Morgunblaðið - 18.10.2001, Qupperneq 68
FÓLK Í FRÉTTUM
68 FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
!
" #
$
%
#
&
" '(
)
*+,-
.+
% /
0+
1 (
21
( 21 -
)
(2 %
#
. 3
#
- 42
&
56
78
-
!
9
#
* 3- (
:
:
'(
; !
# ;* .
< # = )
.
2 % /
&
9 :
!
;
- ;
3 .
2
& 7
( $)
- ;
=
-
#
-
?
@
A
?
@
A7
?
A
B
8
?
?B
7
C
D
7D
?
7
?E
B
?B
F
?C
?
7B
?
B
A
7
8
)
&
56
9
9
G
&
56
)
:
H(;
G
9
H(;
0 H(;
G
H(;
-
( .(%
G
.(%
H
G
G
0
7
?
0
B
F
0
A
8
?E
0
C
7F
?B
@
?E
0
?8
D
7A
?C
?F
7E
0
?D
0
?7
7?
AD
??
'-
)+
,
I
,J
-
&2 !
$ ) 3
)+
,
(
3,,
,
K. L.
L* )L)1
L)# L(M (
N
L(M (
(L
1
L
# 7F
;
;
;
#2((- ""
""
N/ " ""
SÁLIN hans Jóns míns
hefur fyrir löngu síðan
áunnið sér nafnbótina:
Sál íslenskrar popp-
tónlistar. Eftir 14 ára
starf skipta smellirnir
sem sveitin hefur dælt
frá sér tugum og ná-
kvæmlega ekkert lát virðist á vinsældum henn-
ar. Logandi ljós er áttunda eiginlega breiðskífa
sveitarinnar að undanskildum safnplötunni
Gullna hliðinu og tónleikaplötunni 12. ágúst
’99. Um er að ræða einskonar framhald af síð-
ustu plötu, Öðrum mána, sem gekk býsna vel,
fór í gullplötusölu og innihélt tvö af alvinsæl-
ustu lögum síðasta árs, „Ekki nema von“ og
„Sól, ég hef sögu að segja þér“. Ef „popp-
sálin“ er söm við sig hefur nýja platan vafalítið
að geyma stórsmelli framtíðar.
KANNSKI ekki beint dönsk lög en ný lög með
Ný danskri, sú er staðreyndin. Pólfarir er sjö-
unda eiginlega hljóðversskífa sveitarinnar sem
gengið hefur í gegnum ýmsar mannabreytingar
á lífsleiðinni. Af upphaflegu liðsmönnum eru
einir eftir þeir Björn Jörundur Friðbjörnsson og
Ólafur Hólm. Jón Ólafsson og Stefán Hjörleifs-
son bættust formlega í hópinn frá og með De-
luxe og síðan á síðustu plötu Húsmæðragarð-
inum hafa þeir fjórir skipað sveitina, eða síðan
stofnmeðlimurinn Daníel Ágúst Haraldsson
hvarf af braut.
Pólfarir marka ákveðin þáttaskil því þetta er
fyrsta skífan sem sveitin gefur út sjálf, án að-
stoðar útgáfufyrirtækis, og virðist gripurinn
ætla að ganga jafnvel í landan og forverarnir.
LEONARD Cohen
hefur legið í dvala í
hartnær áratug,
nánar tiltekið inni-
lokaður í zenbúdda-
klaustri. Unnendur
kanadíska ljóðaraul-
arans hafa þurft að
bíða í heil níu ár eftir
nýjum lögum, eða
síðan The Future
kom út. Nú er sem
sagt biðin á enda því tíu ný lög hafa litið dags-
ins ljós, tíu lög sem hann samdi í félagi við
Sharon Robinson nokkra.
Mörgum eru enn ofarlega í huga tónleikar
sem Cohen hélt í Laugardalshöllinni 1988. Þá
sannaðist svo ekki varð um villst hversu marga
einlæga unnendur karlinn á hér á landi og inn-
koma nýju plötunnar sýnir að þeir hafa sann-
arlega ekki snúið við honum baki.
Tíu ný lög!
