Morgunblaðið - 18.10.2001, Blaðsíða 58
FRÉTTIR
58 FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NEMENDUR í 7.–10. bekk í Klé-
bergsskóla á Kjalarnesi fengu á
laugardag verðlaun á orkudegi
fyrir fjölskylduna sem haldinn var
í tengslum við Orkuþing. Allir
nemendur skólans í þessum fjórum
bekkjardeildum unnu saman verk-
efni á þemadögum um orku en síð-
asta vor var auglýst eftir skólum
til að taka þátt í vinnu í sambandi
við þingið.
Átta skólar voru valdir af þeim
fimmtán sem komu fram og bar
Klébergsskóli síðan sigur úr být-
um. Nemendur hljóta ferð í Svarts-
engi og Bláa lónið í verðlaun.
Linda Rós, 14 ára nemandi í
skólanum, tók við verðlaununum
ásamt pabba sínum, Sigþóri Magn-
ússyni, skólastjóra Klébergsskóla.
Linda Rós segir að verkefni skól-
ans fjalli um vindorku, jarðorku,
sólarorku, metan og hvernig ork-
an kemur frá umhverfinu. Sjálf
var hún í metangashópnum og
segist hún vita miklu meira núna
um metangas en hún gerði áður.
„Metangas er lofttegund sem er
léttari en loft og er í rauninni
skaðleg fyrir ósonlagið en hægt er
að nota hana sem orkugjafa og
hún myndast við rotnun,“ segir
Linda Rós því til sönnunar. Eitt
veggspjaldanna vakti sérstaka at-
hygli blaðamanns, það var spjaldið
um prumpubæ. „Prumpubær er
bær sem gengur eingöngu fyrir
metangasi, allir bílar eru knúnir
með metangasi og allt rafmagn.
Sundlaugin er upphituð með met-
angasi og svoleiðis,“ segir Linda
Rós. Aðspurð segir hún að bæj-
arbúar útvegi metangasið sjálfir,
en einnig kemur það frá rusla-
haugum bæjarins.
Verkefni skólans þótti sýna hag-
kvæmni, hugmyndir nemenda
voru frumlegar og taldi dómnefnd
að orku hefðu verið gerð góð skil.
Einn bekkur er í hverjum árgangi
skólans og var nemendum skipt í
hópana þannig að allir bekkirnir
áttu fulltrúa í hverjum hópi.
Þóranna Ólafsdóttir umsjón-
arkennari segir að nemendurnir
hafi verið mjög áhugasamir og að
áhersla hafi verið lögð á að þau
myndu nota allar greindir. „Við
hugsuðum okkur að þetta gæti
tengst tónlistinni og sköpun eins
og gerð líkana og nemendur nutu
sín vel um leið og þeir fundu sinn
stað,“ segir Þóranna. Alls eru
rúmlega 60 nemendur í þessum
fjórum árgöngum.
Fimmtán skólar sendu inn verk-
efni og voru sjö þeirra sýnd á
Orkuþinginu. Þeir skólar voru
Oddeyrarskóli, Egilsstaðaskóli,
Klébergsskóli, Melaskóli, Digra-
nesskóli, Lindaskóli og Andakíls-
skóli.
Klébergsskóli fékk verðlaun á Orkuþingi
Bær sem
gengur
eingöngu
fyrir met-
angasi
Morgunblaðið/Golli
Þóranna og Linda Rós við verðlaunaverkefnið.
DR. JOHN K. Watterson, flugvéla-
verkfræðideildinni við Queen’s Uni-
versity í Belfast, flytur fyrirlestur,
sem nefnist „Flugvélaverkfræði á
Norður-Írlandi“, föstudaginn 19.
október kl. 15 í stofu 158, hús verk-
fræði- og raunvísindadeilda, VR-II,
Hjarðarhaga 2. Fyrirlesturinn
fjallar um Norður-Írland, Queens-
háskólann og þá sérstaklega flug-
vélaverkfræðideildina ásamt sögu
flugvélaverkfræði á Norður-Írlandi.
