Morgunblaðið - 22.11.2001, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 22.11.2001, Qupperneq 12
FRÉTTIR 12 FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ  SIF Einarsdóttir varði doktors- ritgerð sína í ráðgefandi sálfræði við Háskólann í Illinois Champaign- Urbana hinn 14. maí síðastliðinn. Ritgerðin ber heitið „Struct- ural Equivalence of Vocational Interests Across Culture and Gender: Differ- ential Item Functioning in The Strong Int- erest Invent- ory“. Leiðbein- andi hennar var dr. James Rounds. Rannsóknin var styrkt af Consulting Psychologist Press og rannsóknarsjóði KHÍ. Í fréttatilkynningu segir: Ritgerð- in fjallar um rannsókn sem gerð var á þvermenningarlegu gildi Áhuga- könnunar Strong sem mikið er notuð við náms- og starfsráðgjöf hérlendis. Kannað var hvort helstu kvarða prófsins megi túlka á sama hátt hér- lendis og í Bandaríkjunum þar sem prófið er upprunnið. Borin voru sam- an svör ráðþega hérlendis og í Bandaríkjunum. Einnig var kannað hvort skýra mætti þann kynjamun sem fram kemur í svörum ráðþega við könnunum af þessu tagi. Helstu niðurstöður sýna að um helmingur atriða prófsins virkar ólíkt hérlendis og í Bandaríkjunum en það vekur spurningar um gildi notkunar prófsins á Íslandi. Einnig kom í ljós að um 70% atriðanna virka ólíkt fyrir karla og konur í báðum löndunum. Svo virðist sem kyn- bundnar staðalmyndir tengdar þeim atriðum sem prófið samanstendur af hafi ólík áhrif á áhugasviðsmat karla og kvenna. Niðurstöður þessar gefa til kynna að kynbundna skekkju er að finna í Áhugakönnun Strong. Mikilvægt er fyrir ráðgjafa að átta sig á að skekkja af þessu tagi hefur ólík áhrif á náms- og starfsval karla og kvenna og á jafnvel þátt í að við- halda hefðbundinni kynjaskiptingu á vinnumarkaði. Ljóst er af rannsókn þessari að skoða þarf vel þær kenn- ingar sem áhugapróf byggjast á og þau atriði sem notuð eru við gerð slíkra prófa, bæði með tilliti til ólíkra menningarheima og kynjanna. Sif lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum í Kópavogi árið 1986. Árið 1991 lauk hún BA-prófi frá Háskóla Íslands og kennsluréttindanámi árið 1992. Sif hefur stundað nám við Há- skólann í Illinois frá árinu 1993 og lauk þaðan MA-prófi árið 1996. Frá árinu 1999 hefur hún starfað sem lektor í próffræðum og tölfræði við Kennaraháskóla Íslands. Sif er fædd 12. febrúar 1966. Hún er dóttir Aðalheiðar Guðmunds- dóttur og Einars Frímannssonar. Hún á tvö börn, Darra og Örnu Beth. Sambýlismaður Sifjar er Jón Páll Haraldsson kennari. Doktors- vörn í ráð- gefandi sál- fræði Sif Einarsdóttir KRISTINN H. Gunnarsson, þing- maður Framsóknarflokksins á Vest- fjörðum, segir að hugmyndir um menningarhús á Ísafirði hafi verið til athugunar, en engin samþykkt verið gerð eða yfirlýsingar gefnar á fund- um þingmanna kjördæmisins um málið. Einar K. Guðfinnson, fyrsti þing- maður Vestfirðinga sagði í Morgun- blaðinu fyrir skömmu að fullkominn einhugur þingmanna kjördæmisins væri um málið. Kristinn sagði að Ísfirðingar hefðu kynnt þingmönnum fyrirætlanir í þessum efnum. Hann teldi hugmynd- ir Ísfirðinga um gamla sjúkrahúsið vera mjög áhugaverðar og tæki undir viðleitni um að koma því máli áfram. Um hitt væri hann meira hugsi hvort rétt væri að slá einhverju föstu í þeim efnum á þessu stigi máls. Sammála menntamálaráðherra „Ég er hins vegar sammála menntamálaráðherra í því að þetta þarf að vera samkomulagsmál heima í héraði og vestfirskir sveitastjórnar- menn þurfa að tala sig saman um út- færslu málsins af því að menn eru að hugsa um að setja málið í svipaðan farveg og var gert á Austurlandi,“ sagði Kristinn. Hann sagði að menn yrðu að ráðg- ast um þetta með Ísafirði, Bolungar- vík, Patreksfirði og Hólmavík svo helstu staðir væru nefndir og ekki