Morgunblaðið - 18.10.2001, Síða 49
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2001 49
REYKJAVÍK: Ármúla 11 - Sími 568-1500
AKUREYRI: Lónsbakka - Sími 461-1070
Model 6834
Gifsskrúfvél 470 W O = 4 x 57 mm
Tilboðsverð
30.000,-
Kringlukast
20% afsláttur
af Triumph undirfatnaði
Kringlunni 8-12, sími 553 3600, www.olympia.is
H
ön
nu
n
&
um
b
ro
t
eh
f.
©
20
00
–
D
V
R
08
0
HreinlætistækjadagarOktóber
Heilir sturtuklefar með
blöndunartækjum, sturtusetti,
botni og lás. 4-6 mm öryggisgler.
Verð frá 56.900,- stgr.
Sturtuhorn, könntuð, 4-6 mm
öryggisgler. Rammar hvítir eða
með stáláferð. 65 - 90 cm. á
kannt. Verð frá 20.900,- stgr.
Sturtuhorn, rúnnuð, 4-6 mm
öryggisgler. Rammar hvítir eða
með stáláferð. 80 - 90 cm. á
kannt. Verð frá 34.900,- stgr.
Sturtubaðkarshlífar úr
öryggisgleri. Verð frá 14.670,-
stgr.
Sturtubotnar, margar gerðir.
Verð frá 4.750,- stgr.
Salerni (WC), með stút í gólf eða
vegg, góð seta og festingar
fylgja. Verð frá 15.850,- stgr.
Handlaugar á vegg eða í borð.
Fjölbreytt úrval.
Verð frá 3.950,- stgr.
Baðkör, margar stærðir.
Verð frá 12.467,- stgr.
Blöndunartæki f. baðkör.
Verð frá 5.159,- stgr.
Blöndunartæki fyrir handlaugar.
Verð frá 3.819,- stgr.
Eldhúsvaskar, einfaldir, tvölfaldir,
með eða án borðs.
Verð frá 7.360,- stgr.
Blöndunartæki fyrir eldhúsvask.
Verð frá 3.695,- stgr.
Nuddbaðkör úr stáli eða plasti.
Bein eða í horn.
Verð frá 139.500,- stgr.
OPIÐ:
Mánud. - föstud. kl. 9-18, laugard. kl. 10-14
Við Fellsmúla
Sími 588 7332
- trygging fyrir l
águ verði!
MONSOON
MAKE-UP
MONSOON
MAKE-UPLITIR SEM LÍFGA
Ástríður Magnúsdóttir,
förðunarfræðingur,
leiðbeinir um notkun á
MONSOON - MAKE UP.
Kaupauki fylgir.
Á sama tíma 20% afsl.
af allri Karin Herzog línunni.
Kynning í dag kl. 15-19
Hringbrautar Apótek
Kynning á morgun kl. 14-18
Borgar Apótek
ÞEIR sem lásu átak-
anlega bók Erich Maria
Remarque um líf og
dauða ungra manna á
vígvellinum í fyrri
heimsstyrjöldinni fundu
glöggt tilfinningu fárán-
leikans í lokin þegar til-
kynning um stöðu
stríðsins var: „Tíðinda-
laust á vesturvígstöðv-
unum.“
Mér komu þessi orð í
hug eftir landsfund
Sjálfstæðisflokksins þar
sem landsfundarfulltrú-
ar sögðu allt svo slétt og
fellt, einingu ríkjandi og
samstöðu um öll grund-
vallaratriði. Því það er stórkostlegt
að skyggnast bak við einingartjöld-
in, þar blasir önnur veröld við.
Samlíkingin á auðvitað eingöngu
við um slík leikhús fáránleikans.
Sjálfstæðisflokkurinn
er flokkur sérhagsmuna
Harðar deilur um tvö stærstu
átakamál stjórnmálanna einkenndu
landsfundinn. Það var tekist á um
sjávarútvegsmál og umhverfismál.
Umhverfismálin fengu herfilega út-
reið. Mörgum hefur fundist að
Ólafur F. Magnússon borgar-
fulltrúi væri þýðingarmikill fyrir
Sjálfstæðisflokkinn. Með sínum
málflutningi í umhverfismálum
væri hann á sama hátt og Ólafur
Örn Haraldsson, alþingismaður í
Framsóknarflokknum, nokkurs
konar haldreipi fyrir þá flokks-
menn sem vilja hafa umhverfis-
vernd í hávegum, vilja að náttúran
njóti vafans og að leikreglur lýð-
ræðis séu í fyrirrúmi við meðferð
náttúruperlanna. En nei, sjónarmið
Ólafs fengu engan hljómgrunn,
hann var atyrtur og gróflega lít-
illækkaður á landsfundinum.
