Morgunblaðið - 22.11.2001, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 22.11.2001, Blaðsíða 56
DAGBÓK 56 FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Mánafoss kemur í dag. Helgafell, Dettifoss og Trinket fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: China Prospect fer í dag. Brúarfoss fór í gær. Venus fór vænt- anlega í gær. Mannamót Norðurbrún 1 og Furu- gerði 1. Farið verðu í Háskólabíó að sjá myndina „Mávahlátur“ kl. 14 mánud. 26. nóv. rútuferð frá Norð- urbrún kl. 13. og Furu- gerði kl. 13.10. Þátttaka tilkynnist í s. 568-6960, Norðurbrún og s. 553- 6040, Furugerði, fyrir 23. nóv Árskógar 4. Kl. 9–12 baðþjónusta, handa- vinnustofan opin, bók- band og öskjugerð, kl. 9.45–10 helgistund, kl. 10.15 leikfimi, kl. 11 boccia, kl. 13–16.30 smíðastofan opin, kl. 10–16 púttvöllur opinn. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8.30–14.30 böðun, kl. 9– 9.45 leikfimi, kl. 9–12 myndlist, kl. 9–16 handavinna. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið Hlaðhömrum er á þriðju- og fimmtudög- um kl. 13–16.30, spil og föndur. Jóga á föstudög- um kl. 13.30. Kóræfing- ar hjá Vorboðum, kór eldri borgara í Mos- fellsbæ á Hlaðhömrum fimmtudaga kl. 17–19. Uppl. hjá Svanhildi í s. 586-8014 kl. 13–16. Félag eldri borgara í Kópavogi. Bingó í dag kl. 14. Félagsstarf aldraðra Dalbraut 18–20. Kl. 9– 12 aðstoð við böðun, kl. 9–13 opin handa- vinnustofan, kl. 9.30 danskennsla, kl. 14.30 söngstund. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð- un, kl. 11 leikfimi, kl. 13 föndur og handavinna. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ. Í dag fé- lagsvist á Álftanesi kl. 19.30. Fimmtud. 29. nóv. Spilað í Holtsbúð kl. 13.30. Föstud. 30. nóv. Dansað í kjallaranum í Kirkjuhvoli kl. 11. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Pútt í Bæjarútgerðinni kl. 10. Opið hús í Hraun- seli kl. 14. Á dagskrá er upplestur úr nýjum bókum og tónlist. Á morgun er myndlist, brids og tréútskurður í Lækjarskóla. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan opin virka daga frá kl. 10–13. Nýtt útlit á kaffi- stofunni komið og lítið við. Kaffi – blöðin og matur í hádegi. Fimmtudagur: Brids kl. 13. Silfurlínan er opin á mánu- og mið- vikudögum kl. 10–12. Uppl. á skrifstofu FEB. kl. 10–16 s. 588-2111. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 glerskurður, kl. 9–16 böðun, kl. 10 leikfimi, kl. 15.15 dans. Opið alla sunnudaga frá kl. 14–16 blöðin og kaffi. Gerðuberg, félagsstarf. Sund- og leikfimiæf- ingar í Breiðholtslaug kl. 9.30, kl. 10.30 helgi- stund, umsjón Lilja G. Hallgrímsdóttir, djákni. Frá hádegi vinnustofur og spilasalur opin. Myndlistarsýning Bryn- dísar Björnsdóttur stendur yfir, listamað- urinn á staðnum eftir hádegi. Veitingar í veit- ingabúð. Allir velkomn- ir. Upplýsingar um starfsemina á staðnum og í síma 575-7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnnustofan op- in leiðbeinandi á staðn- um, kl. 9.30 klippimynd- ir og taumálun, kl. 9, kl. 9.05 og 9.50 leikfimi, kl. 13 gler- og postulíns- málun, kl. 16.20 og kl. 17.15 kínversk leikfimi. Handverksmarkaður verður í Gjábakka í dag fimmtudag frá kl. 13. Margt góðra og eigu- legra muna. Gullsmári, Gullsmára 13. Postulínsmálun kl. 9.15, jóga, kl. 9.05 brids, kl. 13 handavinnn- ustofan opin, leiðbein- andi á staðnum, línu- dans kl. 17. Hraunbær 105. Kl. 9 op- in vinnustofa, búta- saumur, kortagerð og perlusaumur, kl. 9.45 boccia, kl. 14 félagsvist. Föstudaginn 23. nóv. kl. 14 kemur í heimsókn Steinunn Jóhannsedótt- ir rithöfundur og fræðir um ferðir Guðríðar Sím- onardóttur (Tyrkja- Gudda) á framandi slóð- um. Allir velkomnir. Veislukaffi. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 böðun og bútasaumur, kl. 10 boccia, kl. 13 handavinna, kl. 14 fé- lagsvist. Norðurbrún 1. Kl. 9 tré- skurður og opin vinnu- stofa, kl. 10–11 ganga, kl. 10–15 leirmuna- námskeið. Vesturgata 7. Kl. 9.15– 12 aðstoð við böðun, kl. 9.15–15.30 handavinna, kl. 10 boccia, kl. 13–14 leikfimi, kl. 13–16 kór- æfing, kl. 17–20 leir- mótun. Jólafagnaður verður fimmtudaginn 6. des. Húsið opnað kl. 17:30. Ragnar Páll Ein- arsson leikur á hljóm- borð. Jólahlaðborð, kaffi og eftirréttur. Kór leik- skólans Núps syngur jólalög undir stjórn Kristínar Þórisdóttur. Kvartett spilar kamm- ertónlist. Gyða Valtýs- dóttir, Ingrid Karls- dóttir, Helga Þóra Björgvinsdóttir og Anna Hugadóttir. Dans- sýning frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru. Gospel systur í Reykja- vík syngja undir stjórn Margrétar J. Pálma- dóttur. Undirleikari Agnar Már Magnússon, fjöldasöngur. Hugvekja, séra Hjálmar Jónsson dómkikjuprestur. Allir velkomnir, upplýsingar og skráning í síma 562- 7077. Mánudaginn 26. nóvember verður farið í Háskólabíó á íslensku myndina Mávahlátur. Lagt af stað frá Vest- urgötu kl. 13:30 (Sýn- ingin hefst kl. 14.) Upp- lýsingar og skráning í síma 562-7077. Vitatorg. Kl. 9 smíði, kl. 9.30 glerskurður og morgunstund, kl. 10 boccia, kl. 13 hand- mennt og frjálst spil, kl. 14. leikfimi. Aðventu- og jólafagnaður verður 6. desember. Jólahlað- borð, ýmislegt til skemmtunar. Skráning í síma 561-0300. ÍAK, Íþróttafélag aldr- aðra í Kópavogi. Leik- fimi kl. 11.15 í Digra- neskirkju. Gullsmárabrids. Eldri borgarar spila brids í Gullsmára 13 mánu- og fimmtud. Skráning kl. 12.45. Spil hefst kl. 13. Sjálfsbjörg, félagsheim- ilið Hátúni 12. Tafl í Rauða sal kl. 19. Sjálfboðamiðstöð Rauða krossins, Hverf- isgötu 105. Kl. 13–16 prjónað fyrir hjálp- arþurfi erlendis. Efni á staðnum. Allir velkomn- ir. Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra. Aðal- fundurinn verður laug- ardaginn 24. nóv. kl. 14 í Hvassaleiti 56–58 Ath. að leikfimitíminn í Bláa salnum er á föstudag kl. 11 í stað fimmtudags. Kristniboðsfélags kvenna, Kristniboðs- salnum, Háaleitisbraut 58–60. Bænastund og undirbúningur basars- ins. Fundurinn hefst kl. 17. Allar konur vel- komnar. Kiwanisklúbburinn Geysir, Mosfellsbæ. Fé- lagsvist spiluð í kvöld kl. 20.30, stundvíslega, í Kiwanishúsinu Mos- fellsbæ Skaftfellingafélagið. Myndakvöld verður haldið í Skaftfell- ingabúð, Laugavegi 178, fimmtudaginn 22. nóv- ember kl. 20:30. Mynd- efni: Lónsöræfi. Samtök lungnasjúk- linga verða með fræðslufund sem hald- inn verður í Hallgríms- kirkju suðursal í kvöld kl. 20 fimmtudaginn 22. nóvember. Gestur fund- arins og ræðumaður verður dr. med. Þór- arinn Gíslason yfirlækn- ir og mun hann tala um Vífilsstaði og þær breyt- ingar sem eru fram- undan vegna flutnings starfseminnar. Allir lungnasjúklingar og áhugafólk um málefnið hvatt til að koma. Í dag er fimmtudagur 22. nóvem- ber, 236. dagur ársins 2001. Cecilíu- messa. Orð dagsins: Drottinn hefir heyrt grátbeiðni mína. Drottinn tek- ur á móti bæn minni. (Sálm. 6, 10.) 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 LÁRÉTT: 1 land í Evrópu, 8 sárs, 9 miskunnar, 10 óhljóð, 11 ruddar, 13 ójafnan, 15 hnjóðs, 18 eimyrjan, 21 veðurfar, 22 hani, 23 skorpan, 24 góðu úrræði. LÓÐRÉTT: 2 rotnunarlyktin, 3 söng- flokkar, 4 meltingarfær- is, 5 róin, 6 húsdýr, 7 Ís- land, 12 rödd, 14 sefi, 15 þefur, 18 fiskur, 17 al, 18 skriðdýr, 19 duftið, 20 á stundinni. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 hláka, 4 festa, 7 asann, 8 örend, 9 afl, 11 illt, 13 ofni, 14 ísöld, 15 hark, 17 datt, 20 Áka, 22 lætur, 23 róg- ur, 24 trafs, 25 súrna. Lóðrétt: 1 hlaði, 2 ákall, 3 Anna, 4 fjöl, 5 skerf, 6 Andri, 10 frökk, 12 tík, 13 odd, 15 helft, 16 rotna, 18 angur, 19 tirja, 20 árás, 21 arðs. K r o s s g á t a Hundaeigendur umhverfissóðar HUNDAEIGENDUR virðast nota Miklatún, þetta fallega og vel stað- setta útivistarsvæði í miðri borginni, sem haughús hunda sinna. Á túninu vest- an við Kjarvalsstaði við Rauðarárstíg er vart hægt að drepa niður fæti fyrir hundaskít og ættu þessir umhverfissóðar frekar að fá sér gullfiska eða kanarí- fugla sem gæludýr til að saurga ekki almennings- garðana með slíku fram- ferði. Greinileg merki eru um að það sé bannað að vera með hunda á Mikla- túni. Pálmi. Ekki allir með Netið ÉG er ein af þeim sem fengu bréf frá Símanum þar sem tilkynnt var að 95 kr. yrðu lagðar á reikning- inn. Í bréfinu var tekið fram að ef borgað væri í gegnum Netið þá losnaði maður við að borga þessa upphæð. En það eru ekki allir með Netið. Eins er ég hissa á því að fólk sem verslar í stór- mörkuðum skuli ekki kvarta undan því að vera ekki gefið ráðrúm til að ganga frá vörunum sínum í poka á afgreiðslukössum. Það er eins og lífið liggi við að klára að afgreiða fólk. Oft verður þetta til þess að vörur ruglast á borðinu. Ég hef tvisvar týnt vörum vegna þessa. Og ef maður kvartar þá er ekki hlustað á mann. Þreytt kona. Þökk en ekki takk MARGOFT hefur verið bent á það hér að orðið „takk“ er sletta frá danska tímabilinu hér í landi í ein 500 ár. En þessi sletta er svo lífseig og tungutöm að jafnvel menningarstofnanir okkar eins og RÚV nota orðin takk og þökk jöfnum höndum, en þó hið fyrra mun oftar í textum sjón- varpsmynda. Enn einu sinni skal tilmælum komið á framfæri um að framveg- is verði slettunni sleppt – einnig hjá RÚV. H.Þ. Tapað/fundið Veski týndist SVART flauelsveski með keðju týndist á Broadway sl. fimmtudag. Í veskinu var hvít myndavél með átekinni filmu ásamt lykl- um, kortum, skilríkjum o.fl. Skilvís finnandi hafi sam- band í síma 567 3267. Leðurjakki týndist SVARTUR leðurjakki (blússa) týndist á Broad- way sl. fimmtudag. Í jakk- anum var GSM-sími. Skil- vís finnandi hafi samband í síma 567 3267. Gleraugu týndust GLERAUGU, með Titan- ium-umgjörðum, týndist fyrir ca. 2 vikum. Þeir sem- hafa orðið þeirra varir vin- samlega hafið samband í síma 557 3549. Dýrahald Hvolpur fæst gefins 5 MÁNAÐA sætur Border- Collie blandaður hvolpur fæst gefins. Uppl. í síma 565 4623 eða 868 7519. Panda er týnd SEX mánaða, mjög smá- vaxin læða, svört með hvíta blesu, hvítar loppur og hvíta rönd á maga, hvarf frá Hörðuvallasvæðinu í Hafnarfirði föstudaginn 16. nóv. sl. Kisa var ekki með hálsband, en hún er eyrna- merkt: R1 H137 og með ný- legt ör á kviði. Hún gæti hafa lokast inni, orðið fyrir bíl, eða leyft einhverjum að „finna“ sig og fara með sig heim. Þeir sem vita um ferðir hennar vinsamlega hafið samband í síma 897 1393, eða 565 1480. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Víkverji skrifar... VÍKVERJI er í hópi þeirra semleiðist að versla í mjög stórum verslunarmiðstöðvum. Honum líður t.d. alltaf frekar illa í Kringlunni. Það er erfitt að útskýra af hverju. Víkverji hallast einna helst að því að það sé eitthvað í hönnun hússins sem veldur því að hann fyllist ónotakennd og leiða þegar hann er búinn að vera í Kringlunni í fáeinar mínútur. Víkverji hélt lengi vel að hann væri einn um þetta og ástæðan væri fyrst og fremst sú hvað hon- um þykir leiðinlegt að versla. Vík- verji hefur hins vegar á seinni ár- um hitt marga sem segjast finna fyrir sömu ónotakennd og leiða þegar þeir eru í Kringlunni. Þetta er fólk af báðum kynjum og sumt af þessu fólki segist annars hafa gaman af því að versla. Víkverji var þess vegna fullur tortryggni þegar hann lagði leið sína í Smáralind í Kópavogi fyrir skemmstu og átti von á að hann myndi fljótlega fara að þrá að kom- ast út. Það gerðist hins vegar ekki. Svo einkennilegt sem það er leið Víkverja bara bærilega í Smára- lindinni og sá enga ástæðu til að flýta sér heim. Víkverji er ekki frá því að hönnun hússins sé mun bet- ur heppnuð en hönnun Kringlunn- ar sem Víkverja hefur alltaf þótt frekar ljótt hús. Því fer hins vegar fjarri að Vík- verji hafi verið ánægður með allt í Smáralind. Hann settist m.a. inn á veitingastaðinn Friday’s. Hann pantaði sér nautasteik, konan fékk kjúklingavængi og barnið fékk sér hamborgara. Það verður að segja alveg eins og er að maturinn stóð ekki undir væntingum. Hamborg- arinn var ofsteiktur og barnið átti í stökustu vandræðum með að borða hann. Kjúklingavængirnir voru hins vegar hættulega lítið steiktir og alls ekki girnilegir. Engin sósa fylgdi með nautasteikinni. Víkverji hafði pantað sér franskar kartöflur með henni en fékk hins vegar ofn- bakaða kartöflu. Það var því greini- legt að starfsfólkið hafði enn ekki náð fullum tökum á matreiðslunni. Víkverji fór líka í hina risastóru verslun Hagkaups. Það er Víkverja algjör ráðgáta hvernig það getur verið hagkvæmt að reka verslun í svona stóru húsnæði. Þrátt fyrir að ekki vantaði gólfplássið fannst Vík- verja einkennilegt hvað sumar hill- ur í búðinni voru háar. Eiginkona Víkverja átti t.d í mesta basli með að nálgast vörur í efstu hillunum. x x x VÍKVERJI heyrði fyrirskömmu af saumaklúbb sem á seinni árum hefur haft það fyrir reglu að fara árlega í ferð til út- landa til að skemmta sér, hvílast frá börnum og eiginmönnum og versla. Að þessu sinni ákváðu þær að bregða út af vananum. Þær söfnuðust saman eins og þær voru vanar á haustin og fóru í rútu sam- an til Keflavíkur. Í stað þess að fara út á Keflavíkurflugvöll í flug skráðu þær sig hins vegar inn á hótel í Keflavík þar sem þær skemmtu sér vel um kvöldið. Dag- inn eftir fóru þær í Smáralind í Kópavogi. Þar voru allar búðirnar sem þær voru vanar að fara í á ferðunum til útlanda. Eftir skemmtilegan verslunarleiðangur fóru þær aftur á hótelið og áttu þar notalega stund. Ferðin tókst vel í alla staði og var ekkert frábrugðin fyrri ferðum nema að því leyti að konurnar yfirgáfu aldrei landið. HVAÐ getur maður gert til að sporna gegn því að vera seldur eins og ein- hver hlutur og komið í veg fyrir að þjónustuaðili selji viðskipti mín til ann- ars aðila? Eru allir glaðir yfir því að nú komi einhverjir Jón- ar og Gunnur og taki yfir þá þjónustu sem þú hefur keypt af fyrirtækinu þínu? Fyrirtæki sem þú átt sem ríkisborgari og skatt- greiðandi, en verður látið í hendur ókunnugum á þann hátt að þú átt það ekki lengur. Þjóðareign verður eign fárra og þarfir þínar hjá þessu fyrirtæki orðin söluvara, vegna duttlunga örfárra manna. Til hvaða bragða get ég gripið? Getur einhver annar þjónustuaðili komið í stað- inn fyrir þá þjónustu sem ég hef keypt hjá gamla Pósti og síma nú Síman- um? Er einhver úti í þjóð- félaginu sem er á sama báti og getur frætt mig um þessi atriði? Atli Hraunfjörð, Marargrund 5, Garðabæ. Hvernig er að vera seldur?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.