„Flugvélaverkfræðideild Queens-
háskóla er með námskeið í burðar-
þolsfræði, flugverkfræði, varma-
fræði, túrbínum, stærðfræði, fram-
leiðslu og stjórnun. Þar er boðið upp
á þriggja ára BEng gráðu og fjög-
urra ára MEng. Það eru um 50 nem-
endur á ári í grunnnáminu. Fram-
haldsnámið er öflugt með um 20
doktorsnema og 4-5 sem hefja dokt-
orsnám á hverju ári. Skólinn fékk
hæstu mögulegu einkunn í síðustu
gæðakönnun,“ segir í fréttatilkynn-
ingu.
Fjallar um
flugvélaverk-
fræði á
N-Írlandi
MÁLÞING Astma- og ofnæmis-
félagsins verður haldið laugardaginn
20. október á Hótel Loftleiðum kl.
10-13. Þema fundarins er Daglegt líf
með astma og ofnæmi.
Fyrirlesarar eru: Davíð Gíslason,
sérfræðingur í lyflækningum og of-
næmissjúkdómum, Björn Árdal, sér-
fræðingur í barnalækningum,
ónæmis- og ofnæmisfræði, Sigurveig
Þ. Sigurðardóttir, sérfræðingur í
barnalækningum, ónæmis- og of-
næmisfræði, Sigurður Kristjánsson,
sérfræðingur í barnalækningum, of-
næmis- og ónæmissjúkdómum, Unn-
ur Steina Björnsdóttir, sérfræðingur
í lyflækningum, ofnæmis- og ónæm-
issjúkdómum, og Björn Rúnar Lúð-
víksson, sérfræðingur í lyflækning-
um og ónæmisfræði. Á eftir hverjum
fyrirlestri verður tími fyrir fyrir-
spurnir.
Að lokinni dagskrá verða pall-
borðsumræður um stöðu astma- og
ofnæmissjúklinga.
Málþing Astma- og
ofnæmisfélagsins
HELGINA 19.-21. október verða
haldnir Smiðjudagar á Dalvík, sem
er alþjóðlegt skátamót „í loftinu“ og
„á netinu“ (JOTI - Jamboree-On-
The-Internet).
JOTI hefur verið haldin í rúm 40
ár og koma skátar þar saman á tal-
stöðvum og reyna að ná sambandi
við sem flesta þessa daga. JOTI er
skátamót á Netinu og voru u.þ.b.
700.000 skátar um heim allan sem
tóku þátt í því móti á síðasta ári, en
það var fyrst haldið hér 1995 á Úlf-
ljótsvatni.
Sérstök hópferð er frá Reykjavík,
Borgarnesi, Blönduósi og Varmahlíð
og kostar ferðin fram og til baka t.d.
aðeins kr. 3.900 frá Reykjavík og að-
eins kr. 2.000 frá Varmahlíð. Allar
frekari upplýsingar er að finna á
Netinu undir slóðinni www.scout.is/
gjallarhorn/ og þar geta þátttakend-
ur skráð sig.
Smiðjudagar
á Dalvík
RABB hjá Rannsóknastofu í
kvennafræðum verður í dag,
fimmtudag, kl. 12–13 í Norræna hús-
inu. Hulda Proppé mannfræðingur
flytur erindið „Ég sé kvótakerfið
fyrir mér sem lopapeysu“. „Fjallar
hún um kynhugmyndir og upplifun
kvenna af orðræðu og auðlinda-
stefnu í sjávarútvegi.
Auðlindastjórnun í sjávarútvegi
hefur haft víðtæk áhrif í íslensku
samfélagi. Í rabbinu verður rætt um
hvernig skoða má áhrif kvótakerfis-
ins á konur og hvernig þær upplifa
og tjá þau áhrif,“ segir í fréttatil-
kynningu.