Jamiroquai/A Funk Odyssey
A Funk Odyssey er á engan hátt flöt
eða leiðinleg plata en manni finnst
eins og það væri alveg jafngott að
leita í hið upprunalega, úr því að það
er svona lítið unnið úr þessum greini-
legu áhrifum. David Gray/Lost Songs 1995–98
Gefur mynd af Gray eins og hann er
bestur … blíður Dylan, ástfanginn
Cohen, vongóður Nick Drake, djúpur
James Taylor og allsgáður Tim
Hardin … Gray er einfaldlega ein-
hver færasti laga- og textahöfundur
samtímans. Destiny’s Child/Survivor
Þrátt fyrir ótvíræða sönghæfileika og
augljósan tónlistarþroska verður
ekki hjá því komist að telja Survivor
standa síðustu plötu stúlknanna,
Writing on the Wall, töluvert að baki,
einkum vegna veikari lagasmíða og
minni ferskleika sem einmitt ein-
kenndi fyrri plöturnar. Slipknot/IOWA
IOWA á eftir að verða risi. Það er
bókað mál. Aðgengileg sturlun, hag-
lega matreidd fyrir uppkomandi kyn-
slóð, alin upp á níhílískum og merk-
ingarlausum tímum. Er hægt að
biðja um það betra? System of a Down/Toxicity
Hið mikla ágæti SOAD felst einkum í
hugmyndaríkum og ferskum laga-
smíðum og þeir festa sig ekki í við-
urkenndum þungarokksfrösum (það
er nefnilega gott að muna að þunga-
rokkið á það til að vera með íhalds-
samari formum). Hér er vaðið úr
„thrash“-keyrslum yfir í mjúkar mel-
ódíur af öryggi og auðheyranlegt að
SOAD er alvöruband. The Strokes/Is This It?
Áhrifin eru sótt til árdaga pönksins
og í sjálfa vögguna, New York-borg.
The Stooges, New York Dolls og
kannski allra helst Velvet Under-
ground á örvandi. Við erum samt
ekkert að tala um neinar stælingar
heldur hreint ferlega skemmtilega
einfaldar lagasmíðar, hressilega ung-
æðislegar og það sem meira er, þeir
„fatta“ alveg hvað Pop og Reed voru
að fara. Super Furry Animals/Rings
Around the World
Þessari bragðgóðu súpu fylgir gott
innsæi í melódíur; hugmyndaauðgi
og barasta hrein gleði gagnvart dæg-
urtónlistinni og öllum þeim mögu-
leikum sem hún býr yfir til að hressa
lýðinn en hrista um leið svolítið upp í
honum. Ed Harcourt/Here Be Monsters
Here Be Monsters er einkar heil-
steypt, frjó og um fram allt nost-
urslega samin, útsett og flutt
plata. Five/Celebrity
Verst er að útfærslan á þessu öllu er í
klénara lagi; söngraddir strákanna
eru veikar og ópersónulegar og allur
pakkinn lyktar af undarlegu metn-
aðarleysi og óðagoti. Ekki fallegur
svanasöngur það. Spiritualized®/Let it Come Down
Jason Pierce er einfaldlega orðinn
svo urrandi mikill snillingur þegar að
útsetningu og upptökustjórn kemur
að unun er hlusta á afrakstur pælinga
hans. Ekki spilla svo lagasmíðarnar á
Let it Come Down fyrir en þær eru á
köflum meistaralegar, sérstaklega
þegar Pierce nær að halda sig fjarri
rokkklisjunum sem hann reyndar er
fullgjarn á að grípa til. Live/V
Platan er fjölbreytt, hér er enginn lá-
deyða á ferð og Live eru hér leitandi
á sinn íhaldssama hátt. Einn og hálf-
ur þumall upp. Macy Gray/The Id
The Id er rökrétt framhald frum-
burðarins og eiginlega bara meira af
hinu sama.Verk söngdívu með sjálfs-
álitið í toppi sem finnst hún geta gert
hvað sem er, áreynslu-
laus. Garbage/Beautiful
Sveitin heldur hér fast í hrollkalt og
hugmyndaglatt popprokkið sem aflað
hefur henni vinsælda og hlýtur stór-
sigur fyrir. Dágóður árangur það.
