Morgunblaðið - 22.11.2001, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
www.bi.is
– Engar sveiflur milli mánaða
– Enginn gluggapóstur
– Engir dráttarvextir
– Engar biðraðir
– Engar áhyggjur
Kynntu þér útgjaldareikning HeimilislínuLáttu þér líða vel
FLUGLEIÐIR hafa samþykkt, í
kjölfar mótmæla frá Öryrkjabanda-
lagi Íslands, ÖBÍ, að endurskoða
reglu sem sett var sl. vor um að
hreyfihamlaðir eða fatlaðir farþegar
tilnefni ábyrgðarmann eða fylgdar-
mann þegar keyptur er farmiði í
millilandafluginu. Anna Geirsdóttir,
læknir og borgarfulltrúi, vakti at-
hygli ÖBÍ á málinu eftir að hún bók-
aði flug til London í síðustu viku. Í
samtali við Morgunblaðið segist hún
aldrei hafa lent í þessum aðstæðum
þrátt fyrir að hafa ferðast töluvert í
þau tuttugu ár sem hún hefur verið í
hjólastól. Telur Anna að um gróft
brot á mannréttindum sé að ræða en
upplýsingafulltrúi Flugleiða segir
regluna í gildi hjá fleiri evrópskum
flugfélögum og hún hafi verið sett til
að tryggja öryggi hreyfihamlaðra
farþega ef upp koma neyðartilvik.
„Ég harðneitaði að tilnefna ein-
hvern ábyrgðarmann, ég get vel bor-
ið ábyrgð á mér sjálf. Mér finnst
þetta mál með ólíkindum. Í raun er
verið að setja mig í farbann því Flug-
leiðir eru með einokunaraðstöðu,“
segir Anna sem hafði samband við
Öryrkjabandalagið og fékk þau svör
að enginn þar kannaðist við þessar
reglur Flugleiða.
„Í mínu tilviki sættust Flugleiðir á
að leyfa mér að fara. Hvað þá með
alla hina? Ég sætti mig ekki við það
og vil að reglan verði alfarið dregin
til baka,“ segir Anna sem er á leið til
London í dag með Flugleiðum. Það-
an bókaði hún far hjá British Air-
ways til Mexíkó, þangað sem hún er
að fara á ráðstefnu heimilislækna.
Að sögn Önnu var aldrei minnst á
ábyrgðarmann af hálfu sölumanns
British Airways.
Flugleiðir taka mið af
alþjóðlegum reglum
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Flugleiða, segir flugmálayf-
irvöld gera þá kröfu til flugrekenda
að tryggja öryggi hreyfihamlaðra
líkt og annarra farþega. Í flugrekstr-
arhandbók Flugleiða séu því reglur,
staðfestar af Flugmálastjórn, um
það hvernig beri að gæta öryggis
hreyfihamlaðra. Þær reglur hafi ver-
ið endurskoðaðar sl. vetur og gefnar
út í apríl á þessu ári.
„Í reglunum er kveðið á um að
með hreyfihömluðum farþega, sem
er í sjúkrabörum eða getur ekki
hreyft sig í eða úr sæti sínu, sé sam-
ferðamaður sem getur komið til
hjálpar þegar á þarf að halda í neyð,
til dæmis þegar farþegar þurfa að yf-
irgefa flugvél í skyndingu. Flugleiðir
leggja metnað sinn í að fylgja ís-
lenskum og alþjóðlegum reglum um
flugöryggi, enda er öryggi lykilþátt-
ur í starfsemi félagsins. Núgildandi
reglur Flugleiða um flutning hreyfi-
hamlaðra farþega taka mið af alþjóð-
legum reglum um flugöryggi og eru í
samræmi við þær reglur sem flug-
félög í nágrannalöndum okkar hafa,
eins og til dæmis SAS,“ segir Guð-
jón.
Hann segir að með umræddum
reglum sé fyrst og fremst horft til
öryggis farþegans en einnig þjón-
ustuþáttarins. Í ljósi athugasemda
frá Öryrkjabandalaginu hefðu Flug-
leiðir boðist til að endurskoða regl-
urnar í samráði við bandalagið. Á
meðan muni félagið gera sérstakar
ráðstafanir til að öryggi þeirra, sem
háðir séu notkun hjólastóla og ferð-
ist án fylgdarmanns, sé tryggt með-
an á flugi standi.
ÖBÍ lítur málið
alvarlegum augum
Öryrkjabandalag Íslands sendi
Flugleiðum bréf á þriðjudag og gaf
félaginu frest til hádegis í gær til að
draga regluna til baka. Skriflegt
svar kom í gærmorgun um að félagið
væri reiðubúið til viðræðna við ÖBÍ
um endurskoðun reglunnar.