væri hægt að loka augunum fyrir því að menn vildu auðvitað skoða mögu- leikana á því að dreifa þessu eitthvað, eins og gert hefði verið á Austurlandi. Það væri ekkert ósanngjarnt að hlusta á sjónarmið Patreksfirðinga og Hólmvíkinga svo dæmi væru tekin áður en gengið yrði frá málinu. Kristinn H. Gunnarsson um menningarhúsin á Ísafirði Engin samþykkt hefur verið gerð ÞESSI börn á Akranesi létu ekki snjóleysið aftra sér í vetrarleikjunum á dögunum þegar ljósmyndara Morgun- blaðsins bar að garði. Víst er þó að þau yrðu glaðari kæmi meiri snjór svo auðveldara yrði að renna sér niður brekkurnar. Morgunblaðið/RAX Vetrarleikir á Akranesi ÁRNI Gunnarsson varð efstur í kjöri til flokksstjórnar Sam- fylkingarinnar en kosið var í stjórnina á landsfundi flokks- ins um helgina. Björgvin G. Sigurðsson varð í öðru sæti. Alls sitja 30 manns í flokks- stjórn og gáfu 70 manns kost á sér í stjórnina. Á þriðja hundrað manns tóku hins veg- ar þátt í kosningunni. Auk Árna og Björgvins náðu eftirfarandi kjöri í flokksstjórn: Ása Richards- dóttir, Skúli Alexandersson, Grétar Þorsteinsson, Arthur Morthens, Jón Gunnar Ott- ósson, Sigrún Stefánsdóttir, Cecil Haraldsson, Haukur Már Haraldsson, Hervar Gunnarsson, Magnús M. Norðdahl, Hólmfríður Sveins- dóttir, Ingibjörg Hafstað, Drífa Skúladóttir, Elín Björg Jónsdóttir, Skúli Thoroddsen, Jakob Frímann Magnússon, Helga E. Jónsdóttir, Jón Gunnarsson, Gísli Bragi Hjartarson, Linda Vilhjálms- dóttir, Kristín Blöndal, Páll Halldórsson, Þorkell Björns- son, Eiríkur Stefánsson, Gísli Gunnarsson, Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, Ásta Andrés- dóttir og Anna Kristín Ólafs- dóttir. Vegna kynjakvóta féllu út úr miðstjórn þeir Ingimar Ingimarsson og Kristinn T. Haraldsson. Landsfundur Samfylkingarinnar Árni Gunnars- son efstur í kjöri til flokks- stjórnar FLESTIR kaupendur 44 ríkisjarða á þessu ári og síðasta voru ábú- endur sem óskað hafa eftir kaupum á jörðinni og landbúnaðarráðuneyt- ið þá selt þeim jörðina samkvæmt ákvæðum 38. greinar jarðalaga frá 1976, án auglýsingar eða útboðs. Ríkiskaup leggja mat á verðmæti jarðarinnar fyrir ráðuneytið og er það verð látið gilda í flestum til- vikum, að sögn Sigríðar Norð- manns, lögfræðings hjá landbúnað- arráðuneytinu. Samkvæmt 38. grein jarðalaga nr. 65 frá 1976 er gert ráð fyrir því að landbúnaðarráðherra geti heim- ilað sölu á jörð án þess að hún sé auglýst til sölu og gengið til samn- inga við ábúendur, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Ábúendur þurfa að hafa búið á jörðinni í minnst 10 ár og jafnframt þurfa þeir að leggja fram yfirlýsingu við- komandi hreppsnefndar um að ábú- andi hafi setið jörðina vel og hreppsnefndin mæli með því að hann fái jörðina keypta. Jafnframt þarf ábúandi sem væntanlegur kaupandi að leggja fram meðmæli jarðanefndar viðkomandi sýslu með kaupunum. Í 38. grein jarðalaganna kemur fram að ákvæði hennar taki ekki til jarða sem þörf er á til opinberra nota eða skiptingar í náinni framtíð. Þá ná ákvæði greinarinnar ekki til jarða sem, að dómi t.d. Bændasam- taka Íslands og hlutaðeigandi nátt- úruverndarnefndar, eru líklegar til að verða nýttar til annars en bú- rekstrar, svo sem fólkvangar og sumarbústaðalönd. Þá eru þær jarðir undanskildar sem að mati Náttúruverndar ríkisins hafa sér- stök náttúrufyrirbæri innan sinna landamarka. Námaréttindi og rétt- ur til efnistöku eru jafnframt und- anskilin sölu, auk vatns- og jarð- hitaréttinda umfram heimilisþörf. Ráðherra telur sölu ríkisjarða í góðum farvegi Náist ekki samkomulag um verð milli ábúanda og landbúnaðarráðu- neytis er gert ráð fyrir að mat dóm- kvaddra manna ráði verðinu. Sigríður Norðmann segir sölu ríkisjarða samkvæmt 38. grein jarðalaganna fara þannig fram að ábúendur óski