Morgunblaðið - 18.10.2001, Side 57
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2001 57
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa
kl. 14-17 í neðri safnaðarsal. Sönghópur
undir stjórn organista. Biblíulestur og
fræðsla í safnaðarheimili Áskirkju kl. 20 í
umsjá sóknarprests. Orð postulans „allt
megna ég fyrir hjálp hans, sem mig styrk-
an gjörir“ verða höfð að leiðarljósi við
íhugun orða ritningarinnar. Árni Bergur
Sigurbjörnsson.
Bústaðakirkja. Foreldramorgunn kl. 10-
12.
Dómkirkjan. Opið hús í safnaðarheim-
ilinu kl. 14-16. Kaffi og með því á vægu
verði. Ýmsar uppákomur.
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.
Léttur málsverður í safnaðarheimili eftir
stundina.
Háteigskirkja. Foreldramorgunn kl. 10.
Stúlknakór kl. 16.30 fyrir stúlkur fæddar
1989 og eldri. Stjórnandi Birna Björns-
dóttir. Íhugun kl. 19. Taizé-messa kl. 20.
Ath. breyttan tíma.
Langholtskirkja. Foreldra- og barnamorg-
unn. Fræðsla: Agi, ástrík leiðsögn. Hall-
veig Magnúsdóttir, hjúkrunarfræðingur.
Upplestur, söngstund, kaffispjall.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45-
7.05. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Gunn-
ar Gunnarsson leikur á orgel kirkjunnar kl.
12-12.10. Léttur málsverður í safnaðar-
heimili að stundinni lokinni. Samvera
eldri borgara kl. 14. Þorsteinn Haukur
Þorsteinsson, tollfulltrúi og fíkniefna-
hundaþjálfari, kemur í heimsókn ásamt
fíkniefnahundinum Bassa. Þjónustuhópur
Laugarneskirkju, kirkjuvörður og sóknar-
prestur annast stundina. Kl. 17.30-22
sálgæslunámskeið Teo van der Weele
„Hjálpað með blessun“. (Sjá síðu 650 í
textavarpi.)
Neskirkja. Félagsstarf aldraðra nk. laug-
ardag 20. október kl. 14. Farið verður í
skoðunarferð í verslunarmiðstöðina
Smáralind. Kaffiveitingar í kaffiteríu Perl-
unnar. Sr. Frank M. Halldórsson.
Nedó kl. 17. Unglingaklúbbur fyrir Dóm-
kirkju og Neskirkju fyrir 8. bekk. Nedó kl.
20 fyrir 9. bekk og eldri. Umsjón Bolli og
Sveinn.
Reykjavíkurprófastsdæmi og leikmanna-
skóli kirkjunnar. Boðið verður upp á Bibl-
íulestra þar sem tekin verða fyrir ákveðin
þemu í Biblíunni og þau sett í samhengi
við prédikunartexta kirkjuársins. Sjö
dagsverk. Fjallað verður um sköpun
heimsins samkvæmt fyrstu Mósebók.
Átta skipti í Breiðholtskirkju kl. 20-22.
Kennari dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson hér-
aðsprestur.
Breiðholtskirkja. Mömmumorgunn föstu-
dag kl. 10-12.
Digraneskirkja. Leikfimi ÍAK kl. 11.15.
Bænastund kl. 12. Fyrirbænaefnum má
koma til kirkjuvarða. Léttar veitingar eftir
stundina.
Fella- og Hólakirkja. Helgistund og Bibl-
íulestur í Gerðubergi kl. 10.30-12 í um-
sjón Lilju, djákna. Starf fyrir 9-10 ára
stúlkur kl. 17.
Grafarvogskirkja. Foreldramorgnar kl.
10-12. Fræðandi og skemmtilegar sam-
verustundir og ýmiss konar fyrirlestrar.
Alltaf heitt á könnunni, djús og brauð fyrir
börnin. Æskulýðsfélag í Grafarvogskirkju
fyrir 8.-9. bekk kl. 20-22.
Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar kl. 16.30.
Kópavogskirkja. Starf með eldri borgur-
um í dag kl. 14.30-16.30 í safnaðarheim-
ilinu Borgum. Kyrrðar- og bænastund kl.
17. Fyrirbænaefnum má koma til sókn-
arprests eða kirkjuvarðar.
Seljakirkja. KFUM fundur fyrir stráka á
aldrinum 9-12 ára kl. 16.30.
Vídalínskirkja. Umræðu- og leshópur
starfar í safnaðarheimilinu kl. 20– 21.
Biblíu- og trúfræðsla fyrir alla. Kyrrðar-
stund í kirkjunni kl. 21.00. Ath. breyttan
tíma. Tónlist, ritningarlestur, hugleiðing
og fyrirbænir. Bænarefnum má koma til
presta kirkjunnar og djákna. Hressing í
safnaðarheimili eftir stundina. Allir vel-
komnir!
Fríkirkjan í Hafnarfirði. TTT-starf fyrir 10-
12 ára kl. 17-18.30.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung
börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safn-
aðarheimili Strandbergs, kl. 10-12. Opið
hús fyrir 8-9 ára börn í safnaðarheimilinu
Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17-18.30.
Víðistaðakirkja. Barnastarf fyrir 10-12
ára börn (TTT) í dag kl 17. Foreldramorg-
unn kl. 10-12.
Lágafellskirkja. Kirkjukrakkafundur í
Varmárskóla á fimmtudögum frá kl.
13.15-14.30.
Landakirkja. Mömmumorgunn í safnaðar-
heimilinu kl. 10.
Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir vel-
komnir.
Safnaðarstarf
FRÉTTIR
FYRSTA Arkarmótið fór fram 12.–
14. október á Hótel Örk. Mótið var
haldið af Hótel Örk, Guðlaugi
Sveinssyni, Stefáni Garðarssyni,
Sveini Rúnari Eiríkssyni og Brids-
sambandi Íslands.
Bridssamband Íslands kom að
mótinu í tilefni þess að tíu ár eru liðin
frá því að Íslendingar urðu heims-
meistarar í brids. Arkarmótið skipt-
ist í tvö mót, tvímenning annars veg-
ar og sveitakeppni hins vegar.
Tvímenningurinn byrjaði föstudag-
inn 12. október og var spilaður
Monrad barómeter með þátttöku 38
para.
Lokastaðan varð:
Helgi Sigurðss. – Helgi Jónss. +265
Jón Baldurss. – Þorlákur Jónss. +190
Ólafur Láruss. – Rúnar Magnúss. +151
Guðjón Bragas. – Vignir Haukss. +128
Ísak Ö. Sigurðss. – Erlendur Jónss. +126
Guðm. Halldórss. – Hlynur Angantýss.+122
Ljósbrá Baldursd. – Ásmundur Pálss. +96
Þröstur Ingimarss. – Þórður Björnss. +95
Daníel M. Sigurðss. – Heiðar Sigurj.ss. +93
Helgarnir fengu 150.000 kr. fyrir
1. sæti auk þess sem þeir eru fyrstir
til að fá að varðveita Arkarskálina,
farandbikar mótsins, í eitt ár. Veitt
voru peningaverðlaun fyrir 7 efstu
sætin að andvirði 500.000 kr.
23 sveitir tóku þátt í sveitakeppni
Arkarmótsins. Spilaðar voru 7 um-
ferðir af 8 spila leikjum.
Eftir tvísýna baráttu framan af
var ljóst að í lokin mundi sigurinn
lenda hjá sveit Oklahoma eða sveit
Ferðaskrifstofu Vesturlands. Sveit
Oklahoma hafði nokkuð öruggan
vinning í lokin og munaði þar tölu-
vert um innbyrðisviðureignina auk
þess sem sveit Oklahoma gaf aðeins
út einn impa í þremur síðustu leikj-
unum.
