Morgunblaðið - 22.11.2001, Page 24

Morgunblaðið - 22.11.2001, Page 24
ERLENT 24 FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ MIKILL ótti ríkir meðal íbúa borg- arinnar Kunduz, síðasta vígis tali- bana í norðurhluta Afganistans, vegna umsáturs hermanna Norður- bandalagsins. Íbúarnir óttast ekki aðeins sprengjuárásir bandarískra herflugvéla og yfirvofandi árás Norðurbandalagsins heldur einnig hugsanlegar hefndaraðgerðir þús- unda erlendra sjálfboðaliða sem hafa barist með talibönum. Erlendu hermennirnir hafast við í íbúðum, skólum, moskum og skrif- stofubyggingum og segjast ætla að berjast til síðasta blóðdropa. Íbúar Kunduz óttast miklar blóðsúthellingar ráðist Norður- bandalagið á borgina. Þeir eru einn- ig sannfærðir um að erlendu her- mennirnir ráðist inn í hús þeirra og taki íbúana í gíslingu í örvænting- arfullri tilraun til að komast hjá því að verða teknir til fanga eða jafnvel af lífi. Nokkrir herforingja banda- lagsins hafa hótað að drepa erlendu hermennina en segjast ætla að þyrma afgönskum liðsmönnum tal- ibana. Íbúunum stafar einnig hætta af sprengjum og flugskeytum frá bandarískum herflugvélum sem gert hafa árásir á borgina síðustu daga. Að minnsta kosti tvö flug- skeyti hafa misst marks og lent á íbúðarhúsum í Kunduz, að sögn flóttafólks frá borginni. Þrjú börn, sem voru að leik fyrir utan annað húsanna, biðu bana og nokkrir íbú- ar hins hússins særðust. Bandaríska varnarmálaráðuneyt- ið kveðst vera tilbúið að gera hlé á loftárásunum óski Norðurbandalag- ið eftir því. Íbúar Kunduz voru um 100.000 áður en Norðurbandalagið hóf sókn sína eftir hryðjuverkin í Bandaríkj- unum 11. september og að sögn breska útvarpsins BBC eru um 30.000 þeirra enn í borginni. Rumsfeld hafnar tilslökun Norðurbandalagið hefur hvatt talibana til að gefast upp en yf- irmaður umsátursliðsins, Khan Daoud hershöfðingi, kvaðst ekki vera bjartsýnn á að erlendu her- mennirnir legðu niður vopn. Hann sagði að bandalagið myndi fresta því að ráðast inn í borgina þar til í lok vikunnar og hugsanlega lengur til að gefa talibönum færi á að gef- ast upp og koma í veg fyrir blóðs- úthellingar. Donald Rumsfeld, varnarmála- ráðherra Bandaríkjanna, hefur hafnað því að fallið verði frá kröf- unni um að hermennirnir gefist upp. Hann segir að ekki komi til greina að hleypa erlendu hermönn- unum frá Kunduz og leyfa þeim að fara til annars lands þar sem þeir gætu haldið áfram hryðjuverka- starfsemi al-Queda, samtaka Osama bin Ladens. Leiði umsátrið til mikilla blóðs- úthellinga kann það að verða til þess að viðræðurnar sem ráðgerðar eru um myndun þjóðstjórnar í Afg- anistan fari út um þúfur, en þær eiga að hefjast í Berlín í næstu viku. Um 1.000 al-Qaeda-liðar meðal hermannanna Talibanar hafa haft bæði tögl og hagldir í Kunduz frá árinu 1996, ólíkt öðrum borgum í norðurhluta Afganistans þar sem þeir hafa aldr- ei verið traustir í sessi. Hersveitir talibana í Kunduz voru aðeins skip- aðar Afgönum þar til í fyrra þegar erlendir sjálfboðaliðar voru sendir þangað til að endurheimta bæinn Taloqan. Kunduz var þá gerð að höfuðstöðvum talibana á svæðinu og erlendu hermönnunum fjölgaði þar þegar talibanar hörfuðu frá borgum í norðurhluta landsins fyrir viku. Talsmaður Bandaríkjastjórnar í Pakistan segir að um 12.000 af- ganskir talibanahermenn séu enn í Kunduz og um 3.000 erlendir sjálf- boðaliðar. Fréttastofan AFP segir hins vegar að hermennirnir séu allt að 30.000. Norðurbandalagið segir að rúm- lega 10.000 erlendir hermenn séu í Kunduz og þeir séu meðal annars frá Pakistan, Úsbekistan, arabaríkj- um, Tsjetsjníu, Kína og Búrma. Um 1.000 þeirra séu í al-Qaeda. Hermennirnir eru dreifðir út um alla borgina og búa í moskum, skól- um sem talibanar lokuðu, og skrif- stofubyggingum sem hýstu áður hjálparstofnanir. Þeir hafa einnig lagt undir sig íbúðir