Morgunblaðið - 18.10.2001, Síða 71
Doc Scott spilar á vegum Airwaves og Virkni-Breakbeat.is
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2001 71
betra en nýtt
Nýr og glæsilegur salur
Sýnd kl. 6.
E.P.Ó.
Kvikmyndir.com
FRUMSÝNING Sýnd kl. 6. Ísl tal.Sýnd kl. 8 og 10.15. Sýnd kl. 8 og 10.
Ótrúlegar tæknibrellur,
brjáluð spenna og veisla
fyrir augu og eyru. Þú hefur
aldrei séð annað eins.
Sýnd kl. 8 og 10. Vit 269Sýnd kl. 8
Í glæpum áttu
enga vini
Ótrúlegar tæknibrellur,
brjáluð spenna og veisla
fyrir augu og eyru. Þú hefur
aldrei séð annað eins.
Sýnd kl. 10.
Sýnd kl. 6. Ísl tal.
Vit 245
Sýnd kl. 8 og 10.20.
Vit 280.Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit 269
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 10.10.
Kvikmyndir.com RadioX
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10.
Stór fengur
Tveir þjófar
Hverjum er
hægt að
treysta
Kvikmyndir.com
HK. DV
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.
Sýnd kl. 6. Ísl tal.
MAGNAÐ
BÍÓ
Sýnd. 5.30, 8 og 10.30.
Hrikalega flott ævintýramynd með hinum
sjóðheita og sexý Heath Ledger (Patriot).
Hugrakkar hetjur, fallegar meyjar, brjálaðar
bardagasenur og geggjað grín. Búðu þig
undir pottþétta skemmtun! Cool Movie of the
Summer! Rolling Stone Magazine
Hann Rokkar feitt!
Moulin Rouge
er án efa
besta mynd ársins
hingað til...
E.P.Ó.
Kvikmyndir.com
Empire
Rás2
DV
SV Mbl
Sýnd. 5.30, 8 og 10.30.
MOULIN
ROUGE!
VIÐ upphaf síðasta áratugar fór ung
rokksveit úr Hafnarfirðinum að láta
að sér kveða svo um munaði og fór
svo að hún bar höfuð og herðar yfir
þær flestar næstu fimm árin eða svo.
Hér er verið að tala um hljómsveit-
ina Jet Black Joe sem var leidd af
þeim Gunna Bjarna gítarhetju og
Páli Rósinkranz, stórsöngvara með
meiru. Í sumar ákvað sveitin svo að
koma saman aftur eftir langt hlé og
lék á Eldborgarhátíðinni við gríðar-
lega góðar undirtektir. Svo góðar
reyndar að sveitin er ekki nándar
nærri af baki dottin og í kvöld mun
hún troða upp í Iðnó, í tengslum við
Airwaves-hátíðina. Þess má geta að
fulltrúi frá útgáfurisanum E.M.I. fór
sérstaklega fram á að sveitin myndi
spila á hátíðinni en Airwaves-hátíð-
inni er öðrum þræði ætlað að vekja
áhuga erlendra útgefenda og blaða-
manna á íslenskri tónlist.
Þeir félagar, Gunnar og Páll, voru
samankomnir til skrafs og ráðagerða
ásamt blaðamanni á Hard Rock
Cafe. Hvar annars staðar!?
„Þetta var bara svo gaman!“ segir
Páll, aðspurður hví þeir hafi ekki
lagt niður rokktólin í lok Eldborg-
arhátíðar. „Þannig að við ætlum að
spila fram að jólum.“
Þeir félagar segja að stefnan sé
líka tekin á að skella sér í hljóðver og
taka upp nýtt efni.
„Við erum að pæla í að taka upp
tvö eða þrjú frumsamin lög og svo
eitt tökulag,“ tilkynnir Gunni Bjarni.
Hann segir að áðurnefnd beiðni
E.M.I. tengist samböndum sem
hann hefur verið að byggja upp er-
lendis en segir þá þó vera alveg ró-
lega með þau mál.
„Það væri auðvitað gaman ef eitt-
hvað myndi gerast en það var ekkert
stefnan hjá okkur er við komum
saman á ný.“
Páll segir að viðtökurnar við end-
urkomu sveitarinnar hafi verið lyg-
inni líkastar.
„Maður hefur fundið fyrir æsingi,
bæði hjá yngra liðinu og einhverjum
eilífðarrokkurum líka,“ segir Páll og
hlær.
„Við vissum ekkert hvaða viðtökur
við myndum fá,“ bætir hann við. „Við
erum búnir að vera hættir jafnlengi
og við vorum starfandi. En unga
kynslóðin virðist vera að uppgötva
þetta aftur. Það er bara eitthvað Jet
Black Joe-æði í gangi núna. Sölu-
hæsta platan hjá Skífunni núna er
You Can Have It All með Jet Black
Joe, safnplata frá 1996!“
Þeir Páll og Gunnar eru einu upp-
runalegu meðlimirnir en með þeim
nú eru þeir Kristinn og Guðlaugur
Júníussynir og Þórhallur Berg-
mann; sem hafa starfað með Móu og
reyndar einnig með Gunna Bjarna í
hinni skammlífu Jetz.
Tónleikar Jet Black Joe hefjast kl.
23.00.
Rokkararnir snúa aftur
!"#$%
&$' (
) *
+# *
) , -. /001+23, , 04
&) 0&
Morgunblaðið/KristinnJet Black Joe, 1995.