eftir því að kaupa jörðina og þeir leggi þá jafnframt fram meðmæli jarðanefndar og sveitarstjórnar með kaupunum, í samræmi við ákvæði greinarinnar. Þá sé gengið til samninga, sé þess- um skilyrðum fullnægt, en jörðin ekki auglýst til sölu. „Þegar ábúendur kaupa jarðir meta Ríkiskaup verð á jörðum í öll- um tilvikum fyrir ráðuneytið. Og það er yfirleitt alltaf farið eftir því mati,“ segir Sigríður. Guðni Ágústsson, landbúnaðar- ráðherra, segir að hlutlaus stofnun, Ríkiskaup, hafi haft það með hönd- um frá 1999 að meta verð ríkisjarða sem seldar eru ábúendum og Ríkis- kaup fari alfarið með verðmatið og fylgist í því skyni með þróun verð- lags á markaðnum. Að sögn Guðna hafa þingmenn verið því sammála hingað til að leigjendur eigi rétt á kaupum á þeirri jörð sem þeir búa á og segist hann telja þessi mál í mjög góðum farvegi. „Ef menn ætla með jarðirnar á markað verða menn að gera sér grein fyrir því að ríkið hefur ára- tugum saman leyft mönnum að leggja sitt eigið fé í ríkisjarðirnar. Þess vegna eiga menn íbúðarhúsin, ræktunina, girðingarnar og ég sé engar forsendur fyrir því að taka þessar eignir manna og bjóða þær almenningi til sölu. Ég tel miklu heppilegra að segja að ríkið ætli að selja einstaklingunum þessar land- búnaðarjarðir og þessir menn eiga þar möguleika eftir markaðsverði sem Ríkiskaup meta og fara með.“ Landbúnaðarnefnd ekki tekið jarðalög til skoðunar Drífa Hjartardóttir, formaður landbúnaðarnefndar Alþingis, segir nefndina ekki hafa skoðað það hvort þörf sé á endurskoðun jarðalaga, en það komi hins vegar til greina við nánari athugun að breyta lögunum. „Mín persónulega skoðun er sú að ríkið eigi að losa sig við þær jarðir sem það á og þær eigi að fara á al- mennan markað. En auðvitað verð- ur að gefa þeim forkaupsrétt sem hafa búið lengi á þeim,“ segir Drífa. Oft hefur staðið styrr um sölu ríkisjarða og í stjórnsýsluskoðun Ríkisendurskoðunar á jarðadeild landbúnaðarráðuneytisins árið 1998 er það gagnrýnt að jarðir sem heimilt var að selja samkvæmt fjár- lögum hafi ekki verið auglýstar, eins og rétt hefði verið að gera, samkvæmt jafnræðisreglu stjórn- sýslulaga. Ríkisendurskoðun féllst ekki á þau sjónarmið ráðuneytisins að jarðir sem bundnar séu samn- ingum eða afnotum séu ekki mark- aðsvara, á það reyni ekki nema jörð sé auglýst opinberlega. Í greinargerð landbúnaðarráðu- neytisins vegna stjórnsýsluskoðun- ar Ríkisendurskoðunar kemur fram að auglýsing á jarðnæði til sölu sem leigutaki óskar eftir að kaupa, þeg- ar hann á hluta framkvæmda eða jafnvel allar framkvæmdir á jörð- inni, myndi leiða til óraunhæfra til- boða, ef þau þá kæmu fram. Kæmi til greina að selja jörðina öðrum en ábúanda yrði væntanlegur kaup- andi einnig að kaupa allar eignir leigutakans á jörðinni og þá vænt- anlega gegn vilja ábúanda. Við slík- ar aðstæður myndi leigjandi, sem óskað hefði eftir kaupum á eign- arhluta ríkisins, væntanlega draga beiðni sína til baka. Ráðherra er heimilt að selja ábúendum ríkisjarðir án útboðs Verðmat Ríkiskaupa hefur langoftast verið látið gilda VEGNA fréttar í blaðinu í gær um sölu ríkisjarða skal það leiðrétt að Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, lagði ekki fram fyrirspurn til landbúnað- arráðherra á Alþingi 5. nóvember sl. heldur gerði hún þann dag athuga- semd við störf ráðherra vegna skrif- legs svars sem hann hafði lagt fram á Alþingi nokkrum dögum áður. Fyr- irspurnina sjálfa lagði Ásta formlega fram 4. október sl. Þá skal það leið- rétt að mánudaginn 12. nóvember bar Ásta ekki fram fyrirspurn um sama mál til ráðherra heldur gerði athugasemd við störf hans. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Gerði athuga- semd við störf ráðherra ♦ ♦ ♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.