hús er hægt
að hringja í skrifstofunúmer
Sunnuhlíðar, 560-4100 allan
laugardaginn og á skrifstofu-
tíma næstu daga.
Eldri borgarar safna
fyrir Sunnuhlíð
Kópavogur
Morgunblaðið/Arnaldur
Aldraðir leggja hönd á plóg um helgina, ganga í hús og safna fyrir Sunnuhlíðarsamtökin.
ÞAÐ var Ragnhildur Guðbrandsdóttir
sem tók fyrstu skóflustunguna að hjúkr-
unarheimilinu Sunnuhlíð í janúar 1980.
Ragnhildur var þá elsti íbúi Kópavogs,
101 árs gömul, og var afrek hennar
skráð í Heimsmetabók Guinness, vegna
þess að hún var elst allra í heiminum
sem slíkt verk höfðu unnið.
Sunnuhlíð er sjálfseignarstofnun og
hafa Sunnuhlíðarsamtökin, sem að
standa ýmis félagasamtök og klúbbar í
Kópavogi, rekið starfsemi heimilisins til
margra ára.
Áður en hægt var að ráðast í fram-
kvæmdir við Sunnuhlíð báru félagar
klúbbanna sem stóðu að samtökunum,
söfnunarbauka inn á hvert heimili í
Kópavogi með tilmælum um að hver og
einn legði til hliðar sem svaraði hálfu
strætisvagnafargjaldi á dag. Einnig
færðu einstaklingar, fyrirtæki og stofn-
anir fram framlög, ríkið lét af hendi
byggingarlóð og Kópavogsbær lagði
fram fé sem nam um 15% af útlögðum
byggingarkostnaði. Sunnuhlíð mun
hafa verið fyrsta sérhæfða hjúkr-
unarheimilið fyrir aldraða og eru þar
núna 50 sjúkrarúm. Árið 1987 var lokið
byggingu þjónustuíbúða fyrir aldraða,
40 íbúða fjölbýlishúss sunnan við heim-
ilið og þegar nýja viðbyggingin verður
að fullu tekin í notkun bætast 27 sjúkra-
rúm við.
Kópavogsbúi í heimsmetabók
ÁTAK er nú í gangi á Sel-
tjarnarnesi sem miðar að
því að hvetja foreldra til að
láta börnin ganga í skólann.
Sjálfboðaliðar frá for-
eldrafélögum skólanna,
Íþrótta- og æskulýðsráði,
skólanefnd, Slysavarnadeild
kvenna á Seltjarnarnesi og
umferðarnefnd Seltjarn-
arness standa á vakt og að-
stoða börnin við að fara yfir
göturnar og þá fá öll börn
afhent endurskinsmerki.
Í fréttatilkynningu frá
Skólaskrifstofu bæjarins
segir að með því að kenna
börnum á gönguleiðir og
hvernig eigi að haga sér við
umferðargötur aukist ör-
yggi þeirra í umferðinni og
þau mæti hressari í skólann.
Gengið í skólann
Morgunblaðið/RAX
Góð og holl hreyfing fæst með því að ganga í skólann.
Seltjarnarnes
UNDIRRITAÐIR hafa verið
leigu- og þjónustusamningar
milli Hafnarfjarðarbæjar og
Nýtaks ehf. um leigu á nýjum
mannvirkjum Lækjarskóla á
Sólvangssvæðinu.
Fyrri áfangi grunnskólans
verður afhentur 1. ágúst á
næsta ári og er þar um þriðj-
ung skólans að ræða.
Síðari áfanginn verður af-
hentur ári síðar og íþrótta-
mannvirki með íþróttasal og
sundlaug verða afhent 1.
ágúst, 2004.
Skólinn er alls 6.370 fer-
metrar með 22 heimastofum,
sérgreinastofum og þremur
sérdeildum og lóðin er 18.680
fermetrar. Íþróttamannvirki
eru alls 1.746 fermetrar.
Nýr Lækj-
arskóli
Hafnarfjörður
UMFERÐARLJÓS verða
sett upp á gatnamótum Háa-
leitisbrautar og Smáagerðis á
næstunni. Ljósin eru sett
upp í kjölfar alvarlegs slyss
þar sem ung stúlka varð fyrir
bíl á umræddum stað.
Að sögn Dagbjarts Sigur-
brandssonar, umsjónar-
manns umferðarljósa hjá
borgarverkfræðingi, kom
Foreldrafélag Hvassaleitis-
skóla saman eftir slysið en
það hafði mikil áhrif á börn í
skólanum og þurftu mörg
þeirra áfallahjálp að hans
sögn.
