Morgunblaðið - 18.10.2001, Page 20
LANDIÐ
20 FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLENSKA stærðfræðafélagið
þingaði í hátíðasal gamla Héraðs-
skólans í Reykholti um síðustu
helgi.
Áður hefur félagið ekki staðið fyr-
ir svo stórri yfirlitsráðstefnu, en
hún stóð yfir í tvo daga. Efni ráð-
stefnunnar var stærðfræði á Íslandi
og var fjallað um rannsóknir og
kennslu í stærðfræði á öllum skóla-
stigum.
Ragnar Sigurðsson, Raunvísinda-
stofnun háskólans, Ólafur Ísleifsson,
Seðlabanka Íslands, og Kristján
Jónasson hjá Íslenskri erfðagrein-
ingu, formaður félagsins, ræddu við
fréttaritara Mbl. um stöðu stærð-
fræðinnar á Íslandi og kom þá fram
að beiting stærðfræði hefur aukist
mjög í ýmsum starfsgreinum á und-
anförnum árum. Með aukinni notk-
un stærðfræði í mörgum starfs-
greinum benti Ragnar á að
jafnframt því sem beiting stærð-
fræði færðist í vöxt til hagnýtingar í
atvinnulífinu kölluðu slíkar hagnýt-
ingar stöðugt á nýjar fræðilegar
rannsóknir innan stærðfræðinnar.
Þeir lögðu á það áherslu að stærð-
fræði væri óðum að verða mikilvæg-
ari hluti atvinnulífsins og kvæði
mikið að beitingu hennar á sviði líf-
tækni, hagfræði og fjármálafræði,
eins og glöggt kom fram á ráðstefn-
unni. Í fiskifræði og hafrannsóknum
hefur stærðfræði lengi verið hag-
nýtt, sem og við verkfræðilegar úr-
lausnir. Segir Kristján t.d. að innan
Íslenskrar erfðagreiningar starfi
15–20 stærðfræðingar.
Á ráðstefnunni var sagt frá fjár-
veitingu frá Evrópusambandinu til
fjölþjóðlegs verkefnis á sviði haf-
rannsókna með aðild Raunvísinda-
stofnunar Háskólans og Hafrann-
sóknastofnunar. Einnig kom fram
að úr sömu átt má vænta aukins
fjármagns í framtíðinni sem gerir
mönnum kleift að ráðast í ný og
áhugaverð verkefni af þessu tagi.
Metaðsókn í stærðfræði
Fyrirlestrar voru haldnir og um-
ræðufundur um kennslumál stærð-
fræðinnar, námsefnisgerð í grunn-
skóla, námskrá framhaldsskólans og
stærðfræðikennslu í kennaranámi.
Ólafur benti á vilja stærðfræða-
félagsins til að efla kennslu í þessu
fagi á öllum skólastigum. Árið 1973
útskrifuðust fyrstu stærðfræðingar
frá Háskóla Íslands og voru lengst
af útskrifaðir fjórir á ári að með-
altali.
Aukinn áhugi virðist vera á þess-
ari grein, væntanlega vegna auk-
inna atvinnumöguleika, auk
kennslu. Í haust innrituðust 33 nem-
endur í stærðfræði við Háskóla Ís-
lands og er það metaðsókn. Í Ís-
lenska stærðfræðafélaginu eru um
160 félagar, en stærðfræðingar eru
þar af um 100.
Lýstu þeir Ragnar, Ólafur og
Kristján yfir mikilli ánægju með
dvölina í Reykholti og margbreyti-
legt menningarefni sem einnig var
boðið uppá.
Mikið líf í Reykholti
um helgina
Auk stærðfræðinga funduðu fleiri
hópar í Reykholti síðustu helgi. Í sal
Snorrastofu var málþing með yfir-
skriftina „Til heiðurs og huggunar.
Hlutverk trúarkveðskapar á fyrri
tíð“, haldið á vegum Snorrastofu
með stuðningi Borgarfjarðarpró-
fastsdæmis, og á hótelinu var fund-
ur á vegum Einars J. Skúlasonar,
EJS.
Háskólakórinn var þarna samtím-
is í æfingabúðum og nutu ráðstefnu-
gestir þess að fá að hlýða á kórsöng.
Stærðfræðingar skoðuðu sýningar
undir leiðsögn séra Geirs Waage og
hlýddu á tónlistarflutning heima-
manna, þeirra Ólafs Flosasonar óbó-
leikara og Zsuzsanna Budai píanó-
leikara í hinni margrómuðu
tónlistarkirkju.
