Morgunblaðið - 22.11.2001, Síða 16

Morgunblaðið - 22.11.2001, Síða 16
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 16 FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ fiú safnar frípunktum og getur líka unni› utanlandfer›. Tveir aukavinningar dregnir út vikulega. Nánari uppl‡singar áwww.frikort.is fiú safnar hjá okkur... BORGARSKIPULAG Reykjavíkur hefur auglýst tillögu að nýju deili- skipulagi svokallaðs Vélamiðstöðv- arreits en hann afmarkast af Borg- artúni, Höfðatúni, Skúlagötu og Skúlatúni. Samkvæmt tillögunni er heimilt að byggja eina turnbygg- ingu, sem væri allt að 16 hæðum, á reitnum. Reiturinn er skilgreindur sem at- hafnasvæði og er þar gert ráð fyrir blandaðri atvinnustarfsemi með skrifstofum og faglegri þjónustu. Hönnuðir tillögunnar eru pk- hönnun / Pálmar Kristmundsson arkitekt og í greinargerð með tillög- unni segir að skipta megi svæðinu í þrjá flokka. Í fyrsta lagi sé um randbyggð við Skúlagötu að ræða þar sem litlar skipulagsbreytingar séu fyrirhugaðar. Í öðru lagi séu lóðir við Höfðatún með stakstæðum byggingum sem gert sé ráð fyrir að hverfi og í þriðja lagi tvær lóðir borgarinnar, Skúlatún 1 og Höfða- tún 2, sem megi sameina en við Skúlatún 1 hefur til skamms tíma verið Vélamiðstöð og Trésmiðja Reykjavíkurborgar. Gert er ráð fyrir að núverandi hús á þessum lóðum hverfi og ný- byggingar með bílageymslum neð- anjarðar komi í staðinn. Umferð beint niður Höfðatún Tillagan gerir ráð fyrir að á norð- urhluta reitsins eða norðan lóðanna við Skúlagötu verði heimilt að byggja 4–6 hæða hús en leyfilegt verði að byggja eina turnbyggingu sem yrði allt að 16 hæðum. Á suður- hluta reitsins skulu hæðir bygginga vera þrjár en hús geta þó verið allt að 4 hæðum þar sem landhalli leyf- ir. Þá væri æskilegt að byggja 1–2 hæðir ofan á húsin við Skúlagötu 59 þannig að þær byggingar verði þrjár hæðir eins og aðliggjandi hús. Tillagan miðast við að eitt bíla- stæði verði á hverja 40 fermetra húsnæðis en að auki skal gert ráð fyrir 75 bílastæðum á norðanverð- um reitnum fyrir starfsemi borg- arstofnana á Skúlagötu 2 og í Borg- artúni 3. Áætlað er að bílgeymsla verði neðanjarðar á öllum nyrðri reitnum en heimilt verði að gera bílageymslur neðanjarðar á öðrum lóðum. Þar sem landhalli gefur til- efni til má ein hlið bílgeymslunnar vera sýnileg. Gert er ráð fyrir að umferð af Suðurlandsbraut og Laugavegi of- anverðum verði beint niður Höfða- tún í stað þess að vera nú beint nið- ur Laugaveg. Þá er gert ráð fyrir hringtorgi við gatnamót Skúlagötu og Höfðatúns og við gatnamót Höfðatúns og Borgartúns. Loks er lagt til að reitnum verði skipt í tvennt með nýrri akbraut sem lægi í austur/vestur milli Höfðatúns og Skúlatúns. Hægt er að skoða tillögurnar í sal Borgarskipulags og Byggingafull- trúa í Borgartúni 3 fram til 12. des- ember en skriflegum athugasemd- um og ábendingum skal skila til Borgarskipulags fyrir 31. desem- ber. Nýtt deiliskipulag Vélamiðstöðvarreits í auglýsingu 16 hæða turnbygg- ing og tvö hringtorg Nýbyggingar séðar frá Borgartúni samkvæmt deiliskipulagstillögunni. Tún      Tillagan gerir ráð fyrir að bílastæði verði neðanjarðar en eitt stæði er áætlað fyrir hverja 40 fermetra húsnæðis. Teikning/pk-hönnun GÓÐUR, vænn og grænn eru ein- kunnarorð nýs leikskóla sem opn- aður var í Kópavogi í síðustu viku. Hefur skólinn hlotið nafnið Fífusal- ir en hann stendur við Salaveg. Það voru þau Guðmundur Helgi Róbertsson og Svanhildur Tekla Katrínardóttir, nemendur í Fífusöl- um, sem opnuðu skólann formlega með því að klippa á borða en séra Íris Kristjánsdóttir blessaði húsið og starfið sem þar mun fara fram. Húsið er á einni hæð og er grunn- flötur þess 756 fermetrar. Sveinn Ívarsson arkitekt hannaði bygg- inguna. Um lóðarhönnun sá Land- mótun ehf en lóðin er 3325 fermetr- ar að stærð. Verktaki á húsi var Baldur Jónsson en Garðyrkja ehf. sá um framkvæmdir á lóðinni. Framkvæmdir hófust í desember í fyrra og er áætlaður heildarkostn- aður við lóð og hús um 155 milljónir króna. Fífusalir tóku til starfa í þessum mánuði en alls munu um 120 börn dvelja í leikskólanum í 114 rýmum. Sex deildir eru í