Starsailor/Love is Here
Það er skemmst frá því að segja að
Love is Here stendur fyllilega undir
þeim væntingum sem gerðar voru til
sveitarinnar í kjölfar smáskífunnar
frábæru „Good Souls“. Slayer/God Hates Us All
Þeir, sem hugnast hreint og beint og
umfram allt brjálað þungarokk með
stóru Þ-i þurfa ekki að leita lengra en
hingað. Akercocke/The Goat of Mendes
TGOM er fjölbreytt og heilsteypt
verk en umfram allt afar hug-
myndaríkt. Slipknot mínus markaðs-
fræðin? GÓÐAR HLJÓMPLÖTUR
Arnar Eggert Thoroddsen
Skarphéðinn Guðmundsson
Frumburður Starsailor stendur
fyllilega undir þeim væntingum
sem gerðar voru til sveitarinnar.
Fyrir nokkrum árum bárust þær
fréttir af Cohen að hann hefði
horfið til fjalla, stundaði íhugun í
zenbúddaklaustri á fjallstindi í
sunnanverðri Kaliforníu. Hann
sneri aftur úr þeirri sjálfskipuðu
fimm ára útlegð fyrir tveimur ár-
um með fullar stílabækur af text-
um sem nokkrir rötuðu á þá plötu
sem hér er gerð að umtalsefni,
Ten New Songs.
Vinnan við plötuna fór þannig
fram að Sharon Robinson, sem eitt
sinn söng bakraddir með Cohen og
hefur samið með honum tvö lög,
setti saman tónlistina og lék á öll
hljóðfæri, enda er andlit hennar á
umslagi skífunnar við hlið Cohens.
Það kemur ekki ýkja vel út; tón-
listin er dæmigert rauðvínspopp í
plastglasi, hljóðgervlar geta aldrei
komið í stað lifandi hljóðfæra, ekki
síst ef bera á uppi innihaldslaust
muldur Cohens; Robinson er bráð-
skemmtileg söngkona en að sama
skapi afleitur ófrumlegur laga-
smiður.
Ten New Songs er slæm plata,
svo slæm að ég skora á þá sem á
annað borð halda upp á karlinn
Cohen að láta vera að kaupa hana,
en hlusta frekar á gömlu plöturn-
ar, eða helst af öllu að hlusta á
eitthvað nýtt; það er kominn tími
til að taka út smá þroska.
ÞAÐ ER best að byrja þennan
plötudóm með því að viðurkenna
að ég hafði eitt sinn mikið dálæti á
Leonard Cohen.
Þá var ég fimm-
tán ára og upp
fullur af beiskju
yfir vonsku
mannkyns og
skilningsleysi
þjóðfélags sem
krafðist þess að allir væru steyptir
í sama mót. Stuttu síðar óx ég
uppúr Cohen og hef lengi veigrað
mér við að viðurkenna að eitt sinn
þótti mér hann djúphugull og
merkilegur, jafnvel skáld.
Leonard Cohen hefur flest-
um betur kunnað þá list að
segja ekkert í svo snúnu máli
að mönnum finnst hann vera
að fara með djúpa speki. Hann
er oft naskur á líkingar og
heppinn með orð og þó að
hann sé ekki mikill eða
snjall lagasmiður þá hef-
ur hann náð að skapa sér
stíl sem heillað hefur
milljónir manna um heim
allan. Segja má að hann hafi
verið hirðskáld smáborgar-
anna, hinnar fjölmennu,
sjálfsánægðu millistéttar
menntamanna sem
Guðbergur nefnir svo.
Rauðvíns-
popp
í plastglasi
Leonard Cohen
Ten New Songs
SONY
Leonard Cohen snýr aftur – því miður.
Tónlist
Íslenska
poppsálin!
Sekir!
ÍSLENSKA rokksveitin Úlpa gaf út sína fyrstu
breiðskífu á dögunum og hafa plötukaupendur
þegar tekið við sér. Enda engin furða því plöt-
unnar hefur verið beðið með talsverðri eft-
irvæntingu. Hafnarfjarðarsveitin hefur verið
dugleg í spilamennskunni og uppskorið vel,
dyggan hóp stuðningsmanna sem vafalítið hef-
ur rokið til og keypt nýju plötuna glóðvolga.
Mea Culpa, sem heimfæra má „ég á sökina“,
var tekinn upp í Gróðurhúsinu hans Valgeirs
Sigurðssonar. Sjálfur stjórnaði Valgeir upp-
tökum en hann hefur verið hreint einstaklega
iðinn við kolann undanfarið enda þykir hann
með færari mönnum í sínu fagi.
Ný dönsk lög!
Árni Matthíasson