Sveit Oklahoma skipuðu Guðlaug-
ur R. Jóhannss., Örn Arnþórss., Jón
Baldurss. og Þorlákur Jónss. Fengu
þeir í sigurlaun 120.000 kr. auk þess
að fá til varðveislu í eitt ár veglegan
farandgrip. Lokastaðan varð annars
þessi:
Oklahoma 143
Ferðaskrifstofa Vesturlands 131
Villi JR 124
Björn Þorlákss. 122
Erla Sigurjónsd. 119
Páll Valdimarss. 118
SPRON 110
Múspelzsveitin 110
Alls voru veitt 300.000 kr. í verð-
laun fyrir sveitakeppnina.
Mótið þótti takast í alla staði vel.
Aðstaðan á mótinu var frábær.
BRIDS
U m s j ó n A r n ó r G .
R a g n a r s s o n
Fjórir af heimsmeisturunum mynduðu sveit og sigruðu í sveitakeppni
Arkarmótsins. Talið frá vinstri: Örn Arnþórsson, Guðlaugur R. Jó-
hannsson, Jón Baldursson og Þorlákur Jónsson.
Sigurvegararnir í tvímenningnum á Arkarmótinu. Talið frá vinstri:
Rúnar Magnússon, Ólafur Lárusson, frændurnir Helgi Jónsson og
Helgi Sigurðsson, Þorlákur Jónsson og Jón Baldursson.
Ágæt þátttaka í Arkarmótinu Íslandsmót í einmenningiMótið verður spilað í Hreyfilshús-
inu 3. hæð 19.-20. október. Spila-
mennska hefst föstudag kl. 19.00 og
lýkur laugardag um kl. 18.00.
Keppnisstjóri er Sveinn Rúnar Ei-
ríksson og keppnisgjald er kr. 2.500.
Allir spila sama kerfið, þ.e.
einfalt Standard-kerfi og er hægt
að nálgast það á skrifstofunni eða fá
kerfið sent í tölvupósti.
Skráning er í s. 587 9360 eða
bridge@bridge.is, en henni lýkur í
dag kl. 17 vegna skipulags mótsins.
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélag kvenna
Þegar lokið er 13 umferðum í
Barómeter 2001 er röð efstu para
eftirfarandi.
Sigurður Steingrímss. – Vilhjálmur Sig. 117
Björn Árnason – Andrés Ásgeirsson 84
Hermann Friðrikss. – Jón Hjaltason 72
Unnar A. Guðmundss. – Viðar Jónsson 66
Arngunnur Jónsd. – Harpa F. Ingólfsd. 46
Guðrún Jóhannesd. – Kristjana Steingr. 43
Bestu skor 11. okt. sl.
Sigurður Steingrímss. – Vilhjálmur Sig. 86
Unnar Atli Guðmundss. – Viðar Jónsson 71
Arngunnur Jónsd. – Harpa Fold Ingólfsd. 67
Guðrún Jóhannesd. – Kristjana Steingr. 44
Fimmtán pör í Norðurlands-
móti vestra í tvímenningi
Norðurlandsmót vestra í tvímenn-
ingi var haldið sunnudaginn 14. okt.
á Skagaströnd. Alls mættu 15 pör til
leiks og voru spiluð 60 spil með
barometer-fyrirkomulagi. Úrslit
urðu sem hér segir, 7 efstu pör:
Björn Friðrikss. - Björn G. Friðrikss. 99
Erlingur Sverriss. - Unnar A. Guðmundss.43
Guðni Kristjánss. - Eyjólfur Sigurðss. 33
Ingibergur Guðmundss. - Gunnar Sveinss.12
Ágústa Jónsd. - Ingibjörg Guðjónsd. 10
Jón Örn Berndsen - Ásgr. Sigurbjörnss. 9
Benedikt Sigurjónss. - Georg Ragnarss. 2
Spilað um Bermúda-
skálina í París
Eins og fram hefir komið í þætt-
inum var ákveðið að flytja heims-
meistaramótið frá Balí til Parísar
vegna stríðsátakanna. Mótið hefst
sunnudaginn 22.okt. og lýkur 3. nóv.