Jet Black Joe á Airwaves
arnart@mbl.is
DOC Scott er einn af lávörðum
trommu- og bassageirans í Bret-
landi, hvar slagæð framsækinnar
danstónlistar hefur legið undanfarin
ár. Árið 1994 setti hann Metalheadz-
útgáfuna á laggirnar ásamt Goldie
en Metalheadz hefur verið varpstöð
allra helstu trommu- og bassalista-
manna samtímans. Scott hefur verið
mikill áhrifavaldur og brautryðjandi
hvað þróun tónlistarinnar varðar,
bæði með tónlist sinni og plötusnúð-
asettum. Morgunblaðið sló á þráðinn
til meistarans og spurði hann spjör-
unum úr um danstónlistarheima og
-geima.
Alls kyns tónlist
Segðu mér, Scott. Hefur trommu-
og bassasenan í Bretlandi skriðið
niður í jörðina á nýjan leik. Eða var
hún kannski aldrei ofar moldu?
„Ég held að hún hafi verið í meg-
instrauminum um tíma vegna þess
að blaðamenn danstónlistartímarit-
anna voru þá mikið að tala um hana.
En ég hef aldrei haft trú á því að
þessi tegund tónlistar ætti eftir að ná
eyrum hins almenna hlustanda, hún
er það byltingarkennd í eðli sínu.
Það mætti segja að listamenn eins og
Kosheen og Reprazent séu það að-
gengilegasta í þessum geira. Þessi
geiri er líka þesslegur að hann lifir af
án þess að vera í náðinni hjá stórum
útgefendum eða hins almenna kaup-
anda.“
Hversu stórt er trommu- og
bassasamfélagið í Bretlandi?
„Það er fremur lítið. Það er mjög
samofið og þessir helstu plötusnúðar
eru á bilinu 20–30 og þeir þekkjast
allir.“
Svo virðist sem öll helstu nöfnin í
trommu- og bassalistinni komi frá
Bretlandi. Hvers vegna?
„Ég held að þetta sé að breytast
núna. Málið með trommu- og bassa
er að áferð tónlistarinnar hefur að
gera með menninguna hér í Bret-
landi. Auk þess er auðvelt að stunda
menninguna hér af kappi, þú getur
farið á trommu- og bassakvöld öll
kvöld vikunnar. En undanfarið hefur
mér virst sem þetta form sé að
skjóta rótum í fleiri löndum.“
Hvað um stöðu tónlistarinnar í
dag?
„Staðan er betri núna en fyrir ári.
Þá var tónlistin orðin of hörð og
ágeng að mínu mati og fjölbreytnin
minni. Núna er flóran orðin stærri;
meira af sungnum lögum og slíku.
Einsleitni gerir forminu illt að mínu
mati.“
En hvað um sjálfan þig. Ertu op-
inn fyrir alls kyns straumum og
stefnum?
„Ég hlusta á alls kyns tónlist já.
Hipp-hopp, sálartónlist, R og B,
framþróað hús, tæknó, sveim o.s.frv.
Ég hlusta á tónlist mér til ánægju og
líka til að draga fram einhver áhrif.
Ég væri handónýtur listamaður ef
ég hlustaði bara á trommu- og bassa-
tónlist. Einnig reyni ég að taka mér
almennt frí frá tónlistinni; horfi þá á
boltann, fer í bíó eða gef öndunum
brauð.“
Nú átt þú eigin útgáfu, 31 Re-
cords. Af hverju taka stærri nöfnin í
þessari listgrein sig alltaf til á end-
anum og stofna eigin útgáfu?
„Ég held að þegar þú ert kominn í
ákveðna stöðu þá hafir þú færi á að
hafa áhrif. Þar sem ég er orðinn
þekkt nafn í þessum geira get ég
beitt mér fyrir því að efni verði gefið
út jafnframt því að kynna það á ferð-
um mínum um heiminn sem plötu-
snúður. Þannig að mér finnst það í
raun sjálfsagt að ég beiti mér í þess-
um efnum enda er mér afar annt um
þessa hluti.“
Er erfitt fyrir nýliða að fóta sig í
þessum bransa?
„Ekki lengur, nei, meðal annars
vegna þessara óháðu útgáfna eins og
t.d. minnar. Hins vegar er öllu erf-
iðara að berja saman sómasamlegt
lag (hlær).“
Airwaves á fullu
Astró verður opnað kl. 21 í kvöld
en með Scott spila DJ Reynir, DJ
Kristinn og Chico Rockstar.
Airwaves-hátíðin verður á blúss-
andi stími úti um allan bæ eins og
hægt er að lesa nánar um hér á síð-
unni. Tónleikar Sigur Rósar verða
t.d. í Listasafni Reykjavíkur og mun
Páll Óskar sjá um upphitun með
glænýju efni. Einnig er vert að veita
Apes og Lake Trout frá Bandaríkj-
unum athygli. Apes spila afar kröft-
ugt, gítarlaust rokk en Lake Trout
er nýskapandi bræðingsband sem
tekur áhrif úr rokki, danstónlist og
bara hverju sem er.
Lækn-
irinn
þeytir Doc Scott: Lifandi goðsögn í
trommu- og bassaheimum.
TENGLAR
.....................................................
www.icelandairwaves.com
arnart@mbl.is