„Ég sé kvótakerfið
fyrir mér sem
lopapeysu“
DREGIÐ hefur verið í sumarleik
Netid-info úr innsendum blöðum
frá starfsmönnum hótela og gisti-
heimila. Birna Aspar, starfsstúlka
í gestamóttöku Hótel Loftleiða,
tók á móti gjafakörfu sem innihélt
1. vinning að andvirði um 50.000
kr. 1. vinningur var þriggja rétta
kvöldverður á Lækjarbrekku, olíu-
innpökkun, böð, pottar og heilsu-
rækt hjá Planet Pulse, bók frá
Netid-info, bók frá Eddu – miðlun
gjafakarfa frá bílaleigunni Budget,
gjafakarfa frá Lyfjum og heilsu og
Bláa lóninu, geisladiskur frá Japis,
gjafabréf frá Dominos og gesta-
kort Reykjavíkur frá Reykjavík-
urborg.
Sumarleikur
Netsins
SAMTÖK lungnasjúklinga halda fé-
lagsfund í Safnaðarheimili Hall-
grímskirkju í Reykjavík í kvöld kl 20.
Á fundinn kemur Andrés Sigurvins-
son, sérfræðingur í lungnasjúkdóm-
um og almennum lyflækningum.
Andrés nefnir fyrirlestur sinn
„Eru langvinnir lungnateppusjúk-
dómar arfgengir?“ Fundurinn er öll-
um opinn.
Fundur
lungnasjúklinga
AÐALFUNDUR Félags þjóðfræð-
inga á Íslandi verður haldinn í dag,
fimmtudag, kl. 20.30 í Skólabæ. Að
loknum venjulegum aðalfundarstörf-
um mun Jón Börkur Ákason þjóð-
fræðingur halda fyrirlestur um BA-
ritgerð sína: Svipir manna og dýra.
Allir eru velkomnir á fyrirlestur
Jóns Barkar.
Aðalfundur
þjóðfræðinga
KRINGLUKAST hefst í dag,
fimmtudag, og stendur fram til
sunnudagsins 21. október. Á
Kringlukasti gefst gestum tækifæri
til að njóta þess nýjasta, segir í
fréttatilkynningu.
Ein nýjung verður á Kringlukasti
að þessu sinni. Haldið verður uppboð
sunnudaginn 21. október kl. 14, þar
sem fjöldi verslana og þjónustuaðila
bjóða upp vörur sínar. Þorsteinn
Gunnarsson leikari og skemmti-
kraftur verður uppboðshaldari.
Kringlukast
fram á sunnudag
MENNINGAR- og friðarsamtök ís-
lenskra kvenna halda almennan fé-
lagsfund laugardaginn 20. október
kl. 14 í MÍR-salnum, Vatnsstíg 10.
Yfirskrift fundarins er: Fimmtíu
ára barátta og enn er þörf fyrir sam-
stöðu. Amal Tamimi, Helga Páls-
dóttir og María S. Gunnarsdóttir
flytja erindi.
Almennar umræður. Fundurinn
er öllum opinn.
MFÍK með
félagsfund
NOKKUR sveitarfélög hafa lýst yfir
áhuga sínum á því að prófa rafrænar
kosningar næsta vor, eins og fram
kom í Morgunblaðinu nýlega.
Nefnd sem unnið hefur að und-
irbúningi rafrænna kosninga hefur
nú skilað dómsmálaráðherra stöðu-
skýrslu. Þar kemur fram að gert sé
ráð fyrir að rafræn kosning fari
fram á kjörstöðum eins og nú er og
ekki verði að sinni hreyft við fyr-
irkomulagi utankjörstaðaatkvæða-
greiðslu. Því yrði að handtelja úrslit
hennar og færa þau inn í tölvukerfið
sérstaklega.
,,Í framtíðinni mætti hins vegar
þróa viðbót við kosningakerfin sem
hentaði fyrir utankjörstaðaatkvæða-
greiðslu,“ segir á minnisblaðinu.
Ráðuneytið efndi vorið 2000 til
hugmyndasamkeppni um tilhögun
kosninga með rafrænum hætti og
var í framhaldi af því samið við tvö
fyrirtæki, EJS hf. og Tölvubraut hf.
sem lögðu inn hugmyndir, sem
valdar voru til frekari úrvinnslu.
Gert er ráð fyrir að sveitarfélög sem
áhuga hafa semji við annað hvort
þessara fyrirtækja um afnot af
kosningakerfum sem þau hafa þró-
að.