borgarbúa sem hafa flúið. „Bráðum verða aðeins útlendir hermenn eftir“ Flóttafólk frá Kunduz segir að mikil hræðsla hafi gripið um sig meðal afganskra liðsmanna talibana sem reyni að selja byssur sínar til að geta greitt bílstjórum fyrir að aka þeim út úr borginni. Margir hermannanna hafa rakað af sér skeggið og klæðst gömlum fötum til að líta út fyrir að vera venjulegir flóttamenn í von um að geta laum- ast út úr borginni. „Bráðum verða aðeins útlendir hermenn eftir í borginni,“ sagði einn flóttamannanna. Hermt er að á síðustu dögum hafi erlendu hermennirnir drepið tugi afganskra liðsmanna talibana sem voru grunaðir um að ætla að flýja. Norðurbandalagið telur að um 5.000 afganskir hermenn hafi flúið frá borginni frá því að umsátrið hófst. Íbúar Kunduz óttast miklar blóðsúthellingar         !" # $   % &'#! ( #)#% % ** + +% ,!   !!                   -./' ! $ '01' ' "#!#$%& "2 ! '!#$ '01' ' (&&     Taloqan. The Washington Post, AFP. Reuters Hermenn Norðurbandalagsins á skriðdrekum sem þeir náðu af talibönum í nýlegum bardögum nærri sýslu- mörkum Kunduz en Kunduz er eina borgin í Norður-Afganistan sem enn er undir yfirráðum talibana. BANDARÍKIN og fleiri auðug ríki hafa hafist handa við að undirbúa áætlun um enduruppbyggingu Afg- anistans eftir fall talibanastjórnar- innar. Embættismenn frá 21 ríki og Evrópusambandinu komu saman í Washington í fyrradag til að ræða áætlunina. Þeir lögðu áherslu á að hún þyrfti að bera skjótan árangur en sögðu að það myndi taka mörg ár og kosta mikla peninga að byggja landið upp að nýju eftir meira en tveggja áratuga stríð, þurrka og pólitískar ættflokkaerj- ur. „Okkur ber mikil skylda til, ekki aðeins Bandaríkjunum heldur öllu alþjóðasamfélaginu, að skilja ekki afgönsku þjóðina eftir bjargarlausa og ganga ekki í burtu eins og gert var um árið,“ sagði Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á ráðstefnunni í Washington. Powell skírskotaði til ársins 1989 þegar Sovétmenn kölluðu hermenn sína frá Afganistan og Bandaríkin og fleiri ríki létu hjá líða að veita Afgönum aðstoð. Powell og fleiri embættismenn á ráðstefnunni hétu því að sagan myndi ekki endurtaka sig. Árangur næst ekki án þjóðstjórnar Þeir lögðu hins vegar áherslu á að áætlunin um enduruppbygging- una gæti ekki borið árangur nema leiðtogar hinna ýmsu þjóðarbrota og fylkinga í Afganistan næðu sam- komulagi um að mynda þjóðstjórn. Ráðgert er að leiðtogar fylking- anna hefji viðræður um stjórnar- myndun á vegum Sameinuðu þjóð- anna í Berlín í næstu viku. Alan Larson, aðstoðarutanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, sagði að ríkin sem tóku þátt í ráðstefnunni vonuðust til þess að geta hafið end- uruppbyggingu mikilvægra mann- virkja í borgum og ræktaðs lands í sveitunum samkvæmt áætlun sem ætti að bera sýnilegan árangur á ári hverju. Bandarískir og japanskir emb- ættismenn sögðu líklegt að í fyrstu yrði lögð áhersla á að byggja upp landbúnaðinn, skóla, vegi og raf- magns- og vatnsveitur. Ráðgert er meðal annars að senda kennara, aðallega konur, til Afganistans. Embættismennirnir sögðu að of snemmt væri að meta kostnaðinn. Mark Mallach Brown, yfirmaður Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóð- anna (UNDP), sagði þó að áætl- unin myndi kosta 6,5 milljarða dala, andvirði 700 milljarða króna, fyrstu fimm árin. Nefnd, skipuð embættismönnum frá Bandaríkjunum, Japan, Sádi- Arabíu og Evrópusambandinu, á að skipuleggja enduruppbygginguna og afla áætluninni stuðnings. Heita því að sagan endur- taki sig ekki Áætlun um aðstoð við Afgana undirbúin Washington. Newsday. AP Afganar sem flúið höfðu yfirráð talibanastjórnarinnar fara yfir ána Kokcha við Dash-I-Qala í gær á leiðinni til svæða í Suður-Afganistan sem Norðurbandalagið hefur nú náð á sitt vald.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.