Umrædd gatnamót eru í
gönguleið fjölda barna til og
frá skólanum. „Við það að
setja upp ljós þarna verða
fleiri gönguleiðir til skólans
en þarna verða T-gatnamót
til að byrja með. Í framtíð-
inni verða líklega krossgötur
þarna en það er ekki alveg
búið að útfæra þetta við
verslunarmiðstöðina sem er
hinumegin við götuna.“
Gönguljós eru yfir Háaleit-
isbrautina alveg við umrædd
gatnamót en Dagbjartur seg-
ir þau ekki duga til. „Það er
ekið hratt þarna og eins eru
gönguljósin dálítið nálægt
horninu. Þetta eru svokölluð
„pelikan“-ljós, sem eru þann-
ig að göngutíminn er um 9
sekúndur áður en kallinn fer
að blikka. Þá fara ljósin líka
að blikka á móti umferðinni
og ökumenn mega ekki fara
af stað ef einhver er í gang-
brautinni því það samsvarar
því að menn aki yfir á rauðu
en þeir eru orðnir dálítið
frekir á þetta. Svo er líka
ætlast til af börnum að þau
gangi ekki yfir eftir að kall-
inn er farinn að blikka og for-
eldrar eru mjög óánægðir
með þetta ástand.“
Ljósin sem verða sett upp
eru svokölluð hálfumferðar-
stýrð ljós. „Það verður skynj-
ari fyrir bílaumferðina úr
Smáagerði og gangandi veg-
farendur þurfa að ýta á
hnapp. Ef hvorki gangandi
né akandi vegfarendur koma
er alltaf grænt á Háaleitis-
brautinni,“ segir Dagbjartur.
Hann segir framkvæmdir
líklega hefjast í þessari viku
eða næstu og verða göngu-
ljósin tekin niður um leið og
þær hefjast.
Framkvæmdirnar taka um
tvær vikur en gangbrautar-
vörður verður á staðnum á
meðan.
Breytingar framundan á gatnamótum Smáagerðis og Háaleitisbrautar
Ný ljós í
kjölfar slyss
Háaleitishverfi
!
" ! # $
% &
'"((
Á FUNDI sínum á mánudag
lýsti fræðsluráð Reykjavíkur-
borgar þeirri skoðun sinni að
rétt sé að fimm ára nemendur
í einkaskólum borgarinnar
verði styrktir með sama hætti
og aðrir nemendur í einka-
reknum grunnskólum, svo
framarlega að þeir nýti ekki
önnur dagvistarúrræði á veg-
um borgarinnar. Fræðsluráð
telur það hins vegar ekki hlut-
verk fræðsluyfirvalda að út-
hluta slíkum styrkjum, þar
sem fimm ára börn eru ekki
fræðsluskyld, og vísaði mál-
inu þess vegna til borgarráðs
til frekari umfjöllunar.
Um var að ræða tillögu sem
sjálfstæðismenn lögðu fyrir
fræðsluráð. Meirihluti
Reykjavíkurlistans vísaði frá
meginhluta tillögunnar, sem
lögð var fram á fundi seinast í
ágúst, þess efnis að Fræðslu-
miðstöð yrði falið að ganga til
samninga við einkaskólana í
Reykjavík, um að borgin legði
fram jafnháa fjárupphæð til
einkaskóla og almennra skóla
í Reykjavík.
Segir í bókun meirihlutans
að það sé markmið Reykja-
víkurlistans að greiða sama
gjald vegna nemenda í einka-
skólum og greitt er með nem-
endum úr öðrum sveitarfélög-
um. Fræðsluráð telji því
óþarft að fela Fræðslumiðstöð
að ganga til samninga við
einkaskólana í Reykjavík um
jafnhá framlög til einkaskóla
og almennra skóla. Það myndi
fela í sér mikla mismunun þar
sem einkaskólar tækju auk
þess gjald af foreldrum. Frá-
leitt væri þess vegna að tala
um að sömu framlög borgar-
innar til einkaskóla og al-
mennra skóla jafnaði sam-
keppnisaðstöðu eins og segði í
tillögu sjálfstæðismanna.
Sjálfstæðismenn höfðu hins
vegar mælst til þess í
tengslum við tillöguna að sér-
staklega yrði litið á málefni 5
ára barna og afgreiddi meiri-
hluti Reykjavíkurlistans þann
hluta tillögunnar á fyrr-
greindan hátt, en fulltrúar
minnihluta sátu hjá.
Njóti styrkja
eins og aðrir
Reykjavík
Fimm ára nemendur
í einkaskólum