Fram kemur að ráðuneytið hefur
notið aðstoðar dr. Jóns Þórs Þór-
hallssonar, ráðgjafa í tölvumálum,
og er hann nú að kanna tvö atriði í
þessu sambandi. Annars vegar
,,vottun“ kosningabúnaðar, þ.e. að
aðilar sem fengið hafa faggildingu
Löggildingarstofunnar skoði kosn-
ingabúnaðinn í hvert skipti og votti
að hann sé í lagi og engin brögð séu í
tafli. Hins vegar hvort setja megi
saman sérstakar ,,kosningatölvur“,
en þar er um einfaldar tölvur að
ræða sem notaðar verði við kosn-
inguna sjálfa.
Sérhannað lyklaborð
og „kosningamús“
,,Meginatriði í smíði þeirra, er að
á þeim verði stór flatur skjár, þar
sem hægt er að skoða flókna kjör-
seðla, t.d. við kosningar í Reykjavík
með fjölda framboðslista, lyklaborð
yrði sérhannað með stórum hnöpp-
um og „kosningamús“ og loks yrði
einhvers konar lás á tölvunni sem
hægt væri að innsigla þegar vottun á
henni hefur farið fram. Slíkar tölvur
mætti vafalaust setja saman hér á
landi að mestu úr tiltækum íhlutum,
en hugsanlega vildu stórir erlendir
tölvuframleiðendur einnig þróa slík-
ar tölvur sérstaklega fyrir markað-
inn eftir hugmyndum okkar,“ segir í
skýrslu starfshópsins til ráðherra.
,,Kosningatölvan væri það sem
sneri að kjósendum á kjörstað, en
starfsmenn í kjörstjórn notuðu hins
vegar venjulegar tölvur, sem tiltæk-
ar eru í hverju sveitarfélagi, við að
fylgjast með hvort viðkomandi ein-
staklingur er á kjörskrá og að
merkja við kjörskrána, þegar hann
hefur kosið. Hægt væri að veita t.d.
stjórnmálaflokkum aðgang jafnóð-
um um kosningaþátttöku og hverjir
eru búnir að kjósa.
Rafrænar kosningar til Alþing-
is skoðaðar í ljósi reynslunnar
Verði kosningakerfin reynd að
einhverju leyti við næstu sveitar-
stjórnarkosningar er að þeim lokn-
um hægt að meta reynsluna og þá
hvort taka eigi upp rafrænar kosn-
ingar í næstu Alþingiskosningum.
Trúlega yrði það ekki ódýrari kostur
en núverandi fyrirkomulag, a.m.k.
til að byrja með, en hins vegar er
hér um skilvirkari og skjótari fram-
kvæmd að ræða og yrði vafalaust
hægt að ná talsverðum sparnaði
fram við frekari þróun þessarar
tækni í framtíðinni og það jafnvel
þótt kosningafyrirkomulag yrði síð-
ar flóknara eins og þekkist í sumum
nágrannaríkjum okkar, þar sem
persónukjör er ríkari þáttur í kosn-
ingum þótt val milli framboðslista sé
aðalatriðið,“ segir í stöðuskýrslunni
til ráðherra.
„Engin leið að rekja
hvað hver einstak-
lingur hefur kosið“
Dómsmálaráðherra fær stöðuskýrslu um
rafrænar kosningar á kjörstöðum
Ekki talað við formann
bókagerðarmanna
Vegna fréttar í Morgunblaðinu
þriðjudaginn 16. október sl. um
prentun jólabókanna í ár skal það
leiðrétt að ekki var rætt við for-
mann Félags bókagerðarmanna,
FBM, eins og skilja mátti af yf-
irfyrirsögninni. Þarna var um að
ræða það mat formanns Félags ís-
lenskra bókaútgefenda, sem rætt
var við í fréttinni, að fleiri bækur
yrðu prentaðar hér á landi. Beðist
er velvirðingar á þessum mistökum
sem urðu við uppsetningu fréttar-
innar.
LEIÐRÉTT