Mikið líf var á staðnum og má
geta þess að þegar gestir á ráðstefn-
unni um trúarkveðskap höfðu staðið
upp frá borðum í safnaðarsal kirkj-
unnar, þar sem hótelið bar fram
kjötsúpu, var dúkum svipt af borð-
um og salurinn undirbúinn fyrir
próftöku. Nokkrir stærðfræðinemar
áttu að vera í prófi á meðan ráð-
stefnan stóð yfir og fengu þeir að
þreyta prófið í safnaðarheimili
Reykholtskirkju samtímis því sem
félagar þeirra leystu sama próf í
Reykjavík, en af ríflega 60 ráð-
stefnugestum voru 15 stúdentar við
Háskóla Íslands. Stærðfræðingarnir
vildu þó taka fram að engin ytri
truflun hefði truflað einbeitinguna á
ráðstefnunni og sögðu það snjallt að
fara út á land með svona viðburði.
Mikil gróska
í stærðfræði
Reykholt í Borgarfirði bar heitið
fræðasetur með rentu um síðustu helgi.
Sigríður Kristinsdóttir ræddi við þrjá
stærðfræðinga, en á staðnum voru einnig
fulltrúar tónlistar, trúarkveðskapar
og tölvuviðskipta.
Reykholt
Stærðfræðingar voru meðal gesta í Reykholti um síðustu helgi.
Morgunblaðið/Sigríður
RJÚPNAVEIÐITÍMINN er
hafinn og var í sumum tilfellum
farið af stað meira af kappi en
forsjá. Að sögn Sigurðar Brynj-
ólfssonar, yfirvarðstjóra á Húsa-
vík, var mikil bílaumferð á þjóð-
vegi 1 og voru þar rjúpnaskyttur
í meirihluta. Lögreglan stöðvaði
tugi bíla og athugaði vopn og
veiðikort og reyndist allt vera í
lagi. Sagði Sigurður að telja
mætti í hundruðum veiðimennina
sem stefndu nú á þingeyskar
veiðilendur.
Á Þórshöfn fjölgar alltaf í
bænum á þessum árstíma og nóg
var að gera á Hótel Jórvík. Leið-
indaveður var á rjúpnaslóðum,
þoka og rigning og allt á kafi í
bleytu og drullu.
Fréttaritari var á leið yfir Öx-
arfjarðarheiði hinn 15. og ók þar
fram á veiðimann sem kominn
var niður á veg með aðstoð GPS
tækis en bifreið hans var nokkru
ofar á heiðinni svo hann fékk far
á áfangastað. Hann hafði verið á
göngu frá kl. sex um morguninn
og hafði fengið fjórar rjúpur,
sagði ekki mikið vera af rjúpu á
þessu svæði. Fimmtu rjúpuna
fékk hann svo á leiðinni niður af
heiðinni með fréttaritara en þar
skammt frá veginum sat ein hvít
og beið spök á meðan bíllinn var
stöðvaður í nokkurri fjarlægð og
byssan tekin úr farangursrýminu
– þar með voru örlög hennar
ráðin.
Ójafn leikur
Öxarfjarðarheiðin var alauð
þennan fyrsta rjúpnadag en
rjúpan hvít. Fuglinn er því auð-
velt skotmark og leikurinn ójafn.
Spurning er hvort hún á nokkuð
meiri möguleika þegar snjór er
yfir því þá er töluvert um það að
menn fari á stórum jeppum, vél-
sleðum og fjórhjólum upp um all-
ar heiðar og elti fuglinn á þess-
um farartækjum þó að lögreglan
reyni eftir föngum að koma í veg
fyrir slíkt athæfi. Gangandi
veiðimenn snauta þá heim því
þeir eiga enga möguleika á rjúpu
á eftir slíkum öflum.
Rjúpnastofninn er nú í lág-
marki og veiðitölur eftir fyrsta
daginn eru almennt lágar, að
sögn manna á þingeyskum veiði-
slóðum.
Rjúpnaskyttan Baldur Öxdal nær fimmtu rjúpunni á Öxarfjarð-
arheiði, hún beið róleg meðan bíllinn keyrði hæfilega langt í burtu
og vopnið var gripið úr farangursrýminu. Eins og sjá má er ekki
snjókorn á heiðinni en rjúpan orðin hvít.
Fjölmennt á
rjúpnaslóðum
Þórshöfn
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir