Morgunblaðið - 22.11.2001, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 22.11.2001, Qupperneq 21
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2001 21 AGE FITNESS Áhrifaríkur kraftur ólífutrjáa - Yngri húð á 8 dögum. Kringlunni, sími 588 4777 Nýtt merki í Lyf og heilsu Kringlunni. Kynning í dag og á morgun kl. 13-18. Kynnum m.a. Age Fitness, krem sem eykur teygjanleika húðarinnar og verndar hana gegn utanaðkomandi áreiti. Age Fitness inniheldur hreint efni unnið úr laufblöðum ólífutrjáa. Líttu við og fáðu ráðgjöf og sýnishorn. Bowling taska eða bakpoki fylgir kaupum þegar verslað er fyrir kr. 4.000 eða meira. Listskautar:Vinil Hvítir: 28-44. Svartir: 33-46 Stærðir 28-36 kr. 4.201. Stærðir 37-46 kr. 4.689 Hokkískautar: Reimaðir Stærðir 37-46 Verð aðeins kr. 9.338 Smelluskautar: Stærðir 29-41 Verð aðeins kr. 4.989 Hokkískautar: Smelltir Stærðir 36-46 Verð aðeins kr. 5.990 Barnaskautar (Smelluskautar) Stærðir 29-36 Verð aðeins kr. 3.989 Listskautar: Leður Hvítir: Stærðir 31-41 Verð aðeins kr. 6.247. Svartir: Stærðir 36-45 kr. 6.474 Nýjung: Skautar undir HYPNO línuskautaskó kr. 4.823 Skeifunni 11, sími 588 9890 Opið laugardaga frá kl. 10-14 HIÐ nýstofnaða Sláturfélag Austur- lands hefur samþykkt að byggja nýtt útflutningssláturhús á Héraði innan tveggja ára. Þar verður einnig stórgripaslátrun og á að starfrækja húsið árið um kring. Uns hægt verð- ur að taka húsið í notkun eru slát- urhús Kjötumboðsins á Fossvöllum, á Egilsstöðum og Breiðdalsvík leigð. Undanfarið hefur stjórn Slátur- félagsins kynnt sveitarstjórnum eystra áform sín og hafa nokkur þeirra þegar ákveðið að leggja fé í stofnsjóð framleiðenda samvinnu- félagsins. Safna á 60 milljónum króna. Kaupfélag Héraðsbúa hyggst leggja fram 20%, Byggðastofnun 30% og beiðni um stofnframlag liggur til af- greiðslu hjá framleiðnisjóði landbún- aðarins. Reiknað er með að bændur verði með á milli 20 og 30% hlut. Þá hafa stórgripabændur samþykkt að taka þátt í Sláturfélagi Austurlands og því væntanlegri sláturhússbygg- ingu. Fyrstu áætlanir gera ráð fyrir að rekstur hússins verði arðbær. Sláturfélag Austurlands ætlar að starfrækja sláturhús allt árið Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Sláturfélag Austurlands hyggst leysa vandræðagang í slátrun eystra í eitt skipti fyrir öll með byggingu nýs útflutningssláturhúss. Hér sést gamla sláturhúsið á Egilsstöðum, sem rekið er af Kjötumboðinu. Nýtt útflutningsslátur- hús byggt á Héraði Egilsstaðir VÍKINGUR, félag ungra Sjálfstæð- ismanna á Sauðárkróki, boðaði til al- menns borgarafundar í samkomusal Fjölbrautaskólans nýlega. Tilefnið var fyrirhuguð sala núverandi meiri- hluta sveitarstjórnar á Rafveitu Sauðárkróks og sóttu fundinn rúm- lega eitthundrað gestir. Undanfarna daga höfðu farið fram viðræður við Rarik um kaupin, og var í upphafi stefnt að því að ef um sölu á fyrirtækinu yrði að ræða mundi frá því gengið fyrir 31. október. Rétt fyrir mánaðamót barst ósk frá rafmagnsfyrirtækjunum Rafsjá og Tengli á Sauðárkróki, þar sem óskað var eftir fresti til að leggja fram kauptilboð í rafveituna. Var sá frest- ur veittur til 5. þessa mánaðar, en á miðvikudaginn, þann dag sem borg- arafundurinn var haldinn, hafði byggðaráð samþykkt á fundi sínum að selja Rarik Rafveitu Sauðárkróks fyrir 320 milljónir. Var því fundurinn fremur umræðu- fundur um það hversvegna þurft hefði að selja fyrirtækið, og hvers- vegna fremur Rarik heldur en heima- aðilum, og hverjar afleiðingar þess yrðu, heldur en það hvort ætti að selja eða ekki. Í upphafi fundar ávarpaði Garðar Víðir Gunnarsson, formaður Víkings, fundargesti og gerði grein fyrir tilefni fundarins en síðan tók Ársæll Guð- mundsson aðstoðarskólameistari við fundarstjórn. Kynnti Ársæll þátttak- endur í umræðum, sem voru frá meirihluta sveitarstjórnar þau Her- dís Sæmundardóttir og Snorri Styrk- ársson, en frá minnihluta Árni Eg- ilsson og Gísli Gunnarsson. Héldu þeir Snorri og Árni framsöguræður, en síðan tóku þeir ásamt Herdísi og Gísla þátt í pallborðsumræðum og svöruðu fyrirspurnum úr salnum. Áður en kom að framsöguerindum flutti Einar Björgvin Eiðsson saman- tekt um sögu Rafveitunnar og skýrði rekstur hennar síðastliðin ár, rakti framkvæmdir og gerði grein fyrir eignum og skuldastöðu fyrirtækisins. Í framsöguræðu fjallaði Snorri um það hversvegna sveitarstjórn sá ekki önnur úrræði tiltæk en að selja eign- ir, og gerði grein fyrir erfiðri stöðu sveitarsjóðs, sem hann sagði að kæm- ist í þrot yrði ekkert að gert. Árni ræddi hinsvegar um þær leið- ir sem fyrri meirihluti vildi fara til lausnar á vandanum, en ágreiningur um þær milli aðila í fyrrverandi meirihluta varð til þess að samstarfi var slitið og fulltrúar Framsóknar- flokks tóku upp samstarf við Skaga- fjarðarlistann. Að loknum framsöguræðum tóku margir til máls og var auðheyrt að mjög þungur hugur var í fundar- mönnum varðandi söluna til Rarik. Þótti ræðumönnum þeim viðræðu- hópi sem stóð að samningunum hafa verið mjög mislagðar hendur. Bæði var það átalið að þegar ákveðið var að fara út í könnunarviðræður hefði ver- ið búið að gefa upp hvert viðunandi verð væri, án þess að raunhæft mat hefði verið lagt á verðmæti Rafveit- unnar, ákveðið hefði verið að selja Rarik og einnig það að heimaaðilum hefði verið gert að skila inn tilboði hinn 5. þessa mánaðar, en tilboð Ra- rik hefði ekki borist fyrr en degi seinna. Staðfestu þau Herdís og Snorri að tímasetning tilboðanna væri rétt, en annað ekki. Þá var átalið að meirihlutinn hefði reiknað tilboð Rarik upp um 20 millj- ónir, en tilboð heimamanna niður um álíka upphæð, og sögðu menn hér reiknikúnstir til þess eins fallnar að réttlæta þessa umdeildu ákvörðun. Fulltrúar meirihlutans svöruðu framkomnum fyrirspurnum og at- hugasemdum, en ljóst var að margir fundargestir töldu þær skýringar alls ekki fullnægjandi. Allir fyrirspyrjendur og ræðu- menn átöldu harðlega vinnubrögð meirihlutans utan einn sem taldi eðli- legt að selja Rafveituna, sem hann taldi ekki skipta máli varðandi af- komu sveitarsjóðs. Þegar fundur hafði staðið klukku- stund fram yfir áætlaðan fundartíma lokaði fundarstjóri mælendaskrá og að lokum þakkaði hann þátttakend- um og gestum fyrir málefnalegar og lýsandi umræður og sleit fundi. Þungur hugur í mönnum á borgarafundi á Sauðárkróki Skiptar skoðanir varðandi sölu á Rafveitu Sauðárkróks Sauðárkrókur ÞRÁTT fyrir neikvæðan söng fylgdi María Jónsdóttir eftir hug- mynd sinni og opnaði verslunina Fínt fólk með barna- og kvenfatnað í lok október. Jón Árnason, eig- inmaður Maríu, innréttaði hús- næðið og það tók tvær vikur. Það er ekki á hverjum degi sem ný verslun er opnuð í Borgarnesi en María er bjartsýn. „Viðtökurnar hafa verið frábærar og fólk hefur komið og þakkað mér fyrir framtakið og er ánægt með að þurfa ekki að sækja allt til Reykjavíkur,“ segir María. „Ég var sjálf orðin leið á því og er hér komin með vörur fyrir konur og börn, góð merki á góðu verði. Ég legg áherslu á að vera með heildarlínur í barnafatnaði og sel vörur frá Confetti, Exit og Osh Kosh. Í kvenfötunum er ég meira með „bland í poka“ og er með bæði hversdags- og spariklæðnað sem höfðar til kvenna á öllum aldri.“ Í versluninni verða hvorki skór né yfirhafnir til sölu, enda aðrar verslanir með þær vörur hér, en örugglega verður hægt að finna á sig jólakjólinn í Fínu fólki. Innan skamms verður opnuð vefsíðan www.fintfolk.com þar sem hægt verður að skoða vöruúrval og koma á framfæri athugasemdum. Vantaði vinnu og opnaði verslun Fínt fólk í Borgarnesi Borgarnes Ljósmynd/Guðrún Vala Elísdóttir María Jónsdóttir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.