Spilað er um Bermúdaskálina í opn-
um flokki, Feneyjabikarinn í
kvennaflokki, einnig er spiluð sveita-
keppni í öldungaflokki í fyrsta sinn.
Allar upplýsingar og úrslit eru á
heimasíðu WBF: bridge.gr
Evrópumót para 2002
Evrópumót í paratvímenningi og
-sveitakeppni verður haldið í Oost-
ende í Belgíu 16.-22. mars 2002.
Skráning og allar upplýsingar um
mótið á skrifstofunni í s. 587 9360 eða
bridge@bridge.is Skráningarfrest-
ur er til 31.janúar 2002.
Ársþing Bridssambandsins
á sunnudaginn
53. Ársþing Bridssambands Ís-
lands verður haldið í Hreyfilshúsinu
3.hæð, sunnudaginn 21.október nk.,
þingið hefst kl. 10.00. Formenn
bridgefélaganna eru minntir á að
senda inn kjörbréfin sem fyrst, fax
587 9360
Allir svæðaformenn eiga einnig
rétt til setu á ársþinginu.
Bridsfélag Suðurnesja
Sveitarokki er lokið með sigri
Randvers Ragnarssonar, Svölu Páls-
dóttur og Guðjóns Svavars Jensen.
Randver – Svala – Svavar 120
Sigurður Alberts. – Jóhann Benediktss. 114
Gunnar Guðbjörnss. – Kjartan Sævarss.
– Gunnar Sigurjónss. 108
Karl Einarss. – Guðjón Óskarss.
– Karl G. Karlsson 107
Næsta keppni er þriggja kvölda
barómeter.
NÝ ÞJÓNUSTA Íslandssíma,
kjarnaáskrift svokölluð, þar sem við-
skiptavinum býðst að hringja ókeyp-
is í fjögur númer innan kerfis fyr-
irtækisins til áramóta, er fyrst og
fremst ætluð til að vekja athygli á
styrkleikum í verðskrá Íslandssíma,
þar sem lögð er áhersla á hagstætt
verð á milli einstakra hópa, að sögn
Péturs Péturssonar, upplýsinga- og
kynningarstjóra Íslandssíma.
„Tilboðið er hvort tveggja í senn
ætlað nýjum og eldri viðskiptavinum
fyrirtækisins og í því felst að þeir
geta hringt ókeypis í fjögur númer
innan kerfisins til áramóta, eða hátt í
þrjár klukkustundir á dag,“ segir
Pétur. „Með því að taka tilboðinu
getur fólk sparað verulega fjármuni
og því er jafnframt ætlað að hvetja
viðskiptavini Íslandssíma til að
benda kunningjum og fjölskyldu-
meðlimum á þessa sparnaðarleið,
þannig að sem flestir fái notið til-
boðsins.“
Í blaðinu í gær segir upplýsinga-
fulltrúi Símans, Heiðrún Jónsdóttir,
að auglýsing um tilboðið sem birtist í
blaðinu á þriðjudag sé villandi og að
þar komi ekki fram að eingöngu sé
um innankerfis símtöl að ræða.