Og nú var afstaða flokksins til
eignarhalds á sjávarauðlindinni út-
kljáð. Það voru klókindi á sínum
tíma að setja á laggir þverpólitísk-
ar nefndir um sjávarútvegsmál í
nafni sátta. Jóhannes Nordal leiddi
auðlindanefndina fimlega og naut
samvinnu fólks sem gerði sér vel
grein fyrir almannahagsmunum.
Enda vakti niðurstaða auðlinda-
nefndar vonir. Hinsvegar ein-
kenndi úlfúð starf
síðari nefndarinnar
um stjórn fiskveiða
sem átti að byggjast
á niðurstöðu auð-
lindanefndar. Henn-
ar starfi lauk í
ágreiningi allra
nema Sjálfstæðis-
flokksins og LÍÚ.
Varðandi niður-
stöðu landsfundar í
þessu mikla hags-
munamáli er ein-
faldast að vísa í um-
mæli Markúsar
Möller sem sagði sig
úr Sjálfstæðisflokki
Davíðs Oddssonar
en hann segir flokkinn ganga á
staurfót með lepp fyrir auganu til
næstu kosninga. Já, það má öllum
ljóst vera að andstæðingar gjafa-
kvóta og fylgjendur réttlætis við
stjórnun fiskveiða eiga ekki heimili
í Sjálfstæðisflokknum.
Niðursveifla varð í
efnahagsmálunum
Í landsfundarræðu formannsins
var ekki minnst á viðskiptahalla,
gengisfall krónunnar, verðbólgu né
háa vexti. Ekkert um efnahagsmál-
in. Hinsvegar var ráðist með of-
forsi og skítkasti á formann Sam-
fylkingarinnar án þess að nefna
nafnið hans, sem er eftirtektarverð
aðferð. Sömuleiðis í drottningarvið-
tölunum sem fylgdu í kjölfarið.
„Stórir menn“ kunna vel sína að-
ferðafræði. Þarna kom berlega í
ljós að forsætisráðherrann þolir
ekki að Samfylkingin er að ná
vopnum sínum og að Össur Skarp-
héðinsson fletti ofan af vinnubrögð-
um ríkisstjórnarinnar við fjárlaga-
gerðina.
Forstjóri Þjóðhagsstofnunar,
Þórður Friðjónsson, hélt ræðu á
fjármálaráðstefnu sveitarfélaga á
sama tíma þar sem hörð gagnrýni
kom fram á efnahagsstefnu stjórn-
valda. Að þróun í gengis- og verð-
breytingum síðastliðið ár (innskot;
gengisfallið varð á þriðja tug pró-
senta) sé vegna skorts á aðhaldi á
árunum 1998 og 1999 bæði á sviði
ríkisfjármála og peningamála.
Hann gerir ráð fyrir að þjóðarút-
gjöld dragist saman um 4 til 5%
þetta og næsta ár. Þórður Frið-
jónsson benti á að erlendar skuldir
hafi á þessum tíma farið úr 50% af
landsframleiðslu í 84% og að búast
megi við þrefalt meiri verðbólgu á
næsta ári en í viðmiðunarlöndum
okkar. Athyglisvert er að Þjóð-
hagsstofnun staðfestir niðursveifl-
una í efnahagsmálum sem ríkis-
stjórn Davíðs Oddssonar hefur
aldrei viðurkennt.
Össur hafði lög að mæla
Ég minni á að Össur Skarphéð-
insson hélt á lofti þeim vísbend-
ingum sem komu fram á þessum
tíma og taldi aðgerða þörf þá þeg-
ar. Stjórnvöld daufheyrðust og
töldu landsmönnum trú um viðvar-
andi góðæri í stjórnartíð sinni. Því
miður hefur hallað undan fæti í
efnahagsmálum. Það þýðir ekki til
lengdar að halda því fram að hlut-
irnir séu á annan veg en þeir eru.
Ekki í nútíma upplýsingasamfélagi.
Þess vegna er líka öllum ljóst að
hjá Sjálfstæðisflokknum er nýaf-
staðinn landsfundur harðra deilna
um grundvallarmál. Að þar var
ekki að finna ferska strauma né
nýja sýn á stærstu mál samfélags-
ins. Munum að það er sitthvað fjöl-
menni eða stærð, að flokkur er ekki
stór nema hann sé stórhuga.
Rannveig
Guðmundsdóttir
Stjórnmál
Það er sitthvað fjöl-
menni eða stærð,
segir Rannveig
Guðmundsdóttir, flokk-
ur er ekki stór nema
hann sé stórhuga.
Höfundur er þingmaður
Samfylkingarinnar á Reykjanesi.
Tíðindalaust á vest-
urvígstöðvunum
mbl.isFRÉTTIR