Garðar Sverrisson, formaður Ör-
yrkjabandalags Íslands, segir fatl-
aða líta málið alvarlegum augum,
ekki bara hér á landi heldur einnig
meðal systursamtaka ÖBÍ erlendis.
Með þessu sé verið að lítilsvirða fatl-
aða og brjóta á mannréttindum
þeirra.
Að sögn Garðars eiga Evrópusam-
tök fatlaðra fund í dag um málið með
Evrópusambandi flugmálastjórna.
Hann segir málið enn alvarlegra ef í
ljós komi að íslensk flugmálayfirvöld
hafi lagt blessun sína yfir reglu
Flugleiða.
Garðar segir Flugleiðamenn ekki
fara með rétt mál er þeir haldi því
fram að sambærilegar reglur gildi
hjá öðrum flugfélögum í Evrópu.
Systursamtök ÖBÍ í Evrópu hafi
gengið úr skugga um að svo sé ekki.
Hann segir það með ólíkindum að
flugfélagið haldi öðru fram.
Nýleg regla um að fatlaðir farþegar leggi til fylgdarmann í millilandaflugi
Endurskoðuð
eftir hörð
mótmæli LITHÁUNUM níu sem unnu viðbyggingu fjölbýlishúss í Salahverfián þess að hafa atvinnu- og dvalar-leyfi var öllum vísað úr landi í gær og
eiga þeir að fara af landi brott í dag.
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Út-
lendingaeftirlitsins, segir að óskað
hafi verið eftir því að landamæra-
verðir á Keflavíkurflugvelli fylgdust
með ferðum mannanna. Ekki var þó
talin þörf á að lögreglumenn fylgdu
þeim úr landi.
Georg segir að eins og aðstæðum
var háttað í þessu máli hafi Útlend-
ingaeftirlitinu ekki þótt ástæða til að
setja endurkomubann á mennina.
Hefði það verið gert ættu þeir ekki
afturkvæmt inn á Schengen-svæðið
næstu þrjú árin.
Rannsókn lögreglunnar í Kópa-
vogi á málum mannanna og fyrir-
tækjum þeim tengdum er lokið og
eru gögnin til meðferðar hjá fulltrúa
sýslumanns.
Litháar sem voru
hér án atvinnu- og
dvalarleyfis
Eiga að fara
af landi
brott í dag
TURN Hallgrímskirkju virðist máttugri en margan
grunar þar sem engu er líkara en kirkjuturninn haldi
af sjálfsdáðum þungbúnum himninum uppi yfir borg-
inni. Þrátt fyrir hetjulegar tilraunir megnar skýja-
þykknið þó ekki að umvefja borgina gráma sínum held-
ur vegur salt á Hallgrímskirkju.
Morgunblaðið/RAX
Stærsta vegasalt í heimi
ELDUR varð laus í rafmagnstöflu í
Vopnafjarðarskóla í gær og fellur
skólahald niður af þeim sökum í dag
og á morgun.
„Þetta er stærðar tafla og það er
feiknaverk að gera við hana svo
þetta veldur talsverðri röskun á
skólastarfi,“ sagði Aðalbjörn Björns-
son, skólastjóri Vopnafjarðarskóla, í
samtali við Morgunblaðið, en elds-
voði varð í skólahúsinu í gær. Kvikn-
aði í rafmagnstöflu og eru skemmdir
að mestu bundnar við hana. „Það fór
rafmagn af nýju viðbyggingunni en
þar fer helmingur kennslustarfs
fram og þar eru einnig tónlistarskól-
inn, eldhús, matsalur og vinnuað-
staða kennara. Þar er hvorki raf-
magn né hiti og það er viðbúið að það
taki nokkra daga að gera við töfluna,
hún er það stór og mikil og flókin.
Fyrir liggur að skóli fellur niður á
morgun og föstudag og maður vonar
bara að kennsla komist í samt lag
strax eftir helgi. Það á eftir að rann-
saka hvað veldur því að í töflunni
kviknar en hún er ekki nema árs-
gömul, húsið var tekið í notkun í
fyrrahaust. Taflan er á jarðhæð og
reykskemmdir eru aðallega bundnar
við hana. Tvær eldvarnarhurðir í
kjallaranum lokuðust strax og heftu
útbreiðslu reyks en lítilsháttar barst
þó um loftræstikerfi upp á næstu
hæð,“ segir Aðalbjörn.
Þegar eldsins varð vart var
kennsla í fullum gangi. Skólahúsið
hafi verið rýmt strax og farið með
nemendur út í íþróttahús við hlið
skólans. Aðalbjörn segir það lán í
óláni að kviknað hafi í að degi til því
verr hefði getað farið ef eldurinn
hefði kviknað að nóttu til.
Slökkvilið komið
eftir örfáar mínútur
„Við vorum komnir á staðinn á ör-
fáum mínútum, það er stórmál í okk-
ar huga þegar tilkynnt er um eld í
skóla og það á skólatíma. Ég sendi út
allsherjarútkall, þá mæta allir í lið-
inu eða 13 manns. Mestar áhyggjur
höfðum við af fólkinu en það gekk vel
að rýma húsið. Við vorum ekki búnir
að æfa rýmingu en höfðum undirbúið
það og það er einkennileg tilviljun að
í morgun átti ég samtal við húsvörð-
inn um æfingu í þeim efnum,“ segir
Björn Sigurbjörnsson slökkviliðs-
stjóri á Vopnafirði.
Eldur í rafmagns-
töflu í Vopna-
fjarðarskóla
SIGURÐUR Einarsson, forstjóri
Kaupþings hf. segir að viðskiptavin-
ir fyrirtækisins muni ekki verða fyr-
ir fjárhagslegu tjóni vegna meintra
afbrota sjóðsstjóra hjá fyrirtækinu.
Sjóðsstjórinn hefur verið úrskurð-
aður í einnar viku gæsluvarðhald
vegna gruns um brot á lögum um
verðbréfaviðskipti og um auðgunar-
brot.
Jón H. Snorrason, yfirmaður
efnahagsbrotadeildar ríkislögreglu-
stjóra, verst að öðru leyti fregna af
málinu, það sé í rannsókn og yfir-
heyrslum sé ekki lokið.
Páll Gunnar Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Fjármálaeftirlitsins,
vildi ekkert tjá sig um málið.
Starfsmaður Íslandsbanka og
framkvæmdastjóri lífeyrissjóðsins
Hlífar voru handteknir vegna máls-
ins á mánudag en sleppt eftir yf-
irheyrslur.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins rannsakar lögreglan m.a.
hvort sjóðsstjórinn hafi fengið
hlutabréf lánuð hjá lífeyrisssjóðnum
Hlíf sem hann hafi selt á ákveðnu
gengi en skömmu síðar keypt sömu
bréf hjá öðru fjármálafyrirtæki á
aðeins lægra gengi og skilað þeim
aftur til lífeyrissjóðsins. Þannig
varð til mismunur sem hann hélt
eftir.
Viðskiptavinum gerð
grein fyrir málinu
Sjóðsstjórinn hafði umsýslu með
fjárfestingum stofnanafjárfesta, þ.e.
lífeyrissjóða og fjárfestingarfélaga.
Sigurður Einarsson, forstjóri
Kaupþings hf., segir alveg ljóst að
viðskiptavinir fyrirtækisins muni
ekki verða fyrir fjárhagslegu tjóni
vegna málsins. Hugsanlegt tjón
þeirra verði að fullu bætt. Rætt hef-
ur verið við þá viðskiptavini sem
voru í viðskiptum hjá viðkomandi
sjóðsstjóra og þeim gerð grein fyrir
málinu.
Aðspurður um hvort innra eftirlit
fyrirtækisins hafi brugðist að ein-
hverju leyti segir Sigurður að erfitt
sé að sjá að svo sé. „Það er öflugt
innra eftirlit með viðskiptum starfs-
manna og í raun mjög takmarkað
sem starfsmenn mega gera. Erfitt
hefði verið að koma í veg fyrir þetta
mál þar sem vitorðsmenn utan fyr-
irtækisins og hjá öðrum fjármála-
fyrirtækjum hafi tekið þátt meint-
um svikum,“ segir Sigurður.
Að öðru leyti vill hann lítið tjá sig
um málið. „Það er einfaldlega ekki
verjandi enda er málið í rannsókn
og best að bíða þar til öll kurl eru
komin til grafar.“ Málið segir hann
fyrst og fremst sorglegt fyrir við-
komandi sjóðsstjóra.
Viðskiptavinir Kaupþings
verða ekki fyrir tjóni
ÖKUMAÐUR fólksbifreiðar slapp
með marbletti og skrámur eftir að
hafa misst stjórn á bifreið sinni
skammt fyrir innan Borðeyri í
Hrútafirði í gær með þeim afleiðing-
um að bíllinn fór út af veginum og
endaði um þrjátíu til fjörutíu metr-
um neðar.
Að sögn lögreglunnar á Hólmavík
fór bíllinn að minnsta kosti eina veltu
en endaði á hjólunum. Ökumaðurinn
var í bílbelti og slapp því með
skrekkinn. Fullvíst má telja að bíl-
beltið hafi bjargað ökumanningum
frá miklum meiðslum. Bílinn er mik-
ið skemmdur að sögn lögreglunnar.
Endaði 40 metrum
neðan við veginn