Fífusölum, þrjár fyrir 2ja og 3ja ára börn og þrjár fyrir 4ra og 5 ára börn. Starfað er eftir aðalnámskrá leikskóla en áhersla er lögð á umhverfisvernd og náttúrufræðslu og koma ein- kunnarorð skólans til af því. Kópavogur Morgunblaðið/Þorkell Grunnflötur byggingarinnar er 756 fermetrar og er hún á einni hæð. Guðmundur Helgi Róbertsson og Svanhildur Tekla Kristínardóttir, sem bæði eru á Fífusölum, voru ekki í vandræðum með að klippa á borðann. Nýr sex deilda leikskóli vígður SKIPULAGS- og byggingarnefnd Reykjavíkurborgar samþykkti á fundi sínum í gærmorgun að opna fyrir umferð um Hafnarstræti til austurs á nýjan leik í tilraunaskyni og koma þannig til móts við kaupmenn um jólin og aðra þá sem hag hafa af opnuninni. Hafnarstræti var lokað í mars árið 1997 við hús nr. 21 til bráðabirgða, eins og segir í samþykkt skipulags- og umferðarnefndar frá þeim tíma, eða þar til deiliskipulag lægi fyrir að lokinni endurskoðun. Sjálfstæðismenn lögðu fram tillögu í borgarráði í júlí sl. um að opnað yrði fyrir umferð um Hafnarstræti til austurs á nýjan leik og var þeirri til- lögu vísað til skipulags- og bygging- arnefndar. Var sú tillaga, að sögn Ingu Jónu Þórðardóttur, oddvita sjálfstæðismanna í borgarstjórn, efn- islega samþykkt með öllum greiddum atkvæðum á fundi skipulagsnefndar í gær. Er við það miðað að við opn- unina verði sett upp umferðarskilti sem heimili aðeins hægri beygju suð- ur Lækjargötu og ennfremur að sett verði upp umferðarljós móts við aust- urenda Simsenshúss. Að sögn Ingu Jónu má búast við að undirbúningur að opnun götunnar taki um tvær vik- ur. Inga Jóna segir sjálfstæðismenn ávallt hafa verið mótfallna lokun göt- unnar og mótmæltu þeir henni á sín- um tíma. Töldu þeir eins og kaup- menn í Kvosinni að lokunin myndi hafa slæm áhrif á verslun á svæðinu. „Það hefur líka komið á daginn að dregið hefur úr verslun í Kvosinni á þessum fimm árum frá því götunni var lokað,“ segir Inga Jóna. Hún vitn- ar ennfremur í nýlega skýrslu Lög- reglunnar í Reykjavík þar sem kem- ur fram að lokunin hefur valdið lögreglunni erfiðleikum við að sinna eftirliti í miðbænum. Það hefur, segir Inga Jóna, ekki verið til að bæta ástandið í miðbænum um nætur og helgar. Ekki náðist í Árna Þór Sigurðsson, formann skipulags- og byggingar- nefndar, í gær en tillögunni um opn- un Hafnarstrætis til austurs verður, að sögn Ingu Jónu, vísað til borgar- ráðs til samþykktar nk. þriðjudag. Opnað fyrir umferð um Hafnarstræti Miðborg RAUÐA KROSS deild Garðabæjar hyggst afhenda fjölskyldum barna í bænum sem fædd eru árunum 1986-1990 bókina „Fíkniefni og forvarnir“ en henni er ætlað að veita foreldrum og forráðamönn- um barnanna lið í baráttunni gegn fíkniefnum. Ásdís Halla Braga- dóttir bæjarstjóri tók nýlega við fyrsta eintaki bókarinnar, en hún á son á umræddum aldri. Bókin er rituð af 30 sérfræð- ingum á ýmsum sviðum sem tengj- ast áfengis- og fíkniefnamálum og er það Fræðslumiðstöð í fíknivörn- um sem gefur hana út. Ásdís Halla segist hafa saknað þess sem foreldri að fá ekki upp- lýsingar í þessum efnum. „Þó að maður telji sig hafa kynnt sér for- varnarstarf og hvernig eigi að bregðast við ef það kemur upp einhver hætta þá er það öðru vísi þegar maður er foreldri. Það stendur manni nær, það er miklu persónulegra og maður er sjálf- sagt fljótari að fara í einhvers konar afneitun fyrir því hvað er að gerast þannig að ég held að maður sem foreldri þurfi að hugsa um þessa hluti með öðrum hætti.“ Ás- dís Halla telur þörfina fyrir slíka bók mikla. „Það er ákaflega brýnt að foreldrar þekki ekki bara ein- kenni neyslunnar heldur hvernig eigi að bregðast við komi í ljós að börnin þeirra séu komin í neyslu. Það eru allt of mörg dæmi um það að foreldrar loki augunum fyrir ákveðnu hegðunarmynstri í fari barna sem er oft fyrsta einkenni um það að þróunin sé að fara í hættulegri farveg,“ segir hún. Foreldrar fá bók um fíkniefni og forvarnir Garðabær Morgunblaðið/Þorkell Valdimar Valdimarsson, for- maður Rauða kross deildar Garðabæjar, afhendir Ásdísi Höllu Bragadóttur bæjarstjóra fyrsta eintakið af bókinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.