„Bent var á vefsíðu félagsins í aug-
lýsingunni og upplýsingasíma þar
hægt er að leita svara við öllum
spurningum sem kunna að vakna. Í
útvarpsauglýsingum kom fram að
um ókeypis hringingar í önnur núm-
er Íslandssíma er að ræða, það verð-
ur einnig gert í blaðaauglýsingum
hér eftir. Að sjálfsögðu nær þetta til
allra hringinga hérlendis.“
Eftir að tilboðinu lýkur um ára-
mótin kosta símtöl í fjögur númer
kjarnaviðskiptavina 7,50 kr. á mín-
útu á daginn og 5,50 á kvöldin með
binditíma. Ekkert stofngjald er í
kjarnaáskrift og áskriftargjald er
600 krónur á mánuði. Pétur segir að
vilji fólk skipta um eitt eða fleiri
þeirra fjögurra númera sem upphaf-
lega eru valin til að hringja í, kosti
slík þjónusta 300 kr. í hvert skipti.
Íslandssími
býður ókeyp-
is símtöl
til áramóta
SR. ÞÓRHALLUR Heimisson,
prestur í Hafnarfirði, ræðir um
hjónabandið og fjölskylduna í
safnaðarheimilinu Vinaminni,
Akranesi, í kvöld, fimmtudags-
kvöld, kl. 20. Fyrirspurnir á eftir.
Sr. Þórhallur mun fjalla um
samskipti kynjanna; vonir, vænt-
ingar og vonbrigði – og hvernig
má styrkja samskipti og tjáskipti
hjóna. Þúsundir Íslendinga hafa
sótt fyrirlestra og námskeið sr.
Þórhalls vítt og breitt um landið.
Heitt á könnunni. Ókeypis að-
gangur. Fjölmennum! Sóknar-
prestur.
Taizé í
Háteigskirkju
TAIZÉ-kvöldmessur eiga sér þó
nokkra hefð í Háteigskirkju. Ung-
ir sem aldnir eru velkomnir á
fimmtudagskvöldum klukkan átta
til þess að eiga saman taizé-stund í
Háteigskirkju.
Form taizé-messunnar er þó
nokkuð frábrugðið því formi sem
við eigum að venjast í hefð-
bundnum messum. Segja má að
þar sé einfaldleikinn í fyrirrúmi.
Og það er einmitt þessi einfald-
leiki sem margir kirkjugestir telja
kost taizé-messunnar.
Á heimasíðu Háteigskirkju
www.hateigskirkja.is er hægt að
fræðast nánar um uppruna taizé-
messunnar. Taizé er lítið þorp
skammt frá Cluny í austurhluta
Frakklands og þaðan berst hefðin
út um allan heim, meðal annars í
Háteigskirkju.
lagsráðgjöf og uppeldisfræðum til
kennsluréttinda frá sama skóla.
Síðan lauk hann embættisprófi í
sálfræði við Lundar-háskóla og
sérnámi í fjölskyldumeðferð á veg-
um Endurmenntunarstofnunar
HÍ. Dagskrá námskeiðsins verður
sem hér segir: Kl. 10.15-11: Mann-
leg samskipti, t.d. á vinnustað og í
skóla. Fyrirlestur og umræður. Kl.
11.15: Sjálfsímynd og sjálfsöryggi.
Fyrirlestur og umræður. Léttur
málsverður verður í hádegi og síð-
an samantekt og umræður kl. 13-
14. Allir eru velkomnir og nám-
skeiðið er þátttakendum að kostn-
aðarlausu, en vægt gjald, 300 kr.,
verður tekið fyrir veitingar.
Hjónakvöld í
Akraneskirkju
Akraneskirkja
Mannleg samskipti,
sjálfsímynd og
sjálfstraust
SÆMUNDUR Hafsteinsson, sál-
fræðingur, heldur námskeið um
mannleg samskipti, sjalfsímynd og
sjálfstraust í Kirkjulundi, safn-
aðarheimili Keflavíkurkirkju,
laugardaginn 20. okt. kl. 10-14.
Sæmundur er Suðurnesjamönnum
að góðu kunnur. Hann starfaði á
sínum tíma sem sálfræðingur
Reykjanesbæjar, en er nú fé-
lagsmálastjóri í Hafnarfirði. Sæ-
mundur lauk BA-prófi í sálfræði
frá HÍ